Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Page 7
miðvikudagur 14. júlí 2010 fréttir 7
Sett er út á ýmis atriði í viðaukasamningi menntamálaráðuneytisins og Hraðbraut-
ar. Misræmi í fjárframlögum til skólans og nemendafjölda er eitt þeirra sem og
greiðsla á arði og lánveitingum út úr skólanum til eiganda hans, Ólafs H. Johnson.
Samstarfið við skólann er framlengt til að tryggja hagsmuni nemenda skólans.
Menntamálaráðuneytið gerði at-
hugasemdir við arðgreiðslur og
lánveitingar út úr eignarhaldsfé-
lagi Menntaskólans Hraðbraut-
ar í viðaukasamningi við skólann
sem skrifað var undir í lok júní síð-
astliðinn, samkvæmt heimildum
DV innan úr menntamálaráðu-
neytinu. Líkt og DV hefur greint
frá gildir viðaukasamningurinn á
milli ráðuneytisins og skólans þar
til í lok júlí á næsta ári. Samstarfs-
samningurinn á milli ráðuneytis-
ins, sem leggur skólanum til um 80
prósent af þeim tekjum sem hann
fær árlega, var undirritaður árið
2007 og rennur út í lok þessa árs.
Heimildir DV innan úr mennta-
málaráðuneytinu herma að við-
aukasamningurinn hafi fyrst og
fremst verið gerður við samstarfs-
samninginn til að eyða óvissu
þeirra nemenda skólans sem luku
fyrra ári sínu í skólanum nú í sum-
ar. Samkvæmt þessu má segja að
samningurinn hafi verið gerð-
ur með hagsmuni nemenda skól-
ans að leiðarljósi. Samningurinn
er framlengdur án skuldbinding-
ar um frekari framlengingu á sam-
starfinu við Ólaf Johnson, eiganda
og skólastjóra Hraðbrautar. Heim-
ildir DV herma að ráðuneytið
muni meðal annars líta til úttekt-
ar á starfi skólans sem verið er að
vinna þar og eins á væntanlega út-
tekt Ríkisendurskoðunar á fjármál-
um skólans þegar ákveðið verður
hvort samstarfið við skólann verð-
ur framlengt næsta sumar.
Misræmi í fjárframlögum
Heimildir DV herma að meðal
þess sem ráðuneytið hafi gagnrýnt
í nýja tímabundna samningum við
Hraðbraut hafi verið að misræmi
hafi fundist í fjárframlögum til
skólans og þeim nemendum sem
stunduðu þar nám þegar ársreikn-
ingar skólans. Í þessu felst að skól-
inn hafi fengið of háar fjárveiting-
ar frá ríkinu miðað við það hversu
margir nemendur stunduðu þar
nám. DV hefur áður greint frá því
að skólinn hafi fengið of háar fjár-
veitingar sem hann hafi ekki þurft
að greiða til baka að fullu.
Að sama skapi setti mennta-
málaráðuneytið einnig út á arð-
greiðslurnar og lánin sem voru
veitt til félaga í eigu Ólafs og Nýsis
út úr eignarhaldsfélagi skólans, líkt
og áður segir.
Það eru meðal annars þessi at-
riði sem Ríkisendurskoðun á að
skoða og kortleggja í athugun sinni
á fjármálum skólans og virðist at-
hugun ráðuneytisins á þessum
þáttum í ársreikningum skólans
hafa leitt til þess að ákveðið var að
senda málefni skólans til Ríkisend-
urskoðunar.
Niðurstaða ráðuneytisins virð-
ist því hafa verið svipuð og niður-
staða DV í þeim umfjöllunum sem
birtar hafa verið um málefni skól-
ans í blaðinu: Að ekki geti talist
eðlilegt að Ólafur Johnson hafi tek-
ið sér svo mikinn arð út úr rekstrar-
félagi skólans og jafnframt að ekki
geti talist eðlilegt að tugir og jafnvel
hundruð milljóna króna séu lánað-
ar út úr félagi sem á og rekur skóla.
Óvíst um inntöku nýrra
nemenda
Samkvæmt því sem DV kemst
næst hefur menntamálaráðuneyt-
ið ekki sett Ólafi nein skilyrði varð-
andi inntöku nemenda í Mennta-
skólann Hraðbraut á komandi
haustmisseri. Inntaka nemenda í
skólann mun vera á ábyrgð hans
sjálfs en fremur ólíklegt verður að
teljast að nýir nemendur munu
vilja hefja nám í skólanum fyrst
ekki liggur ljóst fyrir hvort skól-
inn mun starfa áfram eftir sum-
arið 2011 – skólinn býður upp á
tveggja ára nám til stúdentsprófs.
Reyndar er það frekar ólíklegt að
svo verði eftir því sem heimildir
DV herma.
Ljóst er hins vegar að með þess-
um viðaukasamningi munu þeir
nemendur sem búnir eru með
fyrra ár sitt í skólanum geta lokið
stúdentsprófi frá honum. Ef nýir
nemendur hefja nám í skólanum
er hins vegar líklegt að þeir nái að-
eins að klára fyrra árið þar sem lík-
leg lending í Hraðbrautarmálinu er
að skólinn verði lagður niður eftir
sumarið 2011.
Ólafur Johnson neitar að ræða
við DV um málefni skólans.
Í þessu felst að skólinn hafi
fengið of háar fjár-
veitingar frá ríkinu á
fjárframlögum miðað
við það hversu margir
nemendur stunduðu
þar nám.
ingi f. vilHJálMsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Fjárveitingar frá ríkinu til Menntaskól-
ans Hraðbrautar 2003 til 2010
n2003 55,0milljónir
n2004 115,0milljónir
n2005 156,0milljónir
n2006 163,3milljónir
n2007 163,0milljónir
n2008 173,2milljónir
n2009 168,2milljónir
n2010 158,0milljónir
Samtals 1151,7 milljónir
Arðgreiðslur út úr Hraðbraut ehf.
2003 til 2010:
n2003 0
n2004 0
n2005 10milljónir
n2006 14milljónir
n2007 27milljónir
n2008 6milljónir
Samtals 57 milljónir króna
Fjárveitingar
framtíð Hraðbrautar skoðuð MenntamálaráðuneytiKatrínarJakobsdóttur
munskoðaframtíðHraðbrautareftiraðniðurstaðaíúttektráðuneytisinsá
skólanumsemogniðurstaðaíúttektRíkisendurskoðunarliggurfyrir.
n „þetta er búið að gan
ga ákaflega vel“
n kennarar telJa Sig Un
DirbOrgaða
n greiDDi 27 MillJÓnir Í
arð á tapári
n ÓlafUr JOhnSOn kvÍð
ir ekki rannSÓkn
ÓSÝNILEGA
VALDA-
STÉTTIN
Á ÍSLANDI
fréttir
JÓHANNA
GIFTIST
JÓNÍNU
fréttir
beStU tJalDStÆðin
MánUDagUr og þriðJUDa
gUr 28. – 29. JÚNÍ 2010
dagblaðið vísir 73. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
neytenDUr
ScOOter
Í lanDi karlS
n þJÓðverJinn
Spilar Í galtalÆk fÓlk
n hélDU Upp á Daginn Í S
veitinni
ÞorGErðUr ENDUr-
NÝJAðI SAmNINGINN
KATrÍN SENDIr mÁLIð TIL
rÍKISENDUrSKoðUNAr
BJörN SAmDI VIð ÓLAF
TÓK TUGI
mILLLJÓNA
Í Arð FrÁ
SKÓLANUm
eigandi og SKÓLaSTJÓRi MennTaSKÓ
LanS HRaÐBRaUTaR:
millj
arður
í ríki
sstyr
k
Misræmi í framlögum Eittafþvísem
ráðuneytiðsettiútáístarfsemiHraðbrautarí
nýjumtímabundnumsamstarfssamningivar
aðmisræmivarífjárveitingumtilHraðbrautar
ogþessnemendafjöldasemþarvarviðnám.
Dv 26. júní 2010
Lyf fyrir fíkla
SÁÁ tekur nú þátt í tilraun á lyfinu
naltrexone. Lyfið hefur verið not-
að í nokkur ár við áfengissýki með
nokkrum árangri, en sænskir vís-
indamenn hafa gert rannsókn sem
gefur vonir um að lyfið geti komið í
veg fyrir fall hjá amfetamínfíklum.
Öll leyfi liggja fyrir rannsókninni og
rannsóknarstarfið er hafið á Vogi.
Undirstofnun bandaríska heil-
brigðisráðuneytisins, NIDA, kostar
rannsóknina að mestu en nokkur
kostnaður mun þó falla á SÁÁ. Engir
innlendir aðilar hafa fengist til að
styrkja rannsóknina.
Hjartaáfall orsök
banaslyss
Lögregla hefur lokið rannsókn á um-
ferðarslysi sem átti sér stað á Hafn-
arfjarðarvegi norðan Arnarnesbrúar
að morgni 18. desember 2009. Slysið
varð með þeim hætti að bifreið var
ekið til suðurs Hafnarfjarðarveg og
yfir á akbraut fyrir umferð úr gagn-
stæðri þannig að úr varð árekstur.
Ökumaður var einn í bifreiðinni sem
ekið var suður Hafnarfjarðarveg en
tveir menn í hinni. Þeir létust allir
í slysinu. Í krufningarskýrslu kom
fram að ökumaður bifreiðar sem
ekið var suður Hafnarfjarðarveg var
meðvitundarlaus er árekstur varð.
Hann hafði fengið hjartaáfall og var
hann úrskurðaður látinn við komu
sjúkraliða á slysstað.
Ísland og Kína
í samstarf
Kína og Ísland vinna saman að
jarðhitanýtingu í Austur-Afríku ef
tillaga sem Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra bar undir Xi Jin-
ping, varaforseta Kína, verður að
veruleika. Samkvæmt tillögu utan-
ríkisráðherra myndu Kínverjar afla
fjármagns, en hlutur Íslands myndi
byggjast á íslenskri sérfræðiþekk-
ingu, og verður framlag Íslands til
yfirfærslu á endurnýjanlegri orku-
tækni í samræmi við Kaupmanna-
hafnarsáttmálann frá í desember.
Varaforseti Kína taldi hugmyndina
mjög góða til að efla samvinnu Kína
og Íslands.
Fleiri unglingar
í meðferð
Í fyrra leituðu færri unglingar 19 ára
og yngri sér meðferðar á Sjúkrahúsið
Vog en undanfarin ár. Kreppan virt-
ist því ekki breyta sjö ára jákvæðri
þróun í þessum efnum. Þvert á móti,
virtust fyrstu áhrif kreppunnar vera
minnkandi vímuefnaneysla ungl-
inga. Nú virðist unglingunum fjölga
aftur ef tölurnar frá Vogi eru skoð-
aðar fyrir fyrstu 6 mánuði þessa árs.
Það virðist því full þörf að vera vel
vakandi gagnvart vímuefnaneyslu
unglinga og slaka hvergi á í forvörn-
um og unglingameðferð.
SETT ÚT Á GREIÐSLU
aRÐI oG L nUm