Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009
Á meðan knattspyrnumenn um all-
an heim liggja saddir og sælir með
tærnar upp í loftið eru leikmenn
ensku úrvalsdeildarinnar dregnir á
lappir til þess að skemmta mér og
þér. Tvær umferðir eru leiknar, eins
og öll jól, í þetta skiptið á fimm dög-
um frá 26. desember til þess 29. Bik-
arkeppnin hefst svo strax á nýárinu
þannig að ekki eru leiknar þrjár um-
ferðir eins og stundum hefur tíðkast.
Að vera efstur á töflunni á nýárinu
hefur oftar en ekki þýtt meistaratit-
il þótt Liverpool hafi tekist að klúðra
því í fyrra. En það er svo margt sem
þarf að huga að þessi jólin hjá hin-
um og þessum liðum.
Frumraun Mancini
Roberto Mancini fær á pappírn-
um ágæta leiki til þess að hefja feril
sinn með hjá Manchester City. Rík-
isbubbarnir í bláa hluta Manchest-
er leika gegn Stoke á annan dag
jóla og svo Úlfunum tveimur dög-
um síðar. Hann hefur þó mikið
verk að vinna því leikmenn City
hafa margir hverjir mótmælt brott-
rekstri Hughes og þarf sá ítalski því
að vinna búningsklefann fljótt á
sitt band.
Síðan er spurning hvað hann
gerir gegn Stoke. Afar ólíklegt er
að hann hafi nokkurn tíma séð fót-
bolta eins og Tony Pulis setur upp.
Vissulega vörðust lið gegn Inter
þegar Mancini var þar en Stoke-
liðið er engu líkt þegar kemur að
því að verjast á sínum eigin vall-
arhelmingi. Það er alla vega morg-
unljóst að Mancini vill byrja með
sigri, og eiginlega þarf þess því
peningaflóði á að fylgja árangur.
Erkifjendur í vanda
Um síðustu jól snerist öll umræð-
an um erkifjendurna Liverpool
og Manchester United. Liverpool
var þá á góðu skriði og sjá stuðn-
ingsmenn liðsins meistaratitil-
inn í hyllingum. Liðið var líka efst
í deildinni þegar kom að nýárinu
en það hefur ætíð skilað meistara-
titli á endanum. Meistaratitillinn
er svo sannarlega úr sögunni hjá
Liverpool en þar á bæ verða menn
að fara að hysja upp um sig bræk-
urnar.
Liverpool er í áttunda sæti
deildarinnar, ekki einu sinni í Evr-
ópudeildarsæti, og heilum átta
stigum frá sæti í meistaradeild-
inni. Það fær heimaleik gegn Úlf-
unum til þess að koma sér í gang á
annan dag jóla en þremur dögum
síðar bíður þeirra gífurlega erfið-
ur útileikur gegn Aston Villa, lið-
inu í fjórða sæti. Liverpool verður
líka öll jólin án Javiers Mascherano
sem fékk óréttmætt rautt spjald
gegn Portsmouth.
Manchester United hefur tap-
að tveimur leikjum í röð sem þykir
sæta tíðindum hvar sem er í heim-
inum. Það fær um jólin leiki gegn
Hull og Wigan og er mikilvægt fyr-
ir liðið að koma sér á skrið því eftir
fylgja þrír leikir gegn Birmingham,
Burnley og aftur gegn Hull áður en
United heldur í stórslag gegn Ars-
enal á Emirates.
Manndómspróf hjá Villa
Aston Villa situr í fjórða sæti ensku
úrvalsdeildarinnar og gerir sterkt
tilkall til sætis í meistaradeild-
inni. Það hefur tveggja stiga for-
skot á Tottenham um þetta verð-
mæta sæti en fær svo sannarlega
manndómspróf um jólin. Það er
ekkert auðvelt prógram hjá Mart-
in O´Neill og hans strákum. Þeirra
bíða útileikur gegn Arsenal og svo
heimaleikur gegn Liverpool. Tak-
ist liðinu að innbyrða allavega fjög-
ur stig úr þessum tveimur leikjum
þurfa menn að neyðast til að taka
meistaradeildarbón þeirra alvar-
lega.
Þeirra helsti keppinautur um
fjórða sætið, Tottenham, fær einnig
erfiðan útileik gegn Fulham og svo
heimaleik gegn West Ham tveimur
dögum síðar. Nú er spurningin ein-
föld: Hvort liðið sýnir stöðugleika
og gerir sig breitt í toppbaráttunni?
Enski boltinn er svo sannarlega framlenging á hátíðunum. Þeg-
ar jólin eru í þann mund að enda hefst fimm daga fótboltahátíð
þar sem tvær umferðir verða spilaðar. Oftar en ekki er það liðið
sem er efst á nýársdag sem verður enskur meistari. En hver fær
besta jólapakkann? Vinnur Liverpool kannski leik? Kemst Man.
United á skrið eins og venjulega um jólin? Og stærsta spurning-
in er: Hvernig fer Mancini af stað með City?
HÁTÍÐIN EFTIR
HÁTÍÐARNAR
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Roberto Mancini Fær
auðvelda leiki á pappírnum um
jólin í sínum fyrstu leikjum með
Manchester City. MYND AFP
Aston Villa Getur svo
sannarlega sýnt úr hverju það
er gert um jólin. MYND AFP
n Laugardagur 26. desember
(annar í jólum)
12:45 Birmingham - Chelsea
13:00 Fulham - Tottenham
13:00 West Ham - Portsmouth
14:00 Burnley - Bolton
15:00 Man. City - Stoke
15:00 Sunderland - Everton
15:00 Wigan - Blackburn
17:30 Liverpool - Úlfarnir
n Sunnudagur 27. desember
13:30 Arsenal - Aston Villa
16:00 Hull - Man. United
n Mánudagur 28. desember
12:45 Tottenham - West Ham
15:00 Blackburn - Sunderland
15:00 Chelsea - Fulham
15:00 Everton - Burnley
15:00 Stoke - Birmingham
19:45 Úlfarnir - Man. City
n Þriðjudagur 29. desember
19:45 Aston Villa - Liverpool
20:00 Bolton - Hull
n Miðvikudagur 30. desember
19:45 Portsmouth - Arsenal
20:00 Man. United - Wigan
Jólaleikirnir