Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Síða 41
30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 41
ÞRÍTUGUSTU MENNINGARVERÐLAUNIN
Menningarverðlaun DV voru afhent í þrítugasta sinn í Iðnó í marsbyrjun. Veitt voru verðlaun í
átta flokkum auk heiðursverðlauna og netverðlauna sem afhent voru þeim listamanni úr röðum
tilnefndra sem flest atkvæði hlaut í kosningu á dv.is. Manfreð Vilhjálmsson arkitekt fékk heiðurs-
verðlaunin fyrir framlag sitt til íslenskrar byggingarlistar undanfarna áratugi. Í netkosningunni varð
hljómsveitin Hjaltalín hlutskörpust.
M
YN
D
R
A
K
EL Ó
SK
SIG
U
RÐ
A
RD
Ó
TTIR
METFJÖLDI VERÐLAUNA
Sýningin Utan gátta í sviðsetningu Þjóðleikhússins var
aðsópsmikil þegar Gríman, Íslensku leiklistarverðlaunin,
voru afhent í júní. Utan gátta, eftir Sigurð Pálsson í leik-
stjórn Kristínar Jóhannesdóttur, hlaut sex Grímuverðlaun
og sló þar með met Péturs Gauts frá árinu 2006 sem hlaut
fimm verðlaun. Einnig er þetta í fyrsta sinn sem sýning
hlýtur þrennuna sýning, leikstjóri og leikskáld ársins
og ennfremur útlitsþrennuna leikmynd, búningar og
lýsing ársins. Helgi Tómasson, ballettdansari og listrænn
stjórnandi San Francisco-ballettsins, fékk heiðursverðlaun
Grímunnar í ár.
LOKSINS, LOKSINS EINAR
Íslensku bókmenntaverðlaunin þetta árið féllu í skaut
Einars Kárasonar og Þorvalds Kristinssonar. Einar hlaut þau í
flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Ofsa en Þorvaldur í
flokki fræðirita og „bóka almenns efnis“, eins og það er kallað,
fyrir ævisögu Lárusar Pálssonar leikara. Báðir voru að hljóta
verðlaunin í fyrsta sinn.
ÞVÍLÍK BARNA-
BÓKAVERÐLAUN
Guðmundur Brynjólfsson hlaut
Íslensku barnabókaverðlaunin 2008 fyrir
unglingasöguna Þvílík vika. Þetta er fyrsta
skáldsaga Guðmundar en hann hefur áður
hlotið viðurkenningar fyrir smásögur og
leikrit. Þvílík vika er kraftmikil unglinga-
saga úr samtímanum sem gerist á einni
viku í byrjun júní. Þrír vinir eru að ljúka
grunnskóla og ætla að fagna því rækilega.
En margt getur breyst á einni viku og
ýmislegt fer öðruvísi en þeir höfðu ætlað.
ÁST Í ÓPERUNNI
Gamanóperan Ástardrykkurinn
eftir Donizetti var frumsýnd í Íslensku
óperunni í október. Garðar Thór
Cortes og Dísella Lárusdóttir fóru þar
með aðalhlutverkin, en Gissur Páll
Gissurarson og Þóra Einarsdóttir leystu
þau af á einni sýningu og stóðu sig
einnig með bravúr.
FYRSTA ÍSLENSKA
JÓLAMYNDIN
Já, ótrúlegt en satt höfðu Íslendingar
aldrei áður gert jólamynd fram að
frumsýningu Desember í nóvember
síðastliðnum. Eða kannski er það ekkert
svo ótrúlegt. Hilmar Oddsson leikstjóri
er alla vega búinn að opnar þessar dyr
núna með ágætis árangri. Gagnrýnendur
voru að minnsta kosti hrifnir en aðsóknin
var ekki mjög góð. Ekki er ósennilegt að
margir hafi hugsað sem svo að ágætt sé
að vera ekki búinn að sjá Desember þegar
hún verður sýnd á RÚV jólin 2010. Þær
völvur sem hafa þann spádóm í sinni spá
eru komnar með eina pottþétta ágiskun.
MYND BJÖRN BLÖNDAL MYND HEIÐA HELGADÓTTIR
MYND KRISTINN MAGNÚSSON
MYND ÍSLENSKA ÓPERAN