Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Page 19
AthenA RAgnA JúlíusdóttiR
er á leiðinni til Kanada í júlí til að
leika í kvikmyndinni Keyhole í
leikstjórn Guys Maddin. Leikstjórinn
hafði samband við Athenu eftir að
hafa séð mynd af henni á samskipta-
vefnum Facebook. Í myndinni mun
hún leika við hlið stórleikaranna
Isabellu Rosellini og Jason Patric.
„Forvitni og
spenna dríFur
mig áFram“
Það hefur verið minn siður, sem
og flestra annarra pistlahöfunda,
að eyða miklu púðri í að greina og
gagnrýna það sem aflaga hefur far-
ið. Á hinn bóginn hefur minna far-
ið fyrir lausnum. En ef til vill eru
lausnirnar ekki svo erfiðar að finna
þegar allt kemur til alls.
Grunnvandamál Íslands felst
ekki í bankahruni eða kreppu. Þetta
eru vissulega stór vandamál, en þó
tímabundin. Jafnvel þegar skuldirn-
ar verða borgaðar verður ástandið
lítið betra nema grunnvandamálið
sé lagfært. Og grunnvandamálið er
þetta:
Það er allt of mikil frumfram-
leiðsla, og allt of lítil úrvinnsla.
Við hvað er hér átt? Í raun merk-
ir þetta það að Íslendingar eru, rétt
eins og flestar aðrar fyrrum nýlend-
uþjóðir, hráefnisútflytjendur fyrst
og fremst. Við framleiðum sárafá-
ar vörur, en flytjum þess í stað hrá-
efnin úr landi. Fyrir hráefnin fáum
við greitt málamyndagjald, á með-
an þeir sem vinna úr þeim búa til
margföld verðmæti úr þeim.
er álið þá kannski málið?
Tvö augljósustu dæmin um þetta er
einmitt að finna í tveimur af meg-
inatvinnuvegum þjóðarinnar, fisk-
vinnslu og álvinnslu. Íslenskur fisk-
ur hefur löngum verið talinn með
þeim besta í heiminum. Í stað þess
að Íslendingar séu á heimsmæli-
kvarða í framleiðslu og sölu fiskrétta
ýmiss konar er fiskurinn sendur
óunninn úr landi í frosnum klump-
um og notaður í dýrindis paellur á
Spáni eða til vinnslu á skyndibita í
Bandaríkjunum.
Í álmálum er ástandið enn hjá-
kátlegra. Vissulega mátti mótmæla
byggingu Kárahnjúkavirkjunar sem
og annarra virkjanna út frá um-
hverfissjónarmiðum, en við sitjum
uppi með þær samt. Það versta nú
er að álið, rétt eins og fiskurinn, er
sent úr landi í óunnum klumpum.
Þar eru búnar til vörur úr því sem
hafa margfalt meira verðgildi en
það sem við seljum það á. Vanda-
málið við virkjunina var ekki aðeins
umhverfisspjöllin öll, heldur það að
bjóða átti landanum upp á framtíð
sem álbræðslufólk og lítið annað.
Það er ekki að undra að álverið gerði
lítið til að stöðva fólksflutninga af
Austfjörðum. Hver vill bræða ál til
lengdar?
íslandshjól
Íslendingar geta kannski ekki orð-
ið leiðandi í flugvélagerð eða í bíla-
framleiðslu á næstunni, þó slíkt sé
ef til vill ekki ómögulegt til lengri
tíma litið. En álið er til margs brúk-
legt. Ef til vill gætum við byrjað á
því að framleiða reiðhjól og notað
íslenska náttúru í auglýsingaskyni.
Hjól sem drífa um Ísland hljóta að
virka alls staðar, og nóg höfum við
af áli til að nota í framleiðslu þeirra.
Einnig mætti framleiða niðursoðinn
dósamat sem yrði að öllu leyti fram-
leiddur innanlands, og samnýta
þannig kosti virkjana og sjávarfangs.
Okkur skortir í raun ekkert nema
ímyndunaraflið. Fjármálakerf-
ið lagðist ofan á allt, en millistigið
gleymdist. Ísland hefur í raun upp
á nóg að bjóða til þess að við get-
um (aftur) orðið ein ríkasta þjóð í
heimi, en ekki sem spilavíti, heldur
með raunveruleg verðmæti frekar
en ímynduð að baki.
Best í heimi?
Undanfarna öld hefur stöðugt meiri
áhersla verið lögð á að veiða fisk-
inn í sjónum og bæta það upp með
magni sem skortir í gæðum (fram-
leiðslunnar, ekki fisksins sjálfs). Það
sama gildir um álið, stöðugt meira
er framleitt án þess að nýta það vits-
munalega sem þegar er búið til.
Um leið og við lærum að vinna úr
gæðum náttúrunnar sjálf, í stað þess
að selja afurðirnar ávallt óunnar úr
landi, verður hvergi neins staðar
betra að búa. Tja, fyrir utan kannski
vegna veðurs. Kreppan gefur okkur
einmitt möguleika á að endurskoða
þessi mál, nú þegar loksins hefur
komist á jafnvægi á milli inn- og út-
flutnings.
Íslenska lýðveldið fagnaði nýlega
66 ára afmæli sínu. Næsta 17. júní,
á 200 ára fæðingarafmæli Jóns Sig-
urðssonar, verður það löggiltur elli-
lífeyrisþegi. Það er kannski kominn
tími til að setja það á eftirlaun og
huga að nýju og betra, sem miðast
við efnahag 21. aldar frekar en ný-
lendutímabil þeirrar 19.
Lausn vandans
RegnBogAmessA Páll Óskar Hjálmtýsson söng af mikilli innlifun á sérstakri regnbogamessu í Fríkirkjunni í Reykjavík á
sunnudag í tilefni þess að ný lög hafa tekið gildi sem heimila samkynhneigðum að giftast. mynd RóBeRt Reynisson
1 Finnst þér eins og það sé verið að horFa á þig? Í helgarblaði DV
var fjallað með ítarlegum hætti um
konur sem verða fyrir barðinu á
eltihrellum.
2 vörslusviptingarmaður: „prinsippið okkar er að vera
kurteisir út í gegn“ Vörslusvipt-
ingarmaður segir starf sitt ekki vera
auðvelt og að hann reyni að koma
fram við fólk af kurteisi.
3 gwyneth paltrow þjáist aF D-vítamínskorti Hollywood-
stjarnan Gwyneth Paltrow opinber-
aði á bloggsíðu sinni að hún þjáðist
af vítamínskorti.
4 jón borgarstjóri vill Fá raFbíl Jón Gnarr borgarstjóri vill að
næsti borgarstjórabíll verði knúinn
rafmagni.
5 „óttaðist að hún mynDi Drepa mig“ Maður á sextugsaldri þráði
svo heitt að eignast ástríka konu
að hann sá ekki að ástin sem konan
sýndi honum var óeðlileg.
6 hunDruð gesta í glæsilegri veislu Sendiráð Íslands í Svíþjóð
bauð í glæsilega veislu á þjóðhátíð-
ardaginn.
7 skoða lokun heilsugæslu Síð-degisvakt heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins var lokað í þarsíðustu viku
út sumarið í sparnaðarskyni.
mest lesið á dv.is myndin
hver er konan? „Athena Ragna
Júlíusdóttir, starfsmaður Tals og nemi.“
hvað drífur þig áfram? „Forvitni,
nýjungagirni og spennan.“
hvar ertu uppalin? „Ég ólst upp á
Akranesi.“
hvaða stóru nöfn tengjast Keyhole?
„Isabella Rossellini og Jason Patric.“
hvernig nældirðu í hlutverkið?
„Leikstjórinn hafði samband á Facebook
eftir að hafa séð mynd af mér fyrir
tveimur árum. Mjög tilviljunarkennt.“
hver er uppáhaldskvikmyndin þín?
„City of God.“
Frami í leiklist eða frami sem
fyrirsæta? „Ég myndi frekar velja frama
í leiklist en módelstarfið. Maður þarf að
vera svo mjór til að vera módel og ég
nenni því ekki.“
Áttu þér drauma um frægð og
frama? „Nei, guð, alls ekki. En ef það
býðst þá býðst það. Er ekkert að leitast
eftir því.“
hvaða land vinnur hm? „Argentína.
Klárlega.“
Áttu þér uppáhaldsbók? „Bækur
Dans Brown. Get ekki valið á milli þeirra.“
hvað ætlar þú að gera í sumar? „Ég
verð að vinna og fer svo út til Kanada að
leika í kvikmynd.“
maður dagsins
kjallari
„Það varðar mig ekkert um.“
KolBeinn gAuti FRiðRiKsson
23 áRA HAGFRæðINEMI oG GÍTARLEIKARI
„Vel.“
odduR Júlíusson
21 áRS NEMI oG LEIðBEINANDI
„Ég kýs að tjá mig ekki um þetta mál að
svo stöddu.“
RúnAR steinn BenediKtsson
FRÍSTuNDALEIðBEINANDI
„Illa að því leyti að þau eru að bregðast í
sambandi við Tónlistarþróunarmiðstöð-
ina og mættu ekki á styrktartónleikana.“
PÁll ZoPhAníAs PÁlsson
23 áRA NEMI oG FRÍSTuNDA -
LEIðBEINANDI MEð uMSJÓN
„Mér líst bara mjög vel á þennan nýja
meirihluta.“
Jenný mAgnúsdóttiR
39 áRA ÞRoSKAÞJáLFI
hvernig Finnst þér nýr borgarmeirihluti stanDa sig?
dómstóll götunnar
mánudagur 28. júní 2010 umræða 19
„Við framleiðum
sárafáar vörur, en
flytjum þess í stað
hráefnin úr landi.“
vAluR gunnARsson
rithöfundur skrifar