Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Síða 29
mánudagur 28. júní 2010 sviðsljós 29
Piers Morgan kvæntist Celiu Walden:
Piers Morgan, dómari í þátt-unum Britain’s Got Ta-lent og verðandi þáttar-stjórnandi á CNN, gekk í það
heilaga í síðustu viku. Piers gekk þá að
eiga unnustu sína, Celiu Walden. Brúð-
kaupið var mjög smátt í sniðum og voru
einungis allra nánustu vinir og fjöl-
skyldumeðlimir þeirra hjóna viðstadd-
ir. Til dæmis var meðdómendum Piers
úr Britain’s Got Talent, þeim Simon Co-
well og Amöndu Holden, ekki boðið.
Piers bað Walden í fyrra en þegar
hann lýsti bónorðinu sagði hann: „Hún
átti afmæli. Fór með hana til Parísar
yfir helgina. Gaf henni gjöf. Hún opnaði
gjöfina. Sem var fyrsta prentun af Gifstu
mér eftir uppáhaldshöfundinn hennar.
Það fylgdu tár.“
Piers Morgan Gæti ekki
verið hamingjusamari.
Nýgift Piers og
eiginkona hans
Celia Walden.
Brúðurin á leiðinni Faðir Celiu situr við
hlið hennar í bílnum á leið í brúðkaupið.
leikkonan Jessica Alba kom í veg fyrir að kínversk stelpa eyðilegði líf sitt en hún ætlaði að fara í fjöl-
margar og hættulegar lýtaaðgerðir til þess
að líkjast leikkonunni. Sú kínverska, sem
heitir Xiaoqing, vildi líkjast Ölbu til þess
að ná aftur fyrrverandi kærasta sínum en
Alba er uppáhaldsleikkonan hans.
Lýtalæknar í Sjanghaí höfðu boðist til
þess að gera aðgerðirnar frítt áður en leik-
konan náði tali af Xiaoqing. Hún útskýrði
fyrir henni að ef einhver elskaði hana í
raun og veru þá myndi sá hinn sami taka
henni eins og hún væri. Stúlkan féllst á
þessi rök og hætti við allt saman.
jessica Alba hjálpaði stúlku sem vildi líkjast henni:
KoM í veg fyrir
lýtAAðgerðAslys
Kvæntur og
KampaKátur
fyrirsætan Kim Kar-dashian setti mynd af sér inn á bloggsíðu sína þar sem kona
sést mæla stærðina á rassinum
á henni. Kim er þekkt fyrir þétt-
an afturenda sinn en hún varp-
aði fram þeirri spurningu til
lesenda sinna hvers vegna hún
væri að láta mæla á sér rassinn.
Einhverjum datt í hug að hún
væri að reyna að setja heims-
met en annar var líklegast öllu
nærri réttu skýringunni.
Sá stakk upp á því að Kim
væri að láta mæla sig fyrir
vaxmynd en fyrir aftan hana
eru afsteypur af líkamspört-
um þekktra einstaklinga. Það
má því búast við vaxmynd af
Kim Kardashian í Madame
Tussauds-safninu.
Kim Kardashian:
mældi
rassinn
KiM KardashiaN
Af hverju er hún að láta
mæla á sér afturendann?
512
70
04
smáauglýsingasíminn er
smaar@dv.is
frjálst, óháð dagblað