Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 17
ARKÍTEKTAR BANKAHRUNSINS
Pálmi Haraldsson
Rekstrarhagfræðingurinn Pálmi
Haraldsson átti félagið Fons. Eitt
helsta afrek
Fons var að
kaupa danska
flugfélagið
Sterling á
fjóra milljarða
króna og selja
FL Group það
sex mánuðum
síðar á 15 milljarða króna. Síðan
keypti Fons aftur Sterling af FL
Group ári síðar á 20 milljarða
króna. Pálmi flutti til Íslands árið
1991 til að taka við Sölufélagi
garðyrkjumanna sem þá stóð
höllum fæti. Var hann á þeim
tíma að ljúka meistaranámi í
rekstrarhagfræði frá Gautaborg-
arháskóla og var sérsvið hans í
náminu endurreisn gjaldþrota
fyrirtækja. Eins og frægt er
orðið var félag Pálma dæmt fyrir
grænmetissamráð árið 2001.
Eins og menntun Pálma sýnir
er hann mikill sérfræðingur og
þurtfti því ekki marga slíka til að
hjálpa sér. Þar má þó helst nefna
lögmanninn Einar Þór Sverrisson
sem einnig tengist Baugi eins og
rakið var í þeim hluta.
Karl Wernersson
og Milestone
Viðskiptafræðingurinn Karl
Wernersson hefur haft mikið
dálæti á lögfræðingum sem
hafa „sérfræðiþekkingu“ í
skattarétti og þekkja vel hvað
einkahlutafélögum er heimilt
að gera á Íslandi. Annar þeirra
var yfir skatta- og lögfræðisviði
KPMG áður en hann réð sig til
Milestone og hinn var prófessor
við Háskólann í Reykjavík.
„Leikfléttur“ þeirra sæta nú
rannsókn sérstaks saksóknara
vegna gruns um meint brot á
lögum um vátryggingastarfsemi
vegna veðsetningar á bótasjóði
Sjóvár. Sjóvá var sem kunnugt
er í eigu Wernerssona. Talið er
að Karl hafi stjórnað Milestone
með „sérfræðingum“ sínum
en Steingrímur bróðir haft lítil
afskipti af rekstrinum.
Gunnar
Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson starfaði
sem lögfræðingur hjá
Milestone. Fyrir
það starfaði hann
sem yfirmaður
skattasviðs KPMG.
Hann tók yfir
skattasvið KPMG
þegar Bernhard
Bogason gerðist framkvæmda-
stjóri lögfræðisviðs FL Group.
Gunnar er með meistaragráðu
í alþjóðlegum skattarétti og
kennir skattarétt við Háskólann
í Reykjavík. DV hefur fjallað
töluvert um Gunnar að und-
anförnu. Hann aðstoðaði Birki
Kristinsson við að losna við
greiðslu á fjármagnstekjuskatti
af fjögurra milljarða króna arði
út úr eignarhaldsfélaginu MK-
44 í febrúar árið 2008. Gunnar
starfar í dag fyrir ráðgjafar-
fyrirtækið Möttul. Möttull
hefur meðal annars unnið
fyrir fjármálaráðuneytið upp á
síðkastið við endurskipulagn-
ingu sparisjóðanna.
Jóhannes
Sigurðsson
Lögmaðurinn Jóhannes Sigurðs-
son var aðstoðar-
forstjóri Milestone.
Jóhannes starfaði
sem prófessor við
lagadeild Háskólans
í Reykjavík á árunum 2003 til
2006 eða þar til hann réð sig
til Milestone. Hann kenndi
fjármálarétt við Háskólann
í Reykjavík og var jafnframt
forstöðumaður Fjármálarétt-
arstofnunar skólans. Jóhannes
starfar í dag hjá ráðgjafarfyr-
irtækinu Möttli líkt og ýmsir
aðrir fyrrverandi yfirmenn hjá
Milestone.
Guðmundur
Ólason
Stjórnmálafræðingurinn Guð-
mundur Ólason var forstjóri
Milestone.
Hann var
ráðinn til
Milestone
árið 2005.
Fyrir það
starfaði
hann sem
aðstoðar-
framkvæmdastjóri Norræna
fjárfestingabankans á árunum
2002 til 2005. Guðmundur
starfaði sem stjórnsýslufræð-
ingur í fjármálaráðuneytinu og
sem ritari framkvæmdanefndar
um einkavæðingu á árunum
1997 til 2002. Guðmundur er
með BA-próf í stjórnmálafræði
frá Háskóla Íslands og MS í
stjórnmálahagfræði frá háskól-
anum í Árósum í Danmörku.
Bakkabræður
og Exista
Bakkabræðurnir Ágúst og
Lýður Guðmundssynir voru í
Kaupþingsklíkunni eftir að þeir
eignuðust hlut í bankanum. Við
fall Kaupþings voru Bakkabræð-
ur stærstu skuldarar bankans.
Flestar „leikfléttur“ þeirra voru
framkvæmdar með aðstoð
starfsmanna Kaupþings. Þeir
voru þó með nokkra sérfræðinga
í vinnu hjá sér og störfuðu þeir
flestir hjá Exista. Upphaf við-
skiptaveldis þeirra má rekja aftur
til ársins 1986 þegar þeir bræður
stofnuðu Bakkavör í Garði á Suð-
urnesjum ásamt föður sínum,
Guðmundi Lýðssyni vélstjóra.
Ágúst er með stúdentspróf frá
Fjölbrautaskólanum í Ármúla og
Lýður er með verslunarpróf frá
Verzlunarskóla Íslands en lauk
ekki stúdentsprófi.
Bjarni Brynjólfsson
Markaðsfræðingurinn Bjarni
Brynjólfsson er framkvæmda-
stjóri eigin
viðskipta
Exista. Bjarni
starfaði sem
verðbréfa-
miðlari hjá
Landsbréf-
um og var
sjóðsstjóri
og framkvæmdastjóri hjá
Lífeyrissjóðnum Framsýn sem
heitir Gildi í dag. Bjarni er
sonur Brynjólfs Bjarnasonar,
forstjóra Skipta og eins nánasta
samstarfsmanns Bakkabræðra.
Náin tengsl Bakkabræðra og
föður Bjarna hófust árið 1995. Þá
var Brynjólfur forstjóri Granda
og ákvað að fjárfesta í Bakkavör
sem var upphafið að útrás
Bakkabræðra.
Hildur Árnadóttir
Endurskoðandinn Hildur
Árnadóttir var ráðinn sem fjár-
málastjóri Bakkavarar árið 2004
og gegndi því starfi til ársins
2008. Hún starfað hjá KPMG í
fjórtán ár og var einn eigandi
endurskoðendaskrifstofunnar
þegar hún hætti þar. Hún hefur
setið í stjórn Exista, Skipta,
Vátryggingafélags Íslands og
Lýsingar. Hildur hefur starfað
sem formaður endurskoðunar-
og siðanefndar Félags löggiltra
endurskoðenda. Hildur er
viðskiptafræðingur frá Háskóla
Íslands og löggiltur endurskoð-
andi síðan 1995.
Ásmundur
Tryggvason
Lögmaðurinn Ásmundur
Tryggvason er framkvæmda-
stjóri fjárfestinga
hjá Exista. Hann
starfaði við ráð-
gjöf um samruna
og yfirtökur hjá
Íslandsbanka á
árunum 2003 til
2005 en þá réð
hann sig til Meiðs sem breyttist
síðar í Exista. Ásmundur var
á sínum tíma blaðamaður á
Viðskiptablaðinu og var stjórnar-
formaður Framsýnar sem gaf út
Viðskiptablaðið þegar það var í
eigu Bakkabræðra.
Björgólfur Thor
Björgólfsson og
Novator
Viðskiptafræðingurinn Björgólf-
ur Thor Björgólfsson hefur haft
her „sérfræðinga“ í kringum
sig á undanförnum árum sem
flestir hafa unnið hjá Novator.
Hafa „sérfræðingarnir“ líka
setið í stjórnum flestra þeirra
félaga sem Björgólfur Thor
hefur komið að. Björgólfur
Thor lauk BS-prófi í fjármálum
frá New York University árið
1991. Hann hélt fljótlega eftir
það til Rússlands þar sem hann
og faðir hans auðguðust á
bjórverksmiðjunni Bravo.