Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Blaðsíða 3
um Hraðbrautar hefur farið í að greiða laun starfsmannanna en gengur og gerist í öðrum skólum. Eftir því sem DV kemst næst fara að öllu jöfnu um og yfir 80 prósent af tekjum mennta- skóla í landinu í að greiða laun starfs- manna en í tilfelli Hraðbrautar er þessi tala á milli 30 og 40 prósent. Starfsmönnum sambandsins mun hafa þótt þetta skrítið. Þegar sambandið og menntamála- ráðneytið áttuðu sig á þessu höfðu þeir samband við Ólaf og báðu hann um að skýra mál sitt. Menntamálaráðuneytið sendi Ól- afi bréf þann 6. maí síðastliðinn þar sem hann var spurður hvort hann hefði lagst gegn því að kennarar skól- ans gengju í sambandið og var hann beðinn að senda ráðuneytinu ljósrit af ráðningarsamningum tveggja kenn- ara sem sagt hafði verið upp störfum. Í bréfinu kemur fram að kennararn- ir hafi lýst því yfir við ráðuneytið að þeir hefðu ekki fengið laun samkvæmt kjarasamningum. Í lok bréfsins var tekið fram að svör Ólafs og viðbrögð við bréfinu gætu haft áhrif á það hvort samstarfssamningur ráðuneytisins og skólans yrði endurnýjaður þegar hann rennur út í lok þessa árs. Ekki var áhugi fyrir gerð kjarasamnings Í svarbréfi til Kennarasambandsins þann 21. maí síðastliðinn sagði Ólaf- ur að hann væri reiðubúinn að skrifa undir umsókn kennara skólans að sambandinu en að í því fælist þó ekki að Hraðbraut myndi greiða þeim laun samkvæmt kjarasamningnum. Orð- rétt sagði Ólafur: „Í þessu [að kjara- samningar Kennarasambandsins séu ekki bindandi þó að kennarar til- tekins skóla séu í sambandinu, inn- skot blaðamanns] felst engin afstaða til félagsaðildar hlutaðeigandi starfs- manna heldur eingöngu ábending um að starfsmenn geti ekki einhliða breytt persónubundnum launakjör- um sínum. Skólinn telur sig greiða góð og samkeppnishæf laun og lítur vissulega í því sambandi til launakjara í opinberum framhaldsskólum. Laun- in hafa hins vegar verið aðlöguð að starfsemi og sérstöðu Menntaskólans Hraðbrautar.“ Í lok bréfsins lýsti Ólafur því yfir að hann væri reiðubúinn að ganga til viðræðna við Kennarasambandið um kaup og kjör þeirra kennara skólans sem væru í sambandinu. Ólafur sagði hins vegar ekki að hann myndi greiða kennurum skólans laun samkvæmt kjarasamningum. Elna Katrín Jónsdóttir, varafor- maður Kennarasambandsins, segir að starfsmenn sambandsins hafi fundað einu sinni með Ólafi H. Johnson frá því að umrædd bréfaskipti áttu sér stað. „Kennarar í Hraðbraut hafa óskað eftir að gerast félagsmenn og höfum við tekið þá inn í Kennarasamband- ið. Samhliða höfum við óskað eftir kjarasamningsgerð við skólastjórann þar sem þetta er eini menntaskólinn sem er starfandi sem ekki hefur kjara- samning við Kennarasambandið. Það eru fleiri einkareknir menntaskólar í landinu en þeir eru með samning við sambandið,“ segir Elna en fundurinn með Ólafi fór fram í síðustu viku. Elna segir of snemmt að segja til um hver niðurstaðan í samningaviðræðunum við Ólaf verði. Aðspurð hvort hún viti af hverju ekki var gerður kjarasamningur við Hraðbraut þegar skólinn var stofnað- ur árið 2003 segir Elna að ekki hafi ver- ið vilji fyrir því hjá stjórnendum skól- ans að gera slíkan samning. „Þegar þessi skóli hóf störf óskuðum við eft- ir fundi með forsvarsmönnum skól- ans til að gera kjarasamning við hann. Það var hins vegar ekki áhugi fyrir því þá af hálfu skólans. Svo bara lá mál- ið þangað til kennarar skólans höfðu samband og vildu breytt ástand hvað þetta varðar.“ Elna segist ekki vilja fullyrða að kennarar skólans hafi verið undir- borgaðir en segir þó að margt bendi til þess að launakjör þeirra standist ekki það sem kallist lágmarkskjör. Elna segir aðspurð að fyrir liggi grunur um að launakjör þeirra hafi verið lægri en þau hefðu átt að vera. „Okkur finnst ýmislegt benda til þess að launakjör kennara skólans standist ekki það sem kallast lágmarkskjör. Lágmarks- kjör snúast ekki bara um launatölur heldur líka um ýmislegt sem vinnu- veitendur greiða í ýmsa sjóði, svo sem menntunarsjóð, orlofssjóð, sjúkrasjóð og fleira slíkt,“ segir Elna en reikna má með að viðræðurnar um kjarasamn- ingana muni halda áfram á næstunni. Ríkisendurskoðun sett í málið Heimildir DV herma jafnframt að starfsmenn menntamálaráðuneyt- isins hafi fundað með Ólafi fyrir skömmu. Þar mun Ólafi meðal ann- ars hafa verið tjáð að til stæði að senda málefni skólans til Ríkisendurskoð- unar. Menntaskólinn Hraðbraut fær styrk frá íslenska ríkinu vegna samn- ings sem gerður var við menntamála- ráðuneytið í maí 2007 en sá samning- ur gildir til loka þessa árs. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála- ráðherra og Árni Mathiesen fjármála- ráðherra skrifuðu undir þann samn- ing fyrir hönd þáverandi ríkisstjórnar. Sá samningur var endurnýjun á öðrum samningi sem gerður var við Hraðbraut og Ólaf Johnson árið 2003, í ráðherratíð Björns Bjarnason- ar í menntamálaráðuneytinu. Líkt og greint er frá hér í greininni segir Björn sjálfur að hann hafi hvatt til þess að samið yrði við Ólaf og jafnframt að hann fengi fjárveitingu á fjárlögum. Fyrstu fjárframlög íslenska ríkisins til skólans komu svo þetta sama ár þegar 55 milljónir runnu til hans. Samningurinn sem Þorgerður og Árni undirrituðu árið 2007 rennur út í lok þessa árs. Heimildir DV herma að ekki sé vilji fyrir því af hálfu mennta- málaráðuneytisins að endurnýja samninginn við Ólaf og Hraðbraut. Því má reikna með að stutt sé þar til starfsemi skólans verði lögð niður þar sem mikill meirihluti tekna hans kem- ur frá hinu opinbera. Ólafur Johnson segir að unnið sé að því að endurnýja samstarfssamn- inginn við ráðuneytið. Hann segist ekki eiga von á öðru en að samning- urinn verði endurnýjaður. „Þetta er í eðlilegum farvegi til þess að gera. Ég á ekki von á öðru en að samstarfssamn- ingurinn verði endurnýjaður. Þetta er búið að ganga ákaflega vel hjá okkur,“ segir Ólafur og bætir því við að kostn- aður ríkisins vegna hvers nemanda í Hraðbraut sé miklu minni en í öðrum framhaldsskólum. „Þetta er langhag- kvæmasti framhaldsskólinn fyrir rík- ið,“ segir hann. Ríkisendurskoðun mun svo á næstunni væntanlega fara ofan í saumana á starfsemi skólans en sam- kvæmt samningi menntamálaráðu- neytisins og Hraðbrautar var það í verkahring menntamálaráðuneytisins og Ríkisendurskoðunar að hafa eftirlit með skólanum. Í samningnum segir meðal annars: „Um eftirlit Ríkisend- urskoðunar með verkefninu fer sam- kvæmt lögum nr. 86/1997,“ en jafn- framt er tekið fram að ráðuneytið hafi heimild til að kanna aðstæður í skól- anum og eigi að fá óheftan aðgang að upplýsingum um skólann. Af athug- un DV á fjármálum skólans og launa- greiðslum frá skólanum til kennara er fátt sem bendir til þetta eftirlit hafi verið mjög mikið eða nákvæmt á síð- ustu árum. Aðspurður segir Ólafur að hann kvíði ekki athugun Ríkisendurskoð- unar á starfsemi skólans. „Það verður bara tíminn að leiða í ljós. Það er nú ekkert flóknara en það. Ég hef í raun- inni enga sérstaka skoðun á því,“ segir Ólafur og bætir því við að Ríkisendur- skoðun hafi heimild til þess að kanna starfsemi skólans samkvæmt samn- ingnum við menntamálaráðuneytið og að honum finnist ekki óeðlilegt að stofnunin nýti sér þann rétt. mánudagur 28. júní 2010 fréttir 3 TÓK SÉR TUGI MILLJÓNA Í ARÐ Rannsaka skólann Menntamálaráðu- neyti Katrínar Jakobsdóttur hefur fengið fjölmargar kvartanir vegna Menntaskól- ans Hraðbrautar. Hefur tekið tugmilljónir í arð Ólafur H. Johnson, skólastjóri og eigandi Menntaskólans Hraðbrautar, hefur tekið tugi milljóna út úr skólanum í formi arðs og lána. n Eftirfarandi textabrot er að finna á heimasíðu BjöRns BjaRnasonaR, bjorn.is. Brotin sýna fram á hvernig hann kom að stofnun Menntaskólans Hraðbrautar þegar hann var menntamálaráðherra. Björn segir hér að hann hafi hvatt til þess að samið yrði við Ólaf og auk þess var það Björn sem lagði það til að Ólafi yrði úthlutað fé á fjárlögum. Því má segja að Björn Bjarnason hafi verið sá menntamálaráðherra sem var á bak við skólann og jafnframt sá sem tryggði honum opinbera fjárveitingu. „Raunar er ætlunin að í haust komi Hraðbraut til sögunnar, tveggja ára skóli til stúdentsprófs. Ólafur H. Johnson vann að undirbúningi skólans í tíð minni sem menntamálaráðherra og þegar ég gerði fyrst tillögu um það í fjárlagafrumvarpi, að ætlað yrði fé til skólans, reis samfylk- ingarfólk upp á afturlappirnar af hneykslan og taldi annað brýnna við fjármunina að gera. Þess vegna er grátbroslegt að lesa þetta í grein í Morgunblaðinu eftir Björgvin G. Sigurðsson, nýkjörinn þingmann Samfylkingarinnar, sem segir 10. júní síðastliðinn: „Það hefur skort á viljann til verka og framsækni af hálfu stjórnvalda. Hraðbrautin mun að sjálfsögðu ýta við stjórnvöldum menntamála í landinu og innan tíðar verður trúlega boðið upp á hraðferð til stúdentsprófs í nokkrum framhaldsskólum landsins.“ 15.07. 2003, bjorn.is „Samhliða því sem að þessu var unnið hvatti ég til þess, að samið yrði við Ólaf H. Johnson, sem vildi stofna einkarekinn 2ja ára framhaldsskóla, Hraðbraut, en hann tók einmitt til starfa nú í haust og byggist kennsla þar að sjálfsögðu á námskrá framhaldsskólanna, sem þar er sniðin að tveggja ára námi til stúdentsprófs. Á alþingi snerist Samfylkingin að sjálfsögðu gegn hugmyndum um Hraðbrautina, þegar þær voru fyrst kynntar, eins og vinstrisinnar snúast jafnan gegn því að einkaaðilar fái að láta að sér kveða í skólastarfi.“ 5.10. 2003, BjoRn.is Björn Bjarnason á bak við Hraðbraut Búa vel í Garðabænum Ólafur og Borghildur búa í þessu tæplega 360 fermetra einbýlishúsi við Hegranes í Garðabæ. Þau keyptu húsið árið 2003, sama ár og Hraðbraut var opnuð. Hjónin eiga sömuleiðis hús á Flórída þar sem þau dvelja í nokkra mánuði á ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.