Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Page 68

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Page 68
68 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 SVIÐSLJÓS Zack Efron: FARINN Í HUNDANA High School Musical-stjarnan, Zack Efron, var í skíðaparadísinni Aspen um daginn að horfa á heimsmeistarakeppnina í snjópóló sem fer þar fram um helgina. Efron gerði það sem stjörnunum er einum lagið, að rölta um bæinn og þykjast ekki hafa hugmynd um að ljósmyndarar væru að elta hann. Efron er meira en lítið þekktur hjá ungu kynslóðinni og var hann fljótt stöðvað- ur af nokkrum krökkum sem vildu eiginhand- aráritanir frá goðinu. Það var nú lítið mál en fljótt fékk hann áhuga á öðru. Ein fjölskyldan var á vappi með hundana sína sem Efron tók strax miklu ástfóstri við og lék við þá eins og lítill strákur. Passaði hann sig þó auðvitað að vera með sólgleraugun á sér til að halda kúlinu. Svoleiðis gerir maður bara. Aðeins of heitur Efron er gífurlega vinsæll í Banda- ríkjunum. Komdu, komdu. Efron heldur kúlinu á meðan hann klappar hundinum. Vinsæll Litla stelpan horfir aðdá- unaraugum á Efron á meðan hann stillir sér upp með hundunum. Kate Hudson sleikti síðustu sólargeisl-ana í Los Angeles fyrir jól áður en hún hélt til Aspen að hitta son sinn Ryder. Leik- konan sleit nýlega sambandi við hafna- boltastjörnuna Alex Rodriguez en þau höfðu átt í sjö mánaða löngu ástarsambandi. Tvennum sögum fer af því hvort samband- inu sé lokið eða ekki en um síðustu helgi sást til A-Rod í Miami í villtu partístandi sem þykir gefa til kynna að sam- bandinu sé lokið. Hudson er næst væntanleg á hvíta tjald- inu í myndinni The Killer Inside Me. Þar er á ferðinni spennumynd og vestri sem skart- ar einnig Jessicu Alba, Casey Affleck, Bill Pull- man og Simon Baker. Hudson snýr sér svo aftur að því sem hún er best í, rómantískum gamanmyndum. Kate Hudson í flottu formi: Lokkandi LEGGIR Kate Hudson Er glæsileg og einhleyp. SAMbíóin eru lokuð í dag Þorláksmessu OPIÐ FYRIR SÖLU Á GJAFAKORTUM FRÁ 11 - 17.00 Í ÁLFABAKKA OG 11 - 23.00 Í KRINGLUNNI OPNUM AFTUR 2. Í JÓLUM MEÐ JÓLAMYNDUNUM Í ÁR GLEÐILEGA HÁTÍÐ LOKAÐ Í DAG OPNUM ANNAN Í JÓLUM GLEÐILEG JÓL! SJÁUMST Í JÓLASKAPI FRUMSÝND ANNAN Í JÓLUM NÝTT Í BÍÓ - bara lúxus Sími: 553 2075 HHH S.V – MBL. LOKAÐ Í DAG, ÞORLÁKSMESSU ÓSKUM LANDSMÖNNUM ÖLLUM GLEÐILEGRA JÓLA OPNUM AFTUR 26. DESEMBER - ANNAN Í JÓLUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.