Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2009, Side 29
28 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
niður á sléttlendi á nokkurs konar skíðum og fékk vini og kunningja til
að draga letrið á þá með krít og hjó það svo sjálfur. Hannes bendir á að
f lestir legsteinar Jakobs muni vera í grafreitum út að austan í Skaga firði
svo sem í Stóra-Holti en að þeir séu víða, að minnsta kosti á Hofs stöð-
um og Mælifelli. Jakob mun hafa sótt sér stein í Hamarshyrnu í Stíf lu
og ætlað að setja sjálfum sér þegar þar að kæmi en honum entist ekki
til þess aldur að ljúka við steininn. Hann lést á Minni-Brekku þann 2.
febrúar árið 1900 og hvílir í kirkjugarðinum í Stóra-Holti.45
Höfundur þessarar greinar hefur á ferðum sínum um Skagafjörð
athug að marga garða og vill eigna Jakobi steina í Goðdalakirkju garði,
Reykja kirkjugarði, á Silfrastöðum og á Víðimýri þótt þar hafi Jakob þá
haft mun meira við en algengast var. Að auki eru f leiri steinar í görðum
út að austan í Skagafirði eins og Hannes bendir á.46
Finnur á Kjörseyri
Finnur Jónsson, bóndi og fræðimaður á Kjörseyri í Hrútafirði, er talinn
hafa gefið sig nokkuð að smíði legsteina. Í kirkjugarðinum á Prestbakka
í Hrútafirði eru þrettán legsteinar sem munu verk Finns, f lestir frá
tímabilinu 1865 og fram yfir aldamót. Þetta eru blágrýtisstuðlar, oft
með kistulagi og kross meitlaður yfir einn f löt steinanna nærri enda
þeirra. Steinarnir, sem voru mjög signir í jörð áður en þeir voru hafnir
úr jörðu 1994, hafa varðveist vel og letur mun lítt veðrað.47
Verið getur að steinar eftir Finn séu víðar til þótt höfundi sé það ekki
kunnugt. Þó er að finna í Austur-Húnavatnssýslu legsteina sem svipar
til þessarar lýsingar, á Holtastöðum í Langadal og í Bólstaðarhlíð. Þeir
eru að vísu svo veðraðir að vart verður á þá lesið, öfugt við steinana á
Prestbakka og er því ekki víst að þeir verði raktir til Finns á Kjörseyri.
Sverrir Runólfsson
Einn fyrsti lærði steinsmiðurinn hér á landi á 19. öld var Sverrir Run-
ólfs son, afkastamaður í mörgu, bæði byggingum og legsteina smíði, og
setti svip á samtíð sína. Hann var fæddur þann 9. júlí 1831 á Maríu bakka
á Síðu, sonur Runólfs Sverrissonar (1803-1879) og konu hans Guðrúnar
Bjarnadóttur (1803-1868).48 Til er stutt æviágrip hans sem upphaf lega
birtist í Þjóðólfi árið 1909 en var síðar gefið út sem sérprent. Sverrir
dvald ist eystra þar til hann var tuttugu og sex ára að hann sigldi utan til
Kaupmannahafnar. Sverri, sem ævinlega talar um sig í þriðju persónu,
segist svo frá er hann kom til Hafnar: