Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Page 22
Staldraðu við á
Stokkseyri
Gistu á stjörnunni
við ströndina
Annars eru allar nánari upplýsingar á kvoldstjarnan.com
Sími 483-1800 / 896-6307
íslandi allt Miðvikudagur 17. júní 2009 23
fjölbreyttar fjallgöngur
og er vinsælt að ganga upp á fjallið
að norðaustanverðu.
Göngutími: 1½–2½ klukkustund.
akrafjall
Akrafjallið á Akranesi stendur á milli
Hvalfjarðar og Leirárvogs og nær hæsti
tindurinn, Geirmundartindur, 643
metra hæð yfir sjávarmáli. Gangan á
Akrafjall er tiltölulega þægileg og hef-
ur nákvæmt kort með helstu göngu-
leiðum fjallsins verið gefið út. Kortið
má nálgast á upplýsingamiðstöðvum
og bensínstöðvum á Akranesi.
Göngutími: 2–3 klukkustundir.
Helgafell
Sé ætlunin að fara í stutta og ekki
svo krefjandi gönguferð er tilvalið að
skella sér á Helgafellið. Helgafellið
er suðaustur af Hafnarfirði og er 340
metra hátt. Þó að fjallið sé ekki mjög
hátt er útsýnið yfir borgina af toppi
þess stórkostlegt en einnig er hægt
að sjá yfir á Reykjanesskaga. Fjallið
er örlítið erfiðara viðfangs en Úlf-
arsfellið en töluvert léttarara er að
ganga á það en topp Esjunnar. Það
er því tilvalið fyrir þá sem ekki hafa
mikinn tíma en vilja engu að síður fá
góða hreyfingu að ganga á Helgafell.
Göngutími: 1–2 klukkustundir.
Hafnarfjall
Hafnarfjall er fjall sem flestir hafa ef-
laust látið sér nægja að keyra fram hjá
áður en komið er í Borgarnes. Hæsti
tindur Hafnarfjalls er 844 metra hæð
en hann heitir Gildalshnúkur. Þar sem
Hafnarfjallið stendur á mjög opnu
svæði getur oft verið mjög hvasst á
fjallinu. Það er því ekki ráðlegt að
halda upp fjallið nema í góðu veðri því
snarpar vindhviður geta verið helsti
óvinur fjallgöngumanna. Hægt er að
velja nokkrar gönguleiðir á fjallið en
það býður upp á frábært útsýni til allra
átta. Göngutími: 3–5 klukkustundir.
*Listinn hér að framan er engan veg-
inn tæmandi og hægt er að velja sér
ótal falleg fjöll til viðbótar. Félög á
borð við Ferðafélag Íslands, Íslenska
fjallaleiðsögumenn og Ferðafélagið
Útivist bjóða einnig upp á dagsferðir
með leiðsögumönnum gegn gjaldi.
Göngumönnum, sem eru einir á
ferð eða hafa litla reynslu, er þó bent
á að hafa öryggið ávallt í fyrirrúmi –
hvert sem haldið er.
einar@dv.is