Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2009, Page 148
HVERNIG BYGGÐIST YTRIHREPPUR? 147
Enda þótt Landnáma segi ekki annað en að Naddoddssynir hafi numið
land sameiginlega hafa ýmsir, fyrst líklega Brynjúlfur frá Minna-Núpi,
viljað skipta landnáminu á milli þeirra um Litlu-Laxá sem fellur eftir
hreppnum endilöngum. Brynjúlfur taldi líka að Selslækur væri „nú án
efa sama sem Litla-Laxá“ og Már hefði selt allt landnám sitt.23 Haraldur
Matthíasson taldi á hinn bóginn Selslæk vera þar sem nú heitir Áslækur í
mörkum jarðanna Grafarbakka og Áss sem áður var hjáleiga frá Hruna.24
Þorbjörn jarlakappi hefði þá fengið allt land á milli Stóru-Laxár og
Litlu-Laxár upp að Áslæk og Másstaðir hefðu verið einhversstaðar á milli
Laxánna ofan Áslækjar.
Brynjúlfur frá Minna-Núpi giskaði á stað framan undir Árfelli í landi
Hörgsholts þar sem sést hefur til fornra rústa en þær eru nú eyðilagðar
af vatnsrofi og uppblæstri. Brynjúlfur skoðaði tóftirnar á sínum tíma
og segir „að sjá sem það hafi verið tvær tóftir samhliða, hér um bil
jafnlangar og jafnvíðar [...] Hefir lengdin verið nál. 10 fðm. og breiddin
beggja tóftanna til samans nál. 4 fðm.“25 Áður hafði Brynjúlfur getið
þess til að Másstaðir hefðu verið við Hrunakrók, sem var hjáleiga frá
Hruna ofan núverandi byggðar.26 Þar mun hafa verið býli á 11. öld sem
hér aftar verður kallað *Forni-Hruni til aðgreiningar frá hjáleigunni
Hrunakróki.27
Telja verður ólíklegt að landnámuritarar hafi hugsað sér að Már hafi
selt einum manni allt land upp að Áslæk, þar með meginhluta undirlendis
í hinu ætlaða landnámi Más á milli Laxánna, og að það hafi enn verið
óbyggt þegar ætla má að Þorbjörn jarlakappi hafi sest þar að. Samkvæmt
Jarðabók Árna og Páls voru 10 eða 11 jarðir auk hjáleigna í þessum hluta
hreppsins framan Áslækjar, þar með Hólastaður (Hrepphólar) og tvö
önnur stórbýli, Miðfell og Efra-Langholt, bæði talin sextíu hundraða
jarðir.28
Selslækur væri þá neðar í hreppnum en Áslækur og varla um annað
að ræða en Stekkjarlæk sem er í uppmörkum Hrepphólatorfunnar. Hann
kemur úr Seldal í landi Galtafells, þar sem Hólastaður hafði selstöðu áður
fyrr, og kallast þar Seldalslækur.29 Þegar vestar dregur fellur lækurinn um
Miðfellsgil sem er í mörkum milli Hólatorfunnar og Miðfellshverfis.
Vestur við Langholtsf jall sameinast Stekkjarlækur Langholtsósi sem
skilur lönd Birtingaholts og Syðra-Langholts. Land Þorbjarnar hefði
þá verið Hrepphólatorfan (með Núpstúni, Hólakoti og Sóleyjarbakka)
ásamt Birtingaholti. Það er af svipaðri stærð og landið handan Stóru-
Laxár sem í Landnámu er eignað Þrándi mjöksiglanda landnámsmanni í
Þrándarholti.30