Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Page 45
föstudagur 17. apríl 2009 45Sviðsljós
Í nýjasta tímariti Rolling Stone
opnar Hulk Hogan sig og viður-
kennir að þegar fyrrverandi eig-
inkona hans, Linda Bollea, hóf
ástarsamband við 19 ára dreng
var hann tæpur á geði.
„Ég hefði getað breytt heimili
mínu í glæpavettvang, rétt eins
og O.J. gerði á sínum tíma,“ seg-
ir hann opinskátt. „Ég bý ekki
langt frá heimilinu mínu sem
ég má ekki koma nálægt lengur.
Ég keyri um miðbæ Clearwater
og sé 19 ára strák keyrandi um
á Escalade-inum mínum og ég
veit að hann sefur í mínu rúmi,
hjá minni konu,“ segir hann í
viðtalinu og bætir við: „Ég skil
O.J. svo vel. Ég næ honum.“
Hulk Hogan er sjálfur kom-
inn með nýja kærustu. Mörgum
þykir hún líkjast dóttur Hulk,
Brooke Hogan, ískyggilega mik-
ið.
Skilur O.J. vel
Hulk Hogan er brjálað-
ur út í ungan kærasta
Lindu Bollea.
Ungi drengurinn sem hefur
gert allt vitlaust linda Bollea,
fyrrverandi eiginkona Hulks
Hogan, á í ástarsambandi við 19
ára dreng að nafni Charlie Hill.
Meðan allt lék
í lyndi Hogan-
fjölskyldan
fyrir skilnaðinn
og bílslysið.
Skilur O.J. vel Hulk Hog-
an er ekki par sáttur við
unga drenginn sem tekið
hefur yfir heimili hans.
einS Og
býfluga
Paris Hilton ferðast nú um Evr-
ópu ásamt nýjasta kærastanum
Doug Reinhart. Parið kíkti í teiti í
Amsterdam og vakti Paris heldur
betur athygli fyrir fataval sitt. Par-
is klæddi sig eins og lítil býfluga.
Hilton-erfinginn er ekki þekkt fyr-
ir að vera sú smekklegasta í brans-
anum þó hefur fatastíll hennar
skánað mikið á síðustu árum.
Paris hefur opnað Twitter-síðu.
Áhugasamir geta nú fylgst með
skvísunni og ferðalögum hennar
um heiminn.
Paris og nýi kærastinn
ferðast um Evrópu um þessar
mundir og njóta lífsins.
Íslensk gæðaframleiðsla
í 25 ár
Okkar verð – betra verð
Yfir 10.000 ánægðir notendur
á Íslandi.