Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Qupperneq 12
12 fréttir 28. júní 2010 mánudagur
Einkahagsmunir renna saman við
almannahagsmuni á tímum mik-
illar einkavæðingar og útvistunar
verkefna á vegum ríkisins og sveitar-
félaga. Á þessu gráa og eldfima hags-
munasvæði hefur ný valdastétt vaxið
úr grasi. Hún myndar úrvalshóp
þar sem hver einstaklingur leikur
mörg hlutverk í einu en hefur lag á
að sneiða hjá hagsmuna árekstrum.
Þetta þarf ekki að koma á óvart;
þessir bókstaflega skilgreina hags-
munina og haga málum svo að þeir
falli saman, eins og fyrir tilviljun.
Þetta eru menn sem vefa saman al-
mannavaldið og markaðsöflin og það
vald sem þau búa yfir. Þetta er hinn
nýi úrvalshópur sem hreiðrar um sig
í skugganum. Bandaríski mannfræð-
ingurinn Janine R. Wedel kallar þetta
menn sveigjanleikans. Þeir halda í
marga þræði og ráða miklu í krafti
þess tengslanets sem þeir koma á fót
með mönnum af sama sauðahúsi.
Hagsmunasamspil en ekki
hagsmunaárekstrar
Í lok síðasta árs gaf Janine R. Wedel
út bókina Shadow Elite sem fjallar
um valdastéttina nýju sem hreiðr-
að hefur um sig á mörkum hins
opinbera og einkageirans, hefur þar
aðgang að verðmætum upplýsingum
sem aðrir hafa ekki og raða saman
einka- og almanna hagsmunum eftir
sínu höfði. Velgengni þessa hóps á
eiginlega rætur í hugmyndinni um
að markaðsvæða ríkisvaldið, láta það
taka upp öll helstu og skilvirkustu
einkenni einkarekstrar. Þessi stefna
náði sínum hæstu hæðum í stjórnar-
tíð Ronalds Reagan í Bandaríkjunum
og Margrétar Thatcher í Bretlandi
og hreiðraði um sig undir merkjum
nýfrjálshyggjunnar. Wedel staldr-
ar við þá merkilegu staðreynd, að
reyndustu „menn sveigjanleikans“
innan þessa skuggavaldahóps koma
frá Austur-Evrópu og Rússlandi. Þar
stundaði Janine Wedel rannsókn-
ir í kjölfar hruns kommúnismans
fyrir að verða tveimur áratugum og
kynntist mörgum áhrifamönnum
af sauðahúsi sveigjanleikans hags-
munasamþættingar sem unnu að því
að koma ríkiseigum í hendur einka-
fyrirtækja, oft með vafasömum hætti.
Þessir áhrifamenn hafa lítinn áhuga
á lýðræði og koma iðulega á fót
hringekju ákvarðanatöku sem hefur
ekkert með lýðræði að gera.
Leið Janine lá síðar til Bandaríkj-
anna þar sem hún sá fyrir sér sam-
bærilega stétt „manna sveigjan-
leikans“ sem mynduðu hliðstætt og
sveigjanlegt net í kringum stjórnvöld
í Washington í forsetatíð George W.
Bush. Þar tengdust stærstu hags-
munirnir útvistun opinberrar þjón-
ustu, innan hersins eða velferðar-
kerfisins, til einkafyrirtækja.
Hið opinbera einkavætt?
Þessir sveigjanlegu áhrifamenn
(flexians) láta sér ekki fyrir brjósti
brenna þótt starfi þeirra á ein-
um stað rekist á við hagsmuni sem
þeir kunna að standa fyrir á öðrum
stað. Hlutverk þeirra eru innbyrðis
tengd og frá bæjardyrum almenn-
ings fylgja þeir forskriftum einhverr-
ar stefnu. En hverjir eru þeir? Fyr-
ir hverja vinnan þeir? Hvaðan berst
þeim fé? Hverjum sýna þeir hollustu
þegar upp er staðið? Þegar svörin
liggja ekki í augum uppi eru að mati
Janine Wedel miklar líkur til þess að
um sé að ræða „menn sveigjanleik-
ans“. Þeir stunda ekki iðju sína endi-
lega til að græða heldur einnig til
að hafa sem mest áhrif. Þeir sleppa
mun frekar undan spillingarstimpli
en þeir sem falla aðeins fyrir pen-
ingum. Blaðamenn og ýmsir aðr-
ir sem fjalla um og verja almanna-
hagsmuni hafa rannsakað starfsemi
þessara manna og birt um þá skýrsl-
ur eða greinar. Allir halda þeir iðju
sinni áfram óbeislaðir og eins og
ekkert hafi í skorist. Janine Wed-
el telur ekki nóg að birta efni um
starfshætti þessa valdahóps heldur
sé einnig mikilvægt að koma bönd-
um á þá. „Þetta nýja skeið einkenn-
ist af einkavæðingu og einkarekstri
opinberra verkefna og samslætti
eða beinlínis ruglingi á valdmörkum
hins opinbera og einkamarkaðar.
Wedel gengur svo langt að tala um
að opinbert almannavald hafi að
nokkru verið einkavætt undir merkj-
um nýfrjálshyggju sem láðst hafi að
láta ábyrgð fylgja gjörðum.
Einkavæðing upplýsinganna
Eitt alvarlegasta einkenni þessa
nýja tímabils sveigjanlegra áhrifa-
manna er að sannleikur þvælist ekki
fyrir þeim. Áhrif hlutlægra sanninda
þverra; sannlíki leysir sannleikann
af hólmi. Almenningi gefst þannig
kostur á að ákvarða sjálft hvað telj-
ist viðurkennd sannindi en það leiðir
að sínu leyti til þess að heimar sann-
indanna verða margir en ekki einn.
Tækniþróun og þróun fjölmiðlunar
ýtir undir þetta að mati Wedel og
nýja valdaelítan færir sér þetta í nyt.
Að hennar mati er varla of sterkt til
orða tekið að tala um einkavæðingu
upplýsinganna.
Ný og ósýNileg
valdastétt
Hverjir eru þeir? Lýsingar
Janine Wedel á tilfærslu
almannavalds til nýs úrvalshóps
„The Flexians“ eru sláandi.
Þetta nýja skeið einkennist af
einkavæðingu og einka-
rekstri opinberra verk-
efna og samslætti eða
beinlínis ruglingi á vald-
mörkum hins opinbera
og einkamarkaðar.
jóHann Hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
shadow Elite Nýja stéttin sneiðir hjá
hagsmunaárekstrum í öllum sínum
hlutverkum en lætur þá fara saman eins
og fyrir tilviljun.
n Bókin Shadow Elite á erindi við
íslenska lesendur sem hafa áhuga á
framkvæmd lýðræðisins og því hvernig
lýðræðinu reiðir af þegar kemur að
framkvæmdavaldinu að standa skil
á lýðræðislegri ábyrgð gagnvart
almenningi. Mannfræðingurinn Janine
Wedel, höfundur bókarinnar, er einn
þeirra fræðimanna sem nú beina í
auknu mæli athyglinni að hlutverki og
áhrifum einstaklinga á stefnumótun
hins opinbera. Hún sækir efnivið sinn
til umbreytinganna í Austur-Evrópu og
innan bandarískra utanríkisstjórnmála í
kjölfar loka kalda stríðsins.
Þegar eitt samfélagskerfi hrynur og
annað tekur við, eða þegar pólit ísk
stefna líður undir lok og önnur tekur við,
skapast millibilsástand sem gefur „nýjum
þátttakendum“ tækifæri til að hafa
áhrif á gang mála. Í rannsóknum sínum
hefur Janine fundið alveg „nýja tegund“
einstaklinga sem eiga þó það sameig-
inlegt með hagsmuna- og þrýstihópum
að vilja hafa áhrif og helst mikil. En um
aðkomu þessara einstaklinga ríkir hins
vegar mun minna gegnsæi.
Þessir einstaklingar sem hún
kallar „flexians“ eru áhrifamiklir og
starfa bæði innan sem utan kerfisins
og hafa sérstakt lag á að nýta sér
persónuleg sambönd innan kerfisins
sér til framdráttar. Þeir fara frjálslega
með gildandi reglur, gegna mörgum
hlutverkum sem oft skarast og erfitt er
að greina þá hagsmuni sem þeir standa
fyrir. Hollusta þeirra er ekki við stofnanir,
fyrirtæki eða samtök, heldur við þá sjálfa
eða einstaklinga í þröngu óformlegu
tengslaneti þeirra, „flex nets“ og þeirra
hagsmuna. Þeir beita áhrifum sínum
með úthugsaðri orðræðu og fyrir þeim
eru hagsmuna-
árekstrar ekki til
– þeir einfaldlega
skilgreina sjálfir
hvað hagsmunir
eru – ef hagsmun-
ir mætast er það
einskær tilviljun.
Janine telur
að þessir „nýju
þátttakendur“,
sem birtast í margs konar hlutverkum
utan sem innan kerfisins, grafi
undan lýðræðinu, stjórnvöldum og
markaðinum, vegna þess að þeir
eru fyrst og fremst að vinna að mjög
þröngum sérhagsmunum, oftast lítt
sýnilegum, hagsmunir almennings eru
afgangsstærð og þessir einstaklingar
bera formlega enga lýðræðis lega ábyrgð
sjálfir.
shadow elite MEð AuguM sigurbjargar sigurgEirsdóttur STJórNSýSLuFræðiNgS
Á tímum umfangsmikillar einka-
væðingar og hárra hugmynda um
gagnsemi þess að bjóða út rekstur
opinberrar starfsemi til einkafyrir-
tækja urðu mörkin milli opinbera al-
mannavaldsins og einkahagsmuna á
markaði óskýr og þokukennd. Í þeirri
þoku óx úr grasi ný stétt „áhrifa-
manna sveigjanleikans“. Í bókinni
Shadow Elite gerir janine r. Wedel,
bandarískur mannfræðingur, grein
fyrir sláandi miklum og sjálf teknum
völdum sem þessi nýja stétt hefur án
nokkurrar formlegrar ábyrgðar.