Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 FRÉTTIR
Nokkrir frægir leikarar og tónlistarmenn fóru yfir móðuna miklu í ár. Af þeim telst frægastur konungur
poppsins, Michael Jackson. Á meðal hinna má nefna drauginn Patrick Swayze, kungfúkappann Carra-
dine og Playboy-fyrirsætuna Farrah Fawcett.
Frægustu þeirra stjarna sem söfn-
uðust til feðra sinna í ár verður að
telja konung poppsins, Michael
Jackson. Að ætla að telja upp af-
rek Jacksons á tónlistarsviðinu eða
áhrif hans á poppiðnaðinn væri að
æra óstöðugan, en ljóst verður að
teljast að fáir tónlistarmenn geta
státað af öðru eins.
Michael Jackson fæddist 29. ág-
úst 1958 og lést 25. júní 2009. Vart
hafði hann gefið upp öndina þegar
fjöldi kenninga um banamein hans
fylltu fjölmiðla. Augu saksókn-
ara beindust að einkalækni hans
og lyfjanotkun og LaToya Jackson,
systir hans, fullyrti að hann hefði
verið myrtur vegna auðæva sinna.
Jackson skildi eftir sig þrjú börn,
tvö eignaðist hann með hjúkrun-
arkonunni Deboruh Jeanne Row,
sem hann kvæntist árið 1996, en
staðgöngumóðir sá um meðgöngu
þess þriðja.
Draugurinn deyr
Leikarinn Patrick Swayze (18. ág-
úst 1952 – 14. september 2009)
greindist með krabbamein í bris-
kirtli árið 2008 sem dró hann að
lokum til dauða. Patrick Swayze
verður helst minnst fyrir hlutverk
sitt í kvikmyndunum Dirty Danc-
ing og Ghost. Í þeirri fyrrnefndu
lék hann danskennara og heill-
aði flestar táningsstúlkur upp úr
skónum og í þeirri síðarnefndu lék
hann draug myrts manns sem leit-
aði réttlætis. Mótleikkona Swayze í
Ghost var Demi Moore og samleik-
ur þeirra framkallaði tár á hvarmi
margra áhorfendanna.
Hetjan sem hengdist
David Carradine (8. desember
1936 – 3. júní 2009) var vinsæll
leikari til margra ára og þekktastur
fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþátta-
seríunni Kung Fu sem naut mikilla
vinsælda á áttunda áratugnum.
Carradine minnti rækilega á sig
í Kill Bill-kvikmyndunum í leik-
stjórn Tarantinos, en lék í heildina
í yfir eitt hundrað myndum, og var
ávallt svalur hvort sem um var að
ræða hlutverk skúrks eða hetju.
Dauði Davids Carradine var
ekki sveipaður miklum hetjubrag,
því hann fannst látinn, hengdur
inni í skáp á hótelherbergi í Bang-
kok í Taílandi. Kringumstæður
bentu til þess að eitthvað hefði far-
ið úrskeiðis í fjötratengdu kynlífi
sem Carradine var, að sögn fyrrver-
andi eiginkvenna hans, hrifinn af.
Virt leikkona fellur frá
Leikkonan Natasha Richardson
(11. maí 1963 – 18. mars 2009) fékk
fjölda viðurkenninga á leiklistar-
ferli sínum. Hún gat sér gott orð
hvort heldur sem var sem sviðs-
leikkona eða kvikmyndaleikkona.
Þann 16. mars fékk Natasha höf-
uðáverka þegar hún féll á skíðum
þegar hún fékk skíðatilsögn á Mont
Tremblant í Quebec í Kanada. Nat-
asha Richardson virtist heil á húfi
í kjölfarið og gat tjáð sig og geng-
ið um. Því var þjónusta bráðaliða
sem upphaflega komu á staðinn
afþökkuð. Natasha fór til herberg-
is síns en var þremur tímum síðar
send á sjúkrahús í Saint-Agathe-
des-Monts eftir að hún kvartaði yfir
höfuðverk. Daginn eftir var flog-
ið með hana til New York og hún
lögð inn á Lennox Hill-sjúkrahús-
ið. Hún lést daginn eftir, 18. mars.
Banamein hennar var blæðing inn
á heilann.
Engill Kalla
Farrah Fawcett (2. febrúar 1947 –
25. júní 2009) var bandarísk leik-
kona. Henni skaut upp á stjörnu-
himininn eftir að hún birtist
sjónvarpsáhorfendum sem einka-
spæjarinn Jill Munroe í Charlie’s
Angels-þáttunum árið 1976.
Ferill Farrah gekk upp og ofan
eftir að göngu Charlie’s Angels
lauk, en árið 1983 var hún hyllt af
gagnrýnendum fyrir frammistöðu
sína í leikritinu Extremeties og ári
síðar fékk hún sína fyrstu tilnefn-
ingu, af fjórum, til Emmy-verð-
launanna fyrir leik sinn í kvik-
myndinn Burning Bed.
Farrah Fawcett greindist með
ristilkrabbamein árið 2006. Þrátt
fyrir hetjulega baráttu og ýmiss
konar meðferðir varð Fawcett að
játa sig sigraða 25. júní, 2009.
„Farrah var ein táknmynd feg-
urðar okkar tíma,“ sagði Hugh
Hefner, eigandi Playboy-tímarits-
ins, um Farrah Fawcett.
Guðfaðir rokkhljómsins
Lester William Polsfuss, Les Paul
(9. júní 1915 – 12. ágúst 2009) var
brautryðjandi í þróun „solid-body“-
-rafmagnsgítarsins sem gerði
mögulegt að ná fram „hljómi rokks-
ins“. Að auki hefur honum verið
eignaður heiður í þróun ýmissa nýj-
unga í hljóðupptökutækni.
En nýbreytnin einskorðaðist
ekki við hönnun og þróun gítars-
ins og upptökutækninnar heldur
náði hún einnig inn í tækni hans
við hljóðfæraleik og hafði hann
áhrif á fjölda gítarleikara nútím-
ans. Les Paul og Mary, eiginkona
hans, hljóðrituðu fjölda platna á
sjötta áratugnum og seldust þær í
milljónum eintaka. Banamein Les
Paul var rakið til lungnabólgu.
Karl Malden
Mladen George Sekulovich, Karl
Malden (22. mars 1912 – 1. júlí
2009) var bandarískur leikari sem
státaði af sjö áratuga leikferli, yfir
fimmtíu kvikmyndum og ótal við-
urkenningum. Á meðal þeirra
mynda sem hann lék í voru A
Streetcar Named Desire, On the
Waterfront og One-Eyed Jacks,
sem allar skörtuðu Marlon Brando
í aðalhlutverki. Fyrir hlutverk sitt í
þeirri fyrst nefndu vann Malden til
Óskarsverðlauna sem besti karl-
leikari í aukahlutverki.
Karl Malden lék sitt síðasta hlut-
verk í kvikmyndum og sjónvarpi
árið 2000 þegar hann kom fram í
fyrstu þáttaröð sjónvarpsþáttanna
West Wing. Í þáttunum lék Mal den
kaþólskan prest og notaði sömu
biblíu og hann hafði notað í kvik-
myndinni On the Waterfront.
Leikari, grínisti og kokkur
Leikarinn Dominick „Dom“
DeLuise (1. ágúst 1933 – 4. maí
2009) var einna helst þekktur fyr-
ir hlutverk sín í grínmyndum.
Hans verður sennilega einna helst
minnst fyrir samstarf hans og Burts
Reynolds á sjöunda og áttunda
áratugnum, en þeir birtust kvik-
myndaunnendum í kvikmynd-
unum The Canonball Run, The
Canon ball Run II, Smokey and the
Bandit II, The End, All Dogs Go to
Heaven og The Best Little Whore-
house in Texas. Dom DeLuise átti
einnig sinn fasta sess í flestum
myndum leikstjórans Mel Brooks,
þeirra á meðal Blazing Saddles,
Silent Movie, Robin Hood: Men in
Thights og Spaceballs.
Dom DeLuise var einnig mik-
ill áhugamaður um mat og gaf
út nokkrar bækur um matseld.
DeLuise lést 4. maí vegna nýrna-
bilunar og öndunarfærasjúkdóma
sem raktir voru til sykursýki og hás
blóðþrýstings.
Lést ung að árum
Brittany Murphy (10. nóvember
1977 – 20. desember 2009) hóf
leiklistarferil sinn ung að árum og
fékk hlutverk í söngleiknum Vesa-
lingarnir þegar hún var níu ára, og
sitt fyrsta Hollywood-hlutverk þeg-
ar hún var fjórtán. En það var þó
ekki fyrr en í kvikmyndinni Clue-
less 1995 sem hún vakti verulega
athygli. Á meðal annarra stórra
hlutverka má nefna hlutverk Daisy
Randone í Girl, Interrupted, Eliza-
bet Burrows í Don´t Say a Word,
þar sem hún lék á móti Michael
Douglas og hlutverk Alex Latourno
í myndinni 8 Mile þar sem hún lék
á móti rapparanum Eminem.
Ásamt leik fékkst Brittany við
tónlist og átti smellinn Faster Kill
Pussycat árið 2006.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
FRÆGIR SEM FÉLLU FRÁ
Konungur poppsins Michael
Jackson lést rétt fyrir upprisu sína.
Dansandi draugur Patrick Swayze
bræddi margt ungmeyjarhjartað.
David Carradine Hetja á hvíta
tjaldinu en dauðdaginn lítt hetjulegur.
Virt og fögur leikkona Natasha
Richardson lést vegna skíðaóhapps.
Engill Charlies Farrah Fawcett lést úr
krabbameini um mitt ár.
Guðfaðir rokkgítarsins Arfleifð Les
Paul verður seint ofmetin.
Margverðlaunaður leikari Ferill
Karls Malden spannaði sjö áratugi.
Dominick „Dom“ DeLuise Var margt til lista lagt í leiklist, leikstjórn og matseld.
Brittany Murphy Lést úr hjartaslagi
rétt fyrir jól.