Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 14. júlí 2010 miðvikudagur
Makríll mokveiðist nú í kringum
landið og hafa nótaskip farið í góða
túra í sumar. Þar á meðal er nóta- og
togveiðiskipið Aðalsteinn Jónsson
SU-11 frá Eskifirði. „Þetta er búið að
vera alveg feikilega gott. Við höfum
farið þrjá túra með fullfermi af fryst-
um makríl,“ segir Daði Þorsteinsson,
skipstjóri á Aðalsteini Jónssyni, og
segir önnur nótaskip líkt og Vilhelm
Þorsteinsson, Hákon og Hugin hafa
einnig verið að mokveiða makríl.
Á Aðalsteini Jónssyni leynist
Kastljóssmaðurinn Helgi Seljan en
eins og frægt er orðið sækir hann
sjóinn í sumarfríum sínum frá Kast-
ljósinu. „Já, ég hef gert þetta undan-
farin þrjú ár,“ segir Helgi sem hefur
farið tvo túra í sumar þar sem Að-
alsteini hefur verið siglt heim með
fullfermi af frosnum makríl en Helgi
lagði af stað í sinn þriðja túr síðast-
liðinn þriðjudag. Aðspurður hvað
togi hann út á sjó segir Helgi pen-
ingana vera eina af helstu ástæð-
unum. „Ég væri að ljúga því ef ég
segði að þetta væri einhver áhuga-
mennska,“ segir Helgi.
Gott að vera sjómaður á ný
Daði skipstjóri segir makrílveiðina
ganga vel og segir það vera loksins
orðið bjóðandi aftur að vera sjómað-
ur. „Þetta eru alveg viðeigandi laun
og loksins er það aftur orðið gott að
vera sjómaður,“ segir Daði. Hann
segir það ekki hafa verið gott að vera
sjómaður þegar mikill uppgangur
var í landi fyrir nokkrum árum. „Þá
var ekki gott að vera sjómaður og
hefði ég fengið krónu minna í laun
á þeim tíma hefði ég hætt. Maður
var á sjó í 230 daga á ári frá fjölskyld-
unni og hafði minni laun en smiður
í Reykjavík. En núna þegar sjómenn
er loksins farnir að þéna er dúndrað
á okkur hátekjuskatti,“ segir hann.
Mikið óselt
Talað er um hálfgert ævintýri þeg-
ar kemur að makrílveiðunum og er
sagt að þetta séu ein mestu upp-
grip hjá íslenskum sjómönnum síð-
an loðna fór að veiðast við landið.
Daði tekur undir að veiðin sé mik-
il en segir þó ekkert vera á hreinu
um aflaverðmæti. Verðið á makr-
íl sé mun lægra en í fyrra. „Makríll-
inn sem veiðist við landið er alltaf að
stækka og erum við komnir í makríl
sem er fimm hundruð grömm og
þyngri. Hann nýtist vel til manneld-
is. Verð á þessum fiski er þó ekki al-
mennilega komið í ljós,“ segir Daði
en tekur fram að sjómenn hafi þó
ágætis tekjur af þessu eins og er.
„Það er þó mikið af þessu óselt og
ekkert verð komið á makrílinn eins
og er. Þannig að það yrði skot út
í bláinn ef ég ætti að fara að nefna
einhverja tölu,“ segir Daði.
Hann segir makrílinn sem veiðist
hér við land ekki vera í sama gæða-
flokki og þann sem veiðist hjá hin-
um Evrópuþjóðunum en þar er
hann veiddur seint á haustin. „Þessi
makríll kemur þó í stórum stíl og
það er nákvæmlega sama hvar við
leggjum, við fáum alltaf makríl. Jafn-
vel þó að leitartækin okkar sjái ekki
makríl getum við samt lagt út og við
fáum fisk.“
Meistari Helgi Seljan
Aðspurður hvernig Helgi Seljan hafi
staðið sig um borð segir Daði: „Al-
veg eins og meistari. Hann er búinn
að vera með okkur í mörg ár. Byrjaði
hér sem púki og hefur alltaf stað-
ið sig afar vel enda af miklu vinnu-
mannakyni kominn. Pabbi hans er
hörkunagli og vel þekktur sem slík-
ur.“
Lítið kvartað undan kokknum
Daniel Lecki er kokkur um borð
í Aðalsteini Jónssyni og þegar vel
gengur er kokkurinn ávallt ánægður
um borð. „Maður vonar það besta
þegar maður fer á sjó og það geng-
ur mjög vel núna,“ segir Daniel Lecki
kampakátur er DV náði tali af hon-
um. „Það er ágætis veiði en við erum
að leita að sem stærstum fiski,“ seg-
ir Daniel en hann segir afar gott að
vera á Aðalsteini Jónssyni. „Maður
er í miklu betra skapi hérna og ég er
að gera mitt besta.“ Hann segir mat-
seldina ganga ágætlega og veit ekki
til þess að margir hafi kvartað.
Daniel er lærður kokkur en hann
segist ekki hafa byrjað sem slíkur er
hann hóf sjómennskuna hér á landi.
„Ég var til sjós í Grindavík og þá
slasaðist kokkurinn um borð. Skip-
stjórinn þar vissi að ég væri lærður
kokkur og bað mig um að elda. Ég
var ekki mikið fyrir það en tók það
að mér. Ég var ótrúlega stressaður
fyrstu nóttina og svaf ekki og svitn-
aði alla nóttina. Svo gekk þetta bara
vel og ég hef verið til sjós sem kokk-
ur níu ár eftir það,“ segir Daniel.
„Loksins aftur gott
að vera sjómaður“
Sjónvarpsstjarnan Helgi Seljan tekur þátt í mokveiði á makríl á Aðalsteini Jónssyni frá Eskifirði á miðun-
um austur af landi. Er talað um að sjómenn hafi ágætis þénustu á meðan á makrílveiðum stendur en áhöfnin
á Aðalsteini hefur farið þrjá túra í sumar og fengið fullfermi af makríl í hvert skipti.
Pabbi hans er hörkunagli og
vel þekktur sem slíkur.
birGir oLGeirSSon
blaðamaður skrifar: birgir@dv.is
Daði skipstjóri DaðiÞorsteinssonerskipstjóri
áAðalsteiniJónssynifráEskifirði.Daðisegirhag
sjómannahafavænkasteftirnokkurmögurárá
meðanuppgangurvarílandi.
Helgi Seljan býr sig undir vinnslu Kastljóssmaðurinnbýrsigundirvinnsluum
borðíAðalsteiniJónssyni.HelgihefurveriðtilsjósáAðalsteiniámeðanKastljósiðerí
fríi.„Égværiaðljúgaþvíefégsegðiaðþettaværieinhveráhugamennska.“
Góður mórall DaðiÞorsteinssonsegir
góðanmóralveraumborðíAðalsteini
Jónssyniogerumennduglegirviðað
bloggaumlífiðumborðískipinu.Þará
meðalhefurHelgiSeljanstungiðniður
penna.