Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Qupperneq 42
Föstudagur 12. júní 200942 Sport
Næsti áfaNgastaður
Eiðs smára?
lyon
Land: Frakkland
Þjálfari: Claude Puel
Sæti í deild: 3.
Evrópukeppni: forkeppni
meistaradeildarinnar
spænska blaðið diaro sport
fullyrti á dögunum að Lyon
vildi fá Eið smára til liðsins.
Lyon hafði unnið frönsku
deildina síðustu sjö árin
og gert mjög góða hluti í
meistaradeildinni þangað
til í ár. Það hafði þó þriðja
sætið og komst í forkeppni
meistaradeildarinnar. Lyon missti arkitektinn í sóknarleik sínum,
Brasilíumanninn juninho, á dögunum og sér þjálfarinn, Claude
Puel, Eið jafnvel sem eftirmann hans að leiða sóknarleikinn.
Lyon er afar vel mannað lið og titlarnir á undanförnum árum
sanna það. nóg er til af peningum hjá liðinu eftir sölur á
sterkum mönnum og gengi í meistaradeildinni. Lyon ætti því að
vera afar líklegur kostur fyrir Eið sé eitthvað til í fregnum diaro
sport.
Atletico mAdrid
Land: spánn
Þjálfari: abel resino
Sæti í deild: 4.
Evrópukeppni: forkeppni
meistaradeildarinnar
sama blað og fullyrti að
Lyon hefði mikinn áhuga á
Eiði smára sagði hann einnig
líklegan sem skiptimynt.
svo vill til að spánar- og
Evrópumeistarar Barcelona
sem Eiður leikur með vilja fá
framherja atletico Madrid
og markahæsta leikmann
spænsku deildarinnar í ár, diego Forlan, til liðsins. Hefur
Barcelona boðið tugi milljóna í Forlan og þrjá leikmenn sem
skiptimynt sem atletico getur valið úr. Hinir tveir eiga að vera
aleksander Hleb og varnarmaðurinn Martin Caceres. atletico
Madrid verður í forkeppni meistaradeildarinnar í ár en það
komst í 16 liða úrslitin í fyrra. Þessi kostur þykir ekki líklegur
en það væri ekki slæmt fyrir Eið að leika út ferilinn í höfuðborg
spánar.
west hAm
Land: England
Þjálfari: gianfranco Zola
Sæti í deild: 9.
Evrópukeppni: Engin
Eiður smári var nú aðallega
orðaður við West Ham þegar
Björgólfur guðmundsson
réð þar enn ríkjum. Ekki má
þó gleyma að gianfranco
Zola stýrir West Ham en
þeir léku saman hjá Chelsea
og veit Zola nákvæmlega
hvað Eiður getur og getur
ekki. West Ham leikur ekki
í Evrópukeppni á næsta ári en enska úrvalsdeildin heillar þó
alltaf, þá Eið eflaust sérstaklega eftir langa dvöl þar áður en
hann hélt til Barcelona. Eiður kann á ensku knattspyrnuna og
fengi eflaust meira og minna að spila alla leiki hjá liðinu enda
það ekkert stórkostlega vel mannað. West Ham hefur líka sagst
ætla að styrkja leikmannahóp sinn en ekki með stórkaupum.
Þar gæti Eiður fallið vel inn í.
PAnAthinAikos
Land: grikkland
Þjálfari: Henk ten Cate
Sæti í deild: 3.
Evrópukeppni: 3. umferð
Evrópudeildarinnar
síðasta sumar, áður en Eiður
ákvað að vera áfram í her-
búðum Barcelona, var hann
sterklega orðaður við gríska
stórliðið Panathinaikos.
Það hefur verið reglulegur
gestur í meistaradeildinni
en endaði í 3. sæti heima
fyrir í ár og leikur því í
Evrópudeildinni, ekki meistaradeildinni á næsta tímabili. Hjá
Panathinaikos gæti Eiður fengið vel borgað enda nóg til af
peningum þar fyrir góða leikmenn. Þjálfarinn er Henk ten Cate
sem var tæknilegur ráðgjafi hjá Chelsea eitt sinn. Hann veit vel
hvað Eiður getur og er bókað að þar myndi Eiður spila alla leiki.
athyglin á grísku deildinni er þó ekki mikil og leikirnir margir
hverjir gegn liðum sem eru mun lakari en þau stærstu og bestu.
gAlAtAsArAy
Land: tyrkland
Þjálfari: Frank rikjaard
Sæti í deild: 5.
Evrópukeppni: Engin
Á dögunum var Eiður
orðaður við margfalda
tyrklandsmeistara galat-
asaray. Hollendingurinn
Frank rikjaard er nýtekinn
við liðinu og horfði meðal
annars fyrst til Eiðs smára
en rikjaard keypti Eið til
Barcelona fyrir þremur árum.
uppstokkun hefur verið
á einveldi galatasaray og Fenerbache síðustu ár en hvorugt
þeirra lék í meistaradeildinni á síðasta ári. Það sem gerir rikjaard
eflaust erfitt fyrir í sumar að fá góða leikmenn er sú staðreynd
að galatasaray endaði í fimmta sæti deildarinnar í ár og leikur
því ekki í Evrópu á næsta tímabili. Eiður hefur verið fastagestur
í meistaradeildinni síðustu sjö árin og ætlar sér eflaust ekki að
kveðja Evrópukeppnir alfarið, sama hvert hann fer.
mArseille
Land: Frakkland
Þjálfari: didier deschamps
Sæti í deild: 2.
Evrópukeppni: riðlakeppni
meistaradeildarinnar
Marseille rétt missti af Frakk-
landsmeistaratitlinum í ár
þegar Bordeux hrifsaði hann
af Lyon eftir sjö sigursæl ár í
röð hjá Lyon-mönnum. Þrátt
fyrir árangurinn hjá Marseille
var skipt um þjálfara og
tók goðsögnin didier
deschamps við liðinu, sá
hinn sami og kom Monaco í úrslitaleik meistaradeildarinnar árið
2005. Franska deildin er nokkuð sterk og mikil umfjöllun um
hana í Frakklandi. Þá er liðið bókað í riðlakeppni meistaradeild-
arinnar sem skemmir ekki fyrir vilji Eiður skoða þennan kost af
viti. Það spilar góðan fótbolta og myndi Eiður eflaust henta vel í
Marseille-liðið sem vill nú meira sækja en verjast.
besiktAs
Land: tyrkland
Þjálfari: Mustafa denizli
Sæti í deild: 1.
Evrópukeppni: riðlakeppni
meistaradeildarinnar
Besiktas vann tyrknesku
úrvalsdeildina í ár og
samkvæmt fjölmiðlum þar
í landi ætlar það ekki að
vera aukaleikari í meist-
aradeildinni á næsta ári.
Besiktas-menn eru stórhuga
fyrir meistaradeildina og eru
ákveðnir að gera betur en
landar þeirra hafa gert þar undanfarin ár. til þess ætlar þjálfar-
inn, Mustafa denizli, að fá reynda menn til félagsins og hefur
Eiður smári verið orðaður við meistarana í tyrklandi. Eins og
staðan er virðist Besiktas betri kostur en galatasaray hafi Eiður
áhuga á að fara til tyrklands en gengi Besiktas á undanförnum
árum hefur þó verið upp og niður. stöðugleiki galatasaray er þó
mun meiri.
bArcelonA
Land: spánn
Þjálfari: josep guardiola
Sæti í deild: 1.
Evrópukeppni: riðlakeppni
meistaradeildarinnar
Ólíklegasti kosturinn
sem kemur þó til greina
er að Eiður fari bara ekki
neitt. Eiður á ennþá eitt ár
eftir af samningi sínum og
hann hefur alltaf haldið
því fram að honum líði
afar vel í Katalóníu. Hann
hefur þó lítið fengið að
spila að undanförnu og miðað við hvað Barcelona er stórhuga í
leikmannamálum virðist ólíklegt að Eiður komist meira að segja
í hópinn á næsta tímabili. Hann hefur þó alltaf staðið af sér
áföllin hjá liðum sínum en eins og áður segir eru líkurnar mjög
litlar að hann verði áfram hjá Barcelona. Börsungar unnu eins
og frægt er þrennuna, það er spánarmeistaratitilinn, bikarinn
og meistaradeildina, en Eiður lék sama og ekkert á seinni hluta
tímabilsins.
Þótt besti knattspyrnumaður Íslands, Eiður Smári Guðjohnsen,
eigi eitt ár eftir af samningi sínum við Spánar- og Evrópumeist-
ara Barcelona virðist nokkuð augljóst að Eiður yfirgefi félagið. Eiður er í
hávegum hafður í knattspyrnuheiminum og hefur nú þegar sægur af liðum
sýnt honum áhuga. DV fer yfir nokkur lið sem hafa verið orðuð við Eið,
kosti þeirra og galla.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON / TOMAS@dv.iS