Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Qupperneq 37
Föstudagur 12. júní 2009 37Helgarblað
Fjögur viðhöld
og eiginmaður
þjálfað þá í lyftingum. Það hafi geng-
ið mjög vel.
Hitti eiginmanninn
Þegar ásakanir héldu áfram að ber-
ast honum ákvað Ingvar að setja sig
í samband við eiginmann konunnar.
Það var í febrúar. „Ég ákvað að fram-
senda skilaboðin sem hún sendi mér
til mannsins hennar. Þau voru með-
al annars í formi ásakana um að ég
stæði í hótunum við drengina. Eig-
inmaðurinn hafði loksins samband
við mig og vildi hitta mig til að hann
gæti séð að skilaboðin væru sannar-
lega frá henni komin. Við hittumst
og ræddum hreinskilnislega saman.
Það kom svo auðvitað á daginn að sú
saga sem hún sagði af þeirra lífi átti
ekki við nein rök að styðjast,“ segir
Ingvar sem segist þó auðvitað ekki
eiga sér neinar málbætur gagnvart
manninum hennar.
Þetta var þó ekki allt. „Ég fór svo
að tala við hann um krabbameinið
og fyrirtækið en þá kom hann algjör-
lega af fjöllum. „Hvaða krabbamein?
Þessi kona er ekki með krabba-
mein.““
Samtal þeirra leiddi í ljós að eig-
inmaðurinn var búinn að gruna kon-
una sína um græsku lengi, að sögn
Ingvars. Honum hefði hins vegar
aldrei tekist að koma upp um hana
þrátt fyrir ákaflega sterkar vísbend-
ingar um að hún hefði verið honum
ótrú.
Vill hreinsa æruna
Ingvar segist hafa sett sig í samband
við eiginmanninn til að freista þess
fá sig hreinan af þeim ásökunum að
hann hefði ógnað sonum hans. „Ég
er þekktur að öllu öðru en ofbeldi
og hótunum. Ég veit að þessi saga
gengur enn á milli manna. Það get
ég ekki sætt mig við,“ segir hann og
bætir því við að hann geti unnið sig
upp úr því að hafa verið fórnarlamb
lyga og svika en hann geti ekki unað
því að sitja undir ásökunum sem
þessum. „Ég bað hann að ræða mál-
ið við drengina sína og athuga hvort
hann fyndi einhvern fót fyrir þessu.
Ég skyldi þá fara með honum rak-
leiðis á lögreglustöð og aðstoða við
að fylla út kæruna,“ segir Ingvar og
heldur áfram. „Hann hringdi í mig
seinna um kvöldið og sagðist hafa
farið fínt í þetta við strákana. Þeg-
ar hann byrjaði að tala um mig voru
þeir svo ánægðir með mig að hann
sagðist ekki hafa viljað spyrja þá út í
svona sögur,“ segir Ingvar.
Ólýsanleg niðurlæging
Ingvar segist hafa ákveðið, þegar
leið á veturinn að leita sér aðstoð-
ar vegna þess sem gengið hafði á.
Hann nýtir sér þjónustu sálfræðings
og heilara. Afhjúpunin hafi lagst
mjög þungt á hann, enda hafi hann
frá því upp úr sambandinu slitnaði
fengið staðfestingu á því að hún hafi
reglulega haldið við þrjá menn til
viðbótar við hann sjálfan og eigin-
manninn. „Hún blekkti alla, meira
að segja vinnuveitendur mína. Þeir
gerðu allt fyrir mig til að ég gæti
hjálpað verðandi konu minni í erf-
iðum rekstri og veikindum. Ég varði
öllu mínu lausafé í fyrirtækið henn-
ar, sem síðan fór á hausinn. Ég þjálf-
aði stíft og var með tekjur á bilinu
tvö til fimm hundruð þúsund krón-
ur á mánuði, þegar best lét. Allt sem
ég átti fór í fyrirtækið, þegar ég var
búinn að borga leigu og kaupa mat,“
segir Ingvar sem hélt ekki bókhald
yfir þá fjármuni eða vinnuframlag
sem hann lagði til rekstursins. Hann
telur það slaga hátt í fjórar milljónir
króna, með öllu. „Það eru um fjór-
ir mánuðir síðan það rann upp fyr-
ir mér að ég fengi aldrei krónu af
þessu til baka,“ segir hann og held-
ur áfram.
„Ég ákvað að fram-
senda skilaboðin sem hún
sendi mér til mannsins
hennar.“
Framhald á
næstu síðu
Illa svikinn Ingvar jóel Ingvarsson
segist ekki sætta sig við að vera
sakaður um að hóta börnum.
myndIr rÓbert reynIsson