Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Síða 20
föstudagur 17. apríl 200920 Fókus
um helgina
AllrA síðAstA
sýning
Vesturport er með allra, allra síðustu
sýningu á Dubbeldusch í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu á morgun, laugar-
dagskvöld, klukkan 23. Hún kemur
til vegna uppseldrar lokasýningar
klukkan 20 sama kvöld. Dubbeld-
usch, sem er eftir Björn Hlyn Har-
aldsson, hefur verið sýnt við góðar
undirtektir í Hafnarfjarðarleikhús-
inu á þessu ári og var sýnt fyrir fullu
húsi hjá Leikfélagi Akureyrar á síð-
asta leikári. Björn Hlynur er einnig
leikstjóri verksins en með aðalhlut-
verk fara Hilmar Jónsson, Harpa
Arnardóttir og Davíð Guðbrandsson.
Þess má geta að Dubbeldusch var
tilnefnt til Menningarverðlauna DV
fyrr á árinu.
styður Fjöl-
skylduhjálp
Ragnheiður Gröndal og þjóð-
lagasveitin eru meðal þeirra sem
koma fram á tónleikum í kvöld til
stryktar Fjölskylduhjálp. Einnig
koma fram Svavar Knútur, The
Fancy Toys frá Bretlandi og Thin
Jim and the Castaways. Tón-
leikaveislan fer fram í Bíósaln-
um á Hótel Loftleiðum. Hótel
Loftleiðir og þeir listamenn sem
að tónleikunum koma vilja með
þessu móti leggja sitt af mörkum
til að aðstoða þá sem erfitt eiga
uppdráttar í íslensku þjóðfélagi í
dag. Miðaverð er 1.200 krónur en
miðar eru seldir í síma 444 4500
og við dyrnar.
stungið AF til
suður-Ameríku
Á Listasafni ASÍ stendur yfir sýning
listakonunnar Bjargeyjar Ólafsdótt-
ur: Stungið af til Suður-Ameríku. Á
sunnudaginn verður Bjargey með
listamannaspjall þar sem hún ræðir
verk sín. Sýningin samanstendur
af teikningum sem Bjargey bjó til á
ferðalagi sínum um Suður-Ameríku.
„Ég hef alltaf teiknað fólk frá því að
ég var barn og þegar ég var að læra
handritaskrif og kvikmyndaleik-
stjórn í Amsterdam fóru persónurn-
ar sem ég teiknaði að tala. Ég fór svo
til Suður-Ameríku og þá fóru þær að
tala miklu meira,“ segir listakonan
Bjargey um verk sín.
Félagið Ísland-Palestína hefur sett
af stað hönnunarsamkeppni á
plötuumslagi fyrir væntanlega safn-
plötu sem félagið hyggst gefa út.
Landsþekktir listamenn leggja fé-
laginu lið en platan mun innihalda
16 lög. Þeir sem eiga lag á plötunni
eru meðal annars Mugison, Lay
Low, Hjaltalín, Agent Fresco og FM
Belfast.
Ágóði af plötunni sem um ræðir
mun renna til þess að aðstoða fólk á
hinni stríðshrjáðu Gaza-strönd sem
varð nýlega illa úti í vægðarlausum
árásum Ísraelshers á svæðið. Plat-
an hefur hlotið nafnið Inshallah en
hönnunarsamkeppnin fyrir plötu-
umslagið er unnin í samstarfi við
Félag íslenskra teiknara. Það eru því
einungis félagsmenn sem hafa þátt-
tökurétt. Eðli málsins samkvæmt
eru engin verðlaun í boði fyrir þann
sem sigrar önnur en þau að leggja
góðu málefni lið. Allir sem að plöt-
unni koma gefa vinnu sína.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fé-
lagið Ísland-Palerstína gefur út slíka
plötu. Árið 2004 lögðu fjölmargir
listamenn félaginu lið á safnplöt-
unni Frjáls Palestína. Markmið út-
gáfunnar var að safna fé til handa
æskulýðsstarfi í Balata-flótta-
mannabúðnum á Vesturbakkanum
og sýna íbúum hertekinnar Palest-
ínu samstöðu.
Áhersla er lögð á að það fé sem
safnast fyrir nýju plötuna renni til
barna á Gaza sem urðu mörg illa úti
í árásum Ísraelsmanna.
asgeir@dv.is
Ísland-Palestína eflir til hönnunarsamkeppni fyrir plötuumslag á safnplötu.
landsþekktir styðja gaza
Ég hef orðið fyrir vonbrigð-um því ég hélt að fólk myndi vígbúast og að við fengj-um alvarleg viðbrögð. En
það virðast einungis kverúlantar
sem hafa ekki farið á myndina sem
bregðast við henni á hinn mátann.
Annars hafa viðbrögð verið ótrú-
lega góð,“ segir Þorfinnur Guðnason,
kvikmyndagerðarmaður og ann-
ar leikstjóra heimildamyndarinnar
Draumalandsins sem frumsýnd var
á dögunum. Gagnrýnendur hafa far-
ið lofsamlegum orðum um myndina
og aðsókn verið góð sem ekki er sjálf-
gefið þegar heimildamynd á í hlut.
Draumalandið er byggð á sam-
nefndri metsölubók Andra Snæs
Magnasonar, meðleikstjóra Þorfinns,
sem kom út fyrir þremur árum og
vakti sterk viðbrögð. Í bókinni rýnir
Andri í íslenskan samtíma á breið-
um grundvelli. Þar eru fjölmargir
stjórnmálamenn, embættismenn og
aðrir málsmetandi menn gagnrýnd-
ir og þær stefnur og ákvarðanir sem
þeir hafa staðið fyrir síðustu ár og
áratugi. Bókin seldist í bílförmum og
er líklega með umtöluðustu íslensk-
um bókum sem komið hafa út hér á
landi. En eins og Þorfinnur segir átti
hann von á meira umtali um mynd-
ina.
Bjóst við meiri látum
„Þetta hefur komið svolítið á óvart.
Ég hélt að það yrðu meiri læti,“ seg-
ir Þorfinnur hissa. „Við höfum bara
fengið hrós en þeir sem eru fylgjandi
þessari svokölluðu stóriðjustefnu
hafa ekkert látið heyra í sér. Ann-
aðhvort vilja þeir ekki fara á mynd-
ina eða þeir telja að það borgi sig að
þegja. Annars hef ég ekki hugmynd
um það,“ segir Þorfinnur og bætir við
að hafa verði samt í huga að stutt sé
liðið frá frumsýningu myndarinn-
ar. Einu viðbrögðin sem hann hefur
orðið var við er blaðagrein Jóhannes-
ar Geirs Sigurgeirssonar, fyrrverandi
stjórnarformanns Landsvirkjunar,
en hún sé einungis viðbrögð við um-
mælum sem Sigurður Gísli Pálma-
son, framleiðandi myndarinnar, við-
hafði um Landsvirkjun í viðtali.
Valgerður Sverrisdóttir, fyrrver-
andi iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
kemur einna verst út í Drauma-
landinu en hún var í framvarðasveit
þeirra sem komu stóriðjustefnunni
í gang hér á landi. Þorfinnur kveðst
ekki einu sinni hafa heyrt af við-
brögðum frá Valgerði eða hennar
stuðningsmönnum.
„Hún er reyndar á Klörubar á
Kanarí með Guðna Ágústssyni skilst
mér. Ég las það alla vega í einhverju
smælki,“ segir Þorfinnur og hlær og
kveðst myndu hafa gaman af því ef
hún hefði samband eftir heimkom-
una.
Óx í augum að gera myndina
Bók Andra Snæs er viðamikil og á
köflum afar fræðileg. Spurður seg-
ir Þorfinnur það því vissulega hafa
vaxið sér í augum í upphafi að gera
mynd byggða á efni hennar.
„Jú, það gerði það, og af því að
hún er huglæg, af því að hún fjallar
um hugmyndafræði og þess háttar.
Enda tók það okkur þrjú ár að kom-
ast að þessari niðurstöðu. Hún óx
mér því vissulega í augum til að byrja
með en við reyndum að finna nýjan
flöt á henni og ég held að okkur hafi
tekist það.
Maður verður líka að átta sig á því
að mörg þeirra svæða sem Andri var
að ræða um í bókinni var eitthvað
sem maður varð að ímynda sér því
maður hafði aldrei komið þangað.
Þess vegna var mikill fengur af því að
fá að gera þessa mynd, til að einmitt
sýna þau svæði sem nú eru horfin
og þau sem eru á dauðalistanum. Ég
held að fólk geti samsamað sig bet-
ur við þessi svæði ef það sér þau á
filmu í stað þess að reyna að ímynda
sér hvernig þessi svæði eru. Ég er
líka mjög stoltur af því að við höf-
um náð myndum af svæðum sem nú
eru horfin. Því má segja að þetta séu
menningarsögulegar myndir sem við
eigum þó minninguna um á filmu.“
Sigurður límið og mótorinn
Þorfinnur hefur velt umhverfis-, stór-
iðju- og atvinnumálum mikið fyrir
sér undanfarin ár. Hann segir það þó
ekki hafa verið þannig að hann hefði
lesið Draumalandið þegar hún kom
út og fundið hjá sér óstjórnlega löng-
un til að gera mynd upp úr henni.
Það hafi verið ósk fyrrnefnds Sigurð-
ar Gísla, framleiðanda myndarinnar,
eftir starfskröftum hans sem hafi gert
að verkum að Þorfinnur réðst í verk-
efnið.
„Sigurður Gísli er límið og mót-
orinn á bak við myndina. Hann
ákvað að gera hana og kallaði mig í
framhaldinu á sinn fund. Síðan bara
hófumst við handa. Það var mikil
þrautaganga og brött brekka að klífa
að gera þessa mynd,“ segir Þorfinn-
ur sem lætur vel af samstarfinu við
Sigurð og ekki síður „hugmynda-
smið“ Draumalandsins, Andra.
„Það var voðalega gaman að
vinna með Andra. Hann kenndi mér
nefnilega að vera gáfaður. Og það
er ekki nóg að vera gáfaður heldur
ANDRI KENNDI MÉR
AÐ VERA GÁFAÐUR
Flestir þekkja Þorfinn Guðnason sem manninn sem gerði mynd-
ina um Lalla Johns. Þegar fram líða stundir verður hann hugs-
anlega þekktari fyrir myndina Draumalandið sem frumsýnd
var á dögunum, heimildamynd sem byggð er á samnefndri met-
sölubók Andra Snæs Magnasonar. Í samtali við Kristján Hrafn
Guðmundsson segir Þorfinnur meðal annars frá undrun sinni
á litlum viðbrögðum við myndinni, samstarfinu við Andra Snæ
og sögusögnum af dvöl Valgerðar Sverrisdóttur á Kanarí.
prímAdonnurnAr
endurtAkA leikinn
Prímadonnurnar komu, sáu og sigruðu í Íslensku óperunni á dögun-
um. Vegna fjölda áskorana munu þær endurtaka leikinn á sunnudaginn
klukkan 20. Prímadonnurnar skipa Auður Gunnarsdóttir, Elín Ósk Ósk-
arsdóttir, Hulda Björk Garðarsdóttir, Þóra Einarsdóttir og Antonía He-
vesí. Miðaverð er 4200 krónur. Nánari upplýsingar má finna á midi.is.
Hjaltalín Er meðal þeirra sem gefa vinnu sína á plötunni.
Draumastarfið? Úr myndinni draumalandinu
sem fjallar að miklu leyti um stóriðjustefnuna sem
íslensk stjórnvöld hafa haldið á lofti síðustu ár.