Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 28 huga,“ segir rithöfundurinn Stefán Máni. „Það, að finna fyrir þörf til að hjálpa öðrum eða gera náunganum gott án þess að þiggja þakkir, aðdáun eða athygli á móti, er hin eina sanna góðmennska, að mínu mati. Sá sem vill eða þarf á einhvers konar þakk- læti eða launum að halda í stað góð- mennsku sinnar er í raun ekki góður heldur eigingjarn og frekur.“ Stefán Máni segir að fleiri geri góðverk í kringum jólin en á öðrum tímum. „Í kringum jól er ekki óeðli- legt að finna fyrir þessari þörf. Jólin eru hátíð ljóss og friðar og kalla fram það besta í öllum. Þegar jólaandinn er á sveimi er um að gera að nota tækifærið og gera eitthvað gott, ég hef til dæmis stundum keypt jólatré eða jólakort til styrktar góðu málefni, auk þess að kaupa gjafir af vistmönn- um Sólheima. En það má auðvit- að ekki slökkva á kærleikanum hina mánuðina ellefu. Hið sanna góð- menni er alltaf tilbúið til gera eitt- hvað óeigingjarnt, alla daga ársins. Mér hefur stundum tekist að vera þetta góðmenni og stundum ekki. En þegar mér tekst að vera góður líð- ur mér vel innra með mér og það eru bestu launin. Jólaandinn er tilfinn- ing, svona hiti og friður í hjartanu, og þennan anda er hægt að finna allt árið um kring.“ Stefán Máni segir betra að gefa en að þiggja og að það sé vissulega list að kunna að þiggja. „Sá sem getur þegið án samviskubits, skömmustu eða þeirrar tilfinningar að hann sé skuldbundinn gefandanum er vissu- lega góð og heilsteypt manneskja, eins og sá sem gefur af gleði og al- gjöru frelsi.“ Jólin gera mig meyran „Ég man því miður ekki eftir neinu sérstöku góðverki. Ég reyni bara al- mennt að vera sæmilega gúddí gæi,“ segir blaðamaðurinn og tónlistar- maðurinn Gunnar Hjálmarsson, Dr. Gunni. „Ef ég hefði meiri tíma gæti ég alveg séð mig vera í einhverju svona sjálfboðaliðadæmi,“ segir Gunni sem hefur gefið vinnu sína fyrir gott málefni. „Stundum hef ég komið fram á styrktartónleikum, til dæmis einu sinni fyrir Ástþór Magn- ússon þegar hann var að byrja sitt starf með Frið 2000. Ætli það sé ekki bara mesta góðverkið!“ Gunni segist gera fleiri góðverk í desember en á öðrum tímum ársins. „Ég hef keypt að minnsta kosti þri- svar sinnum fleiri happdrættismiða en vanalega í þessum mánuði fyrir alls konar samtök. Sem sé þrjá happ- drættismiða en ekki engan. Ætli jól- in geri mig bara ekki svona meyran. Svo rífur maður líka upp tólið og læt- ur stundum pening í alls konar dót sem maður sér í sjónvarpinu. Og svo þegar einhver er að safna úti á götu rífur maður upp veskið. Jóla, jóla,“ segir Gunni og bætir við að hann geri frekar góðverk fyrir þá sem eiga bágt en þá sem standi honum næst. Að- spurður um draumagóðverkið sem hægt væri að gera fyrir hann vidli hann láta lengja sólarhringinn um sex tíma. „Þá gæti ég sofið meira,“ segir doktorinn að lokum. Friður mesta góðverkið „Það er kannski svolítið skrítið að velja sjálf sitt mesta góðverk en ég man ótrúlega vel eftir einu atviki sem gerðist þegar ég var 4 ára göm- ul. Þegar verið var að ræða á heim- ilinu að pyngjan væri með töluvert léttara móti á ákveðnu tímabili fór ég og sótti sparibaukinn minn sem mér hafði tekist að safna nokkrum krón- um í og vildi gefa foreldrum mínum sem framlag frá mér. Þau vildu nú ekki þiggja hjálpina en kættust mikið yfir þessari hugulsemi,“ segir Tinna Hrafnsdóttir leikkona og bætir við að henni finnist gott að geta verið til staðar og það væri best ef við gætum lifað eftir reglunni að koma fram við aðra eins og við viljum að aðrir komi fram við okkur. Tinna segir að góðverk ættu ekki bara að tengjast jólunum heldur vera hluti af öllu okkar lífi. „Á jólum er fólk hins vegar mun meðvitaðra um mikilvægi þess að hugsa um aðra og stuðlar að því að sem flestum líði vel,“ segir hún og bætir við að það sé betra að gefa en þiggja. „Ég er alltaf langspenntust fyrir gjöfunum sem ég gef sjálf. Um leið og ég er búin að pakka inn grípur mig gríðarleg óþol- inmæði eftir að gjöfin verði opnuð. Ég hef oft þurft að sitja á mér með að gefa ekki gjafirnar bara strax. Það er svo gaman að sjá viðbrögðin þegar þú veist að gjöfin mun gleðja.“ Spurð um hið fullkomna góðverk kemur friður á jörð upp í huga henn- ar. „Það er að sjálfsögðu að koma á friði í heiminum og útrýma fátækt. En ef maður leyfir sér að vera örlítið sjálfhverfari þá væri það fínt ef ein- hver myndi bjóðast til að borga Ice- save. Það væri skrambi gott.“ Mikilvægt að elska náungann alltaf „Góðverk geta verið af öllum stærð- um og gerðum  og á öllum tíma- punktum. Stærsta góðverkið sem maður getur gert er held ég að vera góð manneskja, sinna ávallt kall- inu og styrkja og styðja við þá sem þess þurfa. Maður verður að láta hið góða ráða för í lífinu,“ segir María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður og bætir við að það hafi hún reynt að gera. „Maður getur gert hvað sem er. Þarf ekki að vera merkilegt. Ég hef hjápað gömlu fólki í hálku og skaf- ið bíla þess, fundið dót og farið með það til lögreglunnar, huggað grát- andi börn sem hafa týnt foreldr- um sínum í fjölmenni,  keypt harð- fisk, klósettpappír, lakkrís og alls kyns dót sem mig vantar ekki neitt til að krakkar komist á íþróttamót og lesið ljóð og sögur fyrir gamalt fólk. Ég kaupi líka happdrættismiða sem styrkja heyrnarlausa og blinda og svo borga ég uppihald og skóla- göngu fyrir lítinn strák á Indlandi og fylgist með uppvexti hans og fæ í staðinn bréf frá honum og myndir. Ég vona líka að heimildarmynd- in sem ég gerði ásamt Guðmundi Bergkvist og Eiríki Ingvarssyni hafi áhrif. Myndin Börn til sölu fjallar um mansal og stúlkubörn í kynlífs- ánauð í Kambódíu og var sýnd í Sjónvarpinu í vor og í framhaldi söfnuðust miklir peningar sem renna beint í hjálparstarfið í land- inu. Fyrir þá verður byggð endur- hæfingarstöð fyrir ungar stúlkur sem tekist hefur að bjarga úr helj- argreipum kynlífsþrælkunar. Ég vil að þessi mynd verði sýnd víðar og er að vinna í því og ég vil líka gera fleiri heimildarmyndir svo að fólk átti sig betur á því hvað sumir eiga bágt og hvað við getum gert til að hjálpa. Það mikilvægasta er að hugsa fal- lega, elska náungann og reyna að gera eitthvað gott á hverjum degi - ekki bara á jólunum - heldur alltaf.“ indiana@dv.is Býður sína hjálp Söngkonan Helga Möller segist eiga erfitt með að horfa upp á ljótleikann sem fylgir daglegu lífi og að hún gefi sig á tal við ókunnuga ef hún telji að eitthvað ami að. Sæmilega gúddí gæi Tónlistarmað- urinn Gunnar Hjálmarsson kaupir fleiri happdrættismiða í desember en aðra mánuði ársins. MYND SIGTRYGGUR ARI Sinnir kallinu Fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir hjálpar gömlu fólki í hálku og fer með dót sem hún finnur til lögreglunnar. Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best. Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox). Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger. BETULIC - BIRKILAUF www.birkiaska.is Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.