Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 62
62 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 JÓLABLAÐ
Spurningakeppni barnanna
1. Hvaða jólasveinn er
annar í röðinni?
2. Hvað heitir maðurinn
hennar Grýlu?
3. Hvað heitir fjallið sem
stendur við Kjalarnes og
er 914 metra hátt?
4. Hver er eini bókstafur-
inn sem ekkert orð byrjar
á í íslenskri tungu?
5. Í hvaða landi gerðist
bókin Viltu vinna millj-
arð sem síðar varð að
kvikmyndinni Slumdog
Millionare?
6. Hvað hét bankastjóri
Glitnis á meðan á hrun-
inu stóð árið 2008?
7. Hvaða lið varð heims-
meistari í knattspyrnu á
heimavelli árið 1966?
8. Hvað heitir jólasveinn-
inn sem hefur svo hlálegt
og heljarstórt nef?
9. Hvaða maður prýðir
fimm hundruð króna
seðilinn?
10. Hver er ég? Ég er
fæddur árið 1940. Ég hef
unnið sem fjölmiðla-
maður, skemmtikraftur,
rithöfundur, flugmaður
og lagasmiður. Ég stofn-
aði minn eigin stjórn-
málaflokk árið 2007 en
er hvað best þekktur fyrir
fréttir mínar sem ég flyt
til dæmis af eldgosum úr
minni eigin flugvél. Ég
var valinn maður ársins
2006.
11. Hvaða enska
fótboltalið hefur oftast
unnið Evróputitil meist-
araliða, það sem í dag
heitir meistaradeildin?
Jólapróf
DV
Svaraðu öllu spurningunum rétt til
þess að fá út leyniorðin tvö. Taktu
fyrsta stafinn í hverju svari og
raðaðu þeim saman.
SVÖR: 1. Giljagaur, 2. Leppalúði, 3. Esjan, 4. Ð, 5. Indlandi, 6.
Lárus Welding, 7. England, 8. Gáttaþefur, 9. Jón Sigurðsson,
10. Ómar Ragnarsson, 11. Liverpool.
1. Diego Armando Maradona er af
mörgum talinn einn besti knatt-
spyrnumaður sögunnar. Hann þjálfar
nú landslið Argentínu og komst með
herkjum inn á heimsmeistarakeppn-
ina í Suður-Afríku næsta sumar. Mar-
adona er hvað frægastur fyrir hönd
guðs. Gegn hvaða liði skoraði hann
það fræga mark og á hvaða heims-
meistaramóti var það?
2. Arnold Schwarzenegger var ein
stærsta kvikmyndastjarna heims þeg-
ar hann gaf þann feril upp á bátinn og
varð ríkisstjóri Kaliforníufylkis. Eins og
allir vita er hann helmassaður og hefur
byggt sinn feril meira og minna á því.
En við spyrjum: Hvaða heimsfrægu
vaxtarræktarkeppni vann hann mörg
ár í röð sem kom honum á kortið?
3. James Bond er njósnari og kvenna-
maður. Myndirnar um spæjarann 007
eru alltaf jafnvinsælar og fyrir löngu
orðnar kult-myndir úti um allan heim.
Sean Connery og Roger Moore hafa
leikið í flestum myndum en George
Lazenby fæstum, aðeins einni. Hverj-
ir eru hinir þrír sem hafa leikið James
Bond í kvikmynd?
4. Jóhanna Sigurðardóttir er forsætis-
ráðherra Íslands. Hún tók við starfinu
af Geir H. Haarde þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn var hrakinn úr ríkisstjórn.
Spurt er: Hver var forsætisráðherra á
undan Geir. H Haarde?
5. Guðjón Þórðarson var kysstur af
Ingólfi Hannessyni íþróttafréttamanni
í beinni útsendingu eftir að Íslandi
náði jafntefli gegn nýkrýndum heims-
meisturum Frakklands, 1-1, á Laugar-
dalsvellinum haustið 1998. Ríkharður
Daðason skoraði hið víðfræga mark
Íslands en hver skoraði mark Frakk-
anna?
6. Íslenska landsliðið í handbolta olli
gífurlegum vonbrigðum á heims-
meistaramótinu 1995 sem haldið var
á Íslandi. Eins og venjan er hjá land-
anum voru væntingarnar því eng-
ar fyrir næsta mót, heimsmeistara-
keppnina í Kumamoto í Japan 1997.
Þar fóru strákarnir okkar á kostum
og enduðu í hvaða sæti?
7. Friends er einn allra vinsælasti
sjónvarsþáttur allra tíma. Þar var
fylgst með lífi vinanna sex, Joey,
Chandler, Ross, Phoebe, Monicu
og Rachel. Við spyrjum þó: Hvað
hét aflitaði herramaðurinn sem rak
Central Perk-kaffihúsið og var svo
rosalega skotinn í Rachel?
8. Íslendingar hafa keypt óheyrilegt
magn af jólabjór þessar hátíðarnar
en sala á honum hefur aukist um
helming á milli ára. Það er þó ekki
svo langt síðan að bjórbann var á
Ísland. Hvaða dag var var bjórinn
leyfður aftur (kallaður bjórdagur-
inn í dag) og hvaða ár var það?
9. Jóhanna Guðrún var Íslandi til mik-
ils sóma þegar hún náði öðru sætinu í
Eurovision í ár. Það var í annað skiptið
sem Ísland nær öðru sætinu en Selma
okkar Björnsdóttir gerðist einnig svo
fræg árið 1999. Við spyrjum þó um
versta árangur Íslands í Eurovision
þegar við fengum 0 stig. Hver söng þá
og hvaða ár var það?
10. Spaugstofan er landsmönnum
vel kunnug enda verið fastur gestur
á skjám landsmanna í tuttugu ár. Um
aldamótin brugðu Spaugstofumenn
þó aðeins út af vananum og skírðu
þáttinn annað. Hét hann í höfuðið á
stað þar sem allt í þættinum gerðist en
staðurinn átti að tákna Ísland. Hvað
hét staðurinn og þá um leið, þáttur
þeirra Spaugstofumanna þennan vet-
urinn?
11. Ísland á fegurstu konurnar, hrein-
asta loftið og besta vatnið. Auk þess
eru íslenskir karlmenn einnig þeir
sterkustu í heimi eins og Jón Páll Sig-
marsson og Magnús Ver Magnússon
sönnuðu svo rækilega í keppninni
sterkasti maður heims. Jón Páll vann
keppnina fjórum sinnum en hversu
oft vann Magnús Ver?
12. Stelpurnar okkar í íslenska kvenna-
landsliðinu upplifðu drauminn í sum-
ar þegar þær kepptu á lokamóti Evr-
ópukeppni landsliða. Gengið var þó
ekki gott, þær töpuðu öllum leikjun-
um og skoruðu aðeins eitt mark. En
hver skoraði þetta eina mark og gegn
hvaða liði?
13. Kópasker er fallegt þorp á Norð-
Austurlandi, um 180 kílómetra frá höf-
uðstað norðurlands, Akureyri. Þessi er
fyrir þá sem kunna sína landafræði.
Hvaða kaupstaður er næst Kópaskeri,
um það bil fimmtíu kílómetra í burtu?
14. Fangavaktin var vinsælasta sjón-
varpssería ársins og gaf Nætur- og dag-
vaktinni ekkert eftir. Það elska allir að
fylgjast með lífi og störfum þeirra Ól-
afs Ragnars, Daníels og Georgs. En við
spyrjum: Hver lék hinn risastóra fanga,
Þröst Hjört, í Fangavaktinni sem elsk-
aði ekkert meira en hesta.
15. Á Alþingi sitja 63 þingmenn sem
sjá um að stýra þjóðarskútunni til
hægri og vinstri. Heilir tíu af þessum
sextíu og þremur unnu í sjónvarpi
áður en þeir urðu Alþingismenn. Nóg
er þó að nefna fjóra þeirra til þess að
fá rétt svar.
1.Hvernig var andinn á litinn í
Disney-myndinni Aladdin frá árinu
1992?
a) Gulur
b) Grænn
c) Blár
2.Að hverjum leitar Sveppi í
nýútkominni kvikmynd sinni?
a) Audda
b) Villa
c) Didda
3.Hvað heitir apavinur Dóru
landkönnuðar?
a) Klossi
b) Bjössi
c) Blossi
4.Um hvaða eyjur syngja Ingó og
Veðurguðirnir í vinsælasta lagi
sínu?
a) Vestmannaeyjar
b) Bahama-eyjar
c) Cayman-eyjar
5.Hvernig er hárið á Sollu stirðu á
litinn?
a) Bleikt
b) Rautt
c) Svart
6.Hvernig á að fara yfir götu?
a) Nema staðar, hlusta og líta til beggja
hliða og leggja svo af stað ef enginn
bíll er sjáanlegur
b) Halda fyrir augun og hlaupa aftur á
bak yfir götuna
c) Það er bannað að fara yfir götu
7.Hvað eru íslensku jólasveinarnir
margir?
a) 11
b) 12
c) 13
8.Hvað heitir aðalpersóna
jóladagatalsins sem Sjónvarpið
sýnir um þessar mundir?
a) Klængur halti
b) Klængur klóki
c) Klængur sniðugi
9.Hvað notaði Clark gamli í
myndinni Upp til þess að láta hús
sitt svífa á brott?
a) Flugvélarhreyfil
b) Blöðrur
c) Geimfar
SVÖR: 1-c, 2-b,3-a,4-b,5-a, 6-a, 7-c,8-c,9-b
Nú getur fjölskyldan eða vinirnir spreytt sig á jólaspurningakeppni DV. Best er að vera
tveir og tveir saman í liði og hafa einn spyril. Liðin skrifa svörin við spurningunum á
blað og svo fara liðin yfir hjá hvort öðru eftir keppnina þegar spyrillinn les upp svörin.
Sá vinnur er hlýtur flest stig.
SPURNINGAKEPPNI
FJÖLSKYLDUNNAR
SVÖR: 1. Englandi á HM 1986, 2. Mr. Olympia, 3. Timothy Dalton, Pierce Brosnan og Daniel Craig, 4. Halldór Ásgrímsson, 5. Christophe
Dugarry, 6. 5. sæti, 7. Gunther, 8. 1. mars 1989, 9. Daníel Ágúst (lagið Það sem enginn sér) árið 1989, 10. Stöðvarvík, 11. Fjórum
sinnum, 12. Hólmfríður Magnúsdóttir gegn Frakklandi, 13. Raufarhöfn, 14. Ólafur Darri, 15. Guðmundur Steingrímsson, Magnús Orri
Schram, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Róbert Marshall, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Ólína Þorvarðardóttir, Ögmundur Jónasson,
Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Illugi Gunnarsson,