Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 6
SANDKORN
n Ásgerður Jóna Flosadóttir,
formaður Fjölskylduhjálparinn-
ar, hefur staðið dagana langa við
að hjálpa fátæku fólki. Hún og
hennar fólk hafa veitt um 1400
fjölskyldum mataraðstoð. Ás-
gerður hefur
auðvitað ver-
ið launalaus
í starfi sínu.
En nú má
segja að Ás-
gerður hafi
uppskorið
fyrir góð-
verkin því
hún vann lúxusferð á Netinu frá
fyrirtækinu Resort fyrir sig og fjöl-
skylduna. Hún fór í gær til Banda-
ríkjanna og dvelur í Orlando í
sjö daga og fer síðan til Bahamas
með skemmtiferðaskipi. Ferðin
tekur alls 18 daga.
n Aðeins 18 manns tilkynntu um
þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík 23. janúar
næstkomandi. Þetta olli nokkr-
um vonbrigðum innan flokksins,
enda tilkynntu 24 um framboð
í prófkjör til borgarstjórnar fyrir
fjórum árum.
Athygli vek-
ur að karlar
flýja frekar
af hólmi en
konur. Fyrir
fjórum árum
voru aðeins
20 prósent
frambjóð-
enda XD í höfuðborginni konur.
Nú eru þær nærri 40 prósent
frambjóðendanna. Menn velta
því fyrir sér hvort nýjar reglur um
fjármögnun framboða og gagn-
sæi ráði þarna einhverju um og
hvort karlar í röðum sjálfstæðis-
manna séu almennt með verri
samvisku en konur.
n Á fullveldisdaginn 1. desember
fóru kjörnir þingmenn í móttöku
hjá forseta Íslands á Bessa-
stöðum. Forsetinn hafði tekið
upp þann sið að bjóða þeim til
kvöldverðar þennan dag, en eftir
bankahrun
ákvað hann
að skera
niður og
bjóða þing-
mönnum
til móttöku.
Vel var mætt
úr röðum
allra flokka
að þessu sinni. Eftir móttökuna
snæddu þingflokkarnir saman
hver fyrir sig. Þar blasti strax við
sá vandi að Þráinn Bertelsson er
einn í flokki eftir að hann klauf
sig frá Borgarahreyfingunni.
Það vakti því mikla athygli þegar
spurðist að Þráinn hefði snætt
kvöldverð með Steingrími J. Sig-
fússyni og þingflokki VG. Allar
götur síðan hafa þingmenn mjög
reynt að lesa í þessi teikn.
6 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 FRÉTTIR
Kleppsvegi 48 | 104 Reykjavík
Sími: 698 6738 | lp-verk.is
LP-verk ehf sérhæfir sig
í viðhaldi á fasteignum
úti sem inni.
Flísalagnir - Múrviðgerðir
lekaviðgerðir - steypuviðgerðir
trésmíðavinna - málningavinna
blikksmíði - pípulagnir
eða raflagnir
Vigdís Hauksdóttir, alþingismaður Framsóknarflokksins, þurfti að aflýsa Spánar-
ferð með börnin sín vegna umræðu um Icesave á milli jóla og nýárs. Þetta er í annað
sinn sem ferðinni er frestað. Börnunum var lofuð Spánarferð í vor ef Vigdís kæmist
á þing. Börnin voru hins vegar byrjuð í skólanum þegar umræðu um Icesave lauk.
„Ég varð að aflýsa ferð með börnin til
Spánar vegna Icesave. Þjóðarhagur
leyfir það ekki að við förum,“ segir Vig-
dís Hauksdóttir, alþingismaður Fram-
sóknarflokksins. Samkvæmt áætlun
áttu þingmenn að vera í fríi á milli jóla
og nýárs. Vigdís og börn hennar ætl-
uðu að fara til Spánar 28. desember.
Ice save verður til umræðu á milli jóla
og nýárs. Vonast er til þess að umræð-
um ljúki eftir það. Það er þó ekki tal-
ið víst þar sem mikið af efni er enn að
berast um málið. Má þar nefna skýrslu
frá breskri lögmannsstofu. „Það er
mikið af nýju efni að koma eftir að
stjórnarandstaðan krafðist þess að
fjárlaganefnd færi lið fyrir lið í gegnum
þau 16 atriði sem kynnt voru í yfirlýs-
ingu,“ segir Vigdís.
Fengu heldur ekki sumarfrí
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Vigdís
þarf að aflýsa Spánarferð með börnin.
Vigdís er lögfræðingur frá Viðskipta-
háskólanum á Bifröst. Þar var hún við
nám í fimm ár og bjó þar ásamt börn-
unum. Allt frá því að fjölskyldan bjó
þar hefur áðurnefnd Spánarferð verið
í bígerð. „Þegar ég var í kosningabar-
áttunni hét ég því að ef ég kæmist á Al-
þingi færum við til Spánar. 28. ágúst
þegar umræðu um Icesave lauk voru
börnin búin að vera eina viku í skólan-
um. Því varð ekkert af ferðinni í sumar,“
segir hún. Eins og flestir þekkja fengu
þingmenn ekkert sumarfrí vegna um-
ræðunnar um Icesave.
Börnin svekkt
„Maður talar þau upp í það að hægt
verði að fara í þessa ferð síðar,“ seg-
ir Vigdís aðspurð hvernig börnin hafi
tekið tíðindunum. Hún segir börnin
sýna því skilning að vinnan hennar á
Alþingi gangi fyrir. Vonbrigðin leyni
sér þó ekki hjá börnunum. Hún seg-
ist þó ætla að eyða sem mestum tíma
með börnunum á milli jóla og nýárs þá
daga sem Alþingi verður í fríi. „Maður
reynir að eyða jólum og áramótum
með börnunum eins mikið og maður
getur. Það er búið að vanrækja börnin
núna í desember en utanlandsferðin
verður þó ennþá að bíða,“ segir Vigdís.
Ómanneskjulegt þinghald
Ekki liggur ljóst fyrir hvort fleiri þing-
menn hafi þurft að aflýsa utanlands-
ferðum yfir hátíðirnar. Vigdís seg-
ir þó ljóst að margir þingmenn af
landsbyggðinni geti ekki haldið til
síns heima til að eyða jólum og ára-
mótum með fjölskyldu og ættingjum.
„Það hefur verið hér þing á kvöldin
og á næturnar sem hefur verið mjög
ómanneskjulegt,“ segir Vigdís. Hún
vonast þó til þess að eiga góð jól með
fjölskyldu sinni og ættingjum. Þrátt
fyrir að Spánarferðin verði að bíða í
bili. Ætlar hún meðal annars að fara í
árlegt jólaboð fjölskyldunnar að Stóru-
Reykjum í Hraungerðishreppi. Þar
verður líka Guðni Ágústsson, fyrrver-
andi formaður Framsóknarflokksins,
en hann er mágur Vigdísar.
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as @dv.is
ICESAVE FRESTAR
SPÁNARFERÐINNI
Stjórnendur Strætó bs. vilja breyta
nafni starfsmannafélags fyrirtækisins
sem enn ber nafn SVR, Strætisvagna
Reykjavíkur. Talsmenn starfsmanna-
félagsins segja aftur á móti mikla and-
stöðu meðal bílstjóranna við nafna-
breytinguna.
Strætisvagnar Reykjavíkur var
stofnað árið 1931 er fyrsta strætóferðin
var farin 31. október það ár. Lengst af
var félagið í eigu borgarinnar en sum-
arið 2001 varð til nýtt félag, Strætó bs.,
þegar við bættist akstur í nágranna-
bæi. Nafn starfsmannafélagsins hélt
sér en á síðasta aðalfundi stakk fram-
kvæmdastjórinn, Reynir Jónsson, upp
á því að nafni þess yrði breytt.
Barn síns tíma
Reynir bendir á að um nokkurt skeið
hafi sú hugmynd verið rædd að breyta
nafni starfsmannafélagsins. Aðspurð-
ur segir hann nafnið einfaldlega barn
síns tíma. „Þetta hefur verið í umræð-
unni lengi. Félagið var stofnað fyrir
tæpum 75 árum og félagið sem það
var nefnt í höfuðið á er ekki lengur til.
Síðan þá hafa margir nýir starfsmenn
bæst í hópinn sem ekki skilja þessar
rætur félagsins og því ekki nafn þess.“
„Stjórnendur fyrirtækisins eru
nokkuð sammála um að starfsmanna-
félag eigi að bera nafn fyrirtækisins og
starfa í þess þágu. Til að efla sameigin-
legan anda hjá fyrirtækinu höfum við
stungið upp á því að breyta um nafn á
félaginu. Mín tillaga er sú að við göng-
um milliveginn á næsta ári, afmælisári
félagsins, og breytum nafninu og fána
félagsins. Þessir fánar geta þá hvílt hlið
við hlið. Mér finnst það alls ekki óeðli-
legt enda nýir og breyttir tímar uppi.“
Miklar tilfinningar
„Þátttaka í störfum starfsmannafé-
lagsins hefur ekki verið nægilega al-
menn og því er óánægjuna að finna
meðal fámenns hóps. Fyrirtækið
greiðir hins vegar með beinum og
óbeinum hætti umtalsverða fjármuni
inn í starfsmannafélagið og því höfum
við eitthvað um þetta að segja,“ bætir
Reynir við.
Ingunn Guðnadóttir, trúnaðar-
maður vagnstjóra, segir hugmynd-
ina bundna við ákveðna yfirmenn
sem beiti þrýstingi til að ná sínu fram.
Hún telur engar líkur á því að nafna-
breytingin verði samþykkt meðal bíl-
stjóranna. „Við viljum halda nafninu
okkar því okkur þykir mjög vænt um
það. Þetta er því mikið tilfinningamál
fyrir bílstjórana. Gömlu bílstjórarnir,
sem unnið hafa í fjölda ára, vilja ekki
sjá nýtt nafn á félaginu,“ segir Ingunn.
„Fyrir mér er þetta mikið tilfinninga-
mál og því kemur þetta ekki til greina.
Ég er meira að segja svo gamaldags
að ég er enn með bindisnælu merkta
SVR. Gamla nafnið skal standa. Yfir-
mennirnir ráða bara engu um þetta og
við tökum þetta ekki í mál. trausti@dv.is
Stjórnendur Strætó bs. vilja breyta nafni starfsmannafélagsins en starfsmenn ekki.
Vilja breyta nafni félagsins
Gamla nafnið Talsmaður starfs-
mannafélagsins segir miklar tilfinningar
bundnar við gamalt nafn félagsins.
Icesave-málið var afgreitt úr fjár-
laganefnd á þriðjudag. Minnihluti
fjárlaganefndar gerði ágreining við
málsmeðferð og telur að meirihlut-
inn hafi gengið á bak orða sinna
við reifun málsins innan nefndar-
innar. Álit meirihlutans með frum-
varpinu var lagt fram á Alþingi á
þriðjudag. Því verður haldið áfram
í dag. Álit bresku lögmannsstof-
unnar Mishcon de Reya var gert
opinbert á mánudaginn. Telur lög-
mannsstofan að bresk og hollensk
stjórnvöld heimti allt of háa vexti af
Íslendingum vegna Icesave-sam-
komulagsins.
„Við höfum fjallað um alla þá
16 liði sem samkomulag var um
að taka fyrir innan fjárlaganefnd-
ar og gott betur en það,“ segir
Guðbjartur Hannesson, formaður
fjárlaganefndar, vegna
gagnrýni minnihlut-
ans. Hann telur mál-
ið fullreifað og segir
það nánast dónaskap
af minnihlutanum að
halda því fram að
meirihlutinn
hafi svikið gefin
loforð.
as@dv.is
Segja meirihlutann ekki standa við sitt:
Icesave úr fjárlaganefnd
Börnin svekkt Vigdís Haukdsóttir, alþingis-
maður Framsóknarflokksins, segist reyna að tala
börnin upp í að það sé hægt að fara í Spánar-
ferðina síðar. Þetta er þó í annað sinn sem ferðin
frestast vegna umræðna um Icesave.
MYND SIGTRYGGUR ARI