Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Blaðsíða 45
ÁRAMÓT 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 45
FIMM ATRIÐI SEM BREYTTU
LÍFINU ÁRIÐ 2009
Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður:
Nýtt starf og ný bók
1 Ég missti starfið síðasta dag ársins
2008 og aðeins nokkrum dögum síðar
var mér boðið að stjórna þætti á Skjá
einum. Þar er ég enn og þetta hefur ver-
ið mjög góð, lærdómsrík og skemmtileg
lífsreynsla. Ótrúlegur stuðningur sem
ég hef fengið frá alls konar fólki á árinu,
sem hefur hrósað mér fyrir vel unnin
störf og stappað í mig stálinu. Ég hef
fundið meðbyr allt árið og hef fyrir vikið
fengið aðgang að nánast öllum sem ég
hef viljað ræða við og fengið einstaka
innsýn í íslenskt samfélag eins og það
hefur verið síðustu árin. Þessa þekkingu
ætla ég að nýta mér áfram. Sem sagt
„blessing in disguise“ að missa vinnuna.
2 Litla systir mín flutti til landsins með
kærasta og syni eftir áralanga dvöl í
útlöndum.
Ég hef ræktað sambandið við þau og
ætla að halda því áfram. Það hafði
sérstaklega góð áhrif á mig þegar sonur
hennar nýorðinn tveggja ára gamall
lærði loksins að segja nafnið mitt.
3 Ferð til Japans síðasta vor með
pabba mínum. Einstakt land og frábær
ferð í alla staði. Við feðgarnir nutum
þess að vera þarna tveir saman og efla
tengslin. Ég er algjörlega heillaður
af japanskri menningu og Kyoto er
fallegasta borg sem ég hef heimsótt.
Þangað kem ég aftur, þótt síðar verði.
4 Ég skrifaði mína fyrstu bók á árinu.
Flottastur@Feisbúkk. Er ánægður með
afraksturinn og held að allir sem hafa
gaman að smá kaldhæðni og samfélags-
ádeilu ættu að skemmta sér yfir henni.
Bækurnar verða vonandi fleiri í fram-
tíðinni. Er þegar byrjaður að undirbúa
ævisögu Jónínu Ben og hef líka skrifað
jafnóðum um það sem hefur gerst bak
við tjöldin síðasta árið eða svo og gæti
vel hugsað mér að nota það sem grunn
að bók um það sem hér hefur gerst.
5 Silvia kærastan mín fékk bæði
atvinnutilboð og gekk vel í prófum
í háskólanum núna í desember. Það
gladdi mig mjög mikið og setti góðan
tón fyrir næsta ár.
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
alþingiskona:
Gamall
draumur
rættist
1 Fjölskyldan fékk labradortíkina
Röskvu. Hún er mikil gæðatík sem
setur sinn svip á heimilið.
2 Gott gengi íslenska kvenna-
landsliðsins í fótbolta er mér ofar-
lega í huga. Árangurinn hafði áhrif
á líf margra ungra fótboltastelpna
og sýnir mér enn einu sinni hversu
mikilvægar góðar kvenfyrirmyndir
eru fyrir stelpur.
3 Atburðirnir við Alþingishúsið
í janúar eru ógleymanlegir öllum
þeim sem voru staddir inni í húsinu
á þeim tíma.
4 Kosningarnar 2009 – gamall
draumur um vinstristjórn rættist.
5 Gæðastundir með fjölskyldunni
standa einnig upp úr. Þær hafa oft
verið fleiri en voru vel nýttar í ár.
Einar Bárðarson athafnamaður:
Yndislegar stundir í nýju húsi
1 Persónulega þá stendur það
efst í huga mér að við sem fjölskylda
áttum flutningalaust ár, þó það
hljómi einkennilega. Síðustu þrjú ár
hefur fjölskyldan verið á stanslausum
faraldsfæti milli Íslands og Bretlands út
af vinnunni minni en við rétt náðum til
Íslands fyrir hrun.
2 Við fundum okkur fallegt hús í
lok síðasta árs sem við höfum búið í
allt þetta ár, átt yndislegar stundir og
eignast nýjar minningar.
3 Við misstum líka á árinu. Hafþór
Hafsteinsson, kær vinur okkar hjóna
og samstarfsmaður, lést af slysförum.
Hugur okkar er með fjölskyldu hans
og vinum.
4 Af vettvangi vinnu og fram-
kvæmda tók ég Officera Klúbbinn á
Ásbrú á leigu og tók þátt í að opna
Víkingaheima á Fitjum í Reykjanesbæ
í samstarfi við ofurhugana Gunnar
Marel Eggertsson og Steinþór Jónsson,
það var alveg frábær lífsreynsla. Allt
annað en ég hef verið að vasast í í
gegnum tíðina.
5 Hæst stendur náttúrlega stofnun
Kanans 1. september 2009 og rekstur
hans. Allt það frábæra fólk sem er að
vinna með mér þar og þau dásamlegu
viðbrögð og hvatning sem við höfum
fengið hafa komið með ánægjulega á
óvart.
KOMIÐ ÚT
Njótum aðventunnar saman
smaar@dv.is
515
55
50
Hafðu samband
í síma 515-5555 eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift
Smáauglýsinga-
síminn er