Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 54
HEIMSINS ÞYNNSTI SKJÁR Raftækjaframleiðandinn LG er einn af leiðandi frumkvöðlum í gerð háskerpuskjáa. Fyrirtækið sendi frá sér fréttatilkynningu 21. þessa mánaðar þess efnis að því hefði tekist að gera þynnsta háskerpuskjá í heiminum í dag en skjárinn er aðeins 2,6 millimetrar að þykkt og vegur tæplega fjögur kílógrömm þrátt fyrir að vera 42 tommur. Skjárinn sem um ræðir er þó aðeins frumgerð og óvíst hvenær framleiðsla fyr- ir almennan markað mun hefjast. HRINGDI Í NEYÐAR- LÍNU LÖGREGLU Aðframkomin og taugastrekkt móðir fjórtán ára unglings í Boston í Bandaríkjunum endaði á því að hringja í neyðarlínu lögreglunnar klukkan að ganga fjögur aðfaranótt síðasta sunnudags. Ástæðan var að sonur hennar neitaði að slökkva á leikjatölvu sinni þar sem hann var önnum kafinn við að leika hinn vinsæla bílaþjófaleik Grand Theft Auto. Lögreglumennirnir sem komu á staðinn voru undrandi þegar ástæða útkallsins kom í ljós en létu til leiðast að hjálpa móðurinni við að koma drengnum undir sæng. HUGARORKAN FLYTUR FJÖLL Að rita orð og setningar með hugarorkunni einni saman virðist vera hreinn og beinn vísindaskáld- skapur en nú hefur komið í ljós að þetta er ekki svo fjarlægur draumur ef marka má rannsóknir taugasér- fræðinga og vísindamanna við Mayo Clinic í Flórída í Bandaríkjunum. Vísindamennirnir voru að vinna með tilraun til að greina virkni flogaveik- iskasta með því að tengja rafskaut við höfuð sjúklinga. Í tilrauninni var ákveðið að tengja rafskautin með skurðaðgerð beint við heilabörk sjúklinganna til að fá áreiðanlegri niðurstöður. Við tilraunina kom í ljós að þegar sjúklingurinn sá fyrir sér í huganum mynd af bókstaf komu breytilegar upplýsingar fram fyrir hvern staf sem gaf vísindamönnun- um þá hugmynd að stilla hugbúnað- inn að heilabylgjum hvers sjúklings og kortleggja stafrófið með upplýsingunum sem komu frá honum. Þær tilraunir leiddu til þess á endanum að í hvert skipti sem viðkomandi ímyndaði sér ákveðinn bókstaf birtist hann á tölvuskjánum. Tilraunirnar gefa fyrirheit um að í náinni framtíð verði hægt að hjálpa um það bil tveimur milljónum fatlaðra einstaklinga í Bandaríkjun- um sem í dag þurfa verulega aðstoð við að sinna einföldustu verkum. Þannig má sjá fyrir sér að hægt verði að stjórna til dæmis ýmsum raftækjum, hurðum og farartækjum með þessari tækni þegar á líður. UMSJÓN: PÁLL SVANSSON, palli@dv.is Google-fyrirtækið keypti tvö ný fyrirtæki fyrr í mánuðinum, ann- ars vegar DocVerse sem selur við- bót við Micro soft Office ritvinnslu- pakkann sem gerir kleift að deila og vinna sameiginlega með Office-skjöl á vefnum, og hinvegar AppJet sem selur EtherPad, veflægan ritvinnslu- pakka sem nýtur mikilla vinsælda vegna einfaldleika og vel hannaðs viðmóts. Kaupin á fyrirtækjunum tveim- ur koma ekki á óvart því Google hef- ur þegar lýst því yfir að á árinu 2010 sé fyrirhugað að gera á bilinu þrjá- tíu til fimmtíu breytingar á Google Docs, hinum veflæga ritvinnslu- pakka Google sem er hluti af Google Apps, fyrirtækjapakka Google. Þau forrit sem pakkinn samanstend- ur af eru Gmail (póstkerfi), Google Talk (spjallforrit), Google Calendar (dagatal), Google Docs (ritvinnsla), Google Sites (vefsíður) og Google Video (myndbandsþjónusta). Fyrirtæki sem kaupa pakkann halda eigin netföngum og fá aðgang að sérhæfðu stjórnborði þar sem meðal annars er hægt að breyta eða stofna ný netföng fyrir starfsmenn. Veflæg ritvinnsla Kosturinn við að vinna með vef- læga ritvinnslu er að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að harði diskur- inn í tölvunni hrynji eða vírus eyði öllum gögnum sem ekkert afrit er til af. Annar kostur er sá að þú get- ur alltaf nálgast skjölin þín, óháð staðsetningu, tölvu eða stýrikerfi, gegnum netið. Í Docs er að finna öll helstu stílsnið og möguleika eins og í hefðbundnu ritvinnsluforriti, hægt er að gera töflur, telja orð og inn- setja myndir. Docs hefur einnig inn- byggðan stafsetningaryfirlestur fyr- ir íslensku sem getur komið í góðar þarfir. Það má vinna sameiginlega með skjöl, hægt er að virkja mögu- leika um að deila skjali og geta þá aðrir unnið í því tiltekna skjali án þess að komast í önnur skjöl við- komandi. Ekki þarf þó að vinna ein- göngu með skjalið á vefnum, það er hægt að vista það á tölvuna í ýmsum skráarsniðum svo sem Word, PDF, OpenOffice, RTF, HTML eða sem hreinan texta. Stórir og smáir velja Google Apps Þrátt fyrir að Office-pakkinn frá Micro soft njóti enn mikilla vinsælda um heim allan setur verðið töluvert strik í reikninginn hjá smærri fyrir- tækjum. Á móti býður Google Goog- le Apps-pakkann, sem inniheldur meðal annars ritvinnslu- og póst- kerfi fyrir aðeins brot af því verði sem hliðstæð þjónusta kostar. Stærri aðilar hafa líka ákveðið að breyta til og spara þannig stórar fjárhæðir, þannig færði Los Angeles-borg all- an netpóst starfsmanna sinna yfir til Google í síðasta mánuði og gat í kjöl- farið lokað um hundrað vefþjónum sem höfðu séð um póstkerfi borg- arinnar. Áætlað er að borgin spari að auki vegna þessa um 750 þúsund dollara á næstu fimm árum vegna minni rafmagnskostnaðar. Í dag nota um tuttugu milljónir manna og tvær milljónir fyrirtækja þennan pakka frá Google. palli@dv.is 54 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 HELGARBLAÐ Sveigjanleiki í samskiptum er kostur sem stór og smá fyrirtæki líta til þegar val á hug- búnaði liggur fyrir. Sparnaður spilar einnig stórt hlutverk og sífellt fleiri fyrirtæki og stofnanir renna nú hýru auga til Google Apps, en það vakti töluverða athygli í síðasta mánuði þegar Los Angeles, önnur stærsta borg Bandaríkjanna, skipti alfarið yfir í þenn- an fyrirtækjapakka Google fyrir um þrjátíu þúsund starfsmenn sína. SVEIGJANLEIKI OG SPARNAÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.