Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Qupperneq 4
4 fréttir 14. júlí 2010 miðvikudagur
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Ný kynslóð
Rafskutlur
-frelsi og nýir möguleikar
Einfaldar í notkun og
hagkvæmar í rekstri
Fær að hafa
hundinn
„Miðað við það sem að ég er upp-
lýstur um var niðurstaða stjórnar
húsfélagsins sú að því yrði beint til
eigenda í húsinu að heimila áfram-
haldandi veru hundsins og tekið til-
lit til aðstæðna á meðan Svanhildur
Anna er að leysa úr sínum málum,“
segir Jón Pálmi Pálsson, bæjarstjóri
á Akranesi. Svanhildur Anna Sveins-
dóttir er sjón- og heyrnarskert og
þjáist af jafnvægisleysi eftir heila-
æxli. Hún fékk nýlega hund sem
hjálpar henni mikið í daglegu lífi.
Hún býr í fjölbýlishúsi á Akranesi og
getur ekki haft hundinn nema með
samþykki allra íbúa. Íbúar sem fluttu
nýlega inn í húsið veittu henni ekki
leyfi fyrir því að hafa hundinn.
AGS talar fyrir
opnum tjöldum
„Mér finnst að mörgu leyti ágætt að
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé farinn
að tala fyrir opnum tjöldum en ekki
bara í hvíslingum inni í Stjórnar-
ráðinu,“ segir Ögmundur Jónasson,
þingmaður Vinstri grænna, um til-
lögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að
breytingum á íslenska skattkerfinu.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leggur
til breytingarnar í nýrri skýrslu. Þar
kemur meðal annars fram að leggja
ætti niður lægra þrep virðisauka-
skattsins og fækka skattþrepum í
tekjuskattskerfinu í tvö.
Íslendingar
494 þúsund
Íslendingar verða orðnir 494
þúsund talsins þann 1. janúar
árið 2060. Þetta er samkvæmt
mannfjöldaspá Hagstofu Íslands.
Þó gæti farið svo að Íslending-
ar verði ekki nema 386.500 árið
2060. Á vef Hagstofunnar kemur
fram að sú nýjung hafi verið tek-
in upp í mannfjöldaspánni að
gerð eru þrjú afbrigði af henni,
svokölluð lágspá, miðspá og há-
spá. Afbrigðin miðast við ólíkar
forsendur um fjölda barna á ævi
hverrar konu og búferlaflutninga.
INGIBJÖRG FÆR LÍKA
R ÐGJAFALAUN FR 365
Ingibjörg Pálmadóttir, aðaleigandi
fjölmiðlafyrirtækisins 365 og stjórn-
arformaður félagsins, fær einnig
ráðgjafagreiðslur frá fjölmiðlafyr-
irtækinu til viðbótar við laun fyrir
stjórnarsetu. Þetta segir Ari Edwald,
forstjóri 365, aðspurður hvort 365
greiði laun fyrir ráðgjafarþjónustu
til erlendra eignarhaldsfélaga í eigu
Jóns Ásgeirs og Ingibjargar.
Líkt og komið hefur fram í fjöl-
miðlum fær Jón Ásgeir nærri 900
þúsund krónur á mánuði fyrir ráð-
gjafastörf sín hjá 365 og samkvæmt
orðum Ara fær Ingibjörg líka greitt
fyrir að veita félaginu ráðgjöf. Ari
segir að þessi greiðsla til Ingibjarg-
ar fari þó beint til hennar en ekki í
gegnum erlend eignarhaldsfélög.
Hjónin eru því bæði á launaskrá
hjá 365 fyrir að veita 365 ráðgjöf. En
líkt og Ari sagði í DV á mánudaginn
er hann afar ánægður með þá ráðgjöf
sem Jón Ásgeir hefur veitt fjölmiðla-
fyrirtækinu enda segir hann að Jón
sé „toppráðgjafi“ og „toppmaður“
og að hann eigi þátt í uppgangi fjöl-
miðla 365.
Ráðgjöf vegna erlendra
verkefna
Ari segir að ráðgjafagreiðslurn-
ar til Ingibjargar séu vegna tiltek-
inna verkefna sem hún hafi unn-
ið fyrir félagið. Því er ekki um að
ræða fasta greiðslu sem Ingibjörg
fær mánaðarlega fyrir almenna eða
rekstrarráðgjöf heldur tímabundn-
ar greiðslur, ef lagt er út frá orðum
Ara.
Ari vill þó ekki gefa það upp
hvaða verkefni þetta eru sem Ingi-
björg vinnur fyrir fjölmiðlafyrir-
tækið. „Þetta er bara innanhúss-
mál hjá okkur. Ég sé ekki ástæðu
til að fara nánar út í það. Hvað við
erum að gera hér innanhúss á ekk-
ert erindi í opinbera umræðu. Það
hefur alltaf tíðkast hjá þessu fyrir-
tæki og forverum þess að stjórn-
armenn séu virkir í ýmsum verk-
efnum fyrir félagið, sérstaklega í
verkefnum sem snúast um sam-
skipti við erlenda aðila,“ segir Ari
sem jánkar því að ráðgjafarvinna
Ingibjargar snúist vissulega um slík
samskipti við erlenda aðila. „Ein-
hver hluti þessarar vinnu hennar
snýst um það, já.“
Ari segir að honum finnist öðru
máli gegna um ráðgjafarvinnu Ingi-
bjargar fyrir 365 en Jóns Ásgeirs þar
sem hún sé starfandi stjórnarfor-
maður í félaginu. „Þessar spurning-
ar varðandi stjórnarformanninn eru
annars eðlis en spurningarnar varð-
andi Jón Ásgeir, þar
sem það mál kom upp
opinberlega í þessum
málaferlum í Bretlandi.“
Þess skal getið að
Ingibjörgu er einn-
ig stefnt í New York
ásamt Jóni Ásgeir
og viðskiptafélögum
hans vegna meðferð-
ar þeirra á Glitni og
eru þau krafin um
260 milljarða króna í
skaðabætur. Greiðsl-
urnar frá 365 kunna
að skipta máli í sam-
bandi við stefnu Glitnis
gegn þeim hjónum því
Glitnir mun reyna að
kortleggja eignastöðu
hinna stefndu í málinu
þegar metið er hversu
miklar eignir bankinn
geti sótt til þeirra.
Greinir ekki frá upphæðinni
Ari vill aðspurður ekki greina frá upp-
hæðinni sem Ingibjörg fær frá 365
vegna ráðgjafarvinnunnar. „Ég held
að ég hafi nú þegar gefið meiri upp-
lýsingar um þessi mál en hægt er að
ætlast til frá einkafyrirtæki. Fjárhæð-
ir og annað slíkt er bara innan-
hússmál hjá okkur. Ég mun
ekki segja frá því hvað hún fær fyr-
ir þessa vinnu. Það er alveg ljóst að
Ingibjörg, ég og aðrir starfsmenn og
ráðgjafar sem vinna fyrir þetta fyrir-
tæki fá greitt fyrir sína vinnu. Ég held
að þetta gæti ekki verið á annan hátt,“
segir hann.
Ari segir að styttra sé síðan Ingi-
björg hafi byrjað að vinna ráðgjafar-
störf fyrir félagið en Jón Ásgeir. Ari
segir að Jón Ásgeir hafi unnið ráð-
gjafarstörf fyrir 365 í um það bil eitt
ár, það er að segja frá því eftir banka-
hrunið haustið 2008, en að Ingibjörg
hafi unnið skemur sem ráðgjafi fyrir
fyrirtækið. „Störf Ingibjargar eru allt
annars eðlis. Ingibjörg hefur verið
stjórnarformaður 365 síðan um vor-
ið 2008 og vinnur hún þessi ráðgjaf-
arstörf í tengslum við það,“ segir Ari.
„Ég get líka sagt þér að greiðslurnar
til þeirra Jóns Ásgeirs og Ingibjargar
fyrir unnin störf fyrir þetta fyrirtæki
eru hreinir smámunir í samanburði
við þá fjármuni sem þau hafa lagt til
félagsins.“
Því liggur ekki fyrir
hversu mikið þau hjónin,
Jón Ásgeir og Ingibjörg,
fá greitt í laun frá fjöl-
miðlafyrirtækinu sem
þau eiga.
inGi f. vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Ég held að ég hafi nú þegar
gefið meiri upplýsingar
um þessi mál en hægt er
að ætlast til frá einka-
fyrirtæki.
Eiginkona jóns ásgeirs jóhannessonar, ingibjörg Pálmadóttir, er líka á ráðgjafa-
launum hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365. Forstjóri 365 vill ekki gefa upp hvers eðlis ráð-
gjöfin er né hversu mikið Ingibjörg fær greitt fyrir hana. Ingibjörgu er stefnt í New
York ásamt Jóni Ásgeiri og reynir slitastjórn Glitnis að ná utan um eignastöðu þeirra.
fá bæði ráðgjafalaun HjóninJónÁsgeirJóhannessonogIngibjörgPálmadóttirfá
bæðiráðgjafalaunfráfjölmiðlafyrirtækinu365.JónÁsgeiráttifélagiðásínumtímaen
Ingibjörgáþaðídagaðmestu.
Gefur ekki upp launin
AriEdwaldvillekkigefa
upphversumikiðIngibjörg
Pálmadóttirfæríráðgjafalaun
frá365.
SIGGI STORMUR:
VEÐRIÐ
GOTT Í
SUMAR
MÁNUDAGUR og ÞRIÐJUDAGUR 12. – 13. JÚLÍ 2010
fRéttIR
RÉTTIR SEM
ÞÚ VERÐUR
AÐ SMAKKA!
ERna GUnnþóRS:
OF
GRÓF
FYRIR
FACE-
BOOK? fólk
NeyteNDUR
GUðMUndUR REIf
SjóvaRnaRGaRð:
NÁGRANNI
tIGeRS
WOODS
n SkólA-
StJóRI keyptI
flóRíDA-vIllU
fRéttIR
jón GaRðaR SElUR:
kÆRAStAN
kAUpIR
MetRO fRéttIR
daGblaðIð víSIR 79. Tbl.
100. áRG. – vERð kR. 395
„dýRlInGuRInn“
BREYtIR söGunnI
n fÆR 760 ÞúSUND fyRIR
RÁÐGJöf tIl ARA eDWAlD
n eIGINkONA JóNS Á 365
n JóN „eR tOppMAÐUR“
n ARI kOMINN Á bíl JóNS
n eyDDU 50-60 MIllJóN-
UM kRóNA Á MÁNUÐI
„jón
áSGEIR
ER TOpp-
RáÐGjAfI“
út
tek
t
fRéttIR
byGGJA SUMARHöll
í SkUGGA GJAlDÞROtS
n leONARD-HJóN ReISA SUMARbúStAÐ OG byGGJA vIÐ HúSIÐ
25
„MÉR
fAnnST
HAnn SVO
LjóTUR“
Ari ræður fyrrverAndi eigAndA:
forsíða Dv mánudaginn12.júlí2010
Kári stefánsson skilur lítið í dagsektum Kópavogsbæjar:
Drullupollumfækkað
„Hið eina sem ég veit er að þeg-
ar ég var að alast upp í Kópavogsbæ
þá voru allar götur þar moldargötur
með drullupollum og mér skilst að
það hafi skánað eitthvað aðeins síð-
an,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, um sektar-
greiðslur Kópavogsbæjar gagnvart sér
vegna ófrágenginnar lóðar við Fagra-
þing 5 í bænum.
Frá síðari hluta maí hefur Kópa-
vogsbær beitt Kára dagsektum og
daglega hafa bæst 20 þúsund krón-
ur á skuldareikning forstjórans hjá
bænum. Samanlagðar sektargreiðslur
Kára nema nú nærri milljón króna. Á
lóðinni hefur verið unnið að nýbygg-
ingu Kára, sem samkvæmt fasteigna-
skrá verður rúmir 500 fermetrar að
stærð, en bæjaryfirvöld eru ósátt við
að lóð hans sé ófrágengin í götunni.
Líkt og DV greindi frá hefur bygg-
ingarfélagið Eykt ehf. stefnt Kára
vegna nýbyggingarinnar. Deilan snýr
að ríflega 11 milljóna króna uppgjöri
vegna byggingar á stóru húsi við Ell-
iðavatn. Þar með berst Kári á tveim-
ur vígstöðvum fyrir dómstólum því
fyrirtæki sem sá um að hreinsa rot-
þró hjá honum telur hann ekki hafa
borgað fyrir verkið.
Sjálfur segist Kári ekki hafa hug-
mynd um hvað Kópavogsbæ gangi
til með þessum sektargreiðslum og
bendir á forsvarsmenn bæjarins til
svara. Hann segist ekki hafa heyrt frá
bæjaryfirvöldum lengi. „Þetta verða
þeir hjá Kópavogsbæ að svara fyrir.
Ég ræð engu þarna um og hef ekki
hugmynd um hvað er þarna að ger-
ast. Ég hef ekki frétt frá Kópavogsbæ í
langan tíma. trausti@dv.is
Bendir á bæinn Kárisegistekkihafa
hugmyndumhvaðbænumgangitil
varðandidagsektirnar.