Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Blaðsíða 6
6 fréttir 28. júní 2010 mánudagur Eignaleigufyrirtækið SP Fjármögnun hefur fellt niður tvær málsóknir á hendur skuldurum félagsins. Málin voru á dagskrá Héraðsdóms Reykja- víkur en lögmaður SP Fjármögnun- ar ákvað að fella málin niður á föstu- daginn eftir að Hæstiréttur Íslands kvað upp dóm sinn um að erlend gegnistryggð lán væru ólögleg. Sam- kvæmt upplýsingum snérust málin tvö sem voru fyrir dómstólum um gegnistryggða lánasamninga. Um var að ræða bílalánasamninga og rekstrarleigusamninga vegna geng- istryggðra lána. Búast má við því að önnur sambærileg mál fyrir dóm- stólum verði látin niður falla, hafi þau nú ekki þegar verið látin falla niður. Eignaleigufyrirtæki á borð við SP Fjármögnun, Avant og Lýsingu eiga í vök að verjast vegna dóms Hæsta- réttar og mikil óvissa hefur skap- ast um framtíð félaganna enda ligg- ur fyrir að þau hafi síðustu misseri rukkað fjölmarga lántakendur sem skulduðu gengistryggð lán um allt of háar upphæðir. Þá hafa fjölmarg- ir lántakendur sætt vörslusviptingu sem gátu ekki staðið í skilum eftir að lánin ruku upp. Fram hefur komið að lögmenn og fulltrúar Lýsingar reyndu alveg þar til daginn áður en dómur Hæstaréttar féll að beita vörslusviptingu á lántak- endur sem gátu ekki staðið í skilum. valgeir@dv.is Eignaleigufyrirtækið SP Fjármögnun hættir við fyrir dómstólum: Fella niður málsóknir Héraðsdómur Reykjavíkur SP Fjármögnun felldi niður málsóknir á hendur lántakendum. „Þau eru bara að selja alls konar dót, föt, kökur og margt fleira. Það eru einhverjar mömmur búnar að vera að baka og jafnvel poppa og svo er þetta allt selt í búðunum,“ seg- ir Gunnhildur Guðnadóttir, móðir Þuríðar Guðrúnar, sjö ára, sem er einn af verslunarstjórum hverfis- búðarinnar í Leirvogstungu. Mikil samstaða ríkir um reksturinn og krakkarnir segjast allir stjórna jafnt. „Ein mamman hér í hverfinu, Ragn- heiður, hjálpaði syni sínum Kristjáni að setja á laggirnar búð. Þeim fannst vanta búð í hverfið. Síðan bættust fleiri í hópinn og nú segjast þau öll stjórna þessu saman,“ segir Gunn- hildur. Hugsa bara um búðina Leirvogstunga er nýlegt hverfi rétt utan við Mosfellsbæ og er því að sögn Gunnhildar allt frekar hrátt í hverfinu. Lítið sé um að vera fyrir krakkana og langt að fara í næstu búð þar sem samgöngur séu ekki með besta móti, enn sem komið er. „Krakkarnir verða bara að finna sér eitthvað að gera og það gerðu þeir. Þeim finnst þetta alveg rosa- lega spennandi og það er erfitt að fá þau til að gera eitthvað annað. Þau vilja varla fara í sund eða gera neitt annað því rekstur búðarinnar á hug þeirra allan. Ég hugsa að það verði ekki margir krakkar sem fari á sum- arnámskeið í sumar,“ segir Gunn- hildur kímin. Hlaupa á eftir bílum Þar sem það er ekki mikil umferð um hverfið er ekki um marga við- skiptavini að ræða fyrir búðina. „En þau hlaupa á eftir þeim bílum sem koma og kalla: Opin búð! og lokka þannig fólk í viðskipti. Þau þurfa samt oft að bíða í nokkra klukku- tíma eftir bílum,“ segir Gunnhildur og hlær. Það hefur þó ákveðna kosti fyrir viðskiptin í hverfisbúðinni að hún sé staðsett í nýbyggðu hverfi. „Hér er mikið af vinnumönnum og þeir eru stór partur af viðskiptavin- unum ásamt foreldrum, ömmum, öfum, frænkum og fleirum.“ Komin samkeppni Velgengni búðanna hefur spurst út og nú er komin samkeppni neð- ar í götunni. Þar hafa önnur börn í hverfinu stofnað búð og því nóg um að vera í Leirvogstungu. „Ein- um pabbanum varð það nú að orði að þetta væri dálítið sér-íslenskt. Það er byggður einn kofi fyrir búð og daginn eftir er kominn annar við hliðina án þess að vita hvort við- skiptin gangi vel. Síðan nokkrum dögum seinna er komin enn ein búð neðar í götuna,“ segir Gunn- hildur hlæjandi. Krakkarnir hafa ákveðið að gefa allan ágóða af sölunni til styrktar bágstöddum. Það er þó ekki alveg komið á hreint enn þá hvaða mál- efni verður fyrir valinu en Gunn- hildur segir krakkana vilja styrkja fátæka. BÖRN OPNUÐU BÚÐ Í LEIRVOGSTUNGU Krakkarnir í Leirvogstungu í Mosfellsbæ deyja ekki ráðalausir þó að lítið sé um að vera í hverfinu hjá þeim. Þeir opnuðu búð á dögunum þar sem þeir selja allt frá heima- bökuðum kræsingum til gamalla leikfanga. Hugmyndin að búðinni kom frá einni mömmunni í hverfinu sem hjálpaði syni sínum að byggja búðina. Þeim finnst þetta alveg rosa- lega spennandi og það er erfitt að fá þau til að gera eitthvað annað. viKtoRía HeRmannsdóttiR blaðamaður skrifar: viktoria@dv.is Leiðrétting Í frétt í helgarblaði DV um rann- sókn lögreglu á líkamsárás að- faranótt þjóðhátíðardagsins 17. júní var faðir fórnarlambsins rangfeðraður. DV ræddi þar við hæstaréttarlögmanninn Kristján Stefánsson en í fréttinni var hann sagður vera Eiríksson. Beðist er velvirðingar á þessu. Ofurhlaupari styrk- ir söfnunarátak Á þriðjudag mun Gunnlaugur Júlí- usson ofurhlaupari afhenda söfnun- arátakinu Á rás fyrir Grensás, sem Edda Heiðrún Backman leikkona átti frumkvæðið að undir merkjum Hollvina Grensásdeildar, 300 þús- und króna afrakstur af sölu bókar sinnar, Að sigra sjálfan sig, sem Vest- firska forlagið gaf út. Þetta er í ann- að sinn sem Gunnlaugur styður við söfnunarátakið.  Svarar fyrir sig Guðmundur Týr Þórarinsson, for- stöðumaður Götusmiðjunnar, skýtur föstum skotum að forstjóra Barna- verndarstofu í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér á sunnudag, í kjölfar þess að Götusmiðjan var rýmd á dögunum. „Það er óþolandi að sitja undir ásökunum embættismanna og valdníðslu þeirra með þeim hætti sem ég hef þurft að þola frá hendi Braga Guðbrandssonar. Bragi hef- ur tekið að sér að rannsaka málið, dæma í því og ákvarða refsingu. Þetta samræmist illa nútíma stjórnsýslu.“ Bjargar mannslífum PRIMEDIC hjartastuðtækið • Ávallt tilbúið til notkunar • Einfalt og öruggt • Einn aðgerðarhnappur • Lithium rafhlaða • Íslenskt tal Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is duglegir krakkar Það þarf ekki að vera lítið um að vera í hverfinu ef krakkarnir hafa ímyndunaraflið og sköpunargáfuna í lagi. mynd RóbeRt Reynisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.