Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Blaðsíða 6
SANDKORN
n Skopararnir í Baggalúti hitta oft
naglann á höfuðið í gríni sínu en
nú virðast þeir næstum vera farn-
ir að sjá fram í tímann. Þannig
skrifuðu þeir á vef sinn á annan í
jólum að lögreglan hefði stöðvað
skemmt-
anahald á
vinsælum
vínveit-
ingastað á
Skólavörðu-
holti þar sem
brotið hefði
verið gegn
lögum um
bann við skemmtunum og einka-
samkvæmum á jólunum. Var þar
mynd af Hallgrímskirkju og tekið
fram að ljóst væri að vín hefði
verið veitt og hávær tónlist spiluð.
En gríni fylgir stundum alvara og
nú er ljóst að messufall verður í
Hallgrímskirkju vegna viðgerða
frá því snemma í janúar fram í lok
febrúar.
n Vestfirska útgáfan hefur haldið
merki Vestfirðinga á lofti í bóka-
útgáfu, meðal annars með bók-
inni „Þjóðsögur og gamanmál að
vestan“ sem Hemmi Gunn tók
saman. Þar
má með-
al er sagan
af því þegar
séra Gunnar
Björnsson
var nýtekinn
við prestskap
í Bolungar-
vík og fór í
sparisjóð-
inn til að opna bankareikning.
Sólberg Jónsson sparisjóðsstjóri
spurði prestinn hvort hann vildi
eitthvert sérstakt númer á reikn-
inginn og spurðist séra Gunnar
fyrir um 333. Hinn kirkjurækni
sparisjóðsstjóri leit í bækur sínar
og svaraði: „Já, þetta númer get-
urðu fengið. Er það ekki Send oss
nú, faðir, anda þinn?“
n Fleiri góðar sögur er að finna
í bók Hemma Gunn „Þjóðsög-
ur að vestan“. Þeirra á meðal er
sagan af Guðbjarti Jónssyni verti
í Vagninum á
Flateyri. Orð
og orðasam-
bönd vöfðust
stundum
fyrir honum
og varð hann
frægur fyrir
mismæli.
Björn Ingi
Bjarnason,
vinur Guðbjarts, safnaði mismæl-
um hans saman. Þeirra á með-
al voru til dæmis „margt smátt
gerir lítið eitt“ og „sá vægir sem
veit ekki meira“. En þar er líka að
finna lýsingu Guðbjarts á bílferð í
blindbyl. „Það var svo mikill byl-
ur að það sást ekki á milli augna
og ég varð að keyra með opinn
hausinn út um gluggann.“
6 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 FRÉTTIR
Fjöldi starfsmanna fjárfestingar-
bankans Straums var meðal áhorf-
enda á stórleik West Ham gegn Eng-
landsmeisturum Manchester United
í byrjun mánaðarins. Meðal annarra
voru þarna framkvæmdastjóri, fjár-
málastjóri, starfsmaður lánasviðs og
formaður skilanefndar Straums.
Þrír þeirra, Einar Þór Steindórs-
son, fulltrúi lánasviðs Straums, Jakob
Bjarnason, fjármálastjóri Straums,
og Reynir Vignir, löggiltur endur-
skoðandi og formaður skilanefndar
Straums, voru boðsgestir á leiknum
sem fram fór fimmta desember síð-
astliðinn. Einar og Jakob sátu í heið-
ursstúku félagsins en Reynir sat með-
al almennings. Knattspyrnufélagið
West Ham er í eigu íslenska eignar-
haldsfélagsins CB Holding, sem er í
meirihlutaeigu Straums. Englands-
meistararnir frá Manchester unnu
íslenska liðið með þremur mörkum
gegn engu í leiknum sem Straums-
menn urðu vitni að.
Ekkert óeðlilegt
Georg Andersen, talsmaður Straums,
staðfestir að starfsmenn Straums hafi
verið á vellinum og að sumir þeirra
hafi verið boðsgestir. Almennt segir
hann það skýra reglu hjá fyrirtækinu
að starfsfólki sé ekki boðið á völlinn.
„Á vellinum voru einhverjir starfs-
menn sem keyptu sér sjálfir miða. Án
þess að borga fyrir miða fóru starfs-
maður á lánasviði og fjármálastjór-
inn á völlinn. Svo var Reynir þarna.
Í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt við það
að Einari og Jakobi hafi verið boðið.
Annar þeirra starfar beinlínis fyrir
West Ham og hinn er fjármálastjóri
Straums og hann var staddur í borg-
inni hvort eð var,“ segir Georg.
Aðspurður staðfestir Reynir að
hópur Íslendinga hafi verið í heið-
ursstúkunni en segist sjálfur ekki
hafa verið þar. Hann fullyrðir að fleiri
skilanefndarfulltrúar hafi ekki ver-
ið á leiknum. „Ég var ekki í heiðurs-
stúkunni en ég var á vellinum. Satt að
segja veit ég ekki hverjir voru boðs-
gestir á vellinum en ég var eini skila-
nefndarfulltrúinn á svæðinu. Það
vildi bara þannig til að ég var í öðr-
um erindagjörðum í borginni og því
þáði ég miða á völlinn. Það er eng-
inn glæpur í þessu. Ég nýtti tækifær-
ið og fékk miða á völlinn, það er ekki
flóknara en það. Ég þori ekki að fara
með það hversu stór boðshópurinn í
stúkunni var,“ segir Reynir.
Eina skiptið
Reynir ítrekar að hann hafi þeg-
ið miða því það hafi verið upplagt
þar sem hann var staddur í borg-
inni. Hann segist mikill fótbolta-
áhugamaður og því hafi verið gam-
an að fara á völlinn. „Það var hópur
Íslendinga á vellinum, það er klárt
mál. Ég bað starfsfólk Straums um
að útvega mér miða þar sem ég væri
í borginni. Það er allt og sumt og ég
hafði gaman af leiknum. Það voru
ýmsir gestir en ég veit ekki á hvers
vegum þeir voru,“ segir Reynir.
„Það vill bara svo til að ég er
knattspyrnuáhugamaður og þetta
er í eina skiptið sem ég hef beð-
ið um að mér sé útvegaður miði á
völlinn. Við erum að reyna að selja
West Ham og erum að funda um
það alla daga. Ég notaði auðvitað
tækifærið og skoðaði aðstæður fé-
lagsins í leiðinni. Þannig get ég ver-
ið betur undirbúinn fyrir sölu fé-
lagsins.“
„Ég notaði auðvitað
tækifærið og kynnti
mér aðstæður félagsins
í leiðinni. Þannig get ég
verið betur undirbúinn
fyrir sölu félagsins.“
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
STRAUMSMENN Í HEIÐ-
URSSTÚKU WEST HAM
Fjármálastjóri, framkvæmdastjóri, starfsmaður lánasviðs og formaður skila-
nefndar Straums skelltu sér á leik með West Ham á dögunum. Þrír þeirra voru í
boði félagsins þar sem þeir horfðu upp á íslenska liðið tapa fyrir Englandsmeist-
urunum frá Manchester.
Gaman í stúkunni Eignar-
haldsfélag í meirihlutaeigu
Straums tók við West Ham
af Björgólfi Guðmundssyni
sem hér sést á góðri stundu
í heiðursstúkunni.
Marilyn Young, fyrrverandi ástkona
skákmannsins Bobbys Fischer, hefur
höfðað barnsfaðernismál fyrir hönd
dóttur sinnar, Jinky, í þá veru að hinn
látni skáksnillingur Bobby Fischer sé
faðir ungu stúlkunnar. Málið var þing-
fest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyr-
ir jól.
Ein af kröfum mæðgnanna er sú að
lífsýni úr Fischer verði borið saman við
lífsýni úr Jinky sem tekið var á dögun-
um er þær komu í heimsókn hingað
til lands í tengslum við málið. Samuel
Estimo, lögfræðingur frá Filippseyjum,
vinnur málið með Young en Þórður
Bogason, lögmaður hjá Lögmönnum
Höfðabakka, flytur málið fyrir héraðs-
dómi. Þá hefur móðirin gert kröfu fyr-
ir hönd dóttur sinnar í dánarbú skák-
meistarans, sem metið er á nærri 300
milljónir króna, og sú krafa verður
einnig borin undir dómstóla.
Hæstiréttur komst nýverið að þeirri
niðurstöðu að Miyoko Watai, japönsk
ekkja Fischers, hafi ekki náð að sanna
lögmætan hjúskap þeirra og því var
dánarbú meistarans tekið til opinna
skipta. Samkvæmt heimildum DV eru
allar líkur á því að málinu verði aft-
ur skotið til dómstóla og það komi í
þeirra hlut að skera endanlega úr því
hvort Fischer hafi verið löglega kvænt-
ur og hvort hann sé raunverulegur fað-
ir Jinky.
Verði sú krafa samþykkt verður í
fyrstu athugað hvort lífsýni úr hon-
um sé til á Landspítalanum, ef ekki
verður gripið til þess að nálgast lífsýni
úr jarðneskum leifum meistarans en
hann hvílir í Laugardælakirkjugarði
rétt utan við Selfoss.
Samuel Estimo fullyrðir að stúlkan
sé dóttir Fischers og segist hafa skot-
held gögn því til sönnunar. „Já, Bobby
hafði sjálfur viðurkennt hana sem
barn sitt. Ég hef náð saman öllum okk-
ar gögnum sem sanna okkar málstað.
Þetta eru glaðlyndar mæðgur og þær
bera sig vel,“ segir Estimo.
Aðspurður segir Þórður ekkert hik
að finna hjá mæðgunum sem halda
því staðfastlega fram að Fischer sé fað-
irinn. „Við gerum okkur von um að
málið fari að skýrast nokkuð í janúar
eða byrjun febrúar. Lífsýnarannsókn-
in ætti að skera úr um þetta og þær
eru algjörlega óhræddar við það enda
vissar í sinni sök. Það gefur augaleið að
þær eru óhræddar við að leggja málið í
dóm,“ segir Þórður. trausti@dv.is
Filippseyskar mæðgur höfða barnfaðernismál og gera kröfu í opið dánarbú Bobby Fischer:
Óhræddar mæðgur krefjast arfsins
Ósannaður hjúskapur Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að japanska ekkjan
hafi ekki með óyggjandi hætti sannað hjúskap þeirra Fischers.
Ó
dý
ra
ri
sm
ur
st
öð
o
g
ve
rk
st
æ
ði
H
el
lu
hr
au
n
4
| 2
20
H
af
na
rfi
rð
i |
S
ím
i:
56
5
44
40