Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Síða 17
mánudagur 28. júní 2010 erlent 17
Á sunnudag hófst tólf daga ganga
þvert yfir Ísrael til að þrýsta á ríkis-
stjórn landsins um að tryggja frelsi
hermannsins Gilads Shalit sem rænt
var af Hamas-samtökunum fyrir fjór-
um árum.
Fjölskylda Shalits og stuðnings-
menn hennar hófu gönguna í Mitzpe
Hila í Galíleu og munu fara sem leið
liggur til Jerúsalem, alls um 250 kíló-
metra. Fjölskylda Shalits vonast til
þess að þúsundir muni slást í för með
þeim meðan á göngunni stendur;
listamenn, tónlistarmenn, rabbín-
ar, aðgerðasinnar og tugir þúsunda
venjulegs fólks.
Noam Shalit, faðir Gilads, hyggst
við komuna til Jerúsalem slá upp
tjaldi fyrir utan heimili Binyamins
Netanyahu forsætisráðherra og sitja
sem fastast þar til búið er að frelsa
Gilad. Á laugardaginn sendi fjöl-
skylda Gilads frá sér myndband þar
sem Netanyahu var hvattur til að
„borga það verð“ sem nauðsynlegt
væri til að Gilad yrði sleppt. „Nóg er
komið af masi. Nú er tími ákvarðana,“
sagði Noam Shalit.
Uppsett verð fyrir frelsi Gilads er
lausn 1.000 palestínskra fanga og
sagði Noam að það væri ekki í verka-
hring sínum að hafa áhyggjur af því.
Í könnun sem gerð var á föstu-
daginn kom í ljós að nærri 75 pró-
sent Ísraela eru því fylgjandi að Pal-
estínumenn sem sitja í fangelsi vegna
aðkomu að árásum á Ísrael fái frelsi
í skiptum fyrir Gilad Shalit. Örlög
hans eru Ísraelsmönnum hugleik-
in og fjöldi fjölskyldna getur sett sig í
spor fjölskyldu Gilads. Gilad var nítj-
án ára þegar honum var rænt í árás
herskárra Palestínumanna á herstöð
í suðurhluta Gaza þann 25. júní árið
2006. Tveir ísraelskir hermenn féllu í
árásinni.
Þrýst er á ríkisstjórn Ísraels vegna hermanns í haldi Palsetínumanna:
Tólf daga ganga fyrir frelsi
rándýr ráðstefna
stefnuna tiltrú og að það væri ein af
ástæðum þess að George W. Bush
hefði viljað breyta G20-ráðstefnunni
úr fundi sem í sögulegu samhengi
var aðeins sóttur af yfirmönnum fjár-
málakerfa viðkomandi ríkja í fund
þjóðarleiðtoga.
Dan Price sagði að um væri að
ræða mikilvægan fund. „G20-rík-
in stjórna meira en 85 prósentum
vergrar þjóðarframleiðslu í heimin-
um, og því hefur það sem þau ræða
og ákveða mikilvæg áhrif á efnahag
heimsins, og þeir eru ekki að hittast
fyrir ljósmyndatöku.“
Ráðstefna G20-ríkjanna í Toronto í Kanada kostar sitt. Fréttamaður CNN velti fyrir sér hvort sá kostnaður væri
réttlætanlegur í ljósi þess sem viðlíka ráðstefnur hafa skilað. Tveir fyrrverandi aðstoðarmenn úr Hvíta húsinu
velkjast ekki í vafa um réttmæti þess að eyða einum milljarði Bandaríkjadala í ráðstefnuna.
Fyrsta G8-ráð- stefnan sem
Reagan tók þátt í fór
fram í Kanada og „…á
þeim tíma var hann
nokkurs konar kúreki í
augum stórs hluta al-
þjóðasamfélagsins.“
Forsetar Frakklands
og Rússlands Nicolas
Sarkozy og Dmitry Med-
vedev skiptast á orðum við
komuna á G8-ráðstefnuna.
Mynd AFp stærsta gullmynt
heims seld
Stærsta gullmynt veraldar var seld
á fjórar milljónir Bandaríkjadala,
sem samsvarar um 512 milljónum
króna, á uppboði í Vín í Austurríki
á föstudaginn. Myntin, Maple Leaf,
eða Hlynslaufið, er 53 sentimetrar í
þvermál, og vegur eitt hundrað kíló.
Kaupandinn var spænskt eðalmálm-
fyrirtæki, sagði í yfirlýsingu frá Doro-
theum-uppboðsfyrirtækinu, en upp-
boðið fór fram að kröfu stjórnenda
AvW Invest, gjaldþrota austurrísks
fjárfestingarfélags.
afganistan fær
fimm ára frest
Leiðtogar G8-ríkjanna gáfu á laugar-
daginn Hamid Karzai, forseta Afgan-
istan, fimm ára frest til að taka til hjá
öryggissveitum
landsins og í rétt-
arkerfinu. Ella
gæti hann átt von
á bakslagi af hálfu
Vesturlanda.
Leiðtogarnir eru
staddir í Kanada
þar sem ráðstefna
G20-ríkjanna fer
fram. Þeir sögðu að Afganistan yrði
eftir fimm ár að vera í aðstöðu til að
takast á við aukna ábyrgð á öryggi
landsins. David Cameron, forsæt-
isráðherra Bretlands, sagði að ef
Karzai tækist ekki á við spillingu og
endurbætti kosningakerfi landsins
væri stuðningur almennings við veru
vestrænna hermanna í Afganistan í
hættu.
Fyrsti forseti
Litháens látinn
Algirdas Brazauskas, fyrsti þjóð-
kjörni forseti Litháen, andaðist
á laugardaginn, 77 ára að aldri,
eftir langa
baráttu við
krabbamein.
Algirdas Braz-
auskas hóf
stjórnmála-
feril sinn inn-
an vébanda
Kommún-
istaflokksins
þegar Litháen tilheyrði Sovét-
ríkjunum, en lenti upp á kant við
Kremlverja seint á níunda ára-
tugnum. Hann lék stórt hlutverk
þegar Litháen öðlaðist sjálfstæði
frá Sovétríkjunum árið 1991 og
var kjörinn fyrsti forseti sjálfstæðs
Litháens árið 1993.
nýsjálenskt
þorp til sölu
Yfirkeyrðir nýsjálenskir forstjórar sem
vilja komast úr borgarstressinu eiga
nú möguleika á að kaupa sitt eigið
þorp á Nýja-Sjálandi með krá og öllu.
Um er að ræða Otira, litla húsaþyrp-
ingu á vesturströnd landsins, sem er
til sölu fyrir eina milljón nýsjálenskra
dala, sem samsvarar um 91 milljón
króna. Núverandi eigendur, hjón-
in Bill og Christine Hennah, keyptu
þorpið, sem þá var í niðurníðslu, árið
1998 vegna þess að þau fundu til með
þorpsbúum, samkvæmt dagblaðinu
The Press. Kaupverðið var rúmar sjö
milljónir og fyrir þær fengu hjónin
krá, skóla, brautarstöð, ráðhús og átj-
án hús. Árið 2006 voru íbúar þorpsins
87 samkvæmt manntali.
noam og Aviva Shalit Foreldrar Gilads lögðu í langferð á sunnudaginn vegna sonar
síns. Mynd AFp
Stephen Harper, forsætisráðherra
Kanada, tilynnti að G8-ríkin hefðu
komist að samkomulagi um að reiða
af hendi fimm milljarða Bandaríkja-
dala næstu fimm árin til að bæta heil-
brigði mæðra og ungra barna í þróun-
arlöndunum, en í Toronto í Kanada
fara fram ráðstefnur G8- og G20-ríkj-
anna.
Með fjármununum er ætlun-
in að koma til móts við eitt af þeim
markmiðum sem Sameinuðu þjóð-
irnar hafa sett sér í þróunarmálum
og þekkt eru sem Þúsaldarþróun-
armarkmiðin. Samtök sem berjast
gegn fátækt telja þó að ekki sé nógu
langt gengið og að loforð G8-ríkj-
anna hrökkvi skammt sé litið til um-
fangs vandamálsins.
Heildarupphæðin verður 7,3
milljarðar dala þegar allt er til talið,
þar á meðal aðstoð sem Gates-stofn-
unin hefur heitið. Eitt af Þúsaldar-
þróunarmarkmiðunum er að lækka
dánartíðni á meðal mæðra og barna
um 75 prósent.
Eldri loforð óefnd
Stephen Harper sagðist vilja ná jafn-
vel enn betri árangri. Við fréttamenn
sagði hann: „Við erum skuldbundn-
ir til að sjá til þess að sá dagur renni
upp að konur í þróunarlöndunum
þjáist ekki eða deyi af völdum þung-
unar eða af barnsförum.“
Sem fyrr segir hafa talsmenn þró-
unaraðstoðarsamtaka lýst yfir von-
brigðum vegna fimm milljarða dala
fjárloforðs GB-ríkjanna. Í yfirlýsingu
frá einum slíkum samtökum sagði
að átakið myndi ekki svara þörfum
fjölda mæðra og barna í fátækustu
afkimum veraldar.
Einnig hafa baráttumenn fyr-
ir þróunaraðstoð gagnrýnt G8-rík-
in fyrir að hafa ekki staðið að fullu
við loforð sem gefin voru á fyrri ráð-
stefnu um að auka heildarþróunar-
aðstoð.
stYrKJa MÆðUr Í
ÞrÓUnarLÖndUM
Ríkustu þjóðir heims hafa sett fram ný loforð til mæðra og barna
í þróunarlöndunum. Til stendur að verja fimm milljörðum
Bandaríkjadala í að bæta heilbrigði þeirra.
kolbEinn þoRStEinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Við erum skuld-bundnir til að sjá
til þess að sá dagur renni
upp að konur í þróunar-
löndunum þjáist ekki eða
deyi af völdum þungunar
eða af barnsförum.
drengur í Höfðaborg í Suður-Afríku G8-ríkin
hyggjast leggja á áherslu á heilbrigði barna og
mæðra í þróunarlöndum.
Mynd AFp