Læknablaðið - 01.09.2015, Page 34
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
brynjólfur
ingvarsson
læknir
bringv@gmail.com
Læknafélag Akureyrar var stofnað þann
1934 á heimili Steingríms Matthíassonar
læknis að Spítalavegi 9 og varð því 80 ára
2014. Að stofnun félagsins stóðu Stein-
grímur, Helgi Skúlason, Jón Steffensen,
Árni Guðmundsson, Pétur Jónsson, Jón
Geirsson og Valdemar Steffensen. Jónas
Rafnar og Friðjón Jensson gengu í félagið
1935, Guðmundur Karl
Pétursson 1937, Jóhann Þorkelsson 1937 og
Stefán Guðnason héraðslæknir, á Dalvík
1939. Aðaltilgangur félagsskaparins var
að ræða taxtamálið, mismunandi gjald-
skrá héraðslækna og praktíserandi lækna
í bænum, næturvörslu og „að læknar
flyttu öðru hvoru á fundum félagsins erindi
um læknisfræðileg efni og miðluðu þannig af
reynslu sinni og þekkingu… og að vinna gegn
þeirri einangrun, sem ætíð væri hætta á hjá
þeim læknum sem störfuðu í fámenni“ eins og
segir í fundargerð.
Félögum í Læknafélagi Akureyrar
fjölgaði hægt næstu ár og áratugi, voru
samtals 14 árið 1963, er undirritaður
kynntist fyrst þessum félagsskap; sex
spítalalæknar, þrír bæjarlæknar, tveir
á Kristnesi, tveir héraðslæknar og einn
augnlæknir. Ólafsfjarðarlæknir var ekki
með, hann hefði þurft að fara sjóveg, því
hvorki Múlavegur né Múlagöng voru
komin. Ekki heldur Grenivíkurlæknir,
sem var að vísu í bílvegasambandi, en
vetrarferðir voru langar, strangar og mjög
háðar færð og veðri
Síðan fjölgaði hraðar, einkum eftir
1970 og félagar voru orðnir 64 um miðjan
tíunda áratug síðustu aldar. Eftir það
hefur fjölgunin orðið hægari, einkum á
þessari öld.
Fyrstu 60 árin
Það var gæfa félagsins og hvalreki fyrir
söguritunina að á 60 ára afmælinu 1994
rakti Ólafur Sigurðsson yfirlæknir
lyflækningadeildar FSA sögu félagsins
frá stofnun 1934 og með þeim ágætum að
ekki verður um bætt. Er því látið nægja
hér að vísa í Læknablaðið 81. árgang fylgirit
nr 28, júlí 1995, þar sem myndarlega
er minnst tímamótanna frá ýmsum
sjónarmiðum. Ólafur nefnir þrjá heiðurs-
félaga, Helga Skúlason, Jónas Rafnar
og Jón Steffensen. Síðan hafa aðrir þrír
bæst við, Þóroddur Jónasson 1994, Ólafur
Sigurðsson 1994 og Inga Björnsdóttir 2005.
Atvik urðu til þess að ég kynntist þessu
vel gerða afreksfólki nokkuð náið og veit
að öll áttu þau heiðurinn skilið þó að ævi-
söguritun bíði, en ég held að það meiði
engan né móðgi þó að ég telji Þórodd og
Ólaf hafa skarað fram úr hinum.
Síðustu 20 ár
Undanfarna tvo áratugi hefur starfsemi
Læknafélags Akureyrar fyrst og fremst
snúist um kjaramál, fjölbreytta fræðslu,
útgáfustarf (til dæmis Vox medicorum 1993-
2007) og uppbyggingu Gudmanns Minde,
fyrsta sjúkrahússins á Akureyri í Aðal-
stræti 14. Verður nú reynt að gera þessum
atriðum nokkur skil.
Fræðslufundir hafa verið fjöldamargir
á hverjum vetri þar til nú allra síðustu
árin. Yrði of langt mál að rekja þá sögu
alla í smáatriðum, en hins vegar er rétt af
ýmsum ástæðum að taka haustþingin út
úr og gefa yfirlit yfir þann merkilega þátt
fræðslustarfsins. Þau byrjuðu reyndar með
vorþingum að Möðruvöllum í raungreina-
húsi Menntaskólans á Akureyri fimm ár í
röð; 1983 Málþing um bráða slysameðferð,
1984 Málþing um innkirtlafræði, 1985 Mál-
þing um samskipti lækna, 1986 Málþing
Læknafélag Akureyrar 80 ára
Haustþing Læknafélags Akureyrar
og Norðausturlandsdeildar Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga
1988: Geðlækningar
1989: brjóstakrabbamein
1990: kvensjúkdómar
1991: barnasjúkdómar
1992: Endurhæfingar
1993: Mjóbaksverkur
1994: Afmælis- og hátíðarfundur
1995: Heimilislækningar
1996: öldrunarlækningar
1997: Giktsjúkdómar
1998: Sjúkdómar í blöðruhálskirtli
1999: Geðraskanir
2000: kvensjúkdómar
2001: barnasjúkdómar
2002: Hjarta- og æðasjúkdómar
2003: Meltingarfærasjúkdómar
2004: Lungnasjúkdómar
2005: Endurhæfing
2006: Verkjameðferð
2007: Sýkingar og sóttvarnir
2008: bráðaþjónusta á landsbyggðinni
2009: Heilbrigðisþjónusta aldraðra
2010: kynheilbrigði
2011: Sykursýki, offita o.fl.
2012: Heilbrigðisþjónusta í dreifbýli
2013: Sjúkdómar í kviðarholi
2014: Geðheilbrigði
2015: Slitgikt