Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Blaðsíða 2
2 fréttir 14. júlí 2010 miðvikudagur
Jóhannes Jónsson kaupsýslumaður,
sem gjarnan er kenndur við versl-
unina Bónus, er ekki hrifinn af þeirri
þróun að verslanir Haga verði settar
í sérstök rekstrarfélög. Arion banki
hefur fært rekstur 10-11 verslananna
í sérstakt rekstrarfélag sem er aðskil-
ið frá Högum. Greint var frá þessu á
mánudaginn. Hugsanlega er þetta
upphafið að því að verslanir Haga
verði settar í sérstök rekstrarfélög.
Aðspurður hvort hann telji að
þetta þýði að Arion banki sé byrjað-
ur að búta niður fyrirtækið Haga seg-
ir Jóhannes: „Ekki svo ég viti til. Ég er
bara ekkert búinn að hugsa um það,
það er bara ekkert uppi á borðinu.“
Hann undirstrikar að hann viti auð-
vitað ekki nákvæmlega hvað Arion
banki hyggist fyrir með Haga í fram-
tíðinni. Arion banki ræður yfir nær
öllu hlutafé í Högum eftir að bank-
inn leysti félagið til sín vegna tug-
milljarða skulda eignarhaldsfélagins
1998 ehf. við bankann. Stofnað var til
þeirra skulda þegar 1998 keypti Haga
af Baugi árið 2008.
Hagar voru áður í eigu Jóhann-
esar og fjölskyldu hans. Jóhannes
er alls ekki hrifinn af þessari þróun
eða þeirri hugmynd að Högum verði
skipti upp. „Mér fyndist ekkert eðli-
legt við það. Þetta er góð rekstrarein-
ing. Félagið er bara gott eins og það
er,“ segir Jóhannes sem hefur skipt
um skoðun frá því þegar hann stofn-
aði Bónus fyrir tuttugu árum.
Þá sagði hann í viðtali við dag-
blaðið Tímann að enginn aðili á
markaði ætti að vera með meira en
30 til 40 prósenta markaðshlutdeild.
Hagar hafa hins vegar um 60 pró-
senta markaðshlutdeild á smásölu-
markaði á Íslandi í dag og hefur fyr-
irtækið löngum verið gagnrýnt fyrir
að stunda einokun á markaði. Með
tilkomu verslunarveldis Jóns Helga
Guðmundssonar, Kaupáss, hefur
hins vegar myndast ákveðið mótvægi
við Haga á markaðnum þótt hið síð-
arnefnda sé enn ráðandi á markaði.
Hefur skipt um skoðun
En hvers vegna er Jóhannes á ann-
arri skoðun í dag um æskilega mark-
aðshlutdeild einstakra fyrirtækja en
hann var fyrir tuttugu árum? „Það
væri nú heimskur maður sem ekki
gæti skipt um skoðun á tuttugu og
einu eða tveimur árum,“ segir Jó-
hannes þegar hann er spurður um
ummælin um einokun sem hann lét
út úr sér fyrir tuttugu árum og seg-
ist hann einfaldlega hafa skipt um
skoðun. Um 20 til 30 prósentustiga
munur er á markaðshlutdeild Haga
í dag og þeirri hlutdeild sem Jó-
hannes sagði að væri æskileg fyrir 20
árum. Meðal þess sem hefur breyst
síðan þá er að hann náði ráðandi
stöðu á markaði.
Jóhannes undirstrikar samt að
hann telji hagsmunum neytenda bet-
ur borgið með því að Hagar og önnur
slík stórfyrirtæki séu til: „Þegar ég var
búinn að stofna aðfangafélagið, sem
sagt Aðföng, þá bara kom það í ljós að
það væri miklu hagkvæmara upp á
innkaup fyrir almenning að það væru
stærri einingar sem sæju um það.“
Hann og sonur hans, Jón Ásgeir
Jóhannesson, byrjuðu upphaflega
tveir saman með fyrstu Bónusversl-
unina í Skútuvogi eins og þekkt er
orðið. Jóhannes var á kassanum og
Jón Ásgeir raðaði vörunum í hillurn-
ar. Fljótlega vatt starfsemin heldur
betur upp á sig og Bónus varð að stór-
veldi og þeir feðgar hættu að þurfa að
sinna daglegu amstri í Bónusbúðun-
um sjálfir. Á grunni Bónuss varð svo
til stórveldið Baugur sem fór í útrás
víða um lönd.
„Þegar ég opnaði Bónus notaði al-
menningur 24,5 prósent af launun-
um sínum í að kaupa mat og hrein-
lætisvörur. Fyrir fallið sem varð hérna
seinast var það komið niður í 11,6
prósent. Þannig að það hefur ýmis-
legt breyst á síðustu tuttugu árum.
Eins og ég segi, það er heimskur
maður sem getur ekki skipt um skoð-
un,“ segir Jóhannes en þessi ummæli
hans má skilja sem svo að það séu
stór og sterk fyrirtæki eins og Hagar
sem hafi haft þessi áhrif á það hlutfall
launa sem Íslendingar eyða í slíkar
vörur í dag.
Ekkert endilega selt eitt og sér
Af orðum Bergþórs Konráðssonar,
stjórnarformanns Rekstrarfélags-
ins 10-11, verður aftur á móti ekki
annað ráðið en að til standi að gera
fleiri félög Haga að sérstökum rekstr-
areiningum. „Það er bara verið að
setja þetta í sjálfstæð félög. Ákveðn-
ar verslanir,“ segir Bergþór aðspurður
hvort fleiri eignir en 10-11 verði færð-
ar út úr Högum.
Bergþór segir að fyrirtækið verði
ekkert endilega selt eitt og sér og seg-
ir þetta ekki endilega vera gert til að
undirbúa það. „Það er ekkert endi-
lega verið að því. Þetta eru nú bara
svona skipulagsaðgerðir. Bankinn er
með þetta fyrirtæki í endurskipulagn-
ingarferli,“ segir hann.
Ekki álitlegur kostur
Jóhannes sér ekki að það sé álitleg-
ur kostur að selja Haga-eininguna í
smærri einingum. „Ég sé það ekki að
sinni allavega.“ Hann vill að Hagar
haldist áfram sem eitt stórt fyrirtæki
en segir að þetta sé allt í lausu lofti.
„Þó að félagið sé sett í sérfélag skiptir
það ekki nokkru málið. Félagið er enn
þá inni í Högum.
Mér finnst ekkert eðlilegt við
það. Þetta er góð rekstrareining eins
og félagið er í heild. Félögin njóta
stuðnings hvert af öðru. Félagið er
bara gott eins og er. Það er ákveðin
árátta hjá embættismannakerfinu
að ætla að laga það sem er í lagi en
gleyma alveg að laga það sem er í
ólagi,“ segir Jóhannes en hann per-
sónulega mun eiga forkaupsrétt að
10 prósenta hlut í Högum þegar Ar-
ion banki mun skrá og selja félag-
ið í Kauphöll Íslands upp í skuldir
1998 ehf. þegar þar að kemur. Sam-
tals munu Jóhannes og stjórnendur
Haga hafa forkaupsrétt að 15 pró-
senta hlut í félaginu.
Einungis undirbúningsvinna
Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir
að nú sé í gangi undirbúningsvinna
við að gera fyrirtækið söluhæft. Hann
segir að Hagar hafi veg og vanda af
þessari undirbúningsvinnu en að
unnið sé náið með Arion banka, eig-
anda fyrirtækisins.
Finnur er ekki tilbúnn að segja til
um hvort fyrirtækið verði selt sem ein
heild eða hvort hlutar úr fyrirtækinu
verði seldir. „Það er ekki tímabært
að segja neitt um það. Þetta er bara
eðlilegur undirbúningur fyrir skrán-
inguna. Það er enginn rekstur á sam-
stæðugrunni.“
Með undirbúningsaðgerðunum
og þeirri endurskipulagningu sem
núna er unnin er verið að aðskilja
rekstur einstakra félaga. Finnur seg-
ir að hagkvæmnin í rekstri félaganna
haldi sér samt sem áður hjá Högum.
Hann er ekki tilbúinn að segja hvern-
ig honum fyndist best eða eðlilegast
að selja fyrirtækið.
Ljóst er af spjalli blaðamanns við
Finn að nokkur leynd hvílir yfir fram-
tíðaráformum Arion banka um söl-
una á Högum og vill Finnur lítið um
þetta segja.
Hagar aftur inn í Gaum
Jóhannes telur að hugsanlegt sé að yf-
irtaka Arion banka á Högum hafi ver-
ið ólögmæt og heldur hann í þá von
að félagið renni aftur yfir til Baugsfjöl-
BERJAST GEGN UPPSKIPTINGU HAGA
Jóhannes í Bónus vill eignast Haga aftur. Hann líkir fyrirtækinu við barnið sitt og
segist vilja annast það áfram. Arion banki er byrjaður að búta félagið niður í einingar,
hugsanlega til að auðveldara verði að selja Haga. Stjórnarformaður 10-11 segir að gera
eigi fleiri félög Haga að sjálfstæðum rekstrareiningum. Jóhannes segir að þeir Jón
Ásgeir eigi mikið undir því að ná Högum aftur og að Jón Ásgeir sé einnig mótfallinn
því að félagið Hagar verði bútað niður.
Þetta er barnið mitt, ég vil ann-
ast það áfram.
aðalstEinn kJartansson
og inGi f. vilHJÁlmsson
blaðamenn skrifa: adalsteinn@dv.is og ingi@dv.is
Jón Ásgeir Jóhannesson JónÁsgeirbyggðiuppviðskiptaveldisittáBónusoger
mótfallinnskiptingufélagsinsíminnirekstrareiningar.
finnur Árnason ForstjóriHaga,FinnurÁrnason,segiraðumséaðræðaeðlilegan
undirbúningfyrirsöluáHögum.
Jóhannes og Jón Ásgeir Feðgarnir
byrjuðubaratveiríBónusenBónus
óxogúrvarðHagar.