Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Síða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 JÓLABLAÐ
Bandaríska leik- og söngkonan
Brittany Murphy lést sunnudaginn
20. desember, þrjátíu og tveggja ára
að aldri. Samkvæmt frétt frá TMZ-
vefsíðunni var hringt í neyðarlín-
una frá heimili eiginmanns hennar
klukkan 16.00 að íslenskum tíma,
eftir að móðir hennar hafði komið
að henni meðvitundarlausri í sturt-
unni.
Þegar bráðaliðar mættu á stað-
inn komust þeir að því að hjarta
hennar sló ekki og reyndu end-
urlífgun. Á fyrrnefndri vefsíðu er
vitnað í minnispunkta Blacklocks
nokkurs sem titlaður er rannsókn-
araðili. Í skýrslu Blacklocks segir að
Brittany Murphy „hefði kvartað yfir
andnauð og slæmum kviðverkjum“
í 7 til 10 daga fyrir dauða hennar og
að áður en bráðaliðar mættu á stað-
inn hefði hún ekki sýnt viðbrögð en
verið búin að losa sig við magainni-
haldið. Brittany Murphy var úr-
skurðuð látin við komuna á Cedars-
Sinai-sjúkrahúsið.
Lyfjabúr heimilisins
Heilmiklar vangaveltur vöknuðu
um dánarorsök Brittany og svokall-
aðir vinir hennar fullyrtu að hún
hefði verið háð lyfjablöndu. Þrátt
fyrir að dánardómstjóri hafi í kjölfar
krufningar fullyrt að ekkert grun-
samlegt væri við dauða hennar og
að hún hefði einfaldlega fengið
heiftarlegt hjartaáfall er í ljósi þess
magns lyfja sem fannst á heimili
hennar ekki að undra að skuldinni
sé skellt á lyfjanotkun.
Á vefsíðu TMZ er vitnað í skýrslu
Blacklocks og sagt að á náttborðum
hafi fundist mikið magn lyfseðils-
skyldra lyfja sem skráð voru á nafn
hinnar látnu. „Einnig var að finna
tóm lyfjaglös sem skráð voru á eig-
inmann hinnar látnu, móður hinn-
ar látnu og óþekktan þriðja aðila“.
Lyf af ýmsum toga
Á meðal þeirra lyfja sem fundust
á heimili Brittany Murphy og Sim-
ons Monjack, eiginmanns henn-
ar, voru Topamax, kvíðastillandi
lyf einnig notað við mígreni; Meth-
ylprednisolone, bólgustillandi lyf;
Fluoxetine, þunglyndislyf; Klonop-
in, kvíðalyf; Carbamazepine, slær á
sykursýkieinkenni; Ativan, kvíðalyf;
Vicoprofen, verkjalyf; Propranolol,
notað til að hindra hjartaáfall; Biax-
in, sýklalyf; Hydrocodone, verkja-
lyf; og ýmiss konar vítamín.
„Engar áfengisflöskur, eng-
in áhöld [til fíkniefnaneyslu] eða
fíkniefni fundust,“ segir á minnis-
blöðum Blacklocks, samkvæmt vef-
síðu TMZ.
Stutt ævi, langur ferill
Brittany Murphy hóf leiklistarfer-
il sinn ung að árum og fékk hlut-
verk í söngleiknum Vesalingarnir
þegar hún var níu ára, og sitt fyrsta
Hollywood-hlutverk þegar hún var
fjórtán. En það var þó ekki fyrr en
í kvikmyndinni Clueless 1995 sem
hún vakti verulega athygli. Á með-
al annarra stórra hlutverka má
nefna hlutverk Daisy Randone í
Girl, Interrupted, Elizabet Burr-
ows í Don´t Say a Word, þar sem
hún lék á móti Michael Dougl-
as og hlutverk Alex Latourno í
myndinni 8 Mile þar sem hún lék
á móti rapparanum Eminem.
Ásamt leik fékkst Brittany við
tónlist og átti smellinn Faster Kill
Pussycat árið 2006. Þegar þetta
er skrifað er ekki talið að nokkuð
óeðlilegt tengist dauða hennar.
Við dauða sinn bætist Britt-
any Murphy í hóp nokkuð
margra frægra einstaklinga sem
þekktir voru fyrir afrek sín í leik-
og/eða tónlist og dóu ungir.
Leikarinn Heath Ledger
Þann 22. janúar á síðasta ári
lést leikarinn Heath Ledger 28
ára að aldri. Eftir tveggja vikna
vangaveltur um mögulegar dánar-
orsakir Ledgers birti skrifstofa dán-
ardómstjóra New York niðurstöður
sínar, sem byggðust á upphaflegri
krufningu sem var framkvæmd 23.
janúar, og fylgdu niðurstöðunum
eiturefnagreining sem gerð hafði
verið.
Samkvæmt niðurstöðunum var
að hluta til hægt að rekja dauða
Ledgers til bráðrar eitrunar vegna
neyslu á lyfjunum oxycodone, hy-
drocodone, diazepam, temazep-
am, alprazolam og doxyl-
amine.
Í skýrslu dánardómstjó-
ra New York eru tekin af öll
tvímæli um hvað það var
sem dró Heath Ledger til
dauða: „Niðurstaða okkar
er að dauði [Heaths Ledger]
er vegna slyss sem rekja má
til misnotkunar á lyfseðils-
kyldum lyfjum.“ Læknar í
Bandaríkjunum skrifa alla
jafna upp á nefnd lyf vegna
svefnleysis, kvíða, þung-
lyndis, verkja og einkenna
sem fylgja kvefi.
River Phoenix
yfirgefur sviðið
Annar leikari sem lést langt
fyrir aldur fram árið 1993
aðeins 23 ára að aldri vegna
of stórs skammts af heróíni
og kókaíni, blöndu sem þekkt
er sem „speedball“. Dauði hans
kom flestum sem til þekktu í opna
skjöldu enda var hann þekktur fyrir
allt annað en óheilbrigt líferni. Fyr-
ir dauða sinn hafði ímynd Phoenix
verið nánast tandurhrein og tengd-
ist áhugamálum hans sem voru af
samfélagslegum og stjórnmálaleg-
um toga, auk þess sem hann lét sig
varða mannúðarmál.
Skömmu fyrir dauða sinn, þegar
vitneskja um fíkniefnanotkun hans
var ekki á allra vitorði, sagði Pho-
enix í viðtali að eiturlyfja væri ekki
bara neytt af „slæmum strákum og
óþokkum“.
Árið 2004 lenti River Phoenix
í 64. sæti í kjöri um bestu leikara
allra tíma. Fyrir kjörinu stóð bresk
sjónvarpsstöð og þátttakendur í
kosningunni voru allir vel metnir
einstaklingar í heimi leiklistar og
leikstjórnar.
Uppreisnarseggur án ástæðu
James Dean er vafalítið frægast-
ur þeirra leikara sem söfnuðust
til feðra sinna á unga aldri. Dean
fæddist 8. febrúar, 1931 og lést 30.
september, 1955, aðeins 24 ára
gamall. Hann hefur fyrir margt
löngu öðlast stöðu goðsagnar og
menningarlegrar ímyndar.
Andstætt Heath Ledger og
Riv er Phoenix var lyfjanotk-
un eða eiturlyfjafíkn ekki orsök
dauða James Dean. Fíkn James
Dean fólst í hraðakstri og áhuga
á kappakstri og 30. september
1955 lenti Dean í árekstri þegar
hann var, ásamt vélvirkja sínum,
að undirbúa sig vegna kappakst-
urskeppni sem fara átti fram í Sal-
inas í Kaliforníu. Ökumaður hins
bílsins beygði, án þess að sjá bíl
Deans, yfir á vegarhelming hans
við gatnamót.
Lokaorð James Dean, sem vitað
er um voru: „Þessi náungi verður
að stoppa... Hann mun sjá okkur.“
En náunginn sá ekki bifreið James
Dean sem var úrskurðaður látinn
við komuna á sjúkrahús.
Leikkonan Brittany Murphy
lést langt fyrir aldur fram
sunnudaginn 20. desember. Við
dauða sinn bætist Brittany í hóp
leikara sem dáið hafa langt fyrir
aldur fram, sumir hverjir vegna
fíkniefna og aðrir vegna lyfjanotk-
unar eða af öðrum orsökum.
AÐ ÁRUM
Létust ung
Uppreisnarseggurinn
Lést í bílslysi langt fyrir
aldur fram.
Brittany Murphy Átti stutta
ævi en langan feril. MYND AFP
Lést vegna
lyfjanotkunar
Heath Ledger náði
aðeins 28 ára aldri.
Faldi eiturlyfjafíkn sína
River Phoenix tók of stóran
skammt af heróíni og kókaíni.