Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Síða 21
Rannveig I.E. Löve
kennari
Rannveig Ingveldur (Iffa) er fædd á
Bíldudal en ólst upp á Vatnsleysu-
strönd. Hún lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands 1951, sérkenn-
araprófi 1967, og lauk BA-prófi 1982.
Rannveig var kennari og sérkenn-
ari við Melaskólann í Reykjavík 1954-
82. Hún starfaði síðan á Fræðsluskrif-
stofu Reykjanesumdæmis frá 1982 og
þar til skrifstofan var lögð niður 1996.
Rannveig hefur verið í stjórn SÍBS
og í stjórn Gammadeildar, félags
kvenna í fræðslustörfum.
Endurminningar Rannveigar,
Myndir úr hugskoti, skráðar af syni
hennar, Leó Löve, komu út er Rann-
veig varð áttræð.
Fjölskylda
Rannveig giftist 10.5. 1941 Guðmundi
Löve, f. 13.2.1919, d. 3.5.1978, fram-
kvæmdastjóra Öryrkjabandalags Ís-
lands. Foreldrar Guðmundar voru
Carl Löve, f. 31.1. 1876, d. 2.8. 1952,
skipstjóri á Ísafirði, og k.h., Þóra Guð-
munda Jónsdóttir, f. 10.12. 1888, d.
2.5. 1972, húsmóðir.
Börn Rannveigar og Guðmundar
eru Sigrún Löve, f. 9.1. 1942, kenn-
ari, búsett í Garðabæ, gift Jóhanni
Þorkatli Ólafssyni kennara og eiga
þau þrjú börn og sjö barnabörn; Leó
E. Löve, f. 25.3. 1948, hrl. búsettur í
Reykjavík en kona hans er Anna Lísa
Kristjánsdóttir og eiga þau eina dótt-
ur auk þess sem Leó á þrjú börn með
fyrri konu og átta barnabörn.
Systur Rannveigar: Unnur, f. 7.7.
1921, d. 7.1. 1976, rithöfundur og
skáld í Reykjavík; Magga Alda, f.
10.11. 1922, d. 6.11. 1947, húsfreyja
og leiklistarnemi í Reykjavík; Jóna,
f. 31.3.1924, húsfreyja í Hafnarfirði;
Auður Halldóra, f. 12. 6. 1925, d. 23.10.
2004, fulltrúi hjá Ríkisútvarpinu; Lára,
f. 21.10. 1926, fyrrv. skrifstofumaður
hjá SÍBS í Reykjavík; Svava Guðrún,
f. 25.7. 1928, d. 2.1. 2008, húsfreyja
á Akranesi; Erla, f. 25.10. 1929, fyrrv.
starfmaður Landssíma Íslands; Inga
Ásta, f. 30.10. 1930, d. 23.10. 2008,
húsfreyja í Reykjavík; Björg, f. 8.11.
1931, húsfreyja í Reykjavík; Stefanía,
f. 2.6. 1933, d. 16.4. 1999, húsfreyja í
Reykjavík; Magnfríður, f. 23.7. 1934,
matráðskona í leikskóla í Reykjavík;
Ólöf, f. 15.10. 1935, starfrækti lengi
Holtshraðhreinsun í Reykjavík; Lilja,
f. 23.6. 1941, húsfreyja og málari í
Reykjavík; Björk, f. 1.1. 1943, hjúkrun-
arfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Rannveigar voru Ei-
ríkur Einarsson, f. 13.10. 1891, d.
1973, bóndi í Réttarholti í Sogamýri í
Reykjavík, og k.h., Sigrún Benedikta
Kristjánsdóttir, f. 2.12.1896, d. 1969,
húsfreyja.
Ætt
Eiríkur var sonur Einars, b. Í Suður-
Hvammi i Mýrdal Þorsteinssonar, b. í
Suður-Hvammi Einarssonar, b. í Kerl-
ingadal, bróður Bjarna amtmanns,
föður Steingríms Thorsteinsson-
ar skálds, föður Axels fréttamanns,
en bróðir Steingríms var Árni Thor-
steinsson landfógeti, langafi Birgis
Kjaran alþm., afa Birgis Ármannsson-
ar alþm. Hálfbróðir Bjarna amtmanns
og Einars var Þorsteinn á Hvoli, lang-
afi Steinunnar, langömmu Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra. Ein-
ar var sonur Þorsteins, b. í Kerlinga-
dal Steingrímssonar, bróður Jóns eld-
prests.
Móðir Eiríks, b. í Réttarholti var
Ingveldur Eiríksdóttir, b. á Mið-Fossi
Sverrissonar, og Svövu Runólfsdótt-
ur, skálds í Skagnesi Sigurðssonar, pr.
í Reynisþingum, bróður Sæmundar,
föður Tómasar Fjölnismanns. Sigurð-
ur var sonur Ögmundar, pr. á Krossi
Högnasonar, prestaföður á Breiða-
bólstað í Fljótshlíð Sigurðssonar.
Móðir Sigurðar var Salvör Sigurðar-
dóttir, systir Jóns, afa Jóns forseta.
Sigrún Benedikta var dóttir Kristj-
áns, b. og hreppstjóra í Bíldudal Jóns-
sonar, hreppstjóra á Haga á Barða-
strönd Guðmundssonar, b. á Vöðlum
Jónssonar. Móðir Kristjáns var Mál-
fríður Jónsdóttir, trésmiðs á Krossi
Bjarnasonar. Móðir Sigrúnar var
Rannveig Árnadóttir, b. í Efri-Kross-
adal í Tálknafirði Ólafssonar og ást-
konu hans, Bjargar Ólínu Júlíönu
Jónsdóttur, b. í Neðri-Krossadal Jóns-
sonar.
Í tilefni afmælisins boðar Rann-
veig til fagnaðarfundar og messu
í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysu-
strönd, sunnudaginn 4.7. frá kl. 14.00-
15.00. Eftir messu býður Rannveig
kirkjugestum í lautarferð í Álfagerði,
heimili aldraðra í Vogum á Vatns-
leysuströnd. Þar verður gestum boðið
upp á sveitakaffi og meðlæti.
30 ára
n Sergej Diatlovic Ásakór 7, Kópavogi
n Sigurður Hafsteinn Guðfinnsson Staðarhrauni
43, Grindavík
n Finnbogi Llorens Izaguirre Ásakór 8, Kópavogi
n Hildur Einarsdóttir Asparholti 5, Álftanesi
n Andri Þór Eyjólfsson Yrsufelli 24, Reykjavík
n Guðrún Lilja Magnúsdóttir Skeljanesi 4,
Reykjavík
n Auður Þóra Björgúlfsdóttir Stigahlíð 6, Reykjavík
n Arna Sif Bjarnadóttir Kjarrhólma 8, Kópavogi
n Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir Strandgötu
15a, Eskifirði
n María Guðrún Sveinbjörnsdóttir Furubyggð
34, Mosfellsbæ
n Marvin Lee Dupree Frostaskjóli 83, Reykjavík
n Leonardo Suarez Egilsbraut 20, Þorlákshöfn
40 ára
n Telesforo Vidal Gavilo Hverfisgötu 108, Reykjavík
n Sanja Rakanovic Hólmgarði 34, Reykjavík
n Elín Gunnlaug Alfreðsdóttir Miðtúni 12,
Reykjavík
n Erla Hrönn Júlíusdóttir Kársnesbraut 31,
Kópavogi
n Hilmar Magnússon Ljósulind 6, Kópavogi
n Hálfdán R Guðmundsson Ástúni 8, Kópavogi
n Guðni Brynjar Ársælsson Túngötu 3, Fáskrúðsfirði
n Jónína Jónsdóttir Spóarima 21, Selfossi
n Ásmundur Jespersen Kópavogsbraut 78,
Kópavogi
n Óskar H. Kristmannsson Þverholti 7, Vopnafirði
n Erlendur Ingi Kolbeinsson Garðabyggð 2,
Blönduósi
n Hjálmar Benedikt Gíslason Rósarima 7, Reykjavík
Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir Vættaborgum
136, Reykjavík
n Ásta Svavarsdóttir Hálsi, Húsavík
n Guðjón Sigmundsson Köldukinn 21, Hafnarfirði
n Aðalsteinn Már Aðalsteinsson Þrastartjörn 3,
Reykjanesbæ
50 ára
n Wei Zhang Hverafold 33, Reykjavík
n Vasile Mihaila Hvítárholti, Flúðum
n Bryndís Bjarnadóttir Jörfagrund 18, Reykjavík
n Ingibjörg A. Frederiksen Drangavöllum 8,
Reykjanesbæ
n Jóhann Ragnar Pálsson Kristnibraut 97, Reykjavík
n Birna Ísaksdóttir Bakkavegi 18, Reykjanesbæ
n Inga Sesselja Baldursdóttir Klettavík 7, Borg-
arnesi
n Stefán Magnússon Fagraskógi, Akureyri
n Þórgunnur Hjaltadóttir Reykási 13, Reykjavík
n Jónína Margrét Ingólfsdóttir Melbrún 7,
Reyðarfirði
n Guðmundur Richardsson Litlagerði 21, Vest-
mannaeyjum
60 ára
n Kristjana Vilborg Árnadóttir Bókhlöðustíg 7,
Reykjavík
n Þorvarður R Guðmundsson Hátúni 10a,
Reykjavík
n Þórarinn Valgeirsson Sigtúni 23, Reykjavík
n Dagný Jónsdóttir Breiðuvík 18, Reykjavík
n Runólfur E. Runólfsson Stekkjarseli 5, Reykjavík
n Guðmundur E. Magnússon Grundarbraut 47,
Ólafsvík
n Hafsteinn Hafsteinsson Brúarflöt 7, Garðabæ
n Þórdís Guðrún Bjarnadóttir Breiðahvarfi 8,
Kópavogi
n Hólmfríður Pétursdóttir Steinagerði 9, Reykjavík
70 ára
n Kristín Ágústsdóttir Árbraut 7, Blönduósi
n Guðbjörg Gréta Bjarnadóttir Álfhólsvegi 90,
Kópavogi
n Ásta Jóhannsdóttir Hraunbæ 192, Reykjavík
n Sigfús Þór Magnússon Suðurhvammi 15, Hafn-
arfirði
n Páll Engilbertsson Furugrund 5, Akranesi
n Gunnar Erlendsson Hlíðarvegi 51, Kópavogi
n Gestur Reimarsson Skjöldólfsstöðum, Breiðdalsvík
n Díana Sjöfn Eiríksdóttir Hátúni 32, Reykjanesbæ
n Guðmundur Pétursson Melateigi 23, Akureyri
n Guðmundína L. Hannibalsdóttir Brekkubæ
40, Reykjavík
n Hallgrímur Sveinsson Brekku, Þingeyri
n Eyjólfur Jónsson Suðurbraut 14, Hafnarfirði
n Hildigunnur Hilmarsdóttir Árstíg 13, Seyðisfirði
75 ára
n Sigurður Sveinsson Bústaðavegi 75, Reykjavík
80 ára
n Ásta Björnsdóttir Sandfellshaga 2, Kópaskeri
n Una Hallgrímsdóttir Akurgerði 17, Vogum
85 ára
n Svandís Ásmundsdóttir Hvassaleiti 58, Reykjavík
90 ára
n Kristjana S. Cortes Safamýri 56, Reykjavík
n Ingólfur Eyrfeld Guðjónsson Nýbýlavegi 80,
Kópavogi
30 ára
n Tomo Klobucar Asparfelli 6, Reykjavík
n Aline Grippi Ásvallagötu 17, Reykjavík
n Nunticha Sopila Suðurgötu 43, Reykjanesbæ
n Dorothee Marie Knodler Freyjugötu 28,
Reykjavík
n Lukasz Pawel Wójcik Hátúni 33, Reykjavík
n Þórunn Valdís Rúnarsdóttir Skagavegi 10,
Skagaströnd
n Anna Jakobsdóttir Ránargötu 25, Akureyri
n Charlotta Karlsdóttir Funalind 7, Kópavogi
n Þorsteinn Magnússon Eskihlíð 16b, Reykja-
vík
n Kristján Óli Sigurðsson Baugakór 9, Kópa-
vogi
n Jón Eggert Hallsson Víðihlíð 30, Reykjavík
n Ingólfur Pálsson Laugavegi 133, Reykjavík
40 ára
n Brynjar Carl Gestsson Samtúni 28, Reykjavík
n Harpa Víðisdóttir Strandvegi 8, Garðabæ
n Atli Steinn Jónsson Bröttukinn 12, Hafn-
arfirði
n Stefán Þór Sveinbjörnsson Hólmatúni 9a,
Álftanesi
n Sigurborg Guðný Sigurjónsdóttir Sólvalla-
götu 38g, Reykjanesbæ
n Hugrún R Hólmgeirsdóttir Öldugötu 25a,
Reykjavík
n Kristín Linda Sævarsdóttir Ljósuvík 56,
Reykjavík
n Þorleifur Steinþórsson Oddabraut 15,
Þorlákshöfn
n Sólný Ingibjörg Pálsdóttir Efrahópi 31,
Grindavík
n María Jensdóttir Gautavík 34, Reykjavík
n Kristín Heiða Baldursdóttir Drekavöllum
4, Hafnarfirði
50 ára
n Sigurður Pétursson Jöklafold 10, Reykjavík
n Gríma Huld Blængsdóttir Skildingan Reyn-
isnesi, Reykjavík
n Ingólfur Jón Magnússon Skúlaskeiði 40,
Hafnarfirði
n Grímur Guðnason Áshamri 60, Vestmanna-
eyjum
n Hólmgeir Karlsson Dvergsstöðum, Akureyri
n Rúnar Sigurðsson Litluskógum 14, Egils-
stöðum
n Ingibjörg Elín Bjarnadóttir Háteigi 15,
Reykjanesbæ
n Teitur Minh Phuoc Du Rekagranda 4,
Reykjavík
60 ára
n Hulda Fríða Ingadóttir Maríubaugi 123,
Reykjavík
n Svanur Jónsson Einigrund 36, Akranesi
n Oddgeir Arnar Jónsson Borgarvegi 17,
Reykjanesbæ
n Guðmundur Ellertsson Sámsstöðum 1,
Búðardal
n Gunnar Ragnarsson Aflagranda 14, Reykja-
vík
n Bjarney Bjarnadóttir Þórsmörk, Akureyri
n Ína Dagbjört Gísladóttir Urðarteigi 8,
Neskaupstað
n Kristinn Egilsson Blikahólum 4, Reykjavík
n Bjarni Ingólfsson Álandi 7, Reykjavík
n Rannveig Þorbergsdóttir Breiðabliki 1,
Neskaupstað
n Arnaldur Valgarðsson Heiðarbæ 5, Reykja-
vík
70 ára
n Erla Soffía Guðmundsdóttir Álfheimum
54, Reykjavík
n Halldóra I. Sigmundsdóttir Laufskálum
13, Hellu
n Gylfi Guðbjartsso Strandgötu 15, Patreksfirði
n Sigrún Vernharðsdóttir Fjarðarstræti 19,
Ísafirði
n Helga Bjarnadóttir Gullsmára 9, Kópavogi
n Einar Jónsson Laufásvegi 2a, Reykjavík
n Lárus Valdimarsson Kirkjubæjarklaustri 2,
Kirkjubæjarklaustri
75 ára
n Soffía Gróa Jensdóttir Ljárskógum 12,
Reykjavík
n Einar Kristjánsson Stekkjarholti 5, Ólafsvík
n Sigríður Ísafold Ísleifsdóttir Staðarbakka
6, Reykjavík
n Esther Helga Pálsdóttir Tómasarhaga 36,
Reykjavík
n Hulda S. Þórðardóttir Drápuhlíð 37,
Reykjavík
85 ára
n Ingibjörg Valdimarsdóttir Bröttuhlíð 13,
Hveragerði
90 ára
n Kristján Eiríksson Brúnavegi 9, Reykjavík
95 ára
n Stefanía Halldórsdóttir Laugarásvegi 66,
Reykjavík
til hamingju hamingju
afmæli 28. júní
Pálmar fæddist í Reykjavík. Hann
gekk í Barna- og gagnfræðaskólann
að Brúarlandi í Mosfellsbæ.
Pálmar hóf starfsferil sinn hjá
Ræktunarsambandi Kjalarnes-
þings, starfaði hjá Áburðarverk-
smiðjunni, vann við bifreiða- og
þungavinnuvélaviðgerðir og ók
malarflutningabílum hjá Steypu-
stöðinni hf. í nokkur ár. Pálmar var
svo verkstjóri við Röra- og filmu-
deildina á Reykjalundi í fjörutíu ár.
Pálmar er félagi í Lionsklúbbi
Mosfellsbæjar. Hann hefur setið
í stjórn klúbbsins og var formað-
ur hans. Þá starfaði hann í flug-
klúbbi Mosfellsbæjar og sat í stjórn
klúbbsins.
Fjölskylda
Pálmar kvæntist 12.12.1953 Ragn-
heiði Jónasdóttur, f. 25.6. 1932,
húsmóður. Hún er dóttir Jónas-
ar Ragnars Jónassonar, sjómanns í
Reykjavík, og Fanneyjar Þorvarðar-
dóttur húsmóður en þau voru bæði
ættuð úr Rangárþingi.
Börn Pálmars og Ragnheiðar
eru Ingi Ragnar Pálmarsson, f. 21.7.
1956, flugvirki hjá Flugleiðum, bú-
settur í Mosfellsbæ, kvæntur Guð-
rúnu Ólafsdóttur arkitekt, eiga þau
tvo syni; Vígmundur Pálmarsson,
f. 5.8. 1962, starfsmaður hjá Vega-
gerðinni, búsettur á Hvoli í Mos-
fellsbæ og á hann þrjá syni; Sigrún
Pálmarsdóttir, f. 18.11. 1969, tann-
smiður í Reykjavík, búsett í Mos-
fellsbæ, en maður hennar er Þröst-
ur Þorgeirsson tannlæknir og eiga
þau tvo syni.
Alsystir Pálmars er Ingunn Víg-
mundsdóttir, f. 20.2. 1928, húsmóð-
ir í Kópavogi.
Hálfbróðir Pálmars, samfeðra,
var Aðalsteinn Vígmundsson, f.
17.3. 1920, nú látinn, var bílstjóri
hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík.
Foreldrar Pálmars voru Víg-
mundur Pálsson, f. 8.8. 1896, d.
1967, einn fyrsti atvinnubílstjórinn
hér á landi, og Ingveldur Árnadótt-
ir, f. 11.2. 1901, d. 1987, húsmóðir.
Pálmar verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Pálmar Vígmundsson
fyrrv. verkstjóri hjá reykjalundi
til hamingju
afmæli 29. júní
mánudagur 28. júní 2010 umsjón: kjartan gunnar kjartansson kjartan@dv.is ættfræði 21
90 ára á morgun
80 ára á morgun