Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Síða 26
UM JÓLAHÁTÍÐ
ANTÍGÓNA Í ÚTVARPSLEIKHÚSINU
Antígóna eftir Sófókles verður flutt í Útvarpsleikhúsinu á sunnudaginn,
þriðja degi jóla, klukkan 14. Um er að ræða nýja uppfærslu í samvinnu
við LHÍ. Leikritið er talið vera skrifað 422 f.Kr. og er nú flutt til að heiðra
minningu þýðandans, Helga Hálfdanarsonar, sem lést fyrr á árinu.
Leikstjóri er Sigurður Skúlason en með aðalhlutverk fara Jóhann Sigurð-
arsson sem Kreon og Sólveig Arnarsdóttir í hlutverki Antígónu.
„SÚPERGRÚPPA“
Á SÓDÓMU
Á gamlárskvöld verður blásið til
rokkveislu á tónleikastaðnum
Sódóma Reykjavík. Sérstök rokksveit
hefur verið saumuð saman af því
tilefni og mun hún flytja ódauðlega
slagara fengna af sléttum rokksins.
Um sönginn sér Jens Ólafsson úr
Brain Police, gítarleikarar eru Bjarni
Þór Jensson (Cliff Clavin) og Franz
Gunnarsson (Ensími), á trommum
er Þórhallur Stefánsson (Lights On
The Highway) og bassann plokkar
Jón Svanur Sveinsson (Númer Núll).
Leikar hefjast klukkan tvö eftir mið-
nætti. Sérstakir leynigestir stíga á
stokk. Forsala miða er á midi.is.
OPIÐ ALLA DAGA
NEMA TVO
Listasafn Reykjavíkur er opið alla
daga yfir jól og áramót að undan-
skildum aðfangadegi og jóladegi.
Opnunartími er breytilegur en
hann er sem hér segir:
Hafnarhús opið 26. des. kl. 12-
17, 31. des. 10-14, 1. jan. 13-17,
lokað 24. og 25. des. Athugið að
sýningum Yoshitomo Nara, Egils
Sæbjörnssonar og Ryans Parteka
lýkur sunnudaginn 3. janúar.
Kjarvalsstaðir opnir 26. des. 12-
17, lokað 24., 25. og 31. des og 1.
jan. Ásmundarsafn opið daglega
13-16 en lokað 24., 25., 26. og 31.
des. og 1. jan. Listasafn Íslands er
opið 23., 27., 29. og 30. desember
klukkan 11-17.
SÍÐUSTU FORVÖÐ
Síðasta sýning á leikritinu Rautt
brennur fyrir fer fram á Nýja sviði
Borgarleikhússins 29. desember.
Verkið er frumraun Heiðars Sumar-
liðasonar leikskálds. Þá verður ein
sýning á Djúpinu, einleik Jóns Atla
Jónassonar með Ingvari E. Sigurðs-
syni, sýnd 30. desember. Þeir sem
ekki hafa enn séð þessar sýningar
ættu að nýta tækifærið á milli þess
sem þeir melta allt jólakjötið og
kaupa sprengjur fyrir gamlárskvöld.
Miðasala er á borgarleikhusid.is.
Það var lagið!
26 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 FÓKUS
Þeir Daníel, Ólafur Ragnar og
Georg hafa undanfarin ár verið
skærasti logi íslenskrar afþreyingar.
Sagt upp í enda góðærisins, flúðu
í sveitina í hruninu, og tóku svo
skellinn í steininum. Mig grunaði
að Bjarnfreðarson myndi vera lúa-
leg tilraun til þess að kreista síðustu
dropana úr þessum persónum, og
eins og mín kynslóð gerir stund-
um, efaðist ég um forsendur og fyr-
irætlan kvikmyndargerðarmann-
ana. En, eins og gerist hjá minni
kynslóð, fékk ég það allt framan í
mig. Myndin gerist fimm árum eft-
ir að við kveðjum þá félaga. Daní-
el er að puða í námi í borginni, Ól-
afur er enn jafnvonlaus, og búið að
taka Læðuna af númerum. Þegar
svo Georg fær reynslulausn, heil-
um fimm árum áður en hann átti
von á, fara hjólin að snúast. Bjarn-
freður hefur snúið baki við hon-
um og hann fær inni hjá Daníel.
Áhorfendur fá að sjá flassbökk úr
æsku Georgs, sem sýna samband
hans við móður sína, sem hann gat
ekki með nokkru móti glatt. Dan-
íel fær svo mikinn áhuga á sam-
bandi Georgs við Bjarnfreði, og
reynir að kortleggja þær aðstæð-
ur sem gerðu hann að þeim leið-
indapúka sem hann er í dag. Ólaf-
ur kemst loks á réttan stað í lífinu,
og Georg kemst að hlutum sem
koma honum í harkalega tilvistar-
kreppu. Bjarnfreðarson, er veru-
lega vönduð og góð kvikmynd. Ein-
staklega vel skrifuð, með eðlilegum
stíganda og ótrúlegum endaspretti.
Hér er á ferðinni kvikmynd, sem á
í framsetningu, bæði mynd og efn-
islega, ekkert skylt við þættina. Hér
er allt vandaðra og öllu tjaldað til,
eins og á að gera það. Frábær tón-
list Péturs Ben, frábær myndataka,
gourmet handrit. Aðalleikurum
tekst öllum að gæða persónur sín-
ar nýju lífí, og Ágústa Eva er á rétt-
um stað, en mig grunar að hún eigi
eftir að fara á enn hærra flug í kom-
andi verkefnum. Bjarnfreðarson er
frábært drama, drama eins og það
á að vera. Því lífið er bæði sorglegt
og fyndið, stundum bæði í einu. Og
það er sá kjarni sem aðstandend-
um myndarinnar tekst að fanga á
stórskemmtilegan hátt. Daníel, Ól-
afur, Georg, takk fyrir mig, það var
lagið.
Dóri DNA
BjarnfreðarsonEr sýnd í 17 sölum um
allt land.
BJARNFREÐARSON
Leikstjóri: Ragnar Bragason
Aðalhlutverk: Jón Gnarr, Ágústa Eva
Erlendsdóttir, Pétur Jóhann Sigfússon,
Jörundur Ragnarsson, Sara Margrét
Norðdahl, Margrét Helga Jóhannsdóttir.
KVIKMYNDIR
„Æfingar hafa gengið mjög vel og
framar vonum. Þegar maður er með
tuttugu og sex börn veit maður ekki
alveg hvernig muni takast til, en
þetta gekk framar björtustu vonum,“
segir Selma Björnsdóttir, leikstjóri
söngleiksins Oliver!, sem frumsýnd-
ur verður á Stóra sviði leikhúss-
ins annan í jólum. „Krakkarnir hafa
mismikla reynslu á bakinu, og mörg
þeirra voru að stíga sín fyrstu skref
á sviði, en standa núna í fæturna
eins og atvinnumenn,“ bætir hún við
en Selma hefur mikla reynslu af að
leikstýra krökkum. Síðast hélt hún
til að mynda um stjórnartaumana í
uppfærslu Þjóðleikhússins á Karde-
mommubænum sem frumsýndur
var snemma á árinu.
Selma segir það því ekki endi-
lega vera aðalhausverkinn að skóla
krakkana til og undirbúa fyrir frum-
sýninguna. Frekar sé það öll þau
smáatriði sem halda þurfi til haga í
jafnstórri sýningu. „Í svona sýningu
þar sem eru fjörutíu og fimm manns,
stór leikmynd, stór hljómsveit,
stór ljósaumgjörð, gríðarlega mikil
tæknivinna og allt svoleiðis eru millj-
ón díteilar sem þarf að hreinsa upp
og fókusera. Það hefur kannski verið
mesta álagið. Þegar sýningin er kom-
in inn á svið, fólk komið í búninga og
sýningin farin að renna er í svo mörg
horn að líta. Þú þarft bæði að horfa
á bjálkann og sjá allar flísarnar, sér-
staklega á þessum síðustu þremur
vikum fyrir frumsýningu.“
Hundurinn of krúttlegur
Ekkert stórvægilegt hefur komið upp
á í undirbúningnum. Þó er einn þátt-
ur í uppfærslunni sem ekki verður
eins og lagt var upp með, það er að
hundurinn sem hinn illi Bill Sikes á í
sögunni um Oliver Twist verður ekki
með.
„Þetta er breskur bardagahundur,
pitt bull terrier, og ef þú ert ekki með
þá tegund fölna held ég bara flest
hundakyn við hliðina á honum. Okk-
ur fannst hundurinn sem við vorum
með ekki bæta neinu við Bill Sikes og
þess vegna var því bara betur sleppt,“
segir Selma en hundurinn sem leik-
hópurinn var kominn með í hlut-
verkið var bolabítstíkin Mjöll eins og
Fréttablaðið sagði frá í vikunni. Þar
sagði Þórir Sæmundsson, sem leikur
Sikes, að Mjöll hafi verið of krúttleg,
jafnfeit og klunnaleg og hún er, fyrir
illmennið sem Þórir túlkar. Þess má
geta að ólöglegt er að flytja breska
bardagahunda hingað til lands og því
var aldrei í boði að fá „rétta“ hundinn
í hlutverkið.
En það er ekki eins og nauðsyn-
legt hafi verið að æfa verkið upp á
nýtt þrátt fyrir að Mjöll blessunin hafi
gengið úr skaftinu. „Þetta er bara ein
innkoma hjá honum þannig að það
breytti engu. Við ætluðum að hafa
þetta einungis eina innkomu hjá
honum vegna þess að yfirleitt þegar
hundar koma á svið vilja allir horfa á
hundinn,“ segir Selma og hlær.
Snerti mig og grætti
Oliver! er eftir breska tónskáld-
ið Lionel Bart og er einn vinsæl-
ast söngleikur allra tíma. Hann var
frumsýndur á West End árið 1960,
hóf farsælan sýningarferil á Broad-
way þremur árum síðar sem leiddi
til þess að hann var kvikmyndað-
ur árið 1968. Söngleikurinn er að
sjálfsögðu byggður á sögunni klass-
ísku um Oliver Twist eftir Charles
Dickens og segir frá hinum góðhjart-
aða dreng sem elst upp við þröng-
an kost á ómagahæli en lendir fyrir
röð tilviljana í slagtogi við skrautlegt
vasaþjófagengi. Við kynnumst líf-
inu meðal þeirra verst settu í Lund-
únaborg 19. aldar og við sögu koma
margar litríkar persónur, götustrákar,
smáþjófar og stórþjófar, fátæklingar
og ríkisbubbar, götudrósir, harðsvír-
uð illmenni og hjartahlý góðmenni.
Selma las bókina fyrst á unga aldri
og sá myndina og var heilluð af sög-
unni. „Þetta snerti mann djúpt og
grætti. Það er svo margt sem þessi
litli munaðarlausi drengur þarf að
ganga í gegnum, mikla harðneskju,
en hann upplifir líka mikil ævin-
týri. Hann er alltaf að leita að góð-
mennskunni og hlýjunni, móðurást-
inni og föðurástinni. Þannig að hún
er mjög hjartnæm þessi saga.“
Hún bætir við að þetta sé sígilt
ævintýri og hafi víða skírskotun,
til dæmis til íslensks samtíma. „Ég
myndi segja að það mætti kenna
Söngleikurinn Oliver! eftir Bretann Li-
onel Bart er jólasýning Þjóðleikhússins í
ár og verður frumsýndur annan í jólum.
Leikstjórinn, Selma Björnsdóttir, segir
þessa sígildu sögu Dickens sem söngleik-
urinn er byggður á mega kenna okkur í
þessu árferði að vera þakklát fyrir það sem
við eigum og að passa okkur á græðginni.
Selma segir sýninguna ekki gera að verk-
um að hún missi af jólunum og þakkar
þar forsjálni sinni í jólaundirbúningnum.
Kennir okkur að varast græðgina
Þjófagengi Oliver elst upp við þröngan kost á ómagahæli en lendir fyrir röð
tilviljana í slagtogi við skrautlegt vasaþjófagengi.
Fagin og Oliver Eggert Þorleifsson fer á kostum í hlutverki Fagins að sögn Selmu.