Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Side 37
Hver er maðurinn? „Viðar Eggertsson, sem er í raun margir menn og því ekki einhamur.“ Hvað drífur þig áfram? „Forvitni, óendanleg forvitni.“ Hvar ertu uppalinn? „Ég er „alþjóðlegur“, það er að segja ég var alinn upp, eða réttara sagt ekki alinn upp, víðs vegar um landið.“ Hver er fyrsta minning þín úr æsku? „Þögn - síðan grátur og þá þögn.“ Hvað borðaðir þú um jólin? „Allt sem að kjafti kom.“ Áttir þú notaleg jól? „Já, naut þeirra að mestu rúmliggjandi. Gæðajól.“ Strengir þú áramótaheit? „Já, ég strengi alltaf sama heitið: Að strengja ekki áramótaheit. Hef aldrei klikkað á því!“ Hver er uppáhaldsbíómyndin? „La Strada eftir Fellini. Hún var gerð árið sem ég fæddist. Ég trúði því þegar ég sá hana sem barn að Fellini hefði meint eitthvað með því að gera hana einmitt það ár.“ Hvert er uppáhaldsleikritið? „Beðið eftir Godot eftir Samuel Beckett.“ Hvað kom til að þið ákváðuð að sýna Ævintýri á gönguför núna? „Þjóðin á sameiginlega ómetanlega dýrgripi í hljóðritunarsafni útvarpsins og hún á það skilið að fá að njóta þeirra. Það er einstakt að geta upplifað andartakið sem var.“ Eru mikil gæði í upptökunni? „Verkið var upphaflega sent út beint á öldum ljósvakans og síðan hljóðritað á lakkplötur sem hver tók 17 mínútur. Margar plötur þarþví Ævintýrið tekur um 150 mínútur. Tæknimenn hafa síðan unnið í upptökunum og náð ótrúlega miklum hljómgæðum úr þeim.“ Hvert er framhald útvarpsleik- hússins? „Útvarpsleiklist er sérstök listgrein sem útvarpstæknin hefur skapað. Listin deyr aldrei.“ ERTU BÚIN/N AÐ STRENGJA ÁRAMÓTAHEIT? „Nei, ég geri það nú almennt séð ekki. Ég tek nú bara einn dag í einu.“ AÐALSTEINN KÁRASON 59 ÁRA VERSLUNAREIGANDI „Já, ég ætla að hreyfa mig meira, fara oftar í ræktina.“ MAGNÚS MAGNÚSSON 23 ÁRA VAKTSTJÓRI „Nei, ég geri það yfirleitt ekki fyrr en á síðustu stundu. Kannski ákveð ég að taka mig á í ræktinni.“ GUNNAR GUÐMUNDSSON 18 ÁRA STARFSMAÐUR HJÁ PÓSTINUM OG SKALLA „Nei, ég hef aldrei gert það. Mér myndi ekki detta það í hug nema ég fengi einhverja vitrun. Þetta er einhver amerískur siður.“ EYÞÓR SNORRASON 22 ÁRA HÁSKÓLANEMI DÓMSTÓLL GÖTUNNAR VIÐAR EGGERTSSON, stjórnandi útvarpsleikritsins, segir að þjóðin eigi ómetanlega dýrgripi í hljóðritunar- safni útvarpsins og hún eigi það skilið að fá að njóta þeirra. Útvarps- leikhúsið flytur elstu varðveittu upptökuna af útvarpsleikriti á Rás 1 eftir áramót. GÆÐAJÓL Í RÚMINU „Nei, nýtt ár, ný ævintýri. Það er á hreinu.“ SIGURJÓN HARALDSSON 53 ára verslunarmaður MAÐUR DAGSINSMYNDIN Ljós og hvellir Áramótin eru tíminn þegar við skjótum upp flugeldum. Þá er betra að hlaupa tímanlega í burtu áður en rakettan hefur sig til himins. MYND RÓBERT REYNISSON UMRÆÐA 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 37 Desember er mánuður auglýsing- anna, rétt eins og allir aðrir. Í póst- hólfinu mínu er desember allt árið um kring. Í hvert skipti sem ég opna pósthólfið er verið að bjóða mér há- skólagráðu sem ekkert þarf að læra fyrir, meðul til að lengja lífið eða þá bara nýtt úr. Flest er þetta þó kyn- lífstengt. Boðið er upp á víagra, töfl- ur til að lengja liminn eða rússneska eiginkonu, en því miður ekki allt saman í pakka. Einnig er hægt að fá gervikvenmannssköp, sem auglýst eru svona: „Það eina sem er betra en hönd þín.“ Markhópurinn vænt- anlega þeir sem endanlega eru bún- ir að gefast upp á lífinu. Maður slekkur á tölvunni og rölt- ir niður Laugaveginn og það virðist sem árið 2007 ásæki mann eins og draugur liðinna jóla. Það þýddi lít- ið að hamast yfir smekklausum aug- lýsingum í góðærinu, góðærið sjálft var ein allsherjar æfing í smekk- leysi. Þó er ekki hægt annað en að minnast á nokkra lágpunkta, svo sem þegar Og Vodafone reyndi að taka yfir 17. júní, eða Tópas reyndi að taka yfir 1. maí. „Fjölskyldan er fyrirtæki“ er líklega eitt eftirminni- legasta slagorð góðærisins. Svo var blessunarlega ekki, enda hvíla flest- ar fjölskyldur á sterkari grunni en stórfyrirtæki landsins. Sjálfur man ég sérstaklega eftir því þegar ég sá auglýsingar Glitn- is um upplýsingar á iPodum á Glúfrasteini. Ef það var einhver staður á byggðu bóli á Íslandi þar sem manni fannst að maður hefði mátt vera laus við síbylju auglýs- inganna var það á heimili Nóbel- skáldsins. Svo var ekki, enda hrun- ið í nánd. Bylting áleggstegundanna Þótt góðærið sé búið heldur smekk- leysið áfram. Í einni auglýsingu þessa dagana ómar lagið „Móðir“ eftir auglýsingasöngvarann Bubba Morthens yfir myndum af ungum börnum sem virðast auðveld bráð barnaníðinga. Hér er þó ekki um viðvörun frá lögregluembættinu að ræða, heldur er þetta auglýsing frá Símanum um áskriftarþjónustu sem inniheldur netvörn. Reynt er að höfða til samvisku foreldra, eina leiðin til að vernda börnin er að vera í áskrift hjá Símanum. Í nýlegum blaðaauglýsingum Tryggingamiðstöðvarinnar bregð- ur fyrir þjóðhetjum svo sem Jóni Sigurðssyni og Einari Ben. Framtíð þjóðarinnar, samkvæmt þessu, er undir Tryggingamiðstöðinni kom- in. Ekki er heldur annað að sjá en að auglýsingarnar fari heldur frjáls- lega með byltingarhugtakið, enda hafa byltingar verið í tísku á árinu. „Bylting á Íslandi,“ tilkynnir Pizzer- ia Rizzo Express, án þess að hægt sé að sjá að áleggstegundum þeirra sé beint gegn ríkisstjórn eða auðvaldi. Ekki eru allir þó á byltingarbuxun- um. „Skapaðu þitt eigið góðæri,“ segir í tilkynningu frá Nýja ökuskól- anum. Fyrir þá sem fengu ekki nóg af því síðasta. Einhvers staðar mitt á milli er herferð fyrir súkkulaðið Rex, sem er auglýst með íslenska fánan- um og vill stuðla að jákvæðara Ís- landi. Engin ástæða til að breyta neinu hér á landi, það er nóg að kaupa sér skammvinna gleði. Þó að mér leiðist auglýsingar al- mennt var samt gaman að sjá þjóð- háttafræðinginn Árna Björnsson í úraauglýsingu. Hann er að minnsta kosti tilbreyting frá góðærisgæjun- um. Takmarkaðar auglýsingar í Bandaríkjunum Svíar hafa löngum gætt aðhalds í auglýsingamennsku, meðal annars er bannað að sýna auglýsingar sem eru fyrst og fremst ætlaðar börn- um. Jafnvel í markaðssamfélaginu Bandaríkjunum voru nýlega sett lög sem banna mönnum að segja ósatt í auglýsingaskyni. Þeir sem hafa tap- að stórfé eftir að hafa treyst tilboð- um banka hljóta að sjá gildi þess að auglýsingar séu heiðarlegar. Því ber að fagna nýju frumvarpi menntamálaráðherra sem miðar að því að setja „lágmarksreglur um auglýsingar í öllum fjölmiðlum“ og takmarka markaðssetningu sem er beint gegn börnum. Það er gott að hafa lágmarksreglur. Minna má það ekki vera. Auglýsingarnar snúa aftur KJALLARI MYND SIGTRYGGUR ARI VALUR GUNNARSSON rithöfundur skrifar „Maður slekkur á tölvunni og röltir niður Laugaveginn og það virðist sem árið 2007 ásæki mann eins og draugur liðinna jóla.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.