Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Blaðsíða 29
mánudagur 28. júní 2010 sviðsljós 29 Piers Morgan kvæntist Celiu Walden: Piers Morgan, dómari í þátt-unum Britain’s Got Ta-lent  og verðandi þáttar-stjórnandi á CNN, gekk í það heilaga í síðustu viku. Piers gekk þá að eiga unnustu sína, Celiu Walden. Brúð- kaupið var mjög smátt í sniðum og voru einungis allra nánustu vinir og fjöl- skyldumeðlimir þeirra hjóna viðstadd- ir. Til dæmis var meðdómendum Piers úr Britain’s Got Talent, þeim Simon Co- well og Amöndu Holden, ekki boðið. Piers bað Walden í fyrra en þegar hann lýsti bónorðinu sagði hann: „Hún átti afmæli. Fór með hana til Parísar yfir helgina. Gaf henni gjöf. Hún opnaði gjöfina. Sem var fyrsta prentun af Gifstu mér eftir uppáhaldshöfundinn hennar. Það fylgdu tár.“ Piers Morgan Gæti ekki verið hamingjusamari. Nýgift Piers og eiginkona hans Celia Walden. Brúðurin á leiðinni Faðir Celiu situr við hlið hennar í bílnum á leið í brúðkaupið. leikkonan Jessica Alba kom í veg fyrir að kínversk stelpa eyðilegði líf sitt en hún ætlaði að fara í fjöl- margar og hættulegar lýtaaðgerðir til þess að líkjast leikkonunni. Sú kínverska, sem heitir Xiaoqing, vildi líkjast Ölbu til þess að ná aftur fyrrverandi kærasta sínum en Alba er uppáhaldsleikkonan hans. Lýtalæknar í Sjanghaí höfðu boðist til þess að gera aðgerðirnar frítt áður en leik- konan náði tali af Xiaoqing. Hún útskýrði fyrir henni að ef einhver elskaði hana í raun og veru þá myndi sá hinn sami taka henni eins og hún væri. Stúlkan féllst á þessi rök og hætti við allt saman. jessica Alba hjálpaði stúlku sem vildi líkjast henni: KoM í veg fyrir lýtAAðgerðAslys Kvæntur og KampaKátur fyrirsætan Kim Kar-dashian setti mynd af sér inn á bloggsíðu sína þar sem kona sést mæla stærðina á rassinum á henni. Kim er þekkt fyrir þétt- an afturenda sinn en hún varp- aði fram þeirri spurningu til lesenda sinna hvers vegna hún væri að láta mæla á sér rassinn. Einhverjum datt í hug að hún væri að reyna að setja heims- met en annar var líklegast öllu nærri réttu skýringunni. Sá stakk upp á því að Kim væri að láta mæla sig fyrir vaxmynd en fyrir aftan hana eru afsteypur af líkamspört- um þekktra einstaklinga. Það má því búast við vaxmynd af Kim Kardashian í Madame Tussauds-safninu. Kim Kardashian: mældi rassinn KiM KardashiaN Af hverju er hún að láta mæla á sér afturendann? 512 70 04 smáauglýsingasíminn er smaar@dv.is frjálst, óháð dagblað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.