Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Blaðsíða 62
RAFBÆKUR SLÓGU Í GEGN UM JÓLIN Vinsældir lestölva
og rafbóka hafa aldrei verið meiri í heiminum en þessa dagana og
nýjar tegundir lestölva líta dagsins ljós í nánast hverjum mánuði.
Amazon.com, stærsta verslun heimsins á netinu, kom eigin lestölvu,
Amazon Kindle, á markað fyrr á árinu, en Kindle nýtur hvað mestra
vinsælda nú meðal almennings. Á jóladag var slegið nýtt met í sögu
fyrirtækisins þegar tilkynnt var að sala rafbóka hefði slegið hefð-
bundnum prentuðum bókum við í fyrsta sinn í sögu fyrirtækisins.
UMSJÓN: PÁLL SVANSSON, palli@dv.is
62 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 HELGARBLAÐ
HÁPUNKTAR Í TÆKNI 2009
Árið sem er að líða er um margt sérstakt en hálfgerð bylting varð á mörgum sviðum tækninnar, samskipta-
vefir festu sig varanlega í sessi og móta nú daglega hegðun hundraða milljóna manna víðs vegar um heim-
inn. DV rifjaði upp nokkur atriði sem stóðu uppúr á árinu í tækniheiminum.
Facebook
Það má segja að samskiptavefurinn Facebook hafi
kirfilega fest sig í sessi árið 2009 og orðið órjúfanleg-
ur hluti af daglegu lífi milljóna manna. Tæplega
fjögur hundruð milljónir nota nú þessa stærstu og
vinsælustu samskiptasíðu heimsins sem er meira en
helmingsaukning frá því í janúar á þessu ári.
Breytingar á síðunni ollu fjaðrafoki meðal notenda á
síðari hluta þessa árs en mörgum þótti vernd
persónuupplýsinga og þær stillingar sem síðan
býður uppá ekki nógu vel útfærðar.
Twitter
Ein stærsta velgengnissaga ársins 2009 er án efa
örbloggs- og samskiptavefurinn Twitter. Á árinu
varð algjör holskefla í fjölda notenda síðunnar líkt
og á Facebook, ekki síst eftir að kvikmynda- og
sjónvarpsstjörnur streymdu þangað inn í stórum
hópum. Leitarvélarnar Google og Bing hófu að
birta „Tweet“ (örblogg frá Twitter) sem hluta af
leitarniðurstöðum á síðum sínum og Twitter byrjaði
að rukka fyrirtæki fyrir að nota síðuna. Stjórnmála-
menn og ýmis samtök og hópar um víða veröld
voru fljót að eygja það tækifæri sem örbloggsvefur-
inn gefur til að hafa víðtæk áhrif á almenningsálit,
meðal annars hélt Ísraelsstjórn blaðamannafund á
Twitter fyrir réttu ári og svaraði spurningum um
ástandið á Gaza-svæðinu.
Þrívíddartæknin
Þrívíddartæknin hóf inngöngu sína fyrir alvöru á
árinu í heimi kvikmyndanna og endaði með stæl
núna í desember þegar kvikmyndin Avatar var
frumsýnd. Á annan tug þrívíddarmynda kom fyrir
sjónir almennings í kvikmyndahúsum og áhugi á
þrívíddarsjónvarpi jókst gríðarlega. Um mitt næsta
ár er gert ráð fyrir því að útsendingar fyrir
þrívíddarsjónvarp geti hafist í helstu iðnríkjum Asíu
og fyrirtæki eins og Sony, Panasonic, LG og
Samsung hafa lofað þrívíddarsjónvörpum á markað
fyrir þann tíma.
Android og snjallsímar
Google-fyrirtækið olli straumhvörfum á árinu með
því að bjóða upp á frítt stýrikerfi fyrir snjallsíma,
Android, sem í augum margra er eina stýrikerfið
sem getur keppt við iPhone Apple fyrirtækisins.
Farsímaframleiðendurtóku stýrikerfinu opnum
örmum og nú keyra sem dæmi snjallsímar frá HTC,
Samsung, Motorola og LG á Android-kerfinu.
Google vinnur nú hörðum höndum með HTC að
koma eigin síma á markað á næsta ári og teygja
angar fyrirtækisins sig sífellt víðar í tækniheiminum.
Voice
Ein og hálf milljón Bandaríkjamanna tók á árinu þátt
í tilraunaverkefni Google sem kallast Voice og
komust færri að en vildu. Voice er símaþjónusta og
virkar eins og þitt eigið skiptiborð en helsta
aðdráttaraflið er frí símtöl og SMS innan Bandaríkj-
anna og eitt símanúmer fyrir lífstíð, fyrir alla símana
þína! Voice er í raun þín eigin símstöð eða skiptiborð
og lætur þér í té símanúmer sem þaðan í frá er
samtengt öllum þeim númerum sem þú notar
dagsdaglega, í vinnunni, farsímanum og heimasím-
anum.Til að byrja með verður aðeins boðið uppá
Google Voice innan Bandaríkjanna en vitað er að
Google stendur þessa dagana í samningum við ýmis
fjarskiptafyrirtæki í heiminum um aðgang að
kerfum þeirra.
Leiðsögutækni
Snjallsímar með GPS og innbyggðum áttavita ollu
byltingu í leiðsögutækni á árinu. Mikil gróska varð í
hugbúnaðargerð í þessum geira sem engan endi
virðist ætla að taka. Ný hugtök urðu til eins og
„Augmented reality“ sem útleggst sem aukinn
veruleiki eða nokkurs konar sýndarheimur þar sem
blandað er saman stafrænum upplýsingum við
myndefni. Þannig má nota saman GPS-tæknina og
áttavita með veflægum kortagrunnum eins og
Google Maps og birta ýmsar upplýsingar í lögum
ofan á kort og annað myndefni. Það hefur færst í
vöxt að myndavél símans sé notuð á nánasta
umhverfi og notandinn sér síðan upplýsingar
birtast á skjánum sem eiga við þann stað eða
byggingu sem ljósopi myndavélarinnar er beint
að.
Róteindaárekstur
Vísindamenn við Evrópsku rannsóknamiðstöðina í
öreindafræði (CERN) í Sviss framkölluðu árekstur
róteinda í nóvember síðastliðnum, í 27 kílómetra
göngum sem liggja við landamæri Sviss og
Frakklands. Enginn heimsendir varð við tilraunina
eins og margir óttuðust á síðasta ári þegar hálfgerð
múgæsing varð í netheimum og fjölmiðlum.
Tilraunin markar tímamót í að auka skilning og
vitneskju vísindamanna á tilurð alheimsins og
Miklahvelli (e. Big Bang).
Stýrikerfin streymdu inn
Helstu keppinautarnir í gerð stýrikerfa fyrir
einkatölvur, Apple og Microsoft, komu nýjum
útgáfum stýrikerfa á markað á árinu. Windows 7 frá
Microsoft tók við af hinu mislukkaða Vista og hlaut
góðar viðtökur almennings sem flestir keyrðu enn á
XP-kerfinu sem kom á markað árið 2001. Snow
Leopard frá Apple naut einnig vinsælda vegna léttari
keyrslu en fyrra kerfi. Google-fyrirtækið tilkynnti á
árinu um þróun á nýju stýrikerfi sem hægt verður að
keyra á fistölvum frítt. Búist er við því að það komi á
markað á haustmánuðum 2010.