Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Síða 36
Föstudagur 12. júní 200936 Helgarblað
Kraftlyftingamaðurinn Ingvar Jóel Ingvarsson komst að því eftir tveggja
ára samband að kærasta hans, kona sem hann hélt að yrði eiginkona sín,
hélt við þrjá aðra menn auk þess að vera kvænt þeim fjórða. Hann segist
hafa lagt alla sína peninga og vinnu í fyrirtæki konunnar sem núna væni
hann um að ógna börnunum hennar. Hann segist með tímanum geta sætt
sig við að hafa orðið fórnarlamb lyga og undirferlis en segist ekki sitja und-
ir þeim ásökunum og sögusögnum að hann standi í hótunum við börn.
Fjögur viðhöld
og eiginmaður
Ég skal fara grenjandi í gröfina en þetta tek ég ekki með mér þangað. Ég get einfaldlega ekki sætt mig við að vera sak-
aður um að hóta börnum. Ég verð að
fá að hreinsa þessar ásakanir af mér,
því þetta er það versta sem ég hef far-
ið í gegnum,“ segir kraftlyftingamað-
urinn Ingvar Jóel Ingvarsson.
Ingvar segist hafa orðið þess
áskynja að sögur gangi um að hann
hafi átt í hótunum við tvo tánings-
drengi; syni konu sem hafi svik-
ið hann ákaflega illa. Upp úr nærri
tveggja ára sambandi þeirra slitnaði
þegar í ljós kom að konan, sem hann
hugðist kvænast og búa með til fram-
tíðar, hafði fest hann í umfangsmikl-
um svikavef. Hann segist hafa stað-
festingu á því að konan hafi verið í
sambandi við að minnsta kosti fjóra
menn samtímis, auk eiginmanns
síns. Hann sé nú fórnarlamb róg-
burðar.
Ekkert hjónalíf
Ingvar tók upp samband við konuna
á vormánuðum árið 2007, en þau
höfðu þekkst í um tíu ár. Hann segist
hafa vitað að konan var gift en seg-
ir að hún hafi fullvissað hann um að
hjónaband þeirra væri einungis að
nafninu til. „Ég vissi að þau bjuggu
undir sama þaki og að þau höfðu
verið gift í 16 eða 18 ár. Hún sagði að
þau lifðu eins og systkini, stunduðu
ekkert hjónalíf og væru bara saman
vegna eldri sonar þeirra sem átti við
ákveðna erfiðleika að stríða. Dótt-
ir mín, sem nú er uppkomin, glímdi
einnig við svipaða erfiðleika og þess
vegna sýndi ég aðstæðum henn-
ar mikinn skilning,“ útskýrir Ingvar
sem er sjálfur faðir tveggja uppkom-
inna barna.
Hann segir að þau hafi átt marg-
ar góðir stundir saman og hafi hist
nánast daglega. Hún hafi þó ekki
verið á þeim buxunum að ganga frá
skilnaði við manninn sinn. „Hún var
aldrei tilbúin að fara frá manninum
alveg strax. Það var alltaf talað um
næstu áramót, næsta sumar eða eitt-
hvað álíka. Ég gaf henni endalaust
svigrúm enda elskaði ég þessa konu.
Og vegna þess að hún bjó enn með
manninum sínum tók ég þátt í felu-
leiknum sem svona sambandi fylgir,“
útskýrir Ingvar.
Ábending um framhjáhald
Þegar þau höfðu verið saman í
nokkra mánuði fékk Ingvar ábend-
ingu um að konan hefði verið hon-
um ótrú. „Þetta var í október 2007. Ég
fékk nafnlaust bréf í tölvu um að hún
hefði verið með manni sem ég þekki
ágætlega úr lyftingunum,“ segir Ingv-
ar en þrátt fyrir að hafa lagt mjög hart
að þeim báðum, fengust þau ekki til
að viðurkenna þetta fyrir honum.
„Mér var auðvitað ofboðslega brugð-
ið en þau lugu að mér kinnroðalaust.
Ég er þannig gerður að ég tala við fólk
augliti til auglitis og fer ekki á bak
við vini mína,“ segir Ingvar. Þar sem
hann hafði ekki beinar sannanir fyrir
ábendingunni sem honum barst lét
hann málið niður falla og þau héldu
sambandi sínu áfram.
Krabbamein
Á svipuðum tíma urðu Ingvar og kær-
astan hans fyrir miklu áfalli. „Hún
hafði greinst með krabbamein í leg-
hálsi eða eggjaleiðurum og þurfti að
draga mjög úr vinnu,“ segir Ingvar en
hún rak fyrirtæki sem krafðist mikill-
ar viðveru og vinnu, sér í lagi þar sem
reksturinn gekk erfiðlega.
Ingvar hefur starfað hjá Hring-
rás, áður Sindrastáli, í hvorki meira
né minna en 29 ár, eða frá árinu
1978. „Þótt ég segi sjálfur frá er ég
mjög mikils metinn í minni vinnu.
Ég er vinnualki og hef alla mína tíð
unnið mikið, samhliða lyftingun-
um sem eru mínar ær og kýr,“ seg-
ir hann. Veikindi hennar urðu þeim
mikið áfall en vinnuveitendur Ingv-
ars sýndu þessu mikinn skilning. „Ég
sagði þeim frá því að verðandi kon-
an mín væri mikið veik og fékk í kjöl-
farið átta mánaða frí frá starfi. Í þann
tíma hljóp ég í hennar skarð hvað
reksturinn varðar,“ segir hann en
vegna tryggðar sinnar við Hringrás
lögðu þeir fyrirtæki hennar til tæki
að andvirði einnar og hálfrar millj-
ónar króna sem áttu að létta undir
rekstrinum. Ingvar segist þeim ákaf-
lega þakklátur fyrir skilning og vel-
vilja sem honum var sýndur af hálfu
Hringrásar.
„Ég lagði alla mína peninga í
stöðina og vann gríðarlega mikið,“
segir Ingvar sem tekur þetta augljós-
lega nærri sér.
Önnur ábending
Síðasta sumar fékk Ingvar að eigin
sögn aðra ábendingu um framhjá-
hald kærustu sinnar. Hann segist
hafa gengið harkalegar að henni en
áður og hafi jafnframt gert henni það
ljóst að hann væri tilbúinn að fyrir-
gefa henni atvikið, ef hún bara við-
urkenndi að hafa verið honum ótrú.
Þetta þyrfti einfaldlega að komast á
hreint. „Ég sagði henni að í ljósi þess
sem ég hafði í höndunum ætlaði
ég að hitta manninn aftur og spyrja
hann um atvikið,“ segir Ingvar sem
gerði það þrátt fyrir að hún hafi ver-
ið því afar mótfallin. Hann uppskar
nákvæmlega sömu svör og áður. „Ég
er karlmaður og skildi alveg að hann
hefði viljað sofa hjá þessari glæsilegu
konu. Það kom aldrei til greina að
hóta honum einu né neinu. Ég vildi
bara að hann viðurkenndi það,“ segir
Ingvar sem fékk nokkrum mánuðum
síðar óyggjandi sannanir fyrir því að
þetta hafði átt sér stað. Þá hafi hann
enn og aftur gengið á kunningja sinn
og krafist skýringa. Kunningi hans
hafi þá loksins viðurkennt að hafa
sofið hjá henni eftir að þau byrjuðu
saman. „Hann sagðist ekki hafa vilj-
að særa mig en það var akkúrat það
sem hann var að gera,“ segir hann.
Lygin afhjúpuð
„Þegar ég hafði fengið þetta staðfest
fór ég til hennar og sagðist aldrei
vilja sjá hana framar. Ég hefði getað
lifað með þessu ef hún hefði viður-
kennt þetta strax en ekki eftir allar
þessar lygar,“ segir Ingvar en þessi
svik voru aðeins þau fyrstu af mörg-
um sem hafa verið að koma upp á
yfirborðið frá því upp úr sambandi
þeirra slitnaði í janúar.
Ingvar segir að í kjölfarið hafi
þessi kona, sem hann hafði átt í ást-
arsambandi við í nærri tvö ár, farið
að ráðast að honum með tölvupóst-
sendingum og SMS-skilaboðum.
Hann hafi einnig heyrt að hún beri
út alls kyns sögur af honum sem eiga
sér enga stoð í raunveruleikanum.
„Ég veit ekki hvernig hún fær það út
að ég hafi svikið hana. Það má hins
vegar ekki vanmeta þessa konu, hún
er mjög sannfærandi og falleg að
utan,“ segir Ingvar og bætir við að
síðan þau hættu saman hafi hún gert
allt til að eyðileggja fyrir honum lífið.
Einn samstarfsmaður hans og vin-
ur hafi til dæmis skyndilega hætt að
tala við hann. „Nokkru síðar heyrði
ég frá öðrum að ástæða þess væri sú
að ég hefði hótað drengjunum henn-
ar og að þær hótanir yrðu brátt að
lögreglumáli,“ segir Ingvar sem sárn-
aði þær sögusagnir mikið en bætir
við að hann hafi aldrei heyrt í hverju
þær hótanir hafi átt að verið fólgnar.
Hann hafi á köflum verið mikið með
sonum hennar og hafi meðal annars
„Þótt ég segi sjálfur frá
er ég mjög mikils metinn
í minni vinnu. Ég er
vinnualki og hef alla
mína tíð unnið mikið.“