Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2009, Page 11
10 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
með ljáinn. Samt lifðu af nokkur tákn sem skírskotuðu á óbeinni
hátt til dauðans, hinna óum f lýjanlegu endaloka jarðnesks lífs.7
Árið 1644 var ein þessara miklu innf luttu grafarhellna sett Ragn heiði
Eggertsdóttur sýslumannsfrú, ekkju Magnúsar prúða Jónssonar sýslu-
manns í Ögri. Ragnheiður lést 1642 og er hún grafin í Sauð lauks dal.
Erfingjar hennar létu gera þennan legstein erlendis, að öllum líkindum
í Danmörku, og mun hann hafa kostað 50 ríkisdali að því er Bogi
Benedikts son segir í Sýslumannaæfum.8 Til að reyna að setja þetta í sam-
hengi við jarðarverð og færa til núvirðis má geta þess að meðaljörð var
lengstum metin á um 20-24 hundruð. Ríkisdalurinn mun hafa verið
ofmetinn á Íslandi en í verslunartaxtanum frá 1619 var ríkisdalurinn
ákveðinn 22,5 álnir. Hefur því erlendi legsteinninn kostað 1125 álnir en
120 álnir eru í kúgildinu (hundraðinu).9 Verð steinsins hefur því verið
9 hundruð og 45 álnir (9,375 hundruð) og má því sjá að steinninn gæti
hafa kostað tæplega hálft verð meðaljarðar. Þótt meðaljörð í dag með
byggingum sé hlutfallslega dýrari er þó ljóst að í dag myndi þetta nema
nokkrum milljónum króna. Flestar er þessar stóru erlendu grafarhellur að
finna á einum stað á biskupsstólunum í Skálholti og á Hólum en þær eru
þó til mjög víða í kirkjugörðum hérlendis auk stórra íslenskra legsteina
sem getið verður hér á eftir.10 Hver þessara erlendu steina er oft afar mikið
tak. Ekki er óalgengt að lengd þeirra sé tæpir tveir metrar, breiddin einn
og hálfur metri og þykktin milli tíu og tuttugu sentímetrar. Vega þessir
steinar oft á annað tonn.
Á hinum erlendu grafarhellum frá 17. öld eru algengustu tákn mynd-
irnar merki guðspjallamannanna, þ.e. engill Mattheusar, ljón Markúsar,
naut Lúkasar og örninn sem er tákn Jóhannesar. Þetta eru lágmyndir
meitl aðar upphleyptar (bas relief ) í skálum á hornum steinsins. Oft standa
táknmyndirnar einar en algengara virðist að guðspjallamennirnir séu
sýndir við skriftir og táknmyndirnar birtist að baki þeim. Ekki virðist
nein algild regla í hvaða horni hver lágmynd sé en röðin er algeng ust eins
og hún er talin upp hér að ofan. Einnig má sjá á hornum þessara steina
líkingarfullar (allegórískar) lágmyndir sem sýna dyggðir mannsins. Oft
eru þetta kvenmyndir sem er algengasta birtingarform dyggð anna og
sýna oft Caritas, táknmynd kærleikans og Fides sem er táknmynd trúar
og trúfestu auk f leiri táknmynda. Einnig má sjá á þessum gömlu erlendu
steinum táknmyndir sem tengjast memento mori eða áminningu dauðans
og er þar algengust hauskúpan á leggjum en einnig eru táknmyndir sem
minna á hve ævin er hraðf leyg og er þar helst að telja stundaglasið sem