Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Page 2
Sophia Hansen hefur ákveðið að kalla Rúnu, yngri
dóttur sína, til vitnis í málinu sem ríkissaksóknari höfðar gegn
henni. Halim Al kveðst í samtali við DV ekki ætla að standa í
vegi fyrir að dætur hans og Sophiu Hansen fari til Íslands en
þær voru hér síðast fyrir hartnær tveimur áratugum.
HITT MÁLIÐ
ÞETTA HELST
- ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Í VIKUNNI
LAMAST EFTIR BIT
„Ef mér hrakar jafnmikið á
næsta ári og á þessu lifi ég
ekki næsta ár af. Það eru eng-
ar líkur á því,“ segir Guðjón
Egilsson húsasmiður. Rúm
þrjú ár eru nú liðin frá því að
Guðjón, sem í dag er 52 ára gamall, var
bitinn af skógarmítli, þegar hann var
í sumarfríi með fjölskyldunni í Dan-
mörku. Paddan, sem virðist vera að
koma sér fyrir á Íslandi, sýgur blóð úr
spendýrum. Guðjóni er mikið í mun
að vara Íslendinga við hættunni sem
getur fylgt þessari pöddu. Hún smitaði
Guðjón af svo alvarlegum taugasjúk-
dómi, að hann á í dag erfitt með dagleg-
ar athafnir. Hann getur hvorki unnið né gengið út í búð og segist
sjálfur þekkja til dæma þar sem fólk lamist í andliti og fótum vegna
sjúkdómsins. Hann lifir við stöðuga verki í öllum útlimum og segist
enga von eiga sér um fullan bata.
RIFIST UM ÖGMUND
Eftir að Sigmar Guðmunds-
son, aðstoðarritstjóri
Kastljóss Sjónvarpsins,
flutti fréttir af víndrykkju
Ögmundar Jónassonar,
þingmanns vinstri grænna, fyrir
atkvæðagreiðslu Alþingis hefur frétta-
maðurinn orðið fyrir talsverðri gagn-
rýni í bloggheimum. Þar hafa meðal
annarra veitt Ögmundi stuðning þau
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyf-
ingarinnar, Björn Bjarnason, fyrr-
verandi dómsmálaráðherra, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands,
og Tryggvi Þór Herbertsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins. „Frá minni
hálfu er málinu lokið. Ég hef sagt það að það sem fullyrt var í fréttinni er
ekki rangt en um fréttaflutninginn sjálfan verða aðrir að dæma,“ segir
Ögmundur. Sigmar sér ekkert athugavert við fréttina. „Gagnrýnin kem-
ur mér verulega á óvart því ég vona að mönnum finnist það ekki eðli-
legt að menn séu undir áhrifum áfengis í þingstörfum.“
JÓLIN KOSTA SITT
Ætla má að hver Íslending-
ur verji að meðaltali næst-
um 42 þúsund krónum til
innkaupa sem rekja má til
jólahaldsins, að því er fram
kemur í árlegri skýrslu Rannsókna-
seturs verslunarinnar um jólaverslun
Íslendinga. Það gerir 58,5 milljarða
króna. Mikill verðmunur er á vinsæl-
asta jólamatnum á milli verslanna,
samkvæmt nýrri verðlagskönnun ASÍ.
Samkvæmt ASí er algengur munur á
hæsta og lægsta verði á jólakjöti um 43
prósent og algengur verðmunur á jóla-
ís var um 60 prósent. Á laufabrauði og
flatökum var verðmunurinn tæplega
40 prósent og á drykkjavörum var al-
gengur verðmunur á hæsta og lægsta verði um 40 til 50 prósent. Bónus er
með lægsta verðið í 27 af 38 vörutegundum, en Samkaup Úrval, var oftast
með hæsta verðið.
2
3
1 F R J Á L S T , Ó H Á Ð D A G B L A Ð
dv.is
MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 21. – 22. DESEMBER 2009 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 167. TBL.99. ÁRG. – VERÐ KR. 395
BRITTANY
MURPHY
LÁTIN
SVIÐSLJÓS
n FÉKK HJARTA-
ÁFALL 32 ÁRA
GUÐJÓN FÉKK TAUGASJÚKDÓM Í SUMARFRÍINU:
SKÓGARMÍTILLINN ER
KOMINN TIL ÍSLANDS
n SÝGUR BLÓÐ ÚR SPENDÝRUM
LAMAST
EFTIR
BIT
n PADDA Í GRASINU GETUR
VALDIÐ TAUGAHRÖRNUN
n „VERRI EN AIDS“
n RÖNG VIÐBRÖGÐ VIÐ
SMITI LÍFSHÆTTULEG
n „ÞAÐ ER STUTT
ÞANGAÐ TIL ÉG FER“
SIGMAR
BIÐST EKKI
AFSÖKUNAR
ÁFALL ER
BAUGUR
FÉLL
FRÉTTIR
n VILL 25
MILLJÓNA LAUNFRÉTTIR
BEÐIÐ FYRIR
HRAFNKATLI
n SPARNAÐUR
TENGDUR SLYSINU
n JÓN ÞORSTEINN
STERKLEGA GRUNAÐUR
MEÐ STÖÐU
SAKBORNINGS
TIGER LÉT
GRAFA
FRÉTT
EINLÆG
VIGDÍS
n BÓKA-
FLÓÐIÐ
DÆMT
SKÓKASTARI:
SVIKINN UM
HREINAR
MEYJAR
n OG KAMELDÝR
FRÉTTIR
Mikill verðmunur er á vinsælasta
jólamatnum á milli verslana, sam-
kvæmt nýrri verðlagskönnun ASÍ,
sem gerð var í verslunum miðviku-
daginn 16. desember. Samkvæmt
ASí er algengur munur á hæsta og
lægsta verði á jólakjöti um 43 pró-
sent og algengur verðmunur á jóla-
ís var um 60 prósent. Á laufabrauði
og flatökum var verðmunurinn tæp-
lega 40 prósent og á drykkjavörum
var algengur verðmunur á hæsta og
lægsta verði um 40 til 50 prósent.
ASÍ kannað verð á ýmsum vinsælum
jólamatvörutegundunum á borð við
TOYS ́ R ́US
SEKTAÐ
Neytendastofa hefur sektað leik-
fangaverslunina Toys ´R´ Us um
hálfa milljón króna fyrir brot á
útsölureglum. Sannað þótti að
verslunin hefði selt valdar vörur
úr tveimur auglýsingabækling-
um á því verði sem tilgreint var
sem fyrra verð. Einnig var kraf-
ist skýringa á því að Toys ´R´ Us
hefði auglýst nýjar vörur á tilboði.
Samkvæmt reglum verða fyrir-
tæki að geta sannað að að sú vara
sem auglýst er á lækkuðu verði
hafi áður verið seld á fyrra verði.
Neytendastofa ákvað að sekta
verslunina vegna fjölda og um-
fangs brota.
VARAÐ VIÐ
SVIKAMYLLU
Nokkrir íslenskir neytendur hafa
orðið fyrir þeirri óskemmtilegu
reynslu að hafa pantað hótelber-
bergi í gegnum tyrkneska fyrir-
tækið www.bookinhotels.com,
að því er segir frá á vef Neytenda-
samtakanna.
Fólkið greiddi fyrir herbergin
með kreditkorti, en við komuna
á hótelið fannst hins vegar engin
bókun og fólkið þurfti að útvega
sé aðra gistingu. Fólkið hefur
ekki fengið endurgreitt og mjög
erfitt virðist að koma kvörtunum
á framfæri. Svo virðist sem um sé
að ræða svikamyllu og vara Neyt-
endasamtökin við fyrirtækinu.
n Lastið fær Select fyrir
hátt verð á brauðmeti.
„Lanloka í Select
kostar rétt um 500
krónur. Það er
svakalega dýrt,“ sagði
forviða viðskiptavinur
Select sem lét DV vita. Hann hætti
við að kaupa langlokuna.
n Serrano í nýja turninum í Borgartúni
fær lofið. Þeir eru að sögn viðskiptavin-
ar búnir að leggja meiri metnað í
framreiðsluna hjá sér. Nú er
hægt að fá burrito í skál borið
fram á diski, mjög vel úti látið
og girnilegt. Setur matargerð-
ina skör hærra.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 186,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 182,9 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 184,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 181,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 186,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 182,9 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 181,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 178,2 kr.
Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 184,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 181,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 186,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 182,9 kr.UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
10 MÁNUDAGUR 21. desember 2009 NEYTENDUR
Samkvæmt verðlagskönnun ASÍ munar allt að 100 prósentum á vinsælum jólamat í stærstu matvöruverslununum. Bónus er með lægsta verðið í 27 af 38 vörutegundum, en Samkaup Úrval, var oftast með hæsta verðið. Í Hagkaup kostar vinsæll jólaís langmest eða 929 krón-ur en 498 krónur í Krónunni þar sem hann er ódýrastur. Í langflestum kjötvörum er 43 prósenta verðmunur á dýrustu og ódýrustu versluninni.
MIKILL VERÐMUNUR
Á JÓLAMATNUM
hangikjötslæri, hamborgarhryggi,
kalkúna, hreindýrapaté, jólasíld,
jólakonfekt, klementínur og fleira.
Algengt var að ýmsar kjötvörur væru
nákvæmlega jafndýrar upp á krónu,
en þær eru þá jafnan verðmerktar
með smásöluverði hjá framleiðanda.
Verðlagseftirlitið hefur bent á að slík
forverðmerking hamli eðlilega verð-
samkeppni.
Oftast lægsta verð í Bónus
Í könnun ASÍ reyndist Bónus sem
fyrr oftast með lægsta verðið eða
í 28 af 37 vörum. Samkaup - Úrval
reyndist hins vegar vera með hæsta
verðið eða í 16 tilvikum.
Í sumum vöruflokkum var gríð-
arlegur verðmunur og til að mynda
var 101,5 prósenta verðmunur á
rauðum eplum í Bónus og Hag-
kaup. Eplin kostuðu 199 krónur í
Bónus en sömu epli kostuðu 399
krónur í Hagkaup. Í fleiri verðflokk-
um reyndist vera mikill verðmun-
ur. Til að mynda voru tveir lítrar
af vanillu Mjúkís frá Kjörís 87 pró-
sent dýrari í Hagkaup en hann var
í Krónunni. Ísinn kostaði 498 krón-
ur í Krónunni en 929 krónur í Hag-
kaupum.
Könunnin var gerð í Bónus Ak-
ureyri, Krónunni Bíldshöfða, Nettó
Hverafold, Hagkaup í Spöng, Nóa-
túni í Grafarholti, Samkaupum- Úr-
val í Miðvangi.
Ein vara á nákvæm-
lega sama verði
Kílóið af beinlausum hamborgar-
hrygg frá Alí kostar 1.749 krónur í
Bónus og Nettó, en 2.498 krónur í
Kosti og og Samkaup - Úrval. Kíló-
verðið af heilum frosnum kalkúni
er ódýrast í Nettó og Hagkaup á
998 krónur, í öðrum verslunum er
það 100 krónum dýrara, en á 1.198
krónur í Samkaup-Úrval. Nóa kon-
fekt í kassa er á 2.479 krónur í Bón-
us, einni krónu dýrara í Krónunni,
en er 25 prósentum dýrara í Hag-
kaupum og Nóatúni, eða 3.099
krónur. Aðeins ein vinsæl jólamat-
vara reyndist vera á nákvæmlega
sama verði, hvar sem var leitað,
en það var vakúmpakkað hrein-
dýrapaté í lengju á 4.989 krónur
þar sem það var til.
Verðlagskönnunina má sjá í
heild sinni á vef ASÍ.
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Verðsamanburður á vinsælum jólamat
1 kíló af úrbeinuðu KEA Hangilæri
Bónus 2.239
Krónan 2.399
Nettó 2.239
Kostur 3.198
Hagkaup 3.198
Nóatún 3.198
Samkaup- Úrval 3.198
Ora Jólasíld 630 grömm
Bónus 659
Krónan 659
Nettó 698
Kostur X
Hagkaup 699
Nóatún 678
Samkaup Úrval e.
Frosinn heill kalkúnn kílóverð
Bónus 1.098
Krónan 1.098
Nettó 998
Kostur 1.124
Hagkaup 998
Nóatún 1.098
Samkaup Úrval 1.198
Kílóverð af Alí hamborgarhrygg
með beini
Bónus 1.399
Krónan X
Nettó 1.399
Kostur 1.198
Hagkaup 1.998
Nóatún X
Samkaup Úrval 2.498
Emmes jólaís 1.5 lítrar
Bónus 592
Krónan 593
Nettó 679
Kostur 959
Hagkaup 779
Nóatún X
Samkaup Úrval 889
Kíló af klementínum
Bónus 259
Krónan 260
Nettó 349
Kostur 321
Hagkaup 347
Nóatún 347
Samkaup Úrval 379
Kristjáns Laufabrauð 15 stk.
Bónus 1.498
Krónan 1.499
Nettó 1.771
Kostur 1.599
Hagkaup X
Nóatún X
Samkaup Úrval 2.048
Jólasteikin Sérstaklega mikill
verðmunur er á jólasteikum í stærstu
matvöruverslunum landsins.
8 MÁNUDAGUR 21. desember 2009 FRÉTTIR
Toys´R´Us fá sekt
Neytendastofa hefur með
ákvörðun sinni lagt 500.000
króna stjórnvaldssekt á
Toys´R´Us fyrir brot á útsölu-
reglum. Neytendastofa fór fram
á að Toys´R´Us færði sönnur á
að valdar vörur úr tveimur aug-
lýsingabæklingum hafi verið
seldar á því verði sem tilgreint
var sem fyrra verð. Stofnun-
in fór einnig fram á skýring-
ar Toys´R´Us fyrir því að nýjar
vörur voru auglýstar á tilboði.
Neytendastofu bárust engin svör
frá Toys´R´Us þrátt fyrir ítrekuð
bréf stofnunarinnar og því hefur
Toys´R´Us ekki sýnt fram á að
vörurnar hafi verið seldar á fyrra
verði eins og lög og reglur gera
ráð fyrir.
Fimm teknir
fullir
Fimm ökumenn voru staðnir
að því að keyra undir áhrifum
áfengis á höfuðborgarsvæð-
inu aðfaranótt laugardagsins.
Þá var einn til vibótar tekinn
fyrir að keyra undir áhrif-
um fíkniefna. Nokkrir gistu
fangageymslur lögreglu um
nóttina en annars var fremur
rólegt í höfuðborginni.
Hnuplað fyrir
500 milljónir
í desember
„Hnuplið helst mjög í hend-
ur við efnahagsástandið. Það
er algjör fylgni milli þessar-
ar brotastarfsemi og efna-
hagsástandsins,“ segir Andrés
Magnússon, framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu.
Í desember ber jafnan mik-
ið á smáþjófnuðum úr búðum
og áætla samtökin að verslanir
verði af hundruðum milljóna í
jólamánuðinum einum. Andrés
segir að engar tölur séu til yfir
hnupl í jólamánuðinum einum
og sér. Hins vegar séu til tölur
um kostnaðinn á ársgrundvelli.
„Það er þannig að það eru sex til
sex og hálfur milljarður í vörum
sem er stolið á hverju ári.“ Sé sex
og hálfum milljarði deilt niður á
alla tólf mánuði ársins má áætla
gróflega að vörum sé stolið fyrir
að minnsta kosti 540 milljónir
króna á hverjum mánuði.
Fallið frá milli-
skattþrepi á
sykraðar vörur
Ákveðið hefur verið að falla
frá hugmyndum um fjórtán
prósenta milliskattþrep, sem
átti að leggjast á sykraðar
vörur og sölu veitingahúsa að
því er fram kemur á vef Ríkis-
útvarpsins. Almennur virðis-
aukaskattur verður hinsvegar
hækkaður um eitt prósentu-
stig. Eru tillögurnar komnar
frá meirihluta efnahags- og
skattanefndar Alþingis og eru
þær gjörbreytingar á frum-
varpi ríkisstórnarinnar um
skattamál.
„Frá minni hálfu er málinu lokið.
Ég hef sagt það að það sem fullyrt
var í fréttinni er ekki rangt en um
fréttaflutninginn sjálfan verða aðr-
ir að dæma,“ segir Ögmundur Jón-
asson, þingmaður vinstri grænna.
Eftir að Sigmar Guðmunds-
son, aðstoðarritstjóri Kastljóss
Sjónvarpsins, flutti fréttir af vín-
drykkju Ögmundar Jónassonar,
þingmanns vinstri grænna, fyr-
ir atkvæðagreiðslu Alþingis hef-
ur fréttamaðurinn orðið fyrir
talsverðri gagnrýni í bloggheim-
um. Þar hafa meðal annarra veitt
Ögmundi stuðning þau Birgitta
Jónsdóttir, þingmaður Hreyfing-
arinnar, Björn Bjarnason, fyrrver-
andi dómsmálaráðherra, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, prófess-
or í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, og Tryggvi Þór Herberts-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Fréttaflutningurinn er harð-
lega gagnrýndur og rætt um að
Kastljósið skuldi Ögmundi afsök-
unarbeiðni.
Engin frétt?
Sigmar Guðmundsson, aðstoðar-
ritstjóri Kastljóssins, útilokar að
svo verði þar sem fréttin eigi fylli-
lega rétt á sér. Hann segir ritstjórn-
ina hafa búist við gagnrýni en það
hafi verið einróma álit hennar að
víndrykkja Ögmundar við störf
sín hafi átt erindi við almenning.
„Gagnrýnin kemur mér verulega
á óvart því ég vona að mönnum
finnist það ekki eðlilegt að menn
séu undir áhrifum áfengis í þing-
störfum. Við fórum vel og vand-
lega yfir þetta á ritstjórninni. Eftir
að hafa rætt þetta fram og til baka
sáum við að okkur finnst það vera
frétt þegar alþingismaður er undir
áhrifum áfengis þegar hann greið-
ir atkvæði á þingi eða tekur að
öðru leyti þátt í þingstörfum. Það
er bara svoleiðis. Auðvitað þykir
okkur ekkert skemmtilegt að segja
þannig frétt en við teljum það frétt-
næmt,“ segir Sigmar.
Hannes Hólmsteinn telur Sig-
mar hafa sýnt af sér ódrengskap.
Hann telur Ögmund ekki hafa
brotið af sér þegar hann kaus und-
ir áhrifum. „Ögmundur Jónasson
gerði það, sem rétt var. Kastljóss-
menn gerðu það, sem rangt var. Sú
frétt þeirra var engin frétt, að Ög-
mundur hefði greitt atkvæði und-
ir áhrifum. Það er ekki bannað að
fá sér vín með hádegismatnum
og raunar ekkert ámælisvert við
það. Þingmenn eiga ekki að taka til
máls, ef þeir finna á sér, en auðvit-
að geta þeir greitt atkvæði, þegar
verið er að afgreiða mál, sem lengi
hafa verið í undirbúningi,“ sagði
Hannes Hólmsteinn.
Tíðkast ekki hjá öðrum
Björn tekur í sama streng og segir
fréttaflutning Kastljóssins undar-
legan. Hann bendir á þá staðreynd
að áfengisneysla hafi breyst til hins
betra og þannig sé orðið algengara
að skálað sé í víni eða bjór í hádegi,
ef svo beri undir. Björn segist eiga
erfitt með að átta sig á því hvað
vaki fyrir Kastljósinu með slíkri
fréttamennsku. „Sé Kastljós að
segja hófdrykkju stríð á hendur, er
það í sjálfu sér virðingarvert. Hins
vegar er ómaklegt, að Ögmundur
Jónasson sé gerður að blóraböggli
í því stríði,“ segir Björn.
Sigmar ítrekar þá skoðun sína
að það sé fréttnæmt að þingmað-
ur mæti í þingsal undir áhrifum.
Hann segir það svo í hönd-
um almennings að dæma
hvort það sé í lagi eða
ekki. „Mér finnst sér-
kennilegt að einhverjir
telji fréttaflutninginn
sem slíkan gagnrýni-
verðan. Við erum
ekki að leggja neitt
mat á það í fréttinni hvort þetta sé
í lagi eða ekki. Það er almennings
að meta það. Það tíðkast ekki hjá
öðrum starfsstéttum, til að mynda
lögreglumönnum eða læknum,
að þær sinni störfum undir áhrif-
um áfengis og því er eðlilegt að al-
menningur fái að meta það hvort
það sé í lagi innan
Alþingis. Við
stöndum
fyllilega
við frétt-
ina og það
er ekkert
rangt við
hana. Þar
af leiðandi
er engin
ástæða til
að biðjast
afsökunar,“
segir Sigmar.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
FRÉTTIN Á
FYLLILEGA
RÉTT Á SÉR
Ritstjórn Kastljóssins hefur fengið talsverða
gagnrýni fyrir fréttaflutning af víndrykkju
Ögmundar Jónassonar, þingmanns vinstri
grænna, fyrir atvæðagreiðslu á Alþingi.
Sigmar Guðmundsson, aðstoðarritstjóri
Kastljóssins, undrast gagnrýnina og
útilokar afsökunarbeiðni.
„Gagnrýnin kem-
ur mér verulega á
óvart því ég vona
að mönnum finnst
það ekki eðlilegt
að menn séu undir
áhrifum áfengis í
þingstörfum.“
Undir áhrifum Ögmundur hefur viðurkennt
að hafa drukkið vín í hádeginu en lætur
öðrum eftir að dæma fréttaflutninginn.
Stendur við fréttina Þar sem ekkert sé
rangt í fréttinni stendur Sigmar fyllilega
við hana og biður almenning að dæma
hvort það sé í lagi að mæta undir áhrifum
í vinnuna.
Eignir fyrrverandi starfsmanns Byko,
Sigurjóns Arnar Steingrímssonar, hafa
verið kyrrsettar vegna þess að Byko
telur að hann hafi dregið sér tæpar
20 milljónir króna meðan hann var
yfirmaður lagnadeildar fyrirtækisins.
Dómur féll í málinu 17. desember
síðastliðinn þar sem ákvörðun sýslu-
mannsins í Reykjavík frá 5. októb-
er um að hafna kyrrsetningarbeiðni
Byko var felld úr gildi.
Líkt og DV fjallaði um var Sigur-
jóni sagt upp störfum hjá Byko í byrj-
un árs vegna þess að upp komst að
hann hefði smyglað bjór til landsins
í vörugámum Byko og notað hann til
að hygla viðskiptavinum fyrirtækis-
ins. Hinn meinti fjárdráttur kom í ljós
í kjölfarið. Bjórsmyglið er til rannsókn-
ar hjá lögreglunni.
Í dómnum segir að Byko telji að
Sigurjón hafi látið erlenda birgðasala
Byko greiða sér umboðslaun persónu-
lega. Umboðslaunin hafi átt að fara
til Byko en Sigurjó hafi búið svo um
hnútana að hann hafi sjálfur fengið
tæpar 20 milljónir króna. Hinn meinti
fjárdráttur á að hafa átt sér stað á ár-
inu 2008.
Samkvæmt málflutningi lögmanns
Byko, sem reifaður er í dómnum, dró
Sigurjón sér peningana þannig að
hann notaði nafn á fyrirtæki sem var
mjög líkt nafninu á dótturfélagi Byko
sem hefði átt að fá umboðslaunin og
látið birgðasalana greiða umboðs-
launin inn á reikning þess fyrirtækis.
Fyrirtækið sem Sigurjón notaði heit-
ir Rammis en dótturfélag Byko heitir
Ramis. Í dómnum segir að Byko álíti
sem svo að Sigurjón hafi notað þetta
nafn í „blekkingarskyni“. „Ætla verði að
varnaraðili hafi notað nafnið Rammis
að þessu leyti í blekkingarskyni.“
Byko vill fá fjármunina sem fyr-
irtækið telur að Sigurjón hafi dregið
sér til baka og kyrrsetningin til þess
gerð að hann komi eignum sínum
ekki undan á einhvern hátt. Líklegt
má telja að Byko höfði skaðabótamál
gegn Sigurjóni út af fjárdrættinum en
hann neitar því í dómnum að um-
boðsgreiðslurnar hafi verið ólögmæt-
ar þó svo að hann viðurkenni að þær
hafi verið ámælisverðar.
Brottrekinn starfsmaður Byko talinn hafa misnotað stöðu sína:
Vændur um 20 milljóna fjárdrátt
Eignirnar kyrrsettar Eignir Sigurjóns
Arnar verða kyrrsettar því Byko telur hann
hafa dregið sér tæpar 20 milljónir sem
með réttu hefðu átt að renna til Byko.
2 FÖSTUDAGUR 23. desember 2009 FRÉTTIR
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Airfree lofthreinsitækið
Byggir á nýrri tækni sem eyðir
• Svifryki, myglusveppi og ólykt
• Gæludýraflösu og bakteríum
• Vírusum og öðrum örverum
• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt
• Tilvalið á heimilið og skrifstofuna
Hæð aðeins 27 cm
Betra loft
betri líðan
„ÉG ER ÞREYTTUR Á
DÆTRUM MÍNUM“
„Það kemur mér ekki við hvort eða
hvert þær vilja fara og mér er alveg
sama,“ segir Halim Al þegar blaða-
maður spyr hann út í tilætlanir Soph-
iu Hansen um að önnur dætra þeirra
beri vitni í sakamálinu gegn Sophiu
í Héraðsdómi Reykjavíkur. Halim Al
segist ekki ætla að standa í vegi fyrir
Dagbjörtu og Rúnu kjósi þær að fara
til Íslands. „Ég er ekki í neinu sam-
bandi við dætur mínar. Þær hafa ekki
spurt mig og þær þurfa þess ekki.“
Þingfesting var á mánudaginn í
Héraðsdómi Reykjavíkur í fjársvika-
máli á hendur Sophiu Hansen sem
ríkissaksóknari höfðar. Aðalmeðferð
málsins mun fara fram 2. febrúar
og sagði Sophia við þingfestinguna
á mánudagsmorgun að hún myndi
kalla aðra dóttur sína til sem vitni í
málinu. Er óhætt að segja að sú yf-
irlýsing hafi komið á óvart. Hvorki
Dagbjört né Rúna hafa komið til Ís-
lands í hartnær tvo áratugi.
Opinbert mál gegn Sophiu
Sophia var fyrr á þessu ári dæmd til
að greiða Sigurði Pétri Harðarsyni
um 20 milljónir króna vegna van-
goldinna skulda. Málið sem ríkis-
saksóknari höfðar á hendur henni
nú er sprottið úr því þegar Sophia
kærði Sigurð Pétur fyrir að hafa fals-
að undirskrift hennar og þannig haft
af henni fé.
Sigurður Pétur var á árum áður
nánasti bandamaður Sophiu í bar-
áttu hennar um að fá dætur sínar
Dagbjörtu og Rúnu heim til Íslands,
en barnsfaðir hennar Halim Al neit-
aði henni um umgengnisrétt.
Sigurður Pétur neitaði því að
hafa falsað undirskrift Sophiu og
var undirskriftin send til rithandar-
rannsóknar Statens kriminaltekn-
iska laboratorium í Svíþjóð og bentu
niðurstöður þeirrar rannsóknar ein-
dregið til þess að umrædd undir-
skrift væri ekki gerð af Sigurði Pétri
heldur Sophiu sjálfri.
Mál Sophiu á hendur Sigurði
Pétri var því látið niður falla, en nið-
urstaðan gaf á sama tíma tilefni til
þess að höfða opinbert mál á hendur
Sophiu, enda lögbrot að hafa mann
fyrir rangri sök, og fer málið fram í
febrúar. Sophia neitar sök.
Fékk nóg af dætrum sínum
Halim Al býr í Istanbúl. Hann seg-
ist ekkert vita um mál Sophiu og
hvort hún hafi beðið dætur þeirra
að bera vitni hér á landi. Hann seg-
ist ekki vera í neinu sambandi við
þær. „Dætur mínar mega fara ef
þær vilja. Þær eru 27 og 29 ára. Mér
er alveg sama um þær. Ég veit ekki
hvort þær vilja fara til Bandaríkj-
anna, Englands eða Íslands og mér
er alveg sama. Þær eru báðar gift-
ar,“ segir Halim og kveðst ekki einu
sinni vita hvort þær séu í Tyrklandi
núna.
„Þær eru gamlar. Gamlar konur.
Þær eiga börn og eiginmenn. Ég vil
bara fá frið fyrir þeim. Ég fékk nóg
af þeim,“ segir Halim nokkuð hvass,
hugsar þögull um stund og breyt-
ir um tón: „Ég er þreyttur á dætrum
mínum. Nú ráða þær sjálfar yfir eigin
högum. Ég stjórna engu.“
Gamall og nennir ekki að vinna
Halim Al segist finna fyrir aldrin-
um. Halim Al komst á spjöld Ís-
landssögunnar í júní árið 1990 þeg-
ar hann fór með Dagbjörtu Vesile,
níu ára, og Rúnu Ayisegül, sjö ára,
dætur sínar og Sophiu Hansen, til
Tyrklands og neitaði að snúa aft-
ur. Margra ára hatrammar deilur og
dómsmál spruttu vegna brottnáms-
ins og málið vakti gríðarlega athygli
á Íslandi og í Tyrklandi. Nú, nærri
tuttugu árum síðar, kveðst Halim
þreyttur. Hann hefur átt átta hæða
stórhýsi í Istanbúl um árabil og leigt
út rými í því fyrir atvinnurekstur, t.d.
gallabuxnaverksmiðju. Halim seg-
ist nú vera sestur í helgan stein. „Ég
nenni ekki að vinna lengur. Ég vinn
bara örlítið í húsinu mínu og sinni
fjölskyldunni.“
Stóð sína plikt
Halim kveðst hafa gert það sem hon-
um bar í uppeldi barnanna. Sá tími
sé einfaldlega liðinn. „Dætur mín-
ar eru vaxnar úr grasi. Ég get ekki
ráðið yfir þeim alla ævi. Ég get ekki
sagt: „Gerðu þetta, gerðu hitt“. Nei.
Þær eru ekki börn lengur, þær eru
orðnar gamlar og mega fara til Ís-
lands ef þær vilja. Halim Al er gamall
maður og vill hvílast. Ég sinnti mín-
um skyldum sem faðir. En nú er það
búið.“ Halim saknar Íslands og seg-
ist eiga marga góða vini hérlendis.
„Þakka þér, bróðir, fyrir að hringja.
Ég bið að heilsa öllum Íslendingum.
Ég elska þá alla.“
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Dæturnar Dagbjört og Rúna fóru frá Íslandi árið 1990.
Alveg sama Halim Al segist vera orðinn þreyttur á dætrum sínum. Honum sé alveg
sama hvert þær fari. MYND: RÓBERT REYNISSON
„Þær eru gamlar konur. Ég vil bara fá
frið fyrir þeim. Ég fékk nóg af þeim“