Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Side 6
6 fréttir 14. júlí 2010 miðvikudagur
Ríkissjóður hefur tryggt sér forkaupsrétt að þeim listaverkum sem talið er mikilvægt að
ríkið kaupi af skilanefndum föllnu viðskiptabankanna. Skrifstofustjóri í menntamála-
ráðuneytinu segir enga peninga til núna fyrir verkunum. Óréttlátt að þurfa að kaupa
aftur verk sem upphaflega voru gefin bönkunum, segir forstjóri Listasafns Íslands.
Þjóðargersemar enn
hjá skilanefndunum
Íslenska ríkið hefur ekki átt peninga
fyrir verðmætu listaverkasafni gjald-
þrota viðskiptabankanna og því hvíla
verkin enn í kjöltum skilanefndanna.
Frestur til þess að ganga frá kaupun-
um rann út í maímánuði en á dögun-
um fékk ríkið lengri frest og hefur nú
rýmri tíma til að safna fyrir verkun-
um.
Búið er að fara sérstaklega yfir og
forgangsraða þeim listaverkum sem
bankarnir þrír eiga en þau eru hátt í
fimm þúsund talsins. Nefnd á vegum
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins hefur flokkað þessi verk
og sett upp lista yfir þau verk sem
talið er mikilvægt að séu í ríkiseigu.
Skilanefndirnar hafa aftur á móti
sett verðmiða á þær þjóðargersem-
ar, verðmiða upp á hundruð milljóna
króna, sem ríkið hefur ekki ráðið við
fram til þessa. Á dögunum krækti rík-
ið sér þó í gálgafrest til næstu sjö ára
þar sem það hefur forkaupsrétt að
þeim verkum sem flokkuð eru sem
þjóðargersemar.
Ósanngjarnt
Um leið og Halldór Björn Runólfs-
son, forstöðumaður Listasafns Ís-
lands, er ánægður með þennan for-
kaupsrétt skilur hann lítið í hörku
skilanefndanna þar sem ljóst er að
bankarnir hafi upphaflega feng-
ið listaverkin að gjöf frá þjóðinni.
Honum finnst ósanngjarnt að þjóð-
in þurfi nú að kaupa verkin til baka.
„Vandamálið er að skilanefndirnar
eru ekki reiðubúnar að viðurkenna
rétt þjóðarinnar til að eiga þessi verk
án þess að borga fyrir þau. Að sjálf-
sögðu er ég áhyggjufullur yfir hörku
slitastjórnanna því ég átti mér þá von
að við endurheimt bankanna í ríkis-
eigu mundi málverkaeign þeirra aft-
ur komast í eigu þjóðarinnar, endur-
gjaldslaust,“ segir Halldór Björn.
„Þegar ég gerði mér grein fyrir því
að verkin fengjust ekki án borgunar
lýsti ég áhyggjum mínum. Ástæðan
fyrir áhyggjum mínum var ekki sú
að ég þyrfti að sjá alla list í eigu hins
opinbera, heldur óréttlætið að verk
sem upphaflega voru keypt fyrir al-
mannafé skyldu gefin einkabönkun-
um 2003, og almenningi síðan ætlað
að endurkaupa þau. Það er ósann-
gjarnt.“
Engir peningar til
Við einkavæðingu bankanna, í tíð
Valgerðar Sverrisdóttur sem iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, urðu mikl-
ar deilur þegar uppgötvaðist að verð-
mæt listaverk bankanna gleymdust
alfarið í söluferlinu. Þannig voru þau
hvorki færð úr eigu bankanna áður
en þeir voru seldir né verkin met-
in inn í söluandvirði bankanna við
einkavæðingu.
Karitas Gunnarsdóttir, skrifstofu-
stjóri skrifstofu menningarmála hjá
mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu, segir mikinn ávinning hafa
náðst með forgangsröðun verkanna.
Hún segir peninga fyrir verkunum
einfaldlega ekki til núna hjá ríkis-
sjóði. „Við erum búin að skilgreina
hvað við teljum þjóðargersamar og
hvað er síður mikilvægt að ríkið eigi.
Það er nú á hreinu og við höfum
tryggt okkur forkaupsrétt á gersem-
unum til næstu sjö ára. Ríkið hef-
ur enga peninga til að kaupa þetta
núna,“ segir Karitas.
trausti hafstEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ríkið hefur enga peninga til að
kaupa þetta núna.
Vilja verkin BæðiHalldórogKatrín
menntamálaráðherraviljalistaverkin
frábönkunumenframtilþessahefur
ekkitekistaðgangafrákaupunum.
„Ég vara börn sérstaklega við því að
setja myndir af sér á netið, til dæm-
is þar sem þau eru fáklædd eða á
sólarströnd. Það er alltaf ákveðin
hætta á því að myndir séu notað-
ar af mönnum úti um allan heim í
annarlegum tilgangi,“ segir Björg-
vin Björgvinsson, yfirmaður kyn-
ferðisbrotadeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.
Ungir notendur Facebook dreifa
nú á milli sín ábendingu á síðum
sínum og vara við hópi á netinu
sem sagður er stofnaður af barna-
níðingum í þeim tilgangi að safna
þar myndum af börnum. Börn eru
beðin um að passa sig og dreifa
ábendingunni sín á milli.
Hópurinn sem um ræðir er und-
ir heitinu „Þeim sem finnst pabbi
og mamma það besta sem hef-
ur komið fyrir mann“ og þar geta
Facebook-notendur skráð sig sem
meðlimir. Börn á Facebook eru aft-
ur á móti farin að setja á vegg sinn
viðvörun og vara aðra notendur
samskiptavefjarins við að ganga í
þennan hóp. Ástæðan sé sú að hóp-
urinn hafi verið stofnaður af barna-
níðingum í þeirri von að safna þar
saman myndum af börnum.
Björgvin biður börn almennt
um að vara sig á netinu. Einkum
varar hann við því að myndir séu
settar á alþjóðlega samskiptavefi.
„Það er alveg ljóst að þegar myndir
eru settar á Facebook þá hafa allir
„vinirnir“ aðgang að þeim myndum
og það er ekki alltaf víst að þeir séu
endilega góðir vinir,“ segir Björgvin.
trausti@dv.is
Kynferðisbrotadeild lögreglu biður börn að fara varlega á Facebook:
Ekkisetjamyndiránetið
annarlegur tilgangur Áalþjóðlegumsamskiptavefjumfinnasteinstaklingarsem
notamyndirafnotendumíannarlegumtilgangi.
Björk gegn magma
„Þetta er ábending til umboðs-
manns Alþingis um að skoða ýmsa
þætti í Magma-málinu sem að við
teljum að sé ástæða til þess að skoða
nánar,“ segir Jón Þórisson aðstoð-
armaður Evu Joly og arkítekt, en
hann, tónlistarkonan Björk Guð-
mundsdóttir og skáldið Oddný Eir
Ævarsdóttir hafa sent ábendingu til
umboðsmanns Alþingis varðandi
málefni Magma Energy. Ábendingin
snýr meðal annars að því að Mag-
ma Energy Sweden, dótturfyrirtæki
Magma Energy er skúffufyrirtæki
en deildar meiningar hafa verið um
lögmæti kaupa fyrirtækisins á HS
Orku.
askar gjaldþrota
Stjórn Askar Capital hefur óskað
eftir slitameðferð á félaginu með því
að beina kröfu um slit til Héraðs-
dóms Reykjavíkur. Þá hefur stjórn
dótturfélags þess, Avant, óskað eftir
að Fjármálaeftirlitið skipi bráða-
birgðastjórn félagsins. DV greindi
fyrst miðla frá væntanlegu gjald-
þroti Askar Capital. Í tilkynningu frá
félaginu segir að dómur Hæstaréttar
um ólögmæti gengistryggingar hafi
mikil áhrif á efnahag Askar og Av-
ant. Þann 31. maí voru eignir Avant
metnar á um 23 milljarða króna.
6.000 styðja
svanhildi
Facebook-hópur til stuðnings hinni
daufblindu Svanhildi Önnu Sveins-
dóttur telur yfir 6.000 manns en
henni hefur verið meinað að hafa
blindrahundinn Exo hjá sér í íbúð
sinni á Akranesi. Hópurinn ber yfir-
skriftina „Styðjum konuna sem fær
ekki að hafa leiðsöguhund í blokk-
inni sinni“. Mikill fjöldi fólks hefur
skrifað á vegg hópsins þar sem lýst
er yfir stuðningi við Svanhildi.
enginn beitt
sér óeðlilega
Samskipti milli mín og nefndarinnar
í heild við starfsmenn ráðuneytis-
ins hafa verið í góðum og eðlilegum
farvegi,“ segir Unnur G. Kristjáns-
dóttir, formaður í nefnd um er-
lenda fjárfestingu um ummæli Silju
Báru Ómarsdóttur, fulltrúa Vinstri
grænna í nefndinni. Silja sagði emb-
ættismenn í viðskiptaráðuneytinu
hafa frá upphafi virst sannfærðir um
að ekkert væri að kaupum fyrirtæk-
isins Magma Energy á HS Orku í
gegnum dótturfélag í Svíþjóð.