Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2009, Page 19
18 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ókunnugt en reynt hefur verið að koma fram með tilgátur sem varpað
gætu á það ljósi og síðar verður vikið að. Höfundareinkenni stein smiðsins
eða steinsmiðanna í Görðum eru sterk og má því með nokkurri vissu bera
kennsl á verkin hvar sem þau er að finna. Flestir þessara steina eru saman
komnir á einum stað í Garðakirkju garði á Álfta nesi. Hafa þeir því verið
nefndir einu nafni Garðasteinar. Þeir finnast þó víða, frá Árnesprófastsdæmi
í austri, vestur allt Kjalarnesprófasts dæmi og upp í Borgarfjörð.26 Þótt
handbragðinu verði vart jafnað saman við handbragð „barokkmeistara
Íslands“, Guðmundar í Bjarnastaðahlíð, er ljóst að smiðurinn hefur verið
vel að sér í táknfræði, biblíutilvitnunum og leturgerð. Vel má vera að
hann hafi kynnt sér legsteina á ferðalögum erlendis en þegar rýnt er í
englamyndir og annað skreyti á steinunum og borið er saman við erlenda
steina hérlendis frá sama tíma, læðist að manni efi um að um lærðan
steinsmið sé hér að ræða, þótt haganlega sé meitlað. Að minnsta kosti er
ólíklegt að steinsmiðurinn í Görðum hafi fullnumað sig í iðninni.
Steinar þessir eru mjög misstórir, frá fremur smáum steinum undir metra
á lengd og upp í tæpa grafarstærð. Oft eru þeir um 120-180 cm á lengd
og um 50-70 cm á breidd. Oftast er strikað meðfram öllum brúnum og
oft eru strikin tvöföld. Algengir eru lykkjudrættir sem vindast saman og
mynda heilan ramma. Vængjuð englahöfuð eru á f lestum steinunum og
eru þau með svo sérstökum stíl að nota má til að ákvarða hvort f lokka eigi
stein til Garðasteina. Þau eru ekki óhaganlega gerð en drættirnir nokkuð
einfaldir og þau alls ólík öðrum vængjuðum englahöfðum sem sjá má á
erlendum innf luttum steinum frá sama tíma. Í mörgum tilfellum má sjá
stundaglas á steinunum og stundum eru tveir fætur undir áletruninni,
mjög einfaldir að gerð, og standa þeir á tveimur bogadregnum strikum.
Oft eru stjörnur og rósir milli englamyndanna.
Björn Th. Björnsson listfræðingur hefur sett fram þá tilgátu að stein -
smiðurinn hafi verið síra Þorkell Arngrímsson sem prestur var í Görðum á
árunum 1657 til dánardags 1677. Síra Þorkell var sonur Arn gríms Jónssonar
lærða og faðir Jóns Vídalíns biskups. Björn bendir á nokkur atriði sem
tengt geta síra Þorkel við steinsmíðina. Eftir nám í Hólaskóla hélt Þorkell
til Kaupmannahafnar og nam hjá Ole Worm þar sem áhugi hans hneigðist
að náttúruvísindum, málma- og jarðfræði og læknislist. Þorkell nam síðar
í Leiden í Hollandi, Amsterdam og síðast í Lundúnum. Eftir það lá leið
hans til Noregs þar sem hann vann að steina- og málmrannsóknum hjá
Jörgen Bjelke bróður Hinriks Bjelke höfuðsmanns. Hugur síra Þorkels
mun fremur hafa hneigst að náttúrurannsóknum en prestsverkum og
rannsakaði hann ýmis náttúrufyrirbæri hér á landi. Björn bendir þó á að