Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Side 19
FRÉTTIR 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 19 HJÁLPA ÖÐRUM UM JÓLIN Heimilislausir mæta uppá- klæddir Anne Marie Reinholdtsen held- ur utan um jólahátíð Hjálpræð- ishersins. Þá er heimilislausum og fátækum boðið í glæsilegan kvöldverð á aðfangadagskvöld og hádegisverð á jóladag. Í ár verð- ur boðið upp á lambalæri og hamborgarhrygg í bland við jóla- söngva, jólagjafir og ómetanlega jólastemningu. Ár hvert kemur fjöldi sjálfboðaliða sem hjálpar til við jólahald Hjálpræðishersins yf- irleitt í kringum fjörutíu einstak- lingar. Gestir á jólahátíðinni eru ríflega hundrað og fimmtíu talsins og skemmta sér konunglega. Anne Marie segir það ómetanlegt að geta glatt aðra yfir jólin. „Við höf- um fengið gefins mat frá fjölda fyr- irtækja enda hefur alltaf verið fjöl- mennt hjá okkur. Jólastemningin hjá okkur er mjög góð og það er svo gaman að hitta gestina prúð- búna, í sínum bestu fötum, sem alla jafna eru illa til fara. Við finn- um mikla gleði og gestirnir eru svo þakklátir, það er eitt af því besta við hátíðina því það er svo gaman að geta gefið af sér. Um það snúast einmitt jólin,“ segir Anne Marie. „Það er alltaf hópur sjálfboða- liða sem hefur samband við okkur að fyrra bragði og það er alveg frá- bært. Síðan gefum við jólasælgæti og það fá allir jólapakka hjá okk- ur. Við reynum að hafa þetta eins jólalegt og heimilislegt og hægt er. Flestir gestirnir okkar upplifa barnið í sér á nýjan leik og það segir mér að við erum að gera eitt- hvað rétt með hátíðinni okkar.“ trausti@dv.is Harpa Fönn dvaldi í Úganda yfir síðustu jólahátíð: Áramótabað í Níl „Ég var í Soroti í Úganda um síð- ustu jól að kenna leiklist og tónlist í barnaskóla og stjórna landbúnað- arverkefni í sveitunum. Ég komst í kynni við belgísk hjálparsamtök þeg- ar ég var að vinna fyrir EFTA. Ég var samtals í níu mánuði í Afríku,“ seg- ir Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, ann- ar eigandi Framkvæmdafélags lista- manna. Úgandabúar halda jólin á jóladag en þrátt fyrir það segir Harpa að það hafi verið æðislegt að eyða jólunum í Úganda enda hélt hún séríslenskan aðfangadag – með önd. „Ég fór ferð til Kampala til að leita að hinni einu sönnu jólasteik. Við erum alltaf með önd í minni fjölskyldu og það var hægt að fá önd í Kampala. Nema hún kostaði jafnmikið og þriggja mánaða laun þarna úti. Ég ákvað samt að kaupa eina bringu. Það var ógeðs- lega gaman og ég eldaði mér önd á aðfangadag.“ Daginn eftir var henni svo boðið í mikla veislu. „Það er eng- in pakkamenning í Úganda, þetta snýst allt um að vera með rosalega góðan mat – sjö til átta rétta. Þetta er í raun eina skiptið á árinu sem þau borða á sig gat.“ Harpa segir að jólamenning Úg- anda sé mjög frábrugðin íslensku jólunum. „Gjöfunum er ekki pakk- að inn og það er ekki jólatré, enda erfitt að fá grenitré þarna úti. Það er ekki hægt, en jólaskraut þekkist. Þau reyndu að hafa eitthvað glitrandi, eitthvert skraut hengdu þau upp á vegg. Það er kristni þarna úti og fólk- ið í Úganda er frekar strangtrúað. Sérstaklega þar sem ég var.“ Harpa hefur aðeins eytt þess- um einu jólum fjarri fjölskyldu og vinum. Hún segir að það hafi verið svolítið skrýtið en tæknin hafi kom- ið sér vel. „Ég fékk náttúrulega enga pakka en ég hélt að þetta yrði miklu skrýtnara. Þetta var samt yndislegt í alla staði og svo talaði ég við alla fjöl- skylduna á aðfangadag, það var fínt símasamband akkúrat á aðfangadag þannig ég gat talað við alla. Ég tók rosalega margar mynd- ir og setti inn í tölvuna og fjölskyld- an sendi mér myndir svo að ég upp- lifði svolítið jólin í gegnum tæknina – sem var skemmtilegt.“ Harpa segir að foreldrar hennar hafi tekið því með jafnaðargeði að hún ætlaði að eyða jólunum í Úg- anda en ekki í paradísinni Húsavík en þangað á Harpa ættir að rekja. „Þau voru rosaglöð yfir því að ég væri að fara út en þeim fannst þetta pínu erfitt yfir jólin. En þau skildu þetta. Ég fór náttúrulega til Úganda í september og tveim vikum síðar hrundi allt. Ég átti því ekkert kost á því að fara heim,“ segir hún og hlær. Hún bætir þó við að hún fari aftur til Afríku – annað komi ekki til greina. „Þeir sem hafa dýft sér í Níl einu sinni þeir eiga alltaf afturkvæmt. Ég tók áramótabaðið þar svo að ég á að fara aftur og stefni á það.“ benni@dv.is Á jóladag Harpa var í Úganda um síðustu jól að kenna leiklist, tónlist og stjórna landbúnaðarverkefni. Falleg í Afríku Harpa lét ljós sitt skína í Afríku. Að veiða „Þetta er í Soroti. Rétt fyrir utan bæinn er vatn þar sem við prufuðum að veiða.“Anna Marie Reinholdtsen, stýrir jóla- hátíð Hjálpræðishersins:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.