Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Blaðsíða 3
miðvikudagur 14. júlí 2010 fréttir 3
BERJAST GEGN UPPSKIPTINGU HAGA
skyldunnar. Hann bendir á bílalán-
in og ólögmæti gengistryggingar og
telur að nýlegur dómur Hæstaréttar
kunni að hafa áhrif á stöðu lána 1998
ehf. hjá Kaupþingi, nú Arion banka.
Hann segir að 1998 eigi mikið undir
því hvort gengistrygging á almennum
lánum verði dæmd ólögmæt. „Það
er verið að skoða líka hvort þau lán
sem hvíldu á 1998 eru ekki undir hatti
svokallaðra bílakaupalána. Það hefur
gríðarleg áhrif á það hvernig aðkoma
bankans varð að 1998,“ segir Jóhann-
es.
Hann segir því að hugsanlegt
sé að yfirtaka Arion banka á Hög-
um hafi verið óréttmæt og að Hagar
séu ekki réttilega í eigu Arion banka.
Hann segist alveg eins búast við því
að yfirtakan gangi til baka. Ef svo
yrði myndu Hagar renna aftur inn í
Gaum, sem er í eigu Jóhannesar, dótt-
ur hans, fyrrverandi eiginkonu hans
og Jóns Ásgeirs. Dóttir Jóhannesar,
Kristín, sagði reyndar í kvöldfréttum
Sjónvarpsins á þriðjudag að Gaum-
ur væri verðlaust félag með miklar
skuldir. Ekki liggur ljóst fyrir hvaða
áhrif þessi staða Gaums hefði á hug-
myndir Jóhannesar.
Hugmynd Jóhannesar verður þó
að teljast nokkuð fjarlægur möguleiki
eins og staðan er í dag.
Vill eiga Haga áfram
Aðspurður hvort hann muni sjá eftir
Högum segir Jóhannes vissulega að
svo sé. „Já, Hagar eru bara gott fyrir-
tæki og náttúrulega sér maður eft-
ir í góðu fyrirtæki,“ segir Jóhannes.
„Þetta er bara gott fyrirtæki og í góð-
um höndum. Við erum með alveg
frábært starfsfólk sem á sér enga hlið-
stæðu í þessari grein.“
Og aftur leiðist umræðan út í hvort
það sé heppilegt eða óheppilegt að
stór fyrirtæki séu allsráðandi á mark-
aði. „En ef ekkert á að vera stórt og
ekkert á að vera hagkvæmt held ég
að það verði ekkert eftirsóknarvert
að búa hér á skerinu okkar ástsæla,“
segir Jóhannes en hann vill ólm-
ur eiga Haga áfram. „Það eru margir
sem vilja aðstoða okkur við það,“ seg-
ir hann og lætur í það skína að hann
sé með fjárfesta á bak við sig sem vilji
koma að því að kaupa Haga aftur af
Arion banka. „Þetta er barnið mitt, ég
vil annast það áfram. Á meðan ég hef
krafta til þess, þá hlýtur það að vera
draumur minn.“ Jóhannes nefnir ekki
nöfn þeirra fjárfesta sem gætu komið
að kaupunum á Högum með Baugs-
fjölskyldunni.
Veit ekki hvað mun gerast
„Ég veit ekki hvað framtíðin ber í
skauti sér, en fyrirtækið er gott eins
og það er,“ ítrekar Jóhannes og segir:
„Sá sem réð ríkjum í Fjármálaeftir-
litinu [Páll Gunnar Pálsson, innskot
blaðamanns], þegar þessi ósómi var
innleiddur [myntkörfulán, innskot
blaðamanns], er akkúrat sá maður
sem núna stjórnar Samkeppniseft-
irlitinu. Ef embættisfærslurnar eru í
sama dúr hjá honum núna og voru
þá, þá býð ég ekki í það.“
Jóhannes er ekki sáttur við
hvernig stjórnvöld og embættis-
mannakerfið taka á vandamálun-
um í samfélaginu í kjölfar hrunsins.
„Heldurðu að embættismannakerf-
ið sé ekki í ólagi sem býður okkur
upp á það að lánastrúktúr fjármála-
stofnana sé í ólagi í tíu ár? Það eru
einhverjir sem hafa mikinn áhuga á
að laga það sem er í lagi, en virðast
komast hvorki lönd né strönd með
að laga það sem er í ólagi.“
„Ég sé um þetta, hann um sitt“
Þegar Jóhannes er spurður um skoð-
anir Jóns Ásgeirs á málefnum Haga
segir hann að Jón Ásgeir eigi mikið
undir því að ná undirtökum í Hög-
um aftur. Jóhannes segist þó sjá um
þetta mál fyrir hönd þeirra feðga. „Ég
held að hann hafi nú nóg með sín mál
annars staðar. Ég sé um þetta og hann
um sitt,“ segir Jóhannes aðspurður
hver viðbrögð sonar hans séu.
Hann segir að þeir feðgar eigi mik-
ið undir því að ná félaginu aftur. „Þú
getur rétt ímyndað þér ef það hefur
verið tekið af okkur á röngum for-
sendum,“ segir Jóhannes sem bíður
eftir að fá úr því skorið hvort yfirtakan
hafi verið réttmæt.
DV reyndi að hafa samband við
Jón Ásgeir Jóhannesson símleiðis
á þriðjudag en náði ekki sambandi
við hann í neinn af nokkrum far-
símum hans. Blaðið hringdi sömu-
leiðis í Höskuld Ólafsson, banka-
stjóra Arion banka, til að spyrja
hann um fyrirætlanir bankans í
málefnum Haga. Höskuldur er hins
vegar í fríi erlendis og náði blaðið
ekki tali af honum.
n Hagar er fyrirtæki sem hefur um sextíu prósenta hlutdeild á matvörumarkaði.
Jóhannes í Bónus og sonur hans Jón Ásgeir Jóhannesson byggðu upp Haga á
grunni Bónusverslananna sem þeir feðgar stofnuðu árið 1989. Baugur var fljótlega
stofnað, eða fjórum árum síðar, þegar eigendur Hagkaupa keyptu hlut í Bónus. Þá
var félagið Baugur stofnað til að halda utan um innkaup fyrir verslanirnar. Félagið
Hagar var stofnað árið 1998 og tók við af Baugi sem rekstraraðili verslana fyrir-
tækisins. Baugur varð þá Baugur Group og varð að fjárfestingarfélagi. Fyrirtækið
Aðföng var stofnað undir Högum og sá um aðfangakaup fyrir verslanirnar sem
voru færðar undir félagið þegar það var stofnað. Hagar var fært úr Baugi sumarið
2008. Baugur Group varð gjaldþrota nokkrum mánuðum síðar, snemma árs 2009.
n Hagar eiga í dag verslanir Haugkaups, Bónus, 10-11, Debenhams, Karen Millen,
All Saints, Warehouse, Topshop, Zara, Oasis, Dorothy Perkins, Coast, Evans, Útilíf,
Jane Norman og Day. Auk þessara verslana eiga Hagar félögin Banana, Aðföng,
Ferskar kjötvörur og Hýsingu.
fyrirtækið hagar
n Í viðtali við Jóhannes í Tímanum sem birtist þann 26. mars 1991 sagði
Jóhannes: „Það er afar óhollt í kapítalísku þjóðfélagi, að eitt fyrirtæki verði svo
stórt að það nái kannski 30-40% markaðshlutdeild. Það á sér hvergi hliðstæðu í
nágrannalöndum okkar að eitt fyrirtæki nái slíkum tökum. Það eru rosaleg völd
fólgin í því að vera smásali. Náir þú góðum tökum á smásölumarkaði, þá nærð
þú líka kerfisbundið tökum á ákveðnum iðnaði. Það er mjög hættulegt bæði fram-
leiðendum og innflytjendum verði einn smásali mjög stór. Hann ræður þá ekki
aðeins miklu um vöruval á markaðnum, heldur getur hann líka farið að framleiða
verðbólgu í þjóðfélaginu.“
þÁ og nú:
skoðanir jóhannesar í bónus
Jóhannes í Bónus Jóhannes
vill halda í Haga en vill ekki að
fyrirtækinu verði skipt upp.
MYnD HÖRÐUR SVEInSSon