Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Side 26
Föstudagur 12. júní 200926 Fókus
um helgina
Jómfrúartónleika sumarsins
Tónleikaröðin Sumarjazz á Jómfrúnni hefur göngu sína fjórtánda árið
í röð á veitingastaðnum Jómfrúnni við Lækjargötu á laugardaginn. Á
þessum fyrstu tónleikum sumarsins ætlar þaulreynt tríó Björns Thor-
oddsen gítarleikara að hækka í mögnurum og takast á við fjölbreytt
úrval óvæntrar innlendrar og erlendrar tónlistar frá Shadows til Sextetts
Óla Gauks. Tónleikarnir hefjast klukkan 15 og er frítt á þá sem fyrr.
Ástarsögur
óskast
Þeir sem telja sig geta skrifað hjart-
næmar, átakanlegar, nýstárlegar
eða gamaldags ástarsögur ættu að
lesa áfram. Líka þeir sem luma á
dramatískum, fyndnum, krúttleg-
um, spennandi og eða sannsöguleg-
um sögum þar sem ástin kemur við
sögu á einn eða annan hátt. Tímarit-
ið Vikan stendur nú nefnilega fyrir
ástarsmásagnakeppni og auglýsir
eftir sögum. Höfundar þriggja bestu
sagnanna fá vegleg verðlaun, meðal
annars ársáskrift að Vikunni, bækur,
gæðakaffi, súkkulaði og snyrtivörur.
Gott er að miða við að sagan sé 8-15
þúsund slög og skal senda sögurnar
undir dulnefni á vikan@birtingur.is.
Skilafrestur er til 4. júlí.
tónlist, bretta-
listir og körfu-
bolti
Útitónleikar verða haldnir á Ála-
fossi í Mosfellsbæ á laugardag-
inn, annað árið í röð. Í fyrra voru
það aðeins mosfellskar hljóm-
sveitir sem komu fram en vegna
mikillar aðsóknar hefur verið
ákveðið að leyfa öðrum hljóm-
sveitum úr nágrannasveitarfé-
lögunum að taka þátt. Fimmtán
hljómsveitir stíga á svið, þar á
meðal Retro Stefson, Mamm-
út, We made God og Naflakusk.
Einnig verður sett upp sérstakt
viðburðatorg þar sem meðlim-
ir Brettafélags Íslands sýna listir
sínar og götukörfubolti verð-
ur spilaður. Tónleikarnir byrja
klukkan 14 og standa til 20.
ræða rímið
Birgir Snæbjörn Birgisson og Dav-
íð Örn Halldórsson eru tveir af tólf
listamönnum sem eiga verk á sýn-
ingunni Rím í Ásmundarsafni. Þar
eru verk samtímalistamanna skoðuð
út frá hliðstæðum verkum mynd-
höggvarans Ásmundar Sveinsson-
ar. Á sunnudag klukkan 14 munu
Birgir og Davíð skoða sýninguna
í fylgd með gestum og segja frá
hvernig túlkun verka þeirra mótast
af tíðaranda, efnismeðferð, tækni,
straumum og stefnum. Aðgangur er
ókeypis.
Tvær bækur bætast næsta þriðjudag
í hóp þeirra fjórtán bóka sem For-
lagið hefur gefið út undir merkjum
Klassíska kiljuklúbbsins sem hleypt
var af stokkunum í fyrra. Þetta eru 79
af stöðinni eftir Indriða G. Þorsteins-
son og Fuglarnir eftir Tarjei Vesaas.
79 af stöðinni er eitt af lykilverkum
íslenskra bókmennta á eftirstríðs-
árunum, „einskonar röntgenmynd
af tilfinningum kynslóðarinnar sem
fluttist á mölina um og upp úr seinna
stríði“, eins og fram kemur í eftirmála
Kristjáns B. Jónassonar. Sagan fjallar
um Ragnar Sigurðsson, leigubílstjóra
í Reykjavík, sem er vinafár og líf hans
snýst nær eingöngu um vinnuna þar
til hin dularfulla Gógó kemur til sög-
unnar.
Indriði G. var tæplega þrítug-
ur þegar hann sló eftir-
minnilega í gegn með
þessari djörfu skáldsögu
úr Reykjavík nútímans árið
1955. Sjö árum síðar varð
hún fyrsta leikna íslenska
kvikmyndin í fullri lengd
og er túlkun Gunnars Eyj-
ólfssonar og Kristbjargar
Kjeld í hlutverkum Ragnars
og Gógóar enn í minnum
höfð.
Fuglarnir er einhver ást-
sælasta skáldsaga Norð-
manna og kemur nú í fyrsta
sinn út á íslensku. Þar seg-
ir frá systkinunum Matt-
is og Hege sem búa saman
í útjaðri bæjarins. Hege er
harðdugleg stúlka sem prjón-
ar þeim til lífsviðurvær-
is og Mattis dáir hana
af einlægni. Sjálfur á
hann erfitt með að vinna
nokkurt starf af því að
hugur hans er á sífelldu
flugi, en fuglamál skil-
ur hann og náttúran op-
inberar honum leyndar-
dóma sína.
Höfundurinn, Tarjei
Vesaas, er einn af stóru
norrænu skáldsagnahöf-
undunum á 20. öld og
Fuglarnir eru ein alvinsæl-
asta bók hans. Hún hef-
ur komið út á fjölmörgum
tungumálum og bæði verið
kvikmynduð og sett á svið.
Hjalti Rögnvaldsson þýddi.
Útgáfulisti Klassíska kiljuklúbbsins lengist eftir helgi:
dularfull kona og fuglamál
H
ugmyndin að þessari
bók fæddist fyrir tæp-
um sex árum. Ég er
mjög hrifinn af loft-
myndum og ég hef
mikið verið að spekúlera í landslags-
myndum þar sem ég er mikið í úti-
vist og mér þykir fólk áhugavert. Mig
langaði að sameina þessa þætti í eina
bók og þá kom hugmyndin að sam-
eina frumefnin fjögur, loft, vatn, jörð
og eld,“ segir Þjóðverjinn Thorsten
Henn ljósmyndari sem nýlega gaf út
ljósmyndabókina Ísland í nærmynd.
„Það er nú svolítið erfitt að mynda
eld þannig að þjóðin varð eldurinn,“
tekur Thorsten fram. Hann vildi sýna
íslensku þjóðina í nýju ljósi. „Mér
finnst Íslendingar oft sýndir í nei-
kvæðu ljósi, nýstignir út úr torfkofan-
um. Mér finnst það ekki lýsandi fyrir
þessa þjóð. Íslendingar eru framsæk-
in og hugmyndarík þjóð og ég vildi
sýna það,“ segir hann á fullkominni
íslensku en Thorsten hefur búið hér
á landi í rúman áratug, hann á ís-
lenska konu og son og hefur aðallega
unnið í auglýsingabransanum. Þetta
er þriðja bók Thorstens en áður hef-
ur hann gefið út bækurnar Colors of
Iceland og Magic of Iceland.
Thorsten er fæddur Lübeck í
Þýskalandi og kviknaði áhugi hans
á ljósmyndun snemma. Hann byrj-
aði að mynda 16 ára gamall og hef-
ur unnið við ljósmyndun síðan. Átj-
án ára fluttist Thorsten að heiman og
ferðaðist um Evrópu í eitt og hálft ár.
Þá settist hann að í Vínarborg í Aust-
urríki og lagði stund á meistaranám í
ljósmyndun. Thorsten bjó í Vín í rúm
átta ár. Hann kynntist Íslandi fyrst
árið 1996 er hann kom hingað til að
taka ljósmyndir og kolféll fyrir landi
og þjóð. Hann settist endanlega að
hér á landi árið 1998 og var ákvörð-
unin einföld.
„Þetta land er fullt af möguleikum
og tækifærum og ég ákvað að taka
sénsinn, flytja hingað og sjá hvað það
myndi bera í skauti sér,“ segir hann
brosandi. „Og ég hef verið hér síð-
an þá. Hér á ég íslenska konu og son
og ég er búinn að festa rætur hérna
og ég verð að segja að ég er mjög
ánægður hér.“
Ísland í nærmynd var lengi í
vinnslu enda eru allar myndirn-
ar í bókinni teknar sérstaklega fyr-
ir hana. „Ég bjó til konsept og það
var unnið út frá því,“ segir Thorsten
enda ekki annað hægt þar sem kafli
í bókinni er tileinkaður loftmyndum.
„Þá þarf maður að ákveða fyrir fram
hvert maður flýgur og hvar myndirn-
ar eru teknar,“ segir Thorsten. Hann
hefur þurft að prófa sig áfram í loft-
myndatöku enda krefst það mikill-
ar útsjónarsemi. „Ég byrjaði á því að
taka myndirnar úr lítilli flugvél, en
ég áttaði mig strax á því að flugvélin
flýgur allt of hratt yfir til þess að hægt
Klassík íslenskir lestrarhestar halda áfram að fá heimslitter-
atúr á þægilegu formi.
Ljósmyndarinn Thorsten Henn gaf nýlega út bókina Ísland í
nærmynd. Bókin sameinar frumefnin fjögur, loft, vatn, jörð og
eld, og má sjá landslagsmyndir í bland við loftmyndir og portr-
ettmyndir af Íslendingum. Hann hefur búið á Íslandi í rúman
áratug og segir landið stórbrotið og fólkið enn magnaðra.
Alltof flott
land til
þess að flýja
Thorsten Henn gaf
út bókina ísland í
nærmynd. Þetta er þriðja
ljósmyndabókin hans.
Mynd Heiða Helgadóttir