Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Page 8
8 fréttir 28. júní 2010 mánudagur
Dagur B. Eggertsson, formaður borg-
arráðs Reykjavíkurborgar, vill tryggja
að gert verði ráð fyrir lestasamgöng-
um milli Vatnsmýrar í Reykjavík og
Keflavíkur í aðalskipulagi borgarinn-
ar. Lagt er til í samstarfsyfirlýsingu
Besta flokksins og Samfylkingarinn-
ar að möguleikinn á slíkum sam-
göngum verði kannaður. Þar er einn-
ig lagt til að staðsetning flugvallarins
í Vatnsmýri verði endurskoðuð.
Dagur segir þeim alþjóðaflug-
völlum fara fækkandi í Evrópu sem
ekki tengist miðborgum með góð-
um lestasamgöngum. „Slík fram-
kvæmd er þó auðvitað umfangsmik-
il og dýr og kannski ekki raunhæf á
allra næstu árum. Við viljum hins
vegar tryggja að það verði gert ráð
fyrir þessum möguleika í nýju aðal-
skipulagi Reykjavíkur og jafnframt
verði kortlagt hvaða möguleikar og
tækifæri geti opnast með slíkri fram-
kvæmd. Í raun er þetta svo hluti af því
risastóra verkefni að vinna að sjálf-
stæði Íslands í orkumálum, í því að
leggja áherslu á rafmagn sem orku-
gjafa í samgöngum,“ segir Dagur.
Í samstarfsyfirlýsingu meirihlut-
ans ber lítið á leiðum sem gera ráð
fyrir tekjuöflun eða niðurskurði í
rekstri borgarinnar. Dagur segir þó
vilja fyrir því hjá meirihlutanum að
einfalda stjórnsýsluna. Eitt af fyrstu
verkum hans í þeim efnum hafi verið
að fækka nefndum borgarinnar.
Kostnaður vegna þeirra tillagna
sem lagðar eru fram í samstarfsyfir-
lýsingu meirihlutans liggur ekki fyr-
ir. Þar eru þó ýmis verkefni sem geta
kostað skildinginn. Þau gætu kost-
að milljarða króna verði þau fram-
kvæmd.
Lántaka til atvinnuverkefna
Á fimmtudag samþykkti borgarráð
að tekið yrði lán upp á tvo og hálfan
milljarð króna. Dagur segir að lánið
sé hugsað til að standa undir brýn-
um viðhaldsverkefnum og fram-
kvæmdum ásamt öðrum mikilvæg-
um atvinnuskapandi verkefnum.
„Við teljum að borgin megi ekki láta
sitt eftir liggja til að halda uppi fram-
kvæmdastigi og vinna gegn atvinnu-
leysi,“ segir hann.
Dagur segir að lánið verði sótt
á almennan verðtryggðan skulda-
bréfamarkað. Samkvæmt upplýsing-
um DV má reikna með því að slíkt lán
beri um fjögurra prósenta vexti. Þar
má meðal annars miða við skulda-
bréfaútboð Akureyrarbæjar frá því í
síðustu viku.
Um 1,6 milljarða tap var á rekstri
Reykjavíkurborgar á síðasta ári. Þar
réð mestu fyrirtækjahluti borgarinn-
ar. Meirihluti borgarstjórnar hefur
einsett sér að nota næsta hálfa árið til
að móta áætlun í fjármálum borgar-
innar til næstu fimm ára. Hana á að
kynna í kringum áramót.
Stefna nýja meirihlutans í borgar-
stjórn Reykjavíkur hefur verið sú að
ná heildarsýn yfir fjármál borgarinn-
ar áður en stórar ákvarðanir verði
teknar í rekstri hennar.
Meirihlutinn hefur ýtt ýmsum
verkefnum úr vör á þeim tveimur
vikum sem hann hefur verið við
völd. Þar vekur ef til vill stefnumótun
á sviði Orkuveitu Reykjavíkur mesta
athygli. Talið er að skuldir Orkuveit-
unnar nemi nú um 220 milljörðum
króna, en um 2,5 milljarða króna
tap var á rekstri hennar á síðasta
ári. Á fundi borgarráðs á fimmtu-
dag var samþykkt að gera allsherjar-
úttekt á rekstri hennar þar sem yrði
náð ásættanlegu jafnvægi milli tekna
og gjalda. Þetta fellur því í hlut nýs
stjórnarformanns Orkuveitunnar,
Haraldar Flosa Tryggvasonar.
Smákóngaslagur mistök
Í samstarfsyfirlýsingu meirihlutans
er einnig opnað fyrir möguleikann
á frekari samvinnu sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta skref-
ið í þeim efnum var stigið á fimmtu-
dag þegar Reykjavíkurborg sam-
þykkti sameiningarviðræður við
Álftanes með hugsanlega hagræð-
ingu í rekstri sveitarfélaganna í huga.
„Við erum opin fyrir hvers kyns hug-
myndum um sameiningu og aukna
samvinnu á höfuðborgarsvæðinu.
Smákóngaslagurinn undir merkjum
samkeppni sem hefur verið í gangi á
undanförnum árum hefur skilið eftir
röð mistaka, útþensluskipulag með
lélegum strætósamgöngum og risa-
stóran reikning vegna hálfbyggðra
hverfa og illa nýttra fjárfestinga,“
segir Dagur.
n Skipað rekstrarstjórn yfir Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Þar er borgarstjóri for-
maður. Stjórnin hefur umboð til að gera breytingar á starfsfyrirkomulagi garðsins.
n Tillögur mótaðar að opnun heimilis fyrir útigangskonur.
n Reglur um systkinaforgang á leikskólum endurskoðaðar.
n Undirbúningur leiksvæðis fyrir börn í Perlunni.
n Vefurinn betrireykjavik.is samhæfður heimasíðu Reykjavíkurborgar.
n Þróunarverkefni til menningarstarfsemi á leikskólum útfært.
n Fegrun á eldri hverfum borgarinnar. Byrjað á Breiðholti.
n Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða falinn rekstur ráðgjafarhluta Alþjóðahúss
fram til ársloka. Mannréttindaráði falið að móta tillögur að framtíðarskipan
þjónustu borgarinnar við innflytjendur.
n Sameiningarviðræður við Álftanes samþykktar.
n Stefna mótuð fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Þar var lagt til að Haraldur Flosi
Tryggvason yrði starfandi stjórnarformaður fyrirtækisins. Úttekt boðuð á
rekstrinum.
n Hafinn undirbúningur að kvennakvöldi í Reykjavík sem haldið verði í haust.
n Samþykkt að taka lán allt að tveimur og hálfum milljörðum króna í verðtryggð-
um skuldabréfaflokki.
Þetta hefur nýi meirihlutinn gert
LESTAKERFI
FRÁ KEFLAVÍK
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, vill gera ráð fyrir lesta-
samgöngum milli Vatnsmýrar og Keflavíkur í nýju aðalskipulagi
borgarinnar. Þó sé ekki raunhæft að gera ráð fyrir slíkri framkvæmd
á næstu árum. Meirihluti Samfylkingar og Besta flokksins samþykkti
meðal annars stefnu fyrir Orkuveitu Reykjavíkur, lán upp á tvo og hálf-
an milljarð króna og sameiningarviðræður á fyrstu fundum sínum.
Slík framkvæmd er þó auðvitað
umfangsmikil og dýr.
RóBERt hLynuR BaLDuRSSon
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
telur smákóngaleik skaðlegan Dagur B.
Eggertsson líkir samkeppni milli sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu við smákóngaleik.