Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 12
10 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 FRÉTTIR SÍMTÖLIN DÝRARI EF NETÞJÓNABÚ KLIKKAR Fyrirtækið Farice hefur þegar lagt Danice-sæstrenginn sem er meðal annars ætlað er að þjóna net- þjónabúi Verne Holding í Reykjanesbæ. Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Farice, segir að ef frumvarp til laga um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ verði ekki samþykkt muni það stórhækka verð á síma- og netþjónustu allra símafyrirtækja hérlendis. Ef ekkert verður af netþjónabúi Verne Holdings á Vaðlaheiði gæti það orðið til þess að verð á síma- og netþjónustu til neytenda gæti stórhækkað hjá öllum símafyr- irtækjum. „Það mun hafa mjög slæmar afleiðingar fyrir þjóðina í heild ef netþjónabúið kemur ekki. Ef þetta klikkar erum við í vondum málum,“ segir Guðmundur Gunn- arsson, framkvæmdastjóri Farice, í samtali við DV. Fyrirtækið Farice rekur sæstrengina Danice og Far- ice-1. Búið að tefjast um heilt ár Farice gerði samning við Verne Holding í febrúar 2008 um aðgang fyrirtækisins að sæstreng Farice. Danice-sæstrengurinn var síðan tekinn í notkun í ágúst 2009. Því er ljóst að ef frumvarp til laga um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ verður ekki sam- þykkt á Alþingi mun Farice verða af miklum tekjum. Nú þegar er Far- ice að verða af tekjum. Fyrstu áætl- anir gerðu ráð fyrir að netþjónabú Verne Holding yrði tekið í notkun á þessu ári. Það hefur nú frestast um heilt ár vegna bankahrunsins sem varð á Íslandi haustið 2008. Guðmundur segist ekki geta sagt til um það hvort Farice eigi ein- hvern skaðabótarétt á Verne Hold- ing ef ekki verður af fyrirhuguðu netþjónabúi. Verne Holdings skrif- aði upp á samning um byggingu gagnaversins við Landsvirkjun í febrúar 2008 og var samningurinn þá metinn á um 20 milljarða króna. Ástæðan fyrir samningunum við Landsvirkjun er að gagnaverið þarf 150 megavött af raforku fyrir starf- semi sína. 5 milljarða ríkisábyrgð Íslenska ríkið veitti heimild til fimm milljarða króna ríkisábyrgðar á Danice-strengnum síðasta vor. Í kjölfar þess fór Farice í fimm millj- arða króna skuldabréfaútboð og því er ríkisábyrgð á þeim skulda- bréfum. Að sögn Gunnars hyggst Farice síðan auka hlutafé sitt um 25 milljónir evra eða sem nem- ur 4,6 milljörðum íslenskra króna á næstu vikum. Vegna þessa hef- ur íslenska ríkið óskað eftir auka- heimild í fjárlögum til að taka þátt í hlutafjárútboði Farice. Mun ríkið leggja fram 6,25 miljónir evra eða sem nemur 1.150 miiljónum króna sem er í samræmi við eignahlut ríkisins í Farice. Fyrrum Landsbankamenn endurskipuleggja Farice Fyritækið Arctica Finance vinnur nú að fjárhagslegri endurskipu- lagningu Farice. Flestir starfsmenn fyrirtækisins störfuðu áður á fyrir- tækjasviði Landsbankans. Því skýt- ur nokkuð skökku við að fyrrver- andi starfsmenn Björgólfs Thors Björgólfssonar séu að endurskipu- leggja fyrirtæki sem á allt sitt und- ir því að fyrirtækið Verne Holding, sem Björgólfur á um helmingshlut í, fái heimild frá Alþingi til að starf- rækja netþjónabú á Suðurnesjum. Guðmundur segir ekkert at- hugavert við þetta. Fjárhagsleg endurskipulagning Farice hafi far- ið í útboð. „Þannig að það sé alveg á hreinu óskaði Farice eftir tiboð- um frá einum átta fyrirtækjum og þetta var niðurstaðan,“ segir Guð- mundur. Fyrirtækið Arctica Fin- ance átti þar lægsta tilboðið sem síðan var tekið. Arctica Finance hóf fjárhagslega endurskipulagn- ingu Farice fyrir um mánuði og segist Guðmundur gera ráð fyrir að henni verið lokið innan tveggja mánaða. Hætt við streng til Írlands Morgunblaðið fullyrti í mars 2009 að í lok árs 2007 hefði þáverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar beitt sér fyrir því að hætt yrði við að leggja hinn svo- kallaða Hibernia-sæstreng til Ír- lands. Var það gert eftir að fjárfest- ar höfðu lýst áhuga á því að byggja netþjónabú á Suðurnesjum. Í stað þess hefði verið farið í að leggja Danice-sæstrenginn til Danmerk- ur. Guðmundur segir að það sé ekki rétt að hætt hafi verið við Hib ernia-strenginn eftir fjárfestar lýstu áhuga á að byggja netþjóna- bú á Suðurnesjum. Hugmyndin að leggja Danice sæstrenginn hafi komið áður en það kom til tals að leggja Hibernia til Írlands. Eftir að hugmynir komu upp um byggingu netþjónabús hafi það síðan verið talinn heppilegri kostur að leggja Danice-strenginn til Danmerku. Það sé hins vegar rétt að Danice- strengurinn sé öflugri en gert var ráð fyrir til að geta þjónað netbúi. Þess vegna hafi verið farið í að auka hlutafé Farice í desember 2007. Þá lögðu Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suður- nesja fram 1.500 milljónir króna í hlutafé. Auk þess lagði ríkið fram 400 milljónir króna. ANNAS SIGMUNDSSON blaðamaður skrifar: as @dv.is Við undirritun Skrifað var undir samning um byggingu netþjónabús við Verne Holding í febrúar 2008 þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var enn við völd. David Fialkow, framkvæmdastjóri General Catalyst: Komnir með nýjan hluthafa „Við erum að fá nýjan fjárfesti sem verður stærri en bæði General Catalyst og Novator. Ég get ekki gefið upp nafnið hans. Þetta er mjög stórt evrópskt félag en við munum til- kynna nafn hans í janúar,“ segir Dav- id Fialkow, framkvæmdastjóri Gen- eral Catalyst í samtali við DV. General Catalyst er bandarískt áhættufjár- festingafyrirtæki sem fer með 60 pró- senta hlut í Verne Holding á móti Novator sem fer með 40 prósenta hlut. 65 milljarða fjárfesting Fialkow segir að hann hafi kom- ið að fjárfestingum á Íslandi síð- ustu fimm árin. Auk þess að sitja í stjórn Verne Holding er hann stjórn- armaður í tölvuleikjaframleiðand- anum CCP. Samkvæmt heimasíðu General Catalyst fer fyrirtækið eft- ir svokallaðri virðisaukandi stefnu (e. value-added). Í því felst að flest- ar fjárfestingar eru til fimm til sjö ára. Skuldsetningahlutfall er 60 til 70 prósent og ávöxtunarkrafa 12 til 18 prósent. Fialkow segir að Gen- eral Catalyst líti á fjárfestinguna í gagnaverinu sem langtímafjárfest- ingu en það samrýmist ekki fjár- festingastefnu fyrirtækisins. „Svo lengi sem fjárfestingin er að gefa af sér gott fjárflæði munum við halda í hana,“ segir Fialkow. Hann segir að eiginfjárframlag fjárfesta í gagna- verinu verði um 100 milljónir doll- ara eða sem nemur 12,3 milljörðum íslenskra króna. Að sögn Fialkow gæti heildarfjárfesting í gagnaverinu numið allt að 500 milljónum dollara eða sem nemur tæpum 65 milljöðr- um íslenskra króna. Samkvæmt frétt í Boston Bus- iness Journal jókst eftirspurn eft- ir gagnaverum um 14 prósent árið 2008 en framboðið einungis um sex prósent. Blaðið hefur þó eftir grein- anda að miðað við núverandi efna- hagsástand gæti reynst erfitt að fá nýja aðila til að fjárfesta í gagnaver- um. „Efnahagsástandið hefur líklega þau áhrif að það verða til færri nýir viðskiptavinir í augnablikinu.“ Hilmar Veigar átti hugmyndina Þegar hann er spurður að því hvers vegna General Catalyst hafi ákveð- ið að fjárfesta á Íslandi segir hann að hér séu frumkvöðlar á heims- mælikvarða. Tæknistig sé mjög hátt á Íslandi og það fari vel saman með nýsköpun. Fialkow telur að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, sé einn færasti forstjóri heims. Hann segir að Hilmar Veigar eigi hugmynd- ina að gagnaverinu á Reykjanesi. General Catalyst hafi síðan kynnst Novator í gegnum CCP þar sem bæði fyrirtækin eru hluthafar. as@dv.is Tilkynnt í janúar David Fialkow, framkvæmdastjóri hjá General Catalyst, segir að tikynnt verði um nýjan hluthafa í Verne Holding í janúar. Það sé evrópskt fjárfestingafélag sem muni fara með stærri hlut en General Catalyst og Novator. Netþjónabú Hér má sjá húsnæði sem mun hýsa hluta af starfsemi net- þjónabús Verne Holding á Vaðlaheiði í Reykjanesbæ. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON Umdeildur Björgólfur Thor Björgólfsson er annar af stærstu eigendum Verne Holdings í gegnum félag sitt Novator. Hefur það sætt gagnrýni að undanförnu að ríkisstjórnin ætli í samstarf við Novator.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.