Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Blaðsíða 43
KVIKMYNDIR 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 43
BRIM
Leikstjóri: Árni Ólafur Ásgeirsson. Leikarar: Björn Hlynur Haralds-
son, Ólafur Darri Ólafsson, Ingvar E. Sigurðsson, Nína Dögg Filippusdóttir,
Gísli Örn Garðarsson. Frumsýnd: 15. janúar.
Kvikmyndaútgáfa leikhópsins Vesturports af
samnefndu leikriti Jóns Atla Jónassonar sem
segir frá áhöfninni á Brim RE 29. Einn helsti
áhafnarmeðlimurinn fyrirfer sér og ung stúlka
er ráðin í hans stað við lítinn fögnuð skipverja.
ALICE IN WONDERLAND
Leikstjóri: Tim Burton. Leikarar: Mia Wasikowska, Johnny
Depp, Helena Bonham Carter. Frumsýnd: 12. mars.
Það bíða eflaust margir spenntir eftir
þess ari. Þessi klassíska furðusaga virðist
sniðin að stíl Tims Burton. Fastakúnn-
arnir Johnny Depp og Helena Bonham
Carter eru á sínum stað og Matt Lucas úr
Little Britain er í skemmtilegu hlutverki.
CEMETERY JUNCTION
Leikstjóri: Ricky Gervais, Steven Merchant. Leikarar: Ralph Fiennes, Ricky Gervais, Emily Watson.
Allir góðir menn fagna þessari mynd, enda í fyrsta sinn sem heil-
arnir að baki bresku Office-þáttanna gera kvikmynd. Fjallar um
unga starfsmenn tryggingafyrirtækis á 8. áratugnum. Ricky Gervais
hefur lýst myndinni sem blöndu af The Office og Mad Men.
THE EXPENDABLES
Leikstjóri: Sylvester Stallone. Leikarar: Sylvester Stallone,
Jason Statham, Mickey Rourke. Frumsýnd: 23. apríl.
Sylvester Stallone ákvað að hóa sam-
an gömlu harðhausana úr hasarmynd-
um 9. áratugarins og gera eina gamal-
dags. Nokkrir yngri slást í hópinn eins
og Jason Statham og Jet Li. Það besta er
þó líklega að Dolph Lundgren og Arnold
Schwarzenegger koma fram í myndinni.
INCEPTION
Leikstjóri: Christopher Nolan. Leikarar: Leonardo
DiCaprio, Ellen Page, Ken Watanabe.
DiCaprio leikur kaupsýslumann
sem lendir í vandræðum og Ken
Watanabe er illmennið. Ekki er vitað
mikið meira um söguþráð þessar-
ar áhugaverðu kvikmyndar Christo-
phers Nolan, en allar líkur eru á því
að hún muni vekja athygli. Nolan
hefur sjálfur verið mjög leyndar-
dómsfullur þegar spurt er um mynd-
ina og lítið annað látið út úr sér en að
hún sé vísindatryllir sem gerist „inn-
an vébanda hugans“. Dularfullt.
The Three Stooges
Knight & Day
The Imaginarium of Dr. Parnassus
A-Team
Shrek Forever After
Frankie Machine
Salt
Youth in Revolt
The Rum Diary
Jonah Hex
Twilight: Eclipse
The Good Heart
Sumarlandið
Rokland
The Green Hornet
Wall Street 2
Loftkastalinn sem hrundi
Amelia
The Fantastic Mr. Fox
Sex and the City 2
Black Swan
Hereafter
I Love You Phillip Morris
The Tron Legacy
Green Zone
A Single Man
Crazy Heart
Brothers
Edge of Darkness
Repo Men
ÞESSAR KOMA LÍKA ÚT 2010
SHERLOCK HOLMES
Leikstjóri: Guy Ritchie. Leikarar: Robert
Downey Jr., Jude Law, Rachel McAdams, Mark Strong.
Frumsýnd: 15. janúar.
Var að vísu frumsýnd nú um jólin
ytra en er væntanleg til Íslands um
miðjan janúar. Hefur fengið ágæta
dóma, enda ekki við öðru að búast
þegar snillingurinn Robert Dow-
ney Jr. er í aðalhlutverkinu. Það
verður spennandi að sjá hversu
mörg framhöld fylgja í kjölfarið.
COP OUT
Leikstjóri: Kevin Smith. Leikarar: Bruce Willis,
Tracy Morgan. Frumsýnd: 5. mars.
Í fyrsta sinn á ferlinum leikstýrir Ke-
vin Smith kvikmynd án þess að skrifa
handritið. Um er að ræða gaman-
mynd sem segir frá tveimur lögreglu-
mönnum sem líkar ekkert alltof vel
hvor við annan. Annar er svartur,
en hinn hvítur. Líklega mesta klisja í
heiminum og væri mjög óspennandi
ef Kevin Smith nyti ekki við.
THE ROAD
Leikstjóri: John Hillcoat. Leikarar: Viggo
Mortensen, Charlize Theron, Guy Pearce, Robert Duvall.
Miklar hamfarir hafa eytt nær öllu
lífi á jörðinni og ungur drengur
þarf að leggja í langt ferðalag ásamt
föður sínum. Byggð á met sölubók
Cormac McCarthy og verður von-
andi jafn góð og síðasta mynd sem
gerð var eftir skáldsögu hans, No
Country For Old Men.
WHERE THE WILD
THINGS ARE
Leikstjóri: Spike Jonze. Leikarar: Max Records,
Catherine Keener, Mark Ruffalo. Frumsýnd: 29. janúar.
Byggð á barnabókinni „Þar sem
villidýrin ganga laus“ eftir Maurice
Sendak. Segir frá ungum dreng sem
skapar sér undraheim með ýms-
um furðuverum. Spike Jonze er ekki
þekkt ur fyrir að vera mjög hefðbund-
inn og því verður spennandi að sjá
hans útgáfu af þessari sögu.
MAMMA GÓGÓ
Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson. Leikarar: Kristjörg
Kjeld, Hilmir Snær Guðnason. Frumsýnd: 1. janúar.
Fyrsta leikna kvikmynd Friðriks
Þórs í nokkur ár, og fjallar um ungan
kvikmynda gerðarmann sem á í basli
með nýjustu afurð sína. Á sama tíma
glímir roskin móðir hans við Alzheim-
er og færist fjær raunveruleikanum dag
hvern. Í raun má segja að Friðrik hverfi
aftur til þess viðfangsefnis sem kom
honum á kortið til að byrja með. Út-
koman verður áhugaverð.
UP IN THE AIR
Leikstjóri: Jason Reitman. Leikarar: George
Clooney, Vera Farmiga, Anna Kendrick, Jason Bateman.
Frumsýnd: 5. febrúar.
Leikstjóri Juno og Thank You For
Smoking ásamt George Clooney
hljómar mjög vel. Það virkar líka
mjög vel ef marka má gagnrýn endur
vestanhafs. Gamanmynd sem segir
frá starfsmanni stórfyrirtækis sem
neyðist til að hætta stöðugum ferða-
lögum vegna niðurskurðar. Hlaut
nýlega flestar tilnefningar til Golden
Globe-verðlaunanna.
THE LOVELY BONES
Leikstjóri: Peter Jackson. Leikarar: Saoirse Ronan,
Mark Wahlberg, Rachel Weisz. Frumsýnd: 22. janúar.
Fyrsta kvikmynd Peters Jackson í
nokkur ár, en eins og flestir ættu að
vita sló hann í gegn með Hringa-
dróttinssögu í upphafi áratugarins.
Segir frá ungri stúlku sem er myrt og
fylgist í kjölfarið með fjölskyldu sinni,
og morðingja, frá himnum. Hefur
hlotið góða dóma gagnrýnenda og
þykir nokkuð líkleg til verðlauna.