Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Blaðsíða 4
SANDKORN
n Áslaug Jónsdóttir er að gera
það gott með verk sitt Gott
kvöld. Valnefnd á vegum Leik-
listarsambands Íslands tilkynnti
það á þriðjudag að Áslaug yrði
tilnefnd af Íslands hálfu til
leikskálda-
verðlauna
Norður-
landa 2010
fyrir barna-
leikrit sitt
Gott kvöld.
Verðlaunin
verða veitt á
norrænum
leiklistardögum sem haldnir eru
í tengslum við barnaleikhúshá-
tíðina BIBU í Svíþjóð næsta vor
og því var ákveðið að einung-
is leikskáld sem skrifuðu fyrir
börn væru gjaldgeng. Áslaug
gæti klárað óvenjulega tvennu
hreppi hún verðlaunin. Hún
hlaut nefnilega líka Norrænu
barnabókaverðlaunin fyrir
bókina sem hún vann leikritið
upp úr.
n Ólína Þorvarðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, er
ekki alls kostar sátt við svar
Gylfa Magnússonar, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, við
fyrirspurn hennar um skulda-
meðferð sjávarútvegsfyrirtækja
í bönkunum sem ríkið varð
að yfirtaka eftir bankahrunið.
Svar Gylfa gengur í raun út á að
upplýsingarnar sé ekki að finna
í ráðuneytinu og ekki að sjá að
gerð hafi verið tilraun til að fá
svör við spurningunum. Ólína
er ósátt við afstöðu- og upplýs-
ingaleysi ráðuneytisins og ekki
síður að í svarinu sé sagt að
málefni einstakra skuldara séu
bundin bankaleynd, en Ólína
spurði aldrei um málefni ein-
stakra útgerða heldur útvegsins
í heild.
n Niðurskurður og sparnað-
ur eru lykilorðin í dag, ekki síst
hjá ríkinu þó ýmsir telji að þar
megi skera
mikið niður.
Kannski kann
þessi niður-
skurður að
ráða einhverju
um svör Gylfa
Magnússon-
ar, efnahags-
og viðskipta-
ráðherra, við fyrirspurnum
Ólínu Þorvarðardóttur og Sig-
ríðar Ingibjargar Ingadóttur.
Þannig vill nefnilega til að fyrstu
þrjár efnisgreinar svara ráðherra
við fyrirspurnunum tveimur,
fyrstu 168 orðin, eru nákvæm-
lega eins. Svörin eru nefnilega
staf fyrir staf og línu fyrir línu
eins þar til Ólínu er sagt að hún
fái engin svör en Sigríði er svar-
að. En þarna er textinn sem sagt
endurnýttur eins og framast er
unnt.
4 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 FRÉTTIR
Skoðanakönnun Capacent Gallup á trausti til borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins leiðir í ljós að Hanna Birna
Kristjánsdóttir er óumdeild í efsta sæti. Hástökkvar-
arnir eru Júlíus Vífill Ingvarsson sem hreppir annað
sætið og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir í því þriðja.
Gísli Marteinn Baldursson geldur afhroð og hafnar
í sjötta sæti, neðan við Jórunni Frímannsdóttur.
Hanna Birna Kristjánsdóttir er
óumdeildur sigurvegari ef marka
má könnun Capacent um fylgi
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík. Þessi niðurstaða
var nokkuð fyrirséð enda hefur
Hanna Birna verið lítt umdeild í
embætti sínu sem borgarstjóri og
leiðtogi sjálfstæðismanna á síð-
ari hluta eins róstusamasta kjör-
tímabils í sögu Reykjavíkur. Mesta
spennan vegna yfirvofandi próf-
kjörs flokksins er um annað sætið
þar sem fimm manns, þar af fjór-
ir borgarfulltrúar, berjast um veg-
tylluna. Könnunin leiðir í ljós að
Júlíus Vífill Ingvarsson, sem sat í
fimmta sæti á lista flokksins fyrir
síðustu kosningar, er með mesta
fylgið hjá þeim sjálfstæðismönn-
um sem afstöðu tóku. Júlíus Víf-
ill stekkur þannig upp fyrir bæði
Gísla Martein Baldursson, sem
var í þriðja sæti á framboðslista
flokksins, og Kjartan Magnússon,
sem var í því fjórða. Þá vekur einn-
ig athygli að Þorbjörg Helga Vig-
fúsdóttir mælist með næstmesta
fylgið í annað sætið en hún var
í sjötta sæti listans fyrir síðustu
kosningar. Samkvæmt þessu skák-
ar hún einnig þeim Gísla Marteini
og Kjartani. Gísli hafnar í sjötta
sæti og Kjartan í því fjórða, sé tek-
ið mið af könnuninni. Jórunn Frí-
mannsdóttir, sem sat í sjöunda
sæti á framboðslistanum, færist
upp um tvö sæti.
Gísli með 10 prósent
Spurt var: „Til hvaða borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins berðu
mest traust, næstmest og þriðja
mest?“ Ef teknar
eru niðurstöð-
ur tveggja efstu
sæta, það er
hverjir voru
oftast tald-
ir njóta mests
eða næst-
mests trausts,
kemur í ljós
að Hanna
Birna fær
87,7% at-
kvæða í
efstu tvö
sætin.
Af þeim
borg-
ar-
fulltrú-
um sem
hafa lýst
því yfir
að þeir
sækist
eftir öðru sæti í komandi prófkjöri
kemur fram að Júlíus Vífill Ingvars-
son er með sterka stöðu en 22,4%
aðspurðra nefndu hann. Þorbjörg
Helga Vigfúsdóttir er í þriðja sæti
með 18,2%. Kjartan Magnússon
er í fjórða sæti með 17,3%. Jórunn
Frímannsdóttir er í fimmta sæti
með 11,7%, Gísli Marteinn Bald-
ursson í því sjötta með 10,1%. At-
hygli vekur einnig að fyrrverandi
borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, var í sjöunda sæti með
8% atkvæða en mjög ólíklegt þykir
að hann bjóði sig fram nú. Þá hef-
ur Jórunn lýst yfir því að hún stefni
á þriðja sætið.
Hástökkvarar
Stærstu tíðindin í könnuninni fel-
ast í mældum vinsældum Júlíus-
ar Vífils og Þorbjargar Helgu. Fall
Gísla Marteins vekur einnig mikla
athygli en hann er víðsfjarri því að
ná því markmiði sínu að hreppa
annað sætið. Gísli keppti fyrir síð-
ustu kosningar við Vilhjálm Þ. um
leiðtogasætið en hafnaði í þriðja
sæti. Skýringin á falli hans nú er ef-
laust umræða um launamál hans
en hann var í námi erlendis og
þáði hluta af launum sínum sem
borgarfulltrúi á meðan.
Óvissa vegna Geirs og Mörtu
Aðalbaráttan í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna 23. janúar næstkomandi
mun standa um annað
sætið. Júlíus Vífill
hefur augljós-
lega sterka
stöðu sam-
kvæmt
skoðana-
könn-
uninni.
Hann er
með 20%
meira
traust en
Þorgbjörg
Helga og
um 36%
meira
traust en
Kjartan. Athygli vekur veik staða
Gísla Marteins sem þarf rúmlega
að tvöfalda traust sitt til að ná
Júlíusi Vífli miðað við skoðana-
könnunina. Óvissuþátturinn er sá
helstur að ekki er ljóst hvort fram-
boð Geirs Sveinssonar, handbolta-
kappa og tengdasonar Vilhjálms
Þ., muni raska þeim hlutföllum
sem teiknast upp með könnun-
inni nú. Þá nær mælingin ekki
heldur til Mörtu Guðjónsdótt-
ur, fyrrverandi for-
manns
Varðar,
sem
stefnir á þriðja sætið. Aðrir nýir
frambjóðendur geta einnig raskað
þessum hlutföllum ef ákallið eft-
ir nýju blóði í borgarstjórn verður
ráðandi.
Könnunin, sem er netkönn-
un og hluti af spurningavagni
Capa cent Gallup, er unnin á ein-
um mánuði og úrtakið var 1700
manns. 1100 svöruðu, af þeim eru
tæplega 300 sjálfstæðismenn sem
ráða framangreindum niðurstöð-
um. Könnunin hófst 25. nóvem-
ber og henni lauk 21. desember.
Könnunin var unnin fyrir áhuga-
menn um stjórnmál.
REYNIR TRAUSTASON
ritstjóri skrifar: rt@dv.is
FALL GÍSLA
MARTEINS Gísli Marteinn Baldursson
Fellur niður listann.
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir Í
þriðja sæti, fast á
hæla Júlíusi Vífli.
Hanna Birna
Kristjánsdóttir Ber
höfuð og herðar yfir
aðra frambjóðendur.
Júlíus Vífill
Ingvarsson Skýst
upp í hið eftirsótta
annað sæti.
87
,7
%
22
,4
%
18
,2
%
10
,1
%
1. Hanna Birna Kristjánsdóttir 87,7%
2. Júlíus Vífill Ingvarsson 22,4%
3. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 18,2%
4. Kjartan Magnússon 17,3%
5. Jórunn Frímannsdóttir 11,7%
6. Gísli Marteinn Baldursson 10,1%
7. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 8%
SAMKVÆMT CAPACENT GALLUP
Efstu tvö sætin
11
,7
%
Jórunn Frí-
mannsdóttir
Mælist í fimmta
sæti en sat í því
sjöunda.
1. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
2. Hanna Birna Kristjánsdóttir
3. Gísli Marteinn Baldursson
4. Kjartan Magnússon
5. Júlíus Vífill Ingvarsson
6. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
7. Jórunn Frímannsdóttir
8. Sif Sigfúsdóttir,
9. Bolli Skúlason Thoroddsen
10. Marta Guðjónsdóttir
Listinn í síðustu kosningum
Kleppsvegi 48 | 104 Reykjavík
Sími: 698 6738 | lp-verk.is
LP-verk ehf sérhæfir sig
í viðhaldi á fasteignum
úti sem inni.
Flísalagnir - Múrviðgerðir
lekaviðgerðir - steypuviðgerðir
trésmíðavinna - málningavinna
blikksmíði - pípulagnir
eða raflagnir