Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 FRÉTTIR „Maður er alltaf að gera einhver góð- verk á hverjum degi þótt maður átti sig ekki alltaf á því,“ segir söngkonan Helga Möller og bætir við að fallegt bros og gott viðmót geti gert ótrúleg- ustu hluti. „Ég hef oft fengið til mín fólk sem hefur upplifað slíkt í mínu fari og mér þykir alltaf jafnvænt um að heyra það. Ég á erfitt með að horfa upp á allan ljótleikann sem fylgir daglegu lífi, eins og þegar illa er komið fram við afgreiðslufólk og illa er farið með dýr, og sjálf hleypi ég frekar flugunum út en að drepa þær. Eins gef ég mig á tal við fólk, jafnvel ókunnuga ef ég tel að eitthvað ami að og býð mína hjálp,“ segir Helga og bætir við að hún hafi einu sinni ver- ið stödd á læknastofu þegar hún tók eftir eldri konu í vandræðum. „Það var mikið að gera í afgreiðsl- unni og enginn gat aðstoðað hana þannig að ég spurði hana hvort hana vantaði hjálp. Hún sagðist vera búin að bíða lengi eftir leigubíl og var mjög hissa þegar ég bauðst til að skutla henni. Þegar við vorum komn- ar niður í anddyri mætti leigubíllinn. Ekki löngu seinna hitti ég barna- barn þessarar konu sem sagði mér að amma hennar hafði verið mjög ánægð með mig. Mér þótti vænt um að heyra það og bað að heilsa henni. Annað skipti var ég á leið heim eftir að hafa verið að skemmta. Þetta var um vetur og miðja nótt og þar sem ég ók bílnum sá ég unglings- stelpu á gangi en hún hafði ætlað að ganga úr Garðabæ til Reykjavík- ur. Ég stoppaði og spurði hvert hún væri að fara, hún var ísköld og ég bauðst til að skutla henni. Mörgum árum seinna kom mamma hennar til mín og sagðist standa í þakkar- skuld við mig því stelpan hefði ver- ið á mótþróaskeiði á þessum tíma og mamman hafði orðið logandi hrædd um hana en ég hafði sem betur fer komið henni heilli heim.“ Helga segir að sá sem geri góð- verk eigi ekki að ætlast til að fá eitthvað í staðinn. „Við eigum að gera góðverk því okk- ur langar til þess. Ég hef til dæmis gaman af því að koma fram á styrkt- artónleikum og geri það með glöðu geði en geng þó alltaf úr skugga um að allir sem komi að atburðinum gefi sína vinnu. Annað er ósanngjarnt.“ Aðspurð segist hún oft eiga erfið- ara með að þiggja en gefa. „Foreldrar mínir eiga mjög erfitt með að þiggja og við þurfum oft að minna þau á að leyfa okkur að hjálpa þeim. Það er nefnilega kúnst að þiggja og sjálfsagt þarf ég að taka mig á í því og muna að meta það þegar mér er boðin hjálp- arhönd. Það er nefnilega góð tilfinn- ing að finna að einhver vilji hjálpa okkur og góðverk þarf ekki alltaf að vera eitthvað stórt, uppbyggjandi samtal getur gert kraftaverk.“ Hjartað slær rétt yfir jólin „Mörg okkar framkvæma fleiri góð- verk í kringum jólin en í annan tíma og líklega til þess að hjartað slái á réttan hátt yfir hátíðarnar. Mesta góðverkið er samt að gera eitthvað fallegt fyrir aðra án þess að fólk viti hver gerði það og án þess að fá eitt- hvað fyrir,“ segir Helga Braga Jóns- dóttir leikkona. Helga hefur verið iðin við að taka þátt í alls kyns styrkt- arsöfnunum í gegnum árin, bæði sem kynnir og skemmtikraftur. „Mér finnst alltaf jafngefandi að gefa mína vinnu verðugu mál- efni og ég set alveg jafnmiklar kröf- ur á mig þá og þegar ég fæ borgað,“ segir Helga og bætir við að það fylgi mikil gleði að geta hjálpað öðrum. „Ég hef séstaklega gaman af því að heimsækja leikhópinn Perluna og fæ alltaf jólakort frá þeim sem mér þyk- ir afskaplega vænt um. Eins hef ég fengið frá þeim blóm, endalausa ást, þakklæti og knús og meira að segja ljóð sem hljómaði einhvern veginn svona: Helga Braga er góð leikkona. Það er bara svona. Hún er góð, en aldrei óð ég sem um hana ljóð. Þetta er náttúrlega bara al- veg frábært,“ segir Helga og bætir við að hún hafi einnig styrkt ABC barna- hjálp í mörg ár. „Ég tárast alltaf dálítið þegar ég fæ bréf frá Kalyane „dóttur minni“ sem er tólf ára. Hún segir mér hvern- ig henni gengur í skólanum og sendir mér mynd af sér og kallar mig alltaf „mömmu“ í bréfun- um,“ segir Helga og bætir við að hún ætli sér einhvern tímann að heim- sækja Kalyane. „Svo eru líka mörg hjálparsamtök hér á landi sem ég hvet landsmenn til að styrkja því þörfin er mikil á Íslandi í dag. Ég vil gjarnan nota tækifærið og minna á bæði Mæðrastyrksnefnd, Kvennaat- hvarfið og önnur samtök sem þurfa á hjálp að halda. Allir geta gert eitt- hvað, þeir sem eiga ekki afgangs peninga geta gefið föt eða bæk- ur. Eitthvað sem er vel með farið og hreint en fólk má sjá af.“ Hátíðin kallar fram það besta „Mín góðverk eru yfirleitt þannig að sá sem góðverksins nýtur veit ekki hver það var sem gerði gott. Hið eina sanna góðverk er þannig í mínum Jólin eru tími ljóss og friðar og á þessum tíma muna flest okkar best eftir náungan- um og þeim sem minna mega sín. Helgar- blað DV heyrði í fólki sem allt er komið í mikið jólaskap og forvitnaðist um mestu góðverk þess. Flestir viðmælendur blaðs- ins viðurkenna að gera fleiri góðverk í kringum jólin og allir eru sammála um að það sé sælla að gefa en þiggja. Styrkir ABC barnahjálp Helga Braga Jóns- dóttir styrkir tólf ára stelpur úti í heimi og tárast alltaf þegar hún fær bréf frá „dóttur“ sinni. Kúnst að kunna að þiggja Rithöf- undurinn Stefán Máni segir að sá sem geti þegið án samviskubits, skömmustu eða þeirrar tilfinningar að hann sé skuldbundinn gefandanum sé vissulega góð og heilsteypt manneskja. Góðhjartað barn Leikkonan Tinna Hrafnsdóttir bauð foreldrum sínum sparibaukinn sinn þegar pyngjan á heimilinu var með léttara móti. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR SÆLLA ER EN ÞIGGJA að gefa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.