Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Qupperneq 6
Föstudagur 12. júní 20096 Fréttir
Sandkorn
n Eitt af því sem hefur vakið at-
hygli í viðskiptum Kópavogsbæj-
ar við Brynhildi Gunnarsdóttur,
dóttur bæj-
arstjórans
Gunnars I.
Birgissonar
er afmælis-
ritið sem fyr-
irtæki henn-
ar fékk greitt
fyrir vinnu
við. Eins
og bent hefur verið á og Gunnar
sjálfur tiltekið skilaði Brynhild-
ur sínum hluta verksins og var
búin að brjóta um ritið þannig
að það eina sem vantaði var text-
inn. Fjölmiðlamenn hafa margir
hverjir hent gaman að þessu
undanfarið. Almennt hefur nefni-
lega verið talið að ekki sé hægt að
brjóta um blöð og bækur nema
bæði texti og myndir séu tiltæk.
En kannski er þetta til marks um
hugvitssemi Kópavogsbúa.
n Sjónvarpsmaðurinn Sölvi
Tryggvason er horfinn af sjón-
varpsskjám landsmanna eftir að
sumardagskráin tók við á Skjá
einum. Er
því lokið
sýningum á
þáttunum
Viðtalið sem
hann stýrði
og Málefninu
sem hann
stýrði ásamt
Gunnhildi
Örnu Gunnarsdóttur. Ekki er
loku fyrir það skotið að Sölvi snúi
aftur á skjáinn með vel heppn-
aða viðtalsþætti sína næsta vetur.
Sölvi er þó ekki verkefnalaus í
sumar. Hann hefur tekið að sér
verkefni fyrir Velferðarsjóð barna
sem hann vinnur að í sumar.
Til leigu
Á fallegasta stað í Mosfellsdal
er til leigu falleg 2-3 herbergja íbúð.
Ný máluð og með nýju parketi.
Gæludýr eru velkomin.
Upplýsingar gefur
Sigríður í síma 863-8066
TENGIST ALÞJÓÐLEGUM
GLÆPASAMTÖKUM
Sigurður Ólason er einn af þremur
mönnum sem sitja í gæsluvarðhaldi
vegna gruns um að vera flæktir í
mörg hundruð kílóa kókaínsmygl.
Hinir tveir eru Ársæll Snorrason og
Gunnar Viðar Árnason. Allir þrír
hafa hlotið fangelsisdóma vegna
innflutnings á fíkniefnum.
Sigurður var dæmdur í þriggja
ára fangelsi fyrir aðild að smygli á
þrjátíu kílóum af hassi árið 2001.
Ársæll var dæmdur í fjögurra ára
fangelsi í Hollandi árið 2000 fyrir
fíkniefnabrot og í fimm ára fangelsi
fyrir aðild að BMW-málinu árið 2006
þar sem reynt var að smygla fimm-
tán kílóum af amfetamíni og tíu kíló-
um af hassi í bensíntanki BMW-bif-
reiðar. Ársæll var handtekinn í klefa
sínum á Litla-Hrauni. Gunnar fékk
tveggja og hálfs árs dóm árið 2005
fyrir innflutning á fjórum kílóum af
amfetamíni. Sigurður og Ársæll voru
handteknir 8. júní en Gunnar hefur
setið í gæsluvarðhaldi síðan 22. maí.
Sigurður var handtekinn í hús-
næði fyrirtækisins R. Sigmunds-
son þar sem hann sat í stjórn. Hann
hefur vikið úr stjórn fyrirtækisins.
Hann stofnaði fyrirtækið Hollís ehf.
20. janúar ásamt Ísraelanum Erez
Zizov og Hollendingnum Ronny
Verwoerd. Er fyrirtækið sagt stofn-
að til að hylma yfir peningaþvætti
samkvæmt heimildum Vísis. Fyrir-
tækið hefur staðið að útflutningi á
gömlum bílum, gröfum og vinnu-
vélum undanfarna mánuði.
Vísir greinir frá því að grun-
ur leiki á að Íslendingarnir teng-
ist tilraun til að smygla gríðarlegu
magni af fíkniefnum til landsins
frá Hollandi. Heimildir fréttastofu
Vísis herma að einhverjir hafi ver-
ið handteknir vegna málsins þar í
landi, þar á meðal Johan Hendrick
sem fékk sex ára fangelsisdóm fyr-
ir þátt sinn í BMW-málinu sem Ár-
sæll var líka dæmdur fyrir.
Þá segist Vísir hafa heimild-
ir fyrir því að grunur leiki á að Ís-
lendingarnir tengist alþjóðlegum
glæpasamtökum sem bendluð eru
við fíkniefnamisferli og peninga-
þvætti. Mun málið vera gríðar-
lega umfangsmikið og hefur það
verið til rannsóknar í tæplega eitt
og hálft ár. Rannsóknin ku teygja
anga sína til þrettán landa, meðal
annars í Evrópu og Mið- og Suður-
Ameríku. Vísir greinir frá að sér-
staklega séu til rannsóknar meint
tengsl Íslendinganna við karl-
mann frá botni Miðjarðarhafs sem
handtekinn var eftir að Europol
lagði hald á nokkur tonn af sykur-
vökva sem innihélt nokkur hundr-
uð kíló af kókaíni.
Í tilkynningu frá lögreglunni
segir að í aðgerð hennar 8. júní
hafi fimm menn verið handteknir
og ellefu húsleitir framkvæmd-
ar. Þá er rannsókn lögreglu liður
í rannsókn fleiri landa og unnin í
samvinnu við tengslaskrifstofu Ís-
lands hjá Europol. Hér á landi hafa
lögregluembættin á Suðurnesjum
og tollyfirvöld komið að málinu.
Rannsóknarlögreglan getur eng-
ar frekari upplýsingar veitt vegna
rannsóknarhagsmuna.
Framkvæmdastjóri R. Sigmundssonar er dæmdur skjalafalsari og situr í stjórn félags-
ins ásamt hæstaréttarlögmanni. Dæmdur fíkniefnasmyglari sat í stjórninni þar til á
mánudag þegar hann var handtekinn í húsakynnum fyrirtækisins grunaður um að
standa að smygli á gríðarlegu magni af fíkniefnum til Íslands frá Hollandi.
Hæstaréttarlögmaður, dæmdur
skjalafalsari og fíkniefnasmyglari
sátu saman í stjórn Vélasölunnar
R. Sigmundssonar. Sigurður Óla-
son sem sat í stjórn Vélasölunnar
var handtekinn í húsakynnum fyr-
irtækisins á mánudaginn og settur í
gæsluvarðhald í tengslum við rann-
sókn á umfangsmiklu fíkniefnamáli.
Sigurður var dæmdur í þriggja ára
fangelsi fyrir aðild að smygli á 30
kílóum af hassi árið 2001. Hann vék
úr stjórninni í vikunni.
Dæmdur skjalafalsari
Helgi M. Hermannsson, núver-
andi framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, var dæmdur fyrir skjalafals árið
2005. Helgi situr í stjórn fyrirtækis-
ins með hæstaréttarlögmanninum
Jóni Gunnari Zoéga. Þess skal getið að
Jón Gunnar var ekki verjandi Helga og
Sigurðar þegar þeir voru dæmdir fyrir
sín brot. Sigurður Ólason stofnaði fé-
lagið Hollis ehf. 20. janúar. Samkvæmt
frétt á Vísi leikur grunur á að fyrirtækið
hafi verið stofnað til að þvætta ágóða af
fíkniefnamisferli.
Í samtali við DV segist Helgi Magn-
ús ekki tengjast félaginu Hollis. Hann
er þó skráður skoðunarmaður félags-
ins. „Þá vantaði skoðunarmann og
sem greiða við Sigurð gerði ég það,“
segir hann. Þegar hann er spurður að
því hverjir séu eigendur R. Sigmunds-
sonar segist hann ekki vera í aðstöðu til
að segja til um það. Hann játar því að
hafa hlotið dóm árið 2005 fyrir skjala-
fals. „Ég hef ekki dregið nein tengsl þar
á milli,“ segir Helgi aðspurður hvort
það sé ekki óheppilegt að hann sé
framkvæmdastjóri Vélasölunnar eftir
að hafa hlotið dóm fyrir skjalafals.
Keyptu af SPRON
Núverandi eigendur R. Sigmunds-
sonar tóku við fyrirtækinu í desember
á síðasta ári. Keyptu þeir fyrirtækið af
SPRON eftir að það hafði verið aug-
lýst í útboði. Í byrjun árs sögðu þeir
upp öllum 35 starfsmönnum fyrir-
tækisins og endurréðu einungis 20
þeirra. Samkvæmt heimildum DV
hafði SPRON reynt að selja fyrirtækið
í nokkra mánuði án árangurs þangað
til samningur var gerður við núver-
andi eigendur.
Í samtali við DV sagðist Guð-
mundur Hauksson, fyrrverandi for-
stjóri SPRON, ekki þekkja til máls-
ins og ekki hafa komið að sölunni á
fyrirtækinu. Hið sama sagði Ólafur
Haraldsson sem var framkvæmda-
stjóri hjá SPRON. Þeir Guðmundur
og Ólafur voru báðir skráðir í stjórn
Steinsness ehf., félags SPRON, sem
átti meirihlutann í Vélasölunni þar
til í desember þegar nýju eigend-
urnir keyptu fyrirtækið.
Framkvæmdastjórinn hætti
Helgi Magnús tók við sem fram-
kvæmdastjóri R. Sigmundsson-
ar fyrir um tveimur mánuðum. Þá
hætti Sigurður Jensson sem fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. Sigurð-
ur er fyrrverandi starfsmaður hjá
skattrannsóknarstjóra. Í samtali
við DV vildi Sigurður ekki gefa upp
hvers vegna hann hætti sem fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. Sam-
kvæmt hluthafalista er Vélasalan
í eigu Gifsfélagsins. Gifsfélagið er
skráð í 100 prósenta eigu Laufeyj-
ar Gunnlaugsdóttur, konu Sigurðar
Jenssonar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Vélasölunnar.
Lögmaður, faLsari
og smygLari í stjórn
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
„Þá vantaði skoðunar-
mann og sem greiða
við Sigurð gerði ég
það.“
Seldi fyrirtækið guðmundur Hauksson
var forstjóri sPrOn þegar sjóðurinn seldi
núverandi eigendum vélasöluna.
Útflutningur Hollis hefur staðið í
útflutningi á gömlum vörubílum, gröfum
og vinnuvélum undanfarna mánuði.
R. Sigmundsson sigurður
Ólason var handtekinn í
húsakynnum fyrirtækisins á
mánudaginn.
MyND STÖÐ 2