Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Page 41
ÆTTFRÆÐI 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 41 Atli Hilmarsson BANKAMAÐUR, ÞJÁLFARI OG FYRRV.LANDSLIÐSMAÐUR Í HANDBOLTA Pétur Jónsson HÚSASMÍÐAMEISTARI Á HVANNEYRI Pétur fæddist á Akranesi en ólst upp á Innri-Skeljabrekku í Andakíl. Hann stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni, lærði húsa- smíði við Iðnskólann á Akranesi og í Skipasmíðstöð Þorgeirs og Ellerts. Að loknu iðnámi fluttu Pétur og fjölskyldan frá Akranesi til Árhus í Danmörku og vann Pétur hjá Sa- broe-verksmiðjunum á árunum 1972-1973. Eftir heimkomu 1973 fluttu þau að Hvanneyri og hafa búið þar síð- an þar sem Pétur hefur unnið við smíðar. Frá árinu 1977 hefur Pétur verið sjálfstæður byggingaverktaki og séð um byggingu fjölda húsa á Hvanneyri og víðar, en fyrirtæki hans heitir PJ Byggingar ehf. Þá var Pétur stundakennari við Bændaskólann á Hvanneyri á ár- unum 1989-1999. Pétur starfaði lengi í Slökkviliði Borgarfjarðardala og var slökkvi- liðsstjóri þess í tíu ár, sat í bygg- ingarnefnd Andaklílshrepps (síð- ar Borgarfjarðarsveitar) 1978-1996 .Hann hefur tekið þátt í ýmsum fé- lagsmálum, var i Lionsklúbbi Borg- arfjarðar í tíu ár, hefur verið for- maður Veiðifélags Andakílsár frá 1984, hefur starfað í Oddfellow- hreyfingunni á Akranesi frá 1986 og gegnt þar trúnaðarstörfum, hef- ur verið félagi i þjóðdansahópnum Sporinu í Borgarfirði um árabil og stundar hestamennsku í frístund- um. Fjölskylda Pétur kvæntist 13.9. 1969 Svövu Sjöfn Kristjánsdóttur, f. 9.6. 1949, húsmóður og skrifstofumanni. Hún er dóttir Kristjáns Jónssonar og Ingibjargar Jónsdóttur, bænda á Óslandi í Skagafirði, sem bæði eru látin. Börn Péturs og Svövu Sjafnar eru Ómar Pétursson, f. 5.5. 1971, bygg- ingafræðingur á Hvanneyri en kona hans er Íris Björg Sigmarsdóttir og eru þeirra börn Sigmar Aron, Pétur Snær og Unnur Björg; Kristján Ingi Pétursson, f. 29.7. 1976, húsasmiður, búsettur á Hvanneyri en kona hans er Anna Sigríður Hauksdóttir og eru þeirra börn Svava Sjöfn, Vignir Þór og Elvar Ingi; Kristín Pétursdóttir, f. 5.9. 1980, kennari, búsett í Harstad í Noregi en maður hennar er Öyvind Kulseng og eru dætur þeirra Hjördís Ylfa og Guðrún Sjöfn. Systkini Péturs eru Gísli Jóns- son, f. 17.6. 1946, verkamaður, búsettur að Brekku við Andakíl- sárvirkjun, kvæntur Oddbjörgu Leifsdóttur og eiga þau fimm börn; Þorvaldur Jónsson, f. 28.5. 1954, bóndi og frjótæknir, búsett- ur að Innri-Skeljabrekku í Andakíl, kvæntur Dagnýju Sigurðardóttur og eiga þau þrjá syni. Foreldrar Péturs eru Jón Gísla- son, f. 18.9. 1922, d. 23.9. 2002, bóndi á Innri- Skeljabrekku, og k.h., Kristín Pétursdóttir, f. 28.12. 1925, d. 2.8. 2001, húsfreyja. Ætt Jón var sonur Gísla, b. í Súlunesi og síðar í Innri-Skeljabrekku Jóns- sonar, húsmanns í Borgarfirði Gíslasonar. Móðir Gísla í Súlunesi var Guðríður Jónsdóttir, b. á Litla- Sandi Guðmundssonar, og Ing- unnar Sigurðardóttur. Móðir Jóns var Þóra Þorvalds- dóttir, b. í Arnþórsholti í Lund- reykjadal Þórðarson, og Elínar, systur Sigríðar, langömmu Baldurs Baldurssonar yfirmatsveins sem skrifað er um hér á síðunni. Elín var dóttir Vigfúsar, b. á Fellsmúla í Landsveit og á Grund í Skorradal Gunnarssonar. Móðir Vigfúsar var Kristín vefari Jónsdóttir, b. á Vind- ási Bjarnasonar, ættföður Víkings- lækjarættar Halldórssonar. Móð- ir Elínar var Vigdís Auðunsdóttir, pr. á Stóru-Völlum á Landi Jóns- sonar. Móðir Vigdísar var Sigríður Magnúsdóttir, b. á Indriðastöðum Árnasonar, b. á Grund í Skorradal Sigurðssonar, lrm. á Grund Árna- sonar, lögmanns á Leirá Odds- sonar, biskups í Skálholti Einars- sonar, pr. og skálds (Nóttin var sú ágæt ein) í Eydölum Sigurðssonar. Kristín var dóttir Péturs, b. á Mið-Fossum í Andakíl Þorsteins- sonar, b. og organista á Bakka í Melasveit og á Mið-Fossum Pét- urssonar. Móðir Péturs var Krstín Kristjánsdóttir, b. í Rafnseyrar- húsum Símonarsonar, og Þóru Jónsdóttur. Móðir Kristínar var Guðfinna Guðmundsdóttir, b. á Brók Ein- arssonar, og Kristínar Sigurðar- dóttur. Á JÓLADAG 30 ÁRA n Daenthai Phalee Karlagötu 21, Reykjavík n Gemmaryn Cutob Gunnarsson Miðvangi 41, Hafnarfirði n Przemyslan Roman Jadeszko Byggðarenda 3, Reykjavík n Katrin Maria Huber Guðlaugsstöðum, Blönduósi n Atli Þór Hannesson Gnitaheiði 1, Kópavogi n Arngrímur Vilhjálmsson Suðurgarði 18, Reykjanesbæ n Ásdís María Elfarsdóttir Hraunbraut 12, Kópavogi n Vala Rut Sjafnardóttir Austurbraut 1222, Reykjanesbæ n Sturla Már Guðmundsson Stillholti 19, Akranesi n Sveinn Guðmundsson Ljósuvík 58, Reykjavík 40 ÁRA n Lovísa Lu Hou Löve Hraunteigi 16, Reykjavík n Erna Rós Ingvarsdóttir Vestursíðu 6d, Ak- ureyri n Ingibjörg Arnardóttir Furuhlíð 25, Hafnarfirði n Helga Einarsdóttir Vogatungu 20, Kópavogi n María Árdís Gunnarsdóttir Kópalind 12, Kópavogi n Kristín Helgadóttir Dverghólum 20, Selfossi 50 ÁRA n Björgvin K. Þorvaldsson Ystaseli 3, Reykjavík n Atli Þór Símonarson Kaplaskjólsvegi 41, Reykjavík n Magnús Sigurðsson Dvergabakka 30, Reykjavík n Guðrún Guðbjörnsdóttir Glaðheimum 16, Reykjavík n Helga Guðjónsdóttir Leirutanga 26, Mos- fellsbæ n Ágúst Ómar Einarsson Boðaslóð 7, Vest- mannaeyjum n Salvör Jónsdóttir Fjörugranda 2, Reykjavík n Ib Hansen Göttler Reykjabyggð 34, Mos- fellsbæ n Runólfur Pálsson Ásenda 15, Reykjavík n Bolli Árnason Leiðhömrum 11, Reykjavík n Sigurður Jón Daníelsson Bólstaðarhlíð 56, Reykjavík n Ósk Sigríður Jónsdóttir Skáldalæk, Dalvík n Sóley Ósk Stefánsdóttir Sílakvísl 12, Reykja- vík n Margrét Þorvaldsdóttir Dvergabakka 12, Reykjavík 60 ÁRA n Jón Gísli Grétarsson Snægili 3b, Akureyri n Sveinn Björnsson Þingvallastræti 25, Akureyri n Guðrún Samsonardóttir Borgarbraut 10, Selfossi n Guðlaug Eyþórsdóttir Borgarholtsbraut 63, Kópavogi 70 ÁRA n Guðmundur Þ. Jónsson Blikahólum 2, Reykjavík n Geirlaug Björnsdóttir Meistaravöllum 11, Reykjavík n Karitas Óskarsdóttir Seljavegi 11, Selfossi 75 ÁRA n Bryndís Zoega Magnúsdóttir Kristnibraut 49, Reykjavík 80 ÁRA n Magnús Pálsson Þingholtsstræti 30, Reykjavík n Ragnhildur Jónsdóttir Herjólfsgötu 36, Hafnarfirði n Brynjólfur Valgeir Vilhjálmsson Austurbrún 2, Reykjavík n Jóhann Tómas Ingjaldsson Sæviðarsundi 60, Reykjavík n Rita A. M. T. Júlíusson Víðiteigi 6e, Mosfellsbæ 85 ÁRA n Guðríður Gísladóttir Austurgerði 7, Kópavogi n Guðmundur Einarsson Sóltúni 11, Reykjavík 101 ÁRA n Svanlaug Einarsdóttir Birkimörk 8, Hvera- gerði Á ANNAN Í JÓLUM 30 ÁRA n Zbigniew Marcin Kaszuba Hafnarstétt 25, Húsavík n Ewa Krystyna Ostrowska Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði n Brynjar Arnarsson Laugavegi 84, Reykjavík n Soffía Guðný Santacroce Huldubraut 11, Kópavogi n Ólöf Harpa Halldórsdóttir Stakkhömrum 20, Reykjavík n Bjarki Steinar Hermannsson Gyðufelli 4, Reykjavík n Ásgeir Sævarsson Hlynskógum 3, Akranesi n Una Kristín Pétursdóttir Áskinn 2a, Stykk- ishólmi n Sigurður Forni Helgason Háteigi, Vopnafirði n Kristján Ragnar Halldórsson Vættaborgum 3, Reykjavík n Rakel Sigurðardóttir Eyrarflöt 6, Akranesi n Björn Ingvar Bennewitz Þrætueyri, Borg- arnesi n Alda Ósk Hauksdóttir Vanabyggð 19, Akureyri 40 ÁRA n Sigríður Schram Fljótaseli 25, Reykjavík n Laufey Árnadóttir Löngumýri 25, Akureyri n Bjarni Davíðsson Hraunbæ 60, Reykjavík n Kristmann Þór Gunnarsson Vífilsgötu 11, Reykjavík n Jón Ingi Ingibergsson Greniteigi 19, Reykja- nesbæ n Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson Háaleitisbraut 115, Reykjavík n Ingibjörg Steindórsdóttir Flétturima 5, Reykjavík 50 ÁRA n Ingi Stefán Ólafsson Dalsbyggð 6, Garðabæ n Björk Inga Arnórsdóttir Háaleitisbraut 33, Reykjavík n Olga Valdimarsdóttir Túngötu 9, Húsavík n Marta Elísabet Björgvinsdóttir Áshamri 75, Vestmannaeyjum n Sævar Magnússon Álfheimum 50, Reykjavík n Guðný Svana Harðardóttir Fífuseli 13, Reykjavík n Margrét Jónsdóttir Stararima 4, Reykjavík 60 ÁRA n Pétur Bogason Brautarholti 1, Ólafsvík n Guðbrandur Sævar Karlsson Bakkaseli 6, Reykjavík n Haraldur Guðbjartsson Esjugrund 32, Reykjavík n Stefanía Gústafsdóttir Hrafnagilsstræti 29, Akureyri n Hrefna Sölvadóttir Birkigrund 1, Kópavogi n Sæmundur Eiríksson Þverholti 9a, Mosfellsbæ n Guðmundur Valur Valtýsson Árnatúni 5, Stykkishólmi n Steinunn Gunnarsdóttir Hamrahlíð 6, Vopnafirði n Alma Hjörleifsdóttir Baughúsum 15, Reykja- vík n Guðrún Dóra Petersen Lundi 1, Kópavogi n Trausti Þorsteinsson Bjarkarlundi 4, Akureyri n Finnur Þórðarson Nesbakka 8, Neskaupstað 70 ÁRA n Halla Sigríður Þorvaldsdóttir Sunnuflöt 24, Garðabæ n Helga S. Ágústsdóttir Hörðalandi 14, Reykjavík n Hannes Oddsson Vallargötu 34, Sandgerði n Ásgeir Sumarliðason Túnhvammi 11, Hafn- arfirði n Elín Ólafsdóttir Fornhaga 20, Reykjavík n Sigurður Þorvaldsson Básahrauni 20, Þor- lákshöfn n Erich Hermann Köppel Hamarsteigi 5, Mos- fellsbæ 75 ÁRA n Þórarna Ólafsdóttir Löngulínu 7, Garðabæ n Kristjana Kristjónsdóttir Dalseli 34, Reykja- vík n Guðrún Guozhen Zhai Laugarnesvegi 63, Reykjavík n Eiður Ragnarsson Fossvöllum 1, Egilsstöðum n Guðmundur Ásgrímsson Urðarbraut 20, Blönduósi n Ásdís Magnúsdóttir Hraunvangi 1, Hafnarfirði n Theódór Guðmundsson Brekku, Gufudal, Reykhólahreppi n Guðlaug Helgadóttir Klapparhlíð 5, Mos- fellsbæ 80 ÁRA n Svanhildur Sigurðardóttir Kelduskógum 1, Egilsstöðum n Erla M Halldórsdóttir Auðnum 2, Akureyri n Jakob Hólm Hermannsson Boðagranda 7, Reykjavík n Guðmunda Jónsdóttir Fagurhólsmýri 2, Öræfum 90 ÁRA n Karín Kristín Blöndal Lækjargötu 13, Hvammstanga n Baldvin Ólafsson Reynivöllum 8, Akureyri 60 ÁRA Á JÓLADAG Baldur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk sjúkra- liðaprófi 1973, stundaði nám við Vélskóla Íslands 1975-76 og við Hótel- og veitingaskóla Íslands 1987-88. Baldur hefur stundaði ýmis al- menn störf til sjós og lands. Hann starfaði við Meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga að Stuðlum á Kjal- arnesi 1989-2003, var matsveinn hjá Íslenskri erfðagreiningu 2003- 2005 en hefur verið yfirmatsveinn við Fjórðungssjúkrahúsið í Nes- kaupstað frá 2005. Baldur söng með Fríkirkju- kórnum í Reykjavík í þrjú ár og syngur nú með kór Norðfjarðar- kirkju og Kór Fjarðabyggðar. Þá er hann félagi í Oddfellow-reglunni. Fjölskylda Eiginkona Baldurs var Kristín Gunnarsdóttir, f. 7.5. 1953, skrif- stofumaður. Hún er dóttir Gunn- ars Magnússonar skipstjóra og Kristínar Valdimarsdóttur hús- móður. Baldur og Kristín skildu. Dóttir Baldurs og Ingu Ólafar Ingimundardóttur, f. 31.10. 1950, d. 12.1. 1996, er Anna Jóna, f. 5.2. 1972, háskólanemi við Bifröst, en maður hennar er Leifur Sæmund- sen og eiga þau fjögur börn. Börn Baldurs og Kristínar eru Valdimar Kristinn Baldursson, f. 30.11. 1974, umsjónarmaður, bú- settur í Tromsö í Noregi, en sam- býliskona hans er Tatsijana Eriks- en leikskólakennari og eiga þau tvö börn; Malena Birna Baldurs- dóttir, f. 19.11. 1977, viðskipta- fræðingur og deildarstjóri hjá Byr en maður hennar er Pétur Sig- urðsson tölvunarfræðingur og eiga þau tvö börn. Albræður Baldurs: Björn Baldursson, f. 9.5.1942, þýðandi í Reykjavík; Kolbeinn Baldurs- son, f. 14.10. 1944, d. 24.2. 2008, sjúkraliði í Reykjavík; Bragi Sig- urður Baldursson, f. 28.12.1952, rafvirki í Reykjavík. Hálfsystir Baldurs, samfeðra, er Guðrún Baldursdóttir, f. 5.6. 1940, sjúkraliði í Kópavogi. Foreldrar Baldurs: Bald- ur Kolbeinsson, f. 1.1. 1914, d. 20.4. 1981, vélstjóri í Reykjavík, og Anna Guðbjörg Björnsdóttir, f. 15.12. 1914, d. 25.8. 1992, hús- móðir. Halldór Hlífar Árnason BIFREIÐASTJÓRI HJÁ GUÐMUNDI JÓNASSYNI Baldur Baldursson YFIRMATSVEINN FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSINU Í NESKAUPSTAÐ 60 ÁRA Á AÐFANGADAG TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.